Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Listakonan Miriam lifir draumalífi í Ölpunum: „Ísland er ljósið mitt. Mitt time out“

Listakonan Miriam lifir draumalífi í Ölpunum: „Ísland er ljósið mitt. Mitt time out“
Miriam Fissers Ath. Klikka á mynd til að sjá hana skýra Mynd: Aðsend

Miriam Fissers er kona margra heima. Hún ólst upp í Belgíu og á Íslandi en býr nú í sviss­nesku Ölpunum þar sem hún ann­ast börn sín og eldri borg­ara af alúð en dansar nakin þess á milli og málar og teiknar fal­legar myndir. Mannlíf sló á þráð­inn.

Þegar Miriam er spurð um það hver hún sé og hvar hennar rætur liggi kemur fyrst þögn. En svo svarar hún.

„Rætur? Það er stórt orð. Ég fædd­ist í Antwerpen, Belgíu og bjó þar fram að níu ára aldri. Það sem ég man er að ég var ósköp venju­legt borg­ar­barn. Átti for­eldra, ömmur og afa, frændur og frænkur, þetta venju­lega. En þađ var alltaf mikil spenna á heim­il­inu. Ég man eftir því. Og ég fann enga sér­staka til­finn­ingu, ađ til­heyra ein­hverju sem fór út fyrir veggi heim­il­is­ins. Pabbi minn átti erfitt međ ađ finna sig í líf­inu og 1991 var ákveðið að flytja til Íslands. Breyta til. Byrja upp á nýtt. Mamma hafði mik­inn áhuga á steinum og jarð­fræði og fór ein til Íslands í frí 1987. Nokkrum árum síðar sýndi hún okkur Ísland og var þá ákveðið að flytja þangað. Skilja stress stór­borg­ar­innar eftir og flytja í rólegra umhverfi.“

Reyðfirðingurinn Miriam

Fjöl­skylda Miriam flutti austur á Reyð­ar­fjörð og var strax afar vel tekið af bæj­ar­búum.

„Það var í þessu litla þorpi fyrir austan að ég upp­lifði fyrst ađ vera frjálst barn sem kom bara heim til ađ borða og sofa. Lærði strax íslensku og varð bara Reyð­firđingur eins og ekk­ert væri. Enda voru með fyrstu orð­unum sem ég lærði orð eins og „koma ađ leika?“ og „sam­ferđa?“. Það segir margt um það hvernig tekið var á móti okkur.“

Miriam Fissers Ath. Klikka á mynd til að sjá hana skýra

Miriam, sem var kenn­ara­barn varð fljót­lega eftir kom­una til Íslands, einnig skiln­að­ar­barn, rétt eins og systir hennar sem er fjórum árum eldri. „Ég held að ég sé frekar mikið skóla­bóka­dæmi hvað það varðar, að vera skiln­að­ar­barn.“ Pabbi hennar flutti norður á Sauð­ár­krók en mamma hennar býr enn á Reyð­ar­firði þar sem hún er ham­ingju­sam­lega gift sönnum Reyð­firð­ingi en saman reka þau gisti­heim­ili.

Örlagadísirnar snarvitlausu

Eftir mennta­skóla flakk­aði Miriam tals­vert á milli beggja heima­landa sinna, Íslands og Belgíu eða þar til hún kynnt­ist manni sínum.

„Eftir margra ára flakk kynnt­ist ég svo mann­inum mínum. Hann er Sviss­lend­ingur og ég var ekki lengi ađ ákveða að eiga bara heima þar. Þetta er ótrú­lega fjöl­breytt og fal­legt land. Svo er Sviss eig­in­lega eyja í miðri Evrópu. Ég kann að vera eyja­skeggur. Það að vera kvenn­leg, frjáls­lynd skelli­bjalla sem segir oftar en ekki bara það sem hún hugsar er eitt­hvað sem suð­ur­hluti Sviss á stundum erfitt með. En ég geri mitt besta ađ kenna þeim,“ segir Miriam og hlær.

Þegar Miriam fær hinu klénu spurn­ingu hvert örlagadís­irnar hafi leitt hana í líf­inu stendur ekki á svörum hjá henni.

„Um allt held ég. Þegar ég flutti til Íslands. Þegar ég kynn­ist mann­inum mínum. Hann átti pantað borð á veit­inga­stað í Antwerpen, ásamt vinnu­fé­lögum. Veit­inga­stað­ur­inn var svo yfir­bók­aður og hann end­aði við mitt borð á allt öðrum veit­inga­stað. Þetta kvöld átti ég einnig ađ vera ann­ars­staðar. Ég elska örlagadís­irnar. Þær eru snar­vit­lausar en ég treysti því að þær hafi alltaf leitt mig í rétta átt.“

Í dag á Miriam þrjú börn en hún furðar sig á hverjum degi hversu heppin hún sé.

„Ég á þrjú ynd­is­leg börn og það líður ekki sá dagur að ég hugsa ekki að minnsta kosti einu sinni „Vá?! Hvernig í and­skot­anum fór ég að þessu? Geggjað!“

Börnin þrjú stilla sér upp Aðsend Ath. Klikka á mynd til að sjá hana skýra

En Miriam hefur upp­lifað sinn skerf að áföllum eins og flestir. Sjálfs­morð hafa verið partur af lífi hennar annað slagið í gegnum árin.

„Ef það er eitt­hvað sem hefur sett sitt mark á mig eru það þrjú sjálfs­víg sem fólk í kringum mig frömdu. Ungur strákur á Reyð­ar­firði, frændi minn og afi minn. Ég var of ung til að skilja lífið til fulls þegar ég fór í jarð­ar­för 19 ára stráks heima. En að sjá heilt þorp gráta svona inni­lega, öll­sömul, er eitt­hvað sem ég gleymi aldrei. Ég var svo komin sjö mán­uði á leið međ mitt þriðja barn þegar afi minn fyr­ir­fór sér. Að vera ólétt í jarð­ar­för hans vakti til­finn­ingu sem ég hef ekki enn náð ađ nefna á nafn en þetta var auð­vitað hrika­lega erfitt.“

Lífið í Sviss

Aðspurð segir Miriam að lífið í Sviss sé henni gott þó það mætti vera meira jafn­rétti milli kynj­anna, „en þađ er svo sem ekk­ert nýtt.“

„Sviss er mjög skipt land og mis­mun­andi lög gilda í hverju fylki. Síðasta fylkið sem veitti konum kosn­inga­rétt var að ég held árið 1991!. Hér eru töluð fjögur tungu­mál en ég tala tvö þeirra mjög vel, eitt þeirra illa og skil það fjórða. Tungumál eru að mínu mati mjög tengd menn­ingu fólks og því einnig hug­ar­farið. Þetta segir margt um Sviss.

Sviss­lend­ingar eiga hrein­lega erfitt með að tala sama tungu­málið sín á milli en eru í heild mjög stolt af þess­ari heild sem kall­ast Sviss. Per­sónu­lega finnst mér „Sviss­lend­ingur“ svipað og að segja „Evr­ópu­búi“. Þađ er varla nákvæmt.“En þrátt fyrir að því er virð­ist nokkuð flókið sam­fé­lag í Sviss, líður henni vel þar enda mikið nátt­úru­barn. Fjöl­skyldan býr í 30.000 manna borg sem heitir Bellinzona og er í Ölpunum þar sem Miriam vinnur á dval­ar­heim­ili aldr­aðra.

Nátt­úru­barnið Miriam Aðsend Ath. Klikka á mynd til að sjá hana skýra

„Ég er rosa­lega mikið nátt­úru­barn. Það er ein mesta ástæðan fyrir því að ég elska þetta land. Það er bara ótrú­lega fal­legt. Ef ég fengi ađ ráða væri ég löngu flutt í kofa upp í fjöllum með fléttur í hár­inu, með geitur á beit á hallandi túni. En ég man hversu inni­lega ég hataði smá­bæj­ar­líf sem ung­lingur og mun halda mér nálægt menn­ingu og mann­lífi á meðan börnin eru að vaxa úr grasi. Þau hafa alltaf aðgang að bæði menn­ingu jafnt sem nátt­uru og eru ansi heppin hvað það varðar held ég bara. Við eigum hús upp í fjöllum sem við notum stundum um helgar og í fríum.“Miriam seg­ist ekki leið­ast þegar hún hefur tíma fyrir sjálfa sig en hún hefur til að mynda mjög gaman af því að vera í „Carpool kara­oki“ með sjálfri sér í bílnum þegar hún þeys­ist um hrað­braut­irnar og svo á hún það til að dansa nakin inni á baði og ímynda sér að það sé jóga­æf­ing. Og svo er það sköp­unin.

„Mála, teikna, skapa eitt­hvað. Hend­urnar eru oft­ast úta­taðar í máln­inga­blettum eða með flísar eftir föndur, nú eða með olíu­bletti á sér eftir ađ ég hef tekið eitt­hvað í sundur sem ég næ svo ekki ađ setja saman aftur. Svo elska ég fjall­göngur. Alls ekk­ert pró­fes­sjónal. Ég vil taka minn tíma og skoða allt í kringum mig.“

Listin og lífið

En hefur listin alltaf verið við­loð­andi Miriam?

„Alltaf. Afi minn í föð­ur­ætt var snill­ingur og mamma mín er ótrú­lega flink líka. Svo ólst ég upp sjón­varps­laus og mamma bara hvatti mig alltaf til ađ mála og teikna. Ef ég fæ ekki að gera jóga inni á baði þá er mitt innra „zen“ að mála. Skapa. Dreyma upp­hátt á blaði eða striga. Það sem ég hef alltaf elskað viđ Ísland er birtan og ef ég næ að koma þess­ari birtu fyrir á mynd þá hef ég náð ein­hvers­konar nir­vana.“

Málverk: Miriam Fissers Ath. Klikka á mynd til að sjá hana skýra
Málverk: Miriam Fissers Ath. Klikka á mynd til að sjá hana skýra

Þegar Miriam er spurð að því hvort hún lifi af list­inni er svarið aðdrátt­ar­laust nei.

„Guð nei. Það er allt annað nir­vana. Eitthvað sem mig dreymir um. Og ef ég myndi nú skipu­leggja mig betur og kom­ast inn í 21 öld­ina hvað varðar það að vilja nýta mér netið til fulls þá held ég ađ þetta tæk­ist hjá mér. En ég er þrjósk. Og pínu hæna. Ég er jarð­bundin og skipu­lögð þegar þess þarf. En athygl­is­brest­ur­inn kemur alltaf upp þegar ég er í skap­andi stuði. Húsið okkar er á þremur hæðum. Ég er međ vinnu­her­bergi upp í risi og vinnu­svæði í kjall­ar­anum. Þegar ég er í skap­andi stuði fer ég á milli hæða og missi mig bara. Alltaf með 37 verk­efni í gangi í einu, svo ég tala nú ekki um það þegar ég geng svo fram­hjá eld­hús­inu og fer allt í einu ađ baka. Ég efast um ađ ég gæti staðið viđ ein­hver „dea­d­line“ ef þetta yrði atvinnan mín. En ég læt mig samt dreyma. Alltaf.“

Teikning: Miriam Fissers Ath. Klikka á mynd til að sjá hana skýra

Ísland er ljósið mitt

Nú hefur Miriam búið í Sviss í um 15 ár en hug­ur­inn leitar oft heim til Íslands.

„Ísland er ljósið mitt. Mitt time out. Eyjan þar sem ég varð ég. Þar er mamma. Þar er dekur. Þar er öll mín nostal­gía. Æskan og svo margt sem teng­ist henni. Æsku­vinir og æsku­slóðir. Ævintýri, gömul og ný. Þar er ekki alltaf best að vera en þar er alltaf ein­hver heima­til­finn­ing. Þegar ein­hver spyr mig hvaðan ég er þá svara ég alltaf stolt að ég hafi alist upp á Íslandi. Margir hafa sagt mér að það komi alltaf upp ljós í augun þegar ég tala um Ísland. Já, Ísland er ljósið mitt.“

Teikning: Miriam Fissers Ath. Klikka á mynd til að sjá hana skýra

Þegar Miriam er spurð út í fram­tíð­ina seg­ist hún enn vera að hugsa hvað hana langi að verða þegar hún er orðin stór.

„Ég stend í skiln­aði eins og er og þađ er tíma­frekt og erfitt verk­efni en ég treysti því að þetta muni ganga eins og það á að ganga fyrir sig. Ég hef aldrei hætt ađ sjá alla feg­urð­ina og þá gæfu sem umlykur mig. Allt þarf tíma. Heilsan er mín megin. Ég mun njóta þess í botn að upp­götva nýjar leiðir, nýtt fólk, ný ævin­týri, sam­ferða börn­unum mínum og læra von­andi sem mest af þeim. Þau eru eini skól­inn sem hefur kennt mér allt það sem er mik­il­vægt og ég hlakka til að taka fleiri áfanga með þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð