Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Strætó snarhækkar fargjöld ungmenna og aldraðra: „Takk stjórnendur strætó!!!“

Strætó snarhækkar fargjöld ungmenna og aldraðra: „Takk stjórnendur strætó!!!“

Boðuð breyt­ing á gjald­skrá Strætó hefur farið fyrir brjóstið á mörgum neyt­endum. Hækkanir dynja á þeim sem síst skyldi, öldruðum og ung­mennum. Dæmi eru um hækk­anir upp á allt að 60 pró­sentum.

Til að mynda er vakin athygli á breyt­ing­unni í Facebook-hópnum „Vertu á verði – eft­ir­lit með verð­lagi“.

„Af hverju fá ekki aldr­aðir frítt?“ spyr þar Gunnar nokkur.

Fleiri tjá sig við upp­hafs­færsl­una og velta fyrir sér, líkt og Gunnar, hvers vegna ákveðnir hópar séu ekki farnir að ferð­ast frítt með strætó. Eru þar náms­menn nefndir, sem og börn.

„Það er búið að einka­vina­væða strætó­kerfið“

Reyndar munu börn yngri en 11 ára ferð­ast frítt með strætó, en þarna er þó lík­lega átt við laga­lega skil­grein­ingu á börnum; ein­stak­linga undir 18 ára aldri.

„Það er búið að einka­vina­væða strætó­kerfið og laun þar keyrð niður í eins lág laun og hægt er að finna. Samt er þetta rekið með tapi. Sem sýnir bara enn og aftur að kapital­ismi er ekki að virka. En það er eins og það megi ekki við­ur­kenna það,“ segir Gunnar.

Anna bendir á að börn upp að 12 ára aldri fái frítt í strætó. Hildur nokkur svarar henni með eft­ir­far­andi hætti:

„Á móti þá hækka árskort ung­linga 12-17 úr 25.000 kr upp í 40.000 kr. Nemakort lækka niður í 40.000 kr. svo ung­lingur sem hefur fjár­hags­stuðn­ing til að stunda nám og svo áfram á full­orð­ins aldri í háskóla borgar áfram það sama og 12-17 ára barn/ung­lingur, eða 40.000 kr. Þeir sem detta úr fram­halds­námi 18 ára greiða 80.000 kr fyrir árskort. Það eru helst börn öryrkja og efna­minni sem þurfa að vinna frekar en stunda nám. Þegar barn verður full­orðið, 18 ára, þá hætta auð­vitað allir styrkir vegna barna en fyrir utan það þá drag­ast auka­lega af bót­unum heim­il­is­upp­bót sem er um 53.000 kr fyrir skatt og fram­færslu­upp­bót lækkar úr 52.000 kr niður í 38.000 kr fyrir skatt. Svo takk stjórn­endur strætó!!!“

Guðný telur gjald­skrána ekki hald­ast í hendur við mark­mið borg­ar­innar:

„Það er ekki skrítið að þeir séu hálf tómir á borgin ekki að vera græn og minnka bíla­notk­un­ina og nota strætó?“

Ásta tekur undir með Guðnýju.

„Þetta er fárán­legt! Þvílík hvatn­ing að minnka notkun einka­bíls­ins. Þetta þýðir bara að ég á eftir að skutla mínum börnum meira því ég hef ekki efni á strætó og bíl eftir þessa hækkun. Og að ekki sé lengur hægt að greiða með strætómiðum, hverju sætir það!? Ég á slatta af þessum miðum…..hvernig á ég þá að borga ef ég fer örsjaldan í strætó?“

Á hún þar við að gömlu strætómið­arnir munu falla úr gildi og ekki vera til sölu lengur. Á vef­síðu strætó segir hins­vegar:

„Frá og með 1. mars 2022, þá verður ekki lengur hægt að greiða með far­miðum um borð í Strætó á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Gefinn verður frestur til 16. mars 2022 til þess að skipta öllum gömlum far­miðum yfir í inn­eign í KLAPP greiðslu­kerf­inu.“

Neyt­endur sem eiga miða munu því geta fengið þeim breytt í inn­eign.

Breytingin er væntanleg þann 16. nóvember og í tilkynningu Strætó frá 2. nóvember segir:

„Samhliða inn­leið­ingu á nýja raf­ræna greiðslu­kerf­inu KLAPP, þann 16. nóv­em­ber 2021, þá verða einnig gerðar breyt­ingar á gjald­skrá Strætó. Markmið breyt­ing­ar­innar er fyrst og fremst að ein­falda gjald­skrána og gera öllum hópum kleift að kaupa mán­að­ar­kort á hag­stæðu verði.“

Breyt­ingin á almennum far­gjöldum er á þann veg að mán­að­ar­kort full­orð­inna lækkar í verði, úr 13.300 krónum niður í 8.000 krónur.

Hins­vegar mun til­boð í app­inu, þar sem þriðji hver mán­uður er frír, ekki lengur vera í boði. Engin breyt­ing verður á árskorti, sem fæst á 80.000 krónur, eða stöku far­gjaldi, sem enn verður á 490 krónur.

Börn yngri en 11 ára ferð­ast frítt með strætó.

Töluverð breyt­ing verður gerð á gjald­skrá bæði ung­menna 12-17 ára og eldri borg­ara, 67 ára og eldri.

Í til­felli beggja þess­ara hópa heldur stakt far­gjald sama verð­miða, 245 krónur. Í fyrsta sinn munu hóp­arnir geta keypt stakan mánuð og mun hann kosta 4.000 krónur. Hins­vegar hækkar verð árskorts úr 25.000 krónum upp í 40.000 krónur. Það gerir hækkun upp á 60 pró­sent.

Breyt­ingar í til­felli öryrkja eru allar í formi lækk­ana eða fleiri mögu­leika í kaupum. Þannig lækkar stakt far­gjald úr 245 krónum niður í 170 krónur, stakur mán­uður verður nú í boði á 2.400 krónur og árskort lækkar lít­il­lega, úr 25.000 krónum í 24.000 krónur.

Nemar 18 ára og eldri munu fá dálítið meira fyrir snúð sinn, en á meðan stakt far­gjald helst óbreytt mun verð á árskorti lækka úr 54.500 krónum niður í 40.000 krónur. Það gerir verð­lækkun um tæp­lega 27 pró­sent. Einnig verður hægt að kaupa stakan mánuð á 4.000 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð