Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lára Garðars teiknaði Jesú með brjóst: „Árið þar sem ég teiknaði allt sem „ekki“ mátti, á strætó“

Lára Garðars teiknaði Jesú með brjóst: „Árið þar sem ég teiknaði allt sem „ekki“ mátti, á strætó“
Lára Garð­ars­dóttir Mynd: Saga Sig

Lára Garð­ars­dóttir er fædd í Reykja­vík 21. ágúst 1982. Hún lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Hamra­hlíð 2001, diplómunámi í klass­ískri teikn­ingu og BA í kvikun (Character Animation) frá háskól­anum í Viborg, Danmörku, árið 2008.

Henni er margt til lista lagt og ein af þeim sem er oft með marga bolta á lofti í einu. Hún er teikn­ari, rit­höf­undur og ýmis­legt fleira skap­andi en lík­urnar á að þú hafir séð teikn­ingu eftir hana eru nán­ast 100%. Lára hefur ótrú­lega þægi­lega nær­veru og yfir henni er ein­hver ein­stök ró. Mannlíf ræddi við hana um lífið og til­ver­una, ástríð­una, stóra Jesúmálið og nýju barna­bók­ina hennar sem var að koma út.

Lára Garð­ars­dóttir

Aðspurð seg­ist Lára vera intró­vert með mikla rétt­læt­is­kennd. „Ég er svo­lít­ill skelli­bjöllu-intró­vert sem er með bil­aða rétt­læt­is­kennd og hef gaman af sögum. Ég er rit­höf­undur, teikn­ari, kvik­ari, hönn­uður og flest það sem nýta mætti til frá­sagnar.“

Lára segir rætur sína liggja víða, allt frá Vesturbæ Reykja­víkur, austur á Hérað og suður til Indlands. Hún er í sam­búð með Þresti Elvari Ósk­ars­syni en saman eiga þau hund, kött og nokkra fiska eða eins og hún kallar heim­ilið, „sann­kall­aður dýra­garður.“

Blaða­maður Mannlífs er ekki frum­legri en það en að spyrja hana að örlagadís­unum gömlu og góðu en honum til varnar, koma oft góð svör við spurn­ing­unni. Svo hvert hafa þær leitt Láru í gegnum tíð­ina?

„Heilt yfir má segja að þær leiði mig alltaf á betri stað. Ég er ekki frá því að þær séu mér
hlið­hollar. Þær hafa leitt mig frá aðstæðum og ein­stak­lingum sem hafa ekki verið mér hollar/ir og gefið mér mögu­leik­ann á að starfa og lifa af ástríð­unni. Ég hef alltaf keppt við kvíð­ann en keppn­is­skapið og eljan hafa bless­un­ar­lega haft yfir­hönd­ina.“

Þegar Lára er spurð út í helstu sigra og töp í líf­inu, hnýtir hún þessa póla saman í eitt svar.

„Nú langar mig að nefna eitt­hvað afrek eða við­ur­kenn­ingu tengdri vinn­unni minni, en þá væri ég að ljúga. Minn helsti sigur er að ná mér eftir and­legt hrun, sem leiddi til kuln­unar. Mér leið eins og húsi með mork­inn grunn og var þess hand­viss um að eina leiðin væri að rífa kof­ann. En eftir sleitu­lausa vinnu með góðu fólki hef ég aftur löng­un­ina á að skapa og tengj­ast.“

Lára hefur komið víða við í störfum sínum og unnið að ýmsum verk­efnum og sum þeirra hafa reyndar ekki farið vel ofan í alla. Allir muna eftir stóra Jesúmál­inu, þegar Jesú með brjóst birt­ist á stræt­is­vagni og allt ætl­aði vit­laust að verða. Það var sem sagt Lára sem teikn­aði þennan Jesú að beiðni Kirkj­unnar.

Lára hopp­andi glöð með stræt­ó­ferð­ina

„Hvað get ég sagt?“ svarar Lára og hlær. „Mér var falið að teikna Jesú sem konu. Það fór víst ekki fram­hjá neinum. En þetta var lær­dóms­ríkt og máttur teikn­ing­ar­innar sann­aði sig enn eina ferð­ina. Ég er enn stolt af verk­efn­inu með Kirkj­unni en á sama tíma hryggir það mig. Það hryggir mig að við séum ekki komin lengra sem sam­fé­lag í að fagna fjöl­breyti­leik­anum.“

En þetta var ekki eina umdeilda teikn­ingin sem Lára teikn­aði utan á stræt­is­vagn árið 2020.

„2020 var svo­lítið árið sem þar ég teikn­aði allt sem „ekki“ mátti, á strætó. Fyrst teikn­aði ég „barna­vagn­inn” fyrir ljós­mæður og svo trans-Jesú! Eftir rúmt ár fæ ég loks­ins tæki­færi á að leið­rétta að ég teikn­aði aldrei farða á Jesú – sann­an­lega fékk hann/hún/hán brjóst en aldrei farða,“ segir Lára bros­andi.

En hvað ætli hafi kveikt áhuga Láru á teikn­ingum?

„Um það leyti sem ég varð ást­fang­inn af Bart Simpsons, sirka þegar ég var 8 ára. En guð forði mér frá að ég hafi ætlað eða látið mig dreyma um að vinna við það.“

Lára seg­ist sækja orku og ró í nátt­úr­una. „Það er fátt eitt sem getur fangað
huga manns og fiðrað hjartað eins og nátt­úran. En hún hræðir líka. Ætli ég sé ekki helst
nátt­úru­barn í blíð­viðri.“

En hvað gerir Lára þegar hún er ekki að vinna? Hún hlýtur að eiga sér áhuga­mál eins og flestir eða hvað?

„Ég skapa mér til skemmt­unar þó verk­færin geti verið mis­mun­andi. Mið­ill­inn veltir á skapi og nennu. Auk þess hef ég dálæti af hvers kyns við­haldi, jafn­und­ar­lega og það kann að hljóma. En upp­bygg­ing gam­alla húsa og að skapa fal­legan ramma utan um til­ver­una, skreyta hana og fegra finnst mér skemmti­legt. Alveg að fólk­inu og dýr­unum mínum ólöst­uðum, án þeirra væri auð­vitað ekk­ert í heim­inum skemmti­legt.“

Lára hefur verið mynd og rit­höf­undur þó nokk­urra bóka en í ár kemur út þriðja barna­bókin sem hún skrifar sjálf og teiknar mynd­irnar í. Áður hafði hún gefið úr tvær barna­bækur og teiknað mynd­irnar í þeim líka. Það eru bæk­urnar Flökku­saga sem hún gaf út sjálf árið 2016 og Blesa og leitin að grænna grasi sem Salka gaf út 2019. Nýja bókin heitir Þegar ég verð stór en það er Salka sem gefur hana út. Fyrir Flökku­sögu hlaut Lára við­ur­kenn­ingu IBBY og var hún einnig gefin út á ensku undir heit­inu Bear With Me. Þá var Lára einnig til­nefnd til Barna­bóka­verð­launa Reykja­vík­ur­borgar fyrir teikn­ing­arnar í bók­inni Fjöl­skyldan mín í flokknum bestu mynd­skreyt­ing­arnar.

En að nýju bók­inni, Þegar ég verð stór.

„Sagan eða ljóðið er til­einkað Bertram Snæ, syst­ur­syni mínum og er skrifað þegar hann var árs gam­all. Það má telj­ast óvenju­legt en þá varð sagan fyrst að teikni­mynd áður en hún kom út í bók­ar­formi 14 árum seinna. En hún var skrifuð á ensku og var loka­verk­efnið mitt sem kvik­ari (character ani­mator).“

Lára og nýja bókin

En um hvað er bókin? Hver er boð­skap­ur­inn?

„Við þekkjum víst öll til­finn­ing­una um að láta okkur dreyma um allt það við ætlum þegar við erum orðin stór, klárum skól­ann, heima­námið, komin í frí, þegar hann lygnir eða hvað sem okkur finnst vera að hefta okkur. Draumanna má njóta, þeir stytta okkur stundir og oft þarf ekki meira til til að njóta stund­ar­innar. En þeir eru og þurfa ekki að vera meira en bara það. Fram­tíðin má alveg vera galopnar dyr.“

Mannlíf þakkar Láru fyrir sam­talið og óskar henni góðs gengis í jóla­bóka­flóð­inu sem virð­ist ætla að verða flennistórt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð