Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Móeiður söng varla í bílnum- „þarna var ég orðin söluvara“

Móeiður söng varla í bílnum- „þarna var ég orðin söluvara“
Mynd. Skjáskot/RÚV

Móeiður Jún­í­us­dóttir var áber­andi í íslensku tón­listar- og sam­kvæmislífi tengdi sjálfs­mynd sína mikið rödd­inni, eða þangað til hún tók ákvörðun um að syngja ekki meira. Í tvo ára­tugi söng hún varla í bílnum. Þar til allt í einu tón­listin fann hana á ný, segir í við­tali við söng­kon­una í við­tali á Frétta­blað­inu.

Missti föður sinn 10 ára gömul

Móeiður eða Móa eins og hún er oft­ast kölluð missti föður sinn, Júníus H. Krist­ins­son sagn­fræð­ing, aðeins 10 ára gömul. Hann lést frá mörgum börnum, hafði verið veikur og þau veik­indi leiddu til skyndi­legs and­láts.“

„Mamma hefur verið ofsa­lega sterk og ég hef horft á hana fara í gegnum rosa­lega margt, að missa maka sinn frá ungum börnum. Það hefur sterk áhrif á mann, ég tala nú ekki um þegar ég varð sjálf móðir,“ segir Móheiður.

„Ég er alin upp við gríð­ar­lega sterka móð­urí­mynd,“ segir Móa, sem er miðju­barnið í sex systk­ina hópi. „Ég þurfti því að berj­ast fyrir til­veru­rétti mínum, sér­lega þegar ég eign­að­ist tví­bura­bræður fjög­urra ára gömul. Ég var í vondu skapi mjög lengi eftir til­komu þeirra.“

Ástarsamband á milli mín og þess

Móa fann ung skjól í heimi tón­listar og segir píanó heim­il­is­ins hafa verið hennar heim.

„Mamma er mjög mús­ík­ölsk og hefur alltaf sungið mikið en það er mikið af óperu­söng­konum í fjöl­skyld­unni. Ég man ég skamm­að­ist mín mikið því hún er með svo sterka rödd og söng svo hátt, sér­lega þegar hún var í góðu skapi.“

„Það var alltaf mikil tón­list í kringum mig, en það sem breytti gjör­sam­lega öllu og ég man eins og gerst hafi í gær, var þegar píanó kom á heim­ilið. Það skap­að­ist ást­ar­sam­band á milli mín og þess.“

Vinkona fjöl­skyld­unnar þurfti að losna við píanó og fékk það inni á barn­mörgu heim­il­inu. Það kemur ákveðin værð yfir Móu þegar hún talar um hljóð­færið sem öllu breytti.

„Þetta var gam­alt píanó af vell­inum þar sem það hafði verið notað í Offisera­klúbbnum sem djas­spí­anó. Það höfðu því­líkar goða­sagnir spilað á þetta píanó og maður fann fyrir því. En það var orðið lúið og allt í bruna­blettum eftir sígar­ettur.“

„Ég var þó byrjuð að spila og semja fyrr, tók upp á kasettu­tæki og gerði til­raunir. Það var minn heimur löngu áður en ég byrj­aði að syngja. Teng­ingin var svo­lítið trú­ar­leg því mér fannst þetta sem aðgengi að ein­hverju miklu stærra, guð­dóm­legu, heimi sem var enda­laus.“

Móa hafði alltaf verið góður náms­maður svo flestir héldu að hún færi hina beinu akademísku leið, yrði til dæmis lög­fræð­ingur.

„En þegar ég byrj­aði að syngja fann ég að ég væri á réttum stað. Mér leið best syngj­andi á sviði og upp­lifði aldrei sviðs­skrekk.“

Eftir nokkur ár þar sem Móa söng ann­arra lög fann hún aftur þörf­ina til að semja tón­list. Hún gerði þá upp djass­tíma­bilið með plötu og var svo ákveðin í að leggja það tíma­bil til hliðar og fara nýja leið.

Þarna var ég orðin söluvara

„Ég gaf næst út plötu með dúó­inu Bong sem ég var í með þáver­andi eig­in­manni mínum, Eyþóri Arnalds og kom hún út árið 1994. Raf­magns­tón­list og rave-menn­ingin var mikið að koma inn og þetta voru spenn­andi tímar. Ég var strax ákveðin í að ég vildi syngja á ensku því mig lang­aði að fara út og var með stóra drauma. Ég yfir­gaf það sem hafði gengið rosa­lega vel og lang­aði að gera annað.“

Bong gerði samn­ing við breskt plötu­fyr­ir­tæki sem gaf út smá­skífu sem gerði ágætis hluti á klúbb­unum í London.

„Þarna var ég orðin sölu­vara og sat fundi þar sem fund­ar­gestir voru aðal­lega karlar og umræðu­efnið hvernig best væri að mark­aðs­setja mig. Þetta er harður biss­ness. Það er talað um mann í þriðju per­sónu en maður situr á staðnum.“ Móa fann jafn­framt fyrir pressu um að standa sig, það væri fólk að treysta á hana.

„Maður er orð­inn sölu­vara og það er verið að leggja pen­ing í „vör­una“. Allt í einu var það ekki bara ég að koma fram eins og ég var vön. En sjálf hafði ég ekki hugsað lengra en bara þessa plötu.“

Áhrifin voru djúpstæð

Móa fann sig ekki í þessum stóra heimi og tók ákvörðun um að stíga til hliðar og fara aftur heim en áhrifin voru djúp­stæð.

En gleðin var farin og því fannst Móu ótækt að halda áfram. „Ég kom heim og mig lang­aði hvorki að syngja né gera tón­list. Ég var 28 ára og komin með algjört ógeð á öllu sem þessu fylgdi. Ég hugs­aði með mér að ég nennti ekki í enn eitt boðið,“ segir Móa. Hún vissi þó að hana lang­aði, eins og frá unga aldri, að eign­ast fjöl­skyldu.

„Ég get ekki lýst þessu en ég átti erfitt með að hlusta á tón­list, sem hafði verið líf mitt. Það olli mér dálitlum sárs­auka. Svo fór þetta að koma aftur og lögin streymdu til mín,“ segir Móa, sem ákvað að hafa sam­band við gamlan kunn­ingja og upp­töku­stjóra og taka upp, ekk­ert endi­lega til að gefa út.

„En þessi tón­list­ar­gleði kom aftur og það var svo dásam­legt.“

Eig­in­maður Móu og börnin þrjú höfðu aldrei heyrt hana syngja nema á upp­tökum en hafa stutt hana í að snúa aftur í tón­list­ina. Á dög­unum kom út á Spotify lagið Pure sem Móa semur og flytur og seg­ist hún þakk­lát fyrir góð við­brögð.

Maður verður pínulítið unglingur aftur

„Enda er það ekk­ert sjálf­gefið, sér­stak­lega ekki eftir langan tíma. Maður bara kastar þessu út í loftið og sér til. Ég held að það teng­ist líka svo­lítið aldr­inum og því hvar maður er staddur,“ segir Móa. „Maður verður pínu­lítið ung­lingur aftur, maður er búinn að gefa svo mikið í börnin og þegar þau stækka skap­ast ákveðið rými,“ segir hún að lokum.

„Í fyrsta lagi var ég komin á enda­stöð. Ég var hætt að vera for­vitin. Ég hafði alltaf haft aðgang að þessum heimi sem tón­listin er – fyrir mér var það fal­legur heimur og að ein­hverju leyti trú­ar­legur. Þarna var þetta bara orðið biss­ness. Ég var orðin biss­ness og röddin mín. Þú ert að selja sjálfan þig og það gengur alveg nærri manni, það gerir það.

Hér er hægt að lesa við­talið í heild sinni á Frétta­blað­inu.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð