Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hekla næringafræðingur:„Útbúa hafragrautinn með mjólk frekar en vatni, vera óspar á sósur.“

Hekla næringafræðingur:„Útbúa hafragrautinn með mjólk frekar en vatni, vera óspar á sósur.“
Mynd. Skjáskot/lifðu núna

Hekla McKenzie Árna­dóttir nær­ing­ar­fræð­ingur þykir ótrú­legt að við sjáum ekki betur um eldri borg­ar­ana okkar og talar um það hversu mikil áhrif nær­ing hefur á far­sæla öldrun.

Í við­tali við Sólveigu Bald­urs­dóttur, blaða­mann á Lifðu núna segir Hekla: „Ég ætl­aði alls ekki að fara þessa leið í nám­inu en hafði þó lengi ein­beitt mér að nær­ing­ar­á­standi við­kvæmra hópa. Undir þá skil­grein­ingu falla m.a. aldr­aðir en líka flótta­fólk og inn­flytj­endur, sem er sá hópur sem ég hafði stærstan hluta af mínu námi unnið með.“

Á meðan unga fólkið okkar sýnir mál­efnum eldra fólks áhuga líkt og Hekla gerir er okkur borgið því hjá þeim er oft kraft­ur­inn sem er nauð­syn­legur til breyt­inga. Við þurfum bara að bera gæfu til að hlusta á þau.

Einföld leið til að auka orku

Hekla segir að nauð­syn­legt sé að gæta vel að því að sam­setn­ing mat­ar­ins sé rétt og í hlut­falli við þarfir heim­il­is­fólks­ins. Hekla segir að eðli­legt sé að við borðum minna með hækk­andi aldri en við verðum að vara okkur á að mat­ar­lyst minnkar með aldr­inum umfram minnk­aða orku­þörf.

Hún segir að þörfin fyrir vítamín og stein­efni hald­ist nán­ast óbreytt og sama tíma auk­ist pró­ein­þörfin.

„Þegar kemur að veiku og hrumu eldra fólki skiptir mestu máli að huga að orku­inn­töku. Prótein­þörfin eykst og gott er að orku- og prótín­þétta mál­tíðir. Einföld leið til að auka orku og prótein í mál­tíðum sé til dæmis að útbúa hafra­graut­inn með mjólk frekar en vatni, vera óspar á sósur og nota fullfeitt álegg. Þetta stang­ast á við fæði sem yngra fólki er ráð­lagt að vera á.”

Leið­bein­andi Heklu í nám­inu var Ólöf Guðný Geirs­dóttir dós­ent í nær­ing­ar­fræði við Matvæla- og nær­ing­ar­fræði­deild Háskóla Íslands, en meg­in­við­fangs­efni Ólafar í rann­sóknum er nær­ing­ar­á­stand aldr­aðra ásamt rann­sóknum á hvernig matur og nær­ing hefur áhrif á far­sæla öldrun.

„Áhugi Ólafar á mála­flokknum hafði sann­ar­lega áhrif á mig og það var svo fyrir til­stilli hennar sem ég end­aði á að taka þátt í sam­evr­ópskri rann­sókn um áhrif nær­ing­ar­inn­grips og hreyifí­hlut­unar gegn færniskerð­ingu meðal aldr­aðra. Ég vann svo loka­verk­efnið mitt út frá nið­ur­stöðum íslenska hóps þess­arar rann­sóknar.“

„Sama sumar og ég skrif­aði loka­rit­gerð­ina var mér síðan boðið starf sem nær­ing­ar­fræð­ingur á hjúkr­un­ar­heim­ili. Þar með kvikn­aði áhugi minn á nær­ingu aldr­aðra fyrir alvöru,” segir Hekla sem langar að létta líf fólks á þessu ævi­skeiði.

Vantar sárlega starfsfólk á hjúkrunarheimilin

Hekla segir að mönn­un­ar­vandi sé við­var­andi vanda­mál á hjúkr­un­ar­heim­ilum sem komi eðli­lega niður á heim­il­is­fólk­inu sem flestir eru orðnir mjög full­orðnir.

„Slíkt kemur niður á heim­il­is­mönnum sem og starfs­fólki á hinum ýmsum sviðum. Til dæmis segir það sig sjálft að þegar tíu manns sitja til borðs og sjö af þeim þurfa aðstoð við að mat­ast er ill­mögu­legt að sinna öllum eins og best væri á kosið. Allir sem þekkja til vita að það vantar sár­lega starfs­fólk á hjúkr­un­ar­heim­ilin, sér í lagi fag­fólk til þess að við getum séð sóma­sam­lega um að næra eldri borg­ar­ana okkar.”

Þar er Hekla að tala um nær­ing­ar­fræð­inga, tal­meina­fræð­inga og hjúkr­un­ar­fræð­inga en nær­ing­ar­fræð­ingar eru almennt ekki að störfum inni á slíkum stofn­unum. ,,Það er bráð­nauð­syn­legt að gera reglu­legt mat á nær­ing­ar­á­standi og öðrum nær­ing­ar­þörfum íbúa.“ Hekla nefnir dæmi um konu sem hafði sjálf verið hjúkr­un­ar­fræð­ingur þegar hún var yngri og starfað mikið að öldr­un­ar­málum.

Óskaplega óspennandi og ólystugt

„Þessi kona var komin með heila­bilun en nær­ing hennar var ótrú­lega fábreytt. Starfs­fólk í eld­húsi útbjó mat fyrir hana einu sinni í viku fyrir alla vik­una en það var stapp­aður fiskur og kart­öflur, óskap­lega óspenn­andi og ólystugt en þetta fékk hún á hverjum degi. Í lok vik­unnar var þetta svo orð­inn viku­gam­all fiskur. Þessi staða verður nátt­úr­lega bara af því það er vöntun á þekk­ingu inni á heim­il­unum.

Á hverju hjúkr­un­ar­heim­ili ætti að vera bæði nær­ing­ar­fræð­ingur og tal­meina­fræð­ingur. Þeir sem starfa í eld­hús­inu hafa ekki þekk­ingu til að útbúa sér­fæði eins og mauk­fæði þótt mjög margir starfs­menn sinni þessu starfi vel og eftir bestu getu. Því miður er samt allt of algengt að þessu sé ekki sinnt rétt.”

Hekla ólst upp við ríka mat­ar­menn­ingu hjá for­eldrum sínum og líka hjá móð­ur­ömmu sinni. Sú góða kona er engin önnur en Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur með meiru og nú er Hekla sjálf komin með meist­ara­próf í nær­ing­ar­fræði svo mat­ar­á­hug­inn í fjöl­skyld­unni skil­aði sér til Heklu þótt á annan hátt sé. ,,Ég hef alltaf fylgst vel með starfi ömmu og sat um að hjálpa henni fyrir veislur og mat­ar­mynda­tökur sem barn” segir Hekla.

„Ég var þó ótta­legur mat­ar­gikkur á mínum yngri árum og man til dæmis eftir að hafa farið í ferða­lag með ömmu til þriggja landa og ég held ég hafi ekki smakkað neitt alla ferð­ina nema McDonald’s ham­borg­ara,” segir hún og hlær ,,Ég man að amma var orðin svo­lítið pirruð seinni hluta ferð­ar­innar en hún vildi ekki pína mat­vanda barna­barnið sitt til að smakka á öllum dýr­indis sæl­keramatnum sem okkur stóð til boða,“ segir Hekla og brosir.

Hún seg­ist sjá mikið eftir því núna að hafa verið svona erfið við ömmu sína en nú ætli hún að bæta henni það upp. Hún sé nú sjálf farin að búa og geti búið til kræs­ingar handa ömmu sinni og boðið henni í mat. Hekla eign­að­ist dóttur fyrir ári síðan sem breytti lífi hennar eðli­lega umtals­vert. Hún er samt búin að finna fjöl­ina sem hún vill vera á varð­andi nám sitt og hefur áhuga á áfram­hald­andi námi í þessum fræðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð