Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Linda Sæberg: „Krabbameinið er það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum og mín mesta áskorun“

Linda Sæberg: „Krabbameinið er það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum og mín mesta áskorun“

Í kvöld­við­tali Mannlífs var rætt við Lindu Sæberg sem hefur upp á síðkastið verið á djúpri and­legri veg­ferð með sjálfri sér þar sem hún hefur verið að vinna í gömlum og nýjum áföllum. Hún hefur verið að fara í gegnum gömul áföll, breyta vöðva­minn­inu og lærðum hugs­ana­villum og skoða rót­gróin sam­skipta- og tengsla­mynstur, til að breyta líf­inu til hins betra.

„Ég vernda mitt orku­svið sér­stak­lega mikið og vel hvert orkan mín fær að fara. Hvað fær að taka pláss og hver fær að stíga inn á mitt orku­svið. Samhliða þessu hef ég verið að njóta lífs­ins með börn­unum mínum tveimur og fólk­inu í mínum innsta hring, skoða feg­urð­ina í líf­inu og móta mig sem mann­eskju upp á nýtt.“

Linda er móðir, kona, vin­kona, systir, dóttir, frænka, barna­barn og ótal margt fleira. Hún er menntuð í félags­ráð­gjöf og lýð­heilsu­vís­indum, en rekur versl­un­ina Unalome í dag ásamt því að sinna öðrum verk­efnum tengda líf­inu.

Hún er lif­andi fiðr­ildi sem eltir töfra lífs­ins, nýtur feg­urð­ar­innar, finnur til­finn­ing­arnar og skoðar lífið og allt sem það hefur uppá að bjóða.

Iðkar sjálfsmildi og hlýju gagnvart sjálfri sér og sínum

Linda seg­ist vera Hyper­sensitive Indigo Child sem túlkast sem leit­andi sál, mann­eskja sem er for­vitin um allt sem lífið hefur uppá að bjóða. Hún er mik­ill sjálfs­ástar spek­úlant, iðkar sjálfsmildi og hlýju gagn­vart sjálfri sér og sínum, elskar mann­eskjur og per­sónu­leika þeirra, elskar sögu ein­stak­lings­ins og vil kynn­ast sál þeirra.

Hún seg­ist ekki hafa kom­ist í gegnum 39 árin áfalla­laust frekar en flestir og hefur hún þurft að takast á við ýmis­legt hingað til.

„Mínar helstu áskor­anir í líf­inu hafa verið margar og mis­mun­andi.  Það er því ekki óhjá­kvæmi­legt að standa uppi í dag svona pínu löskuð hér og þar og vera að finna nýja leið til að halda áfram.“

Erf­ið­asta sem ég hef þurft að upplifa og lifa af

„Krabba­meins­veik­indi mín eru það erf­ið­asta sem ég hef farið í gegnum og mín mesta áskorun og ég ætla ekk­ert að gera lítið úr því, það var 100% það erf­ið­asta sem ég hef þurft að upp­lifa og lifa af. En veik­indin hafa einnig verið minn helsti og mesti skóli, auk þess sem þau hafa kennt mér mest á lífið og sjálfa mig. Við það að vera kippt svona gríð­ar­lega úr raun­veru­leik­anum mínum og inn í eitt­hvað ástand sem ég hafði enga stjórn á var mikil lífs­reynsla. Á þessu tíma­bili opn­aði ég veru­lega augun fyrir því hvað alheim­ur­inn og lífið voru að reyna að segja mér og höfðu í raun verið að reyna að segja mér lengi vel, en ég hlustað ekki.

Ég reyndi að hlusta á alla aðra og gera það sem allir hinir vildu að ég gerði, en inni í mér var ég alltaf tóm og óham­ingju­söm.

Ég tók ákvörðun að ef ég fengi að lifa myndi ég hlusta og fylgja alheim­inum, sjá leið­ina mína og leyfa mér að fara þá leið sem ég á að fara. Ég hafði reynt að vera inni í þeim kassa sem sam­fé­lagið og upp­eldið sagði að ég ætti að vera í. Þeim hefð­bundna kassa sem okkur er talin trú um að við eigum að fylgja, og vá hvað ég reyndi. Ég reyndi að hlusta á alla aðra og gera það sem allir hinir vildu að ég gerði, en inni í mér var ég alltaf tóm og óham­ingju­söm. Ég var því ákveðin í því að fylgja ein­ungis mínu eigin inn­sæi, fylgja mínu eigin hjarta og mínum eigin fiðr­ildum og til­finn­ingum.

En til þess þurfti ég fyrst að fara langt inn á við til að vita hver ég var og hvað það var sem ég vildi úr líf­inu. Það var því ákveðin tíma­mót hjá mér þegar ég horfði á sól­ar­upp­rás­ina í Gvatemala í hug­leiðslu í jan­úar 2020 og fann svo ákveðið og sterkt að ég vil ekki það hefð­bundna og venju­lega, ég vil töfrana og ævin­týrin og ást­ina og alla lit­ina og glimmerið og mýkt­ina og gleð­ina og ég vil finna allar til­finn­ing­arnar mínar og upp­lifa allt það sem lífið hefur uppá að bjóða.“

Það ríkir einstaklega falleg orka á heimilinu

Börnin hennar tvö eru hennar helsta stolt og hún dáist að því hversu dásam­lega vel heppn­aðir ein­stak­lingar þau eru þrátt fyrir að þau hafi þurft að upp­lifa ýmis­legt.

„Ég er svo ánægð með það fal­lega sam­bandi sem þau eiga sín á milli og því sam­bandi sem ég á við þau. Það ríkir ein­stak­lega fal­leg orka á heim­il­inu okkar sem ein­kenn­ist af miklum vin­skap og vænt­um­þykju á milli okkar þriggja.

Ég er einnig ótrú­lega stolt af sjálfri mér í hvert sinn sem ég finn mig standa með sjálfri mér og finna þegar ég leyfi mér að gera það sem til­finn­ingin mín segir mér að gera. Þegar ég sé að ég tek ákvörðun út frá mínu hjarta og mínum til­finn­ingum, en ekki því sem aðrir eða sam­fé­lagið eða hið hef­bundna segir að ég eigi að gera. “

Linda segir enn­fremur að hún finni fyrir miklu stolti þegar hún lítur til baka og sér hversu sterk og örugg hún fór í gegnum veik­indi og hversu jákvæð og lífs­glöð hún kom út úr þeim.

„Ég á auð­vitað mína daga eins og allir aðrir, en heilt yfir stend ég mig ótrú­lega vel að standa upp­rétt með mín áföll í fartesk­inu. Ég er að vinna mig hægt og rólega út úr þeim, en á sama tíma að sam­þykkja að allt er þetta partur af sög­unni minni og allt gerði þetta mig að þeirri mann­eskju sem ég er í dag.“

Ég elti ævintýri lífsins

Framundan hjá Lindu er margt mjög spenn­andi og hana hlakkar mikið til þess sem koma skal.

„Ég elti ævin­týri lífs­ins og fylgi því sem alheim­ur­inn færir mér hverju sinni. Að þessu sinni er ég að skoða þau verk­efni sem eru að bjóð­ast og finna þau sem kalla á mig og hvaða verk­efni passa inn í mitt orku­svið. Mér finnst svo margt spenn­andi og heill­andi svo verk­efnin eru ólík, en það er það sem gefur þessu lit. “

Það er svo sann­ar­lega kom­inn jólastemn­ing í Unalome og fólk er tím­an­lega að versla jóla­gjafir í ár að sögn Lindu. Hún hefur verið er versla inn nýjar vörur sem verða komnar fyrir jólin og segir að lokum að:

„það sé alltaf mjög gaman að aðstoða fólk að kaupa jóla­gjafir handa ást­vinum sínum fyrir jólin. “

Hér er hægt að finna slóðin á Unalome verslun.

Instagram: @lindasaeberg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð