Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglan rannsakar sex andlát tengd Dr. Skúla – „Boltinn er núna hjá matsmönnunum“

Lögreglan rannsakar sex andlát tengd Dr. Skúla – „Boltinn er núna hjá matsmönnunum“
Alma Möller veitti Dr. Skúla nýverið starfs­leyfi til næstu 12 mán­uða

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum rann­sakar nú and­lát sex sjúk­linga á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja sem hún telur að gæti hafa verið ótíma­bær eða borið að með sak­næmum hætti. Þá er með­ferð fimm ann­arra sjúk­linga aukreitis til rann­sóknar en rök­studdur grunur er um að þeir hafi verið skráðir í lífsloka­með­ferð án til­efnsi og þar með lífi þeirra stefnt í hættu. Rúv fjall­aði um málið í morgun.

Hér­aðs­dómur Reykja­ness féllst á kröfu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum að að dóm­kvaddir verði tveir mats­menn til að svara fjórum spurn­ingum í tengslum við and­lát eins sjúk­lings. Mats­menn­irnir eiga að svara hver dán­ar­or­sök sjúk­lings­ins var, hvort for­sendur til að hefja lífsloka­með­ferð hafi verið til staðar og verk­lagi við fram­kvæmd hennar fylgt, hvort lyfja­gjöf til handa sjúk­ling­inum hafi verið eðli­leg og hvort rétt hafi verið staðið að sjúk­dóms­grein­ingum sjúk­lings­ins.

Alls eru þá ell­efu mál til rann­sóknar hjá lög­regl­unni er tengj­ast störfum Dr. Skúla Tómasar Gunn­laugs­sonar. Sex sjúk­lingar lét­ust en svo virð­ist sem fimm öðrum hafi verið bjargað frá sömu örlögum. Heil­brigð­is­starfs­maður HSS er einnig með rétt­ar­stöðu sak­born­ings.

Mannlíf hefur greint ítar­lega frá máli fjöl­skyldu Dönu Jóhanns­dóttur sem Dr. Skúli lét setja í lífsloka­með­ferð án þess að Dana hafi verið dauð­vona. Hún lagð­ist inn á HSS í hvíld­ar­inn­lögn. Hún lést 11 vikum eftir að hún lagð­ist þar inn.

Eins og áður hefur komið fram í frétt Mannlífs, veitti Alma Möller land­læknir, Dr. Skúla áfram­hald­andi starfs­leyfi til næstu 12 mán­uða en hann vinnur nú á Land­spít­al­anum. Þetta gerði land­læknir þrátt fyrir að hafa gefið lækn­inum algjöra fall­ein­kunn er hún gaf álit sitt varð­andi and­lát Dönu Jóhanns­dóttur. Athygli vekur að ekki eru til neinar verk­lags­reglur þegar kemur að end­ur­veit­ingu starfs­leyfa lækna.

Sjá frétt: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeð­höndl­aðar sýk­ingar kunni að hafa verið aðal dán­ar­or­sök“
Sjá frétt: Embætti Land­læknis – Engar verk­lags­reglur til um end­ur­veit­ingu starfs­leyfa

Í sam­tali við Mannlíf sagði lög­reglu­full­trúi á Suð­ur­nesjum að rann­sókn á mál­inu miði mjög vel. „Já,já henni miðar mjög vel og það hafa nýlega verið skip­aðir dómskvaðnir mats­menn sem munu fara yfir þau gögn sem lögð eru til grund­vallar og vinna þeirra er bara að hefj­ast. Boltinn er núna hjá mats­mönn­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi