Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dýravæn kaffihús: Algengt að rekstraraðilar beri fyrir sig ofnæmishættu

Dýravæn kaffihús: Algengt að rekstraraðilar beri fyrir sig ofnæmishættu

Frá og með 28. októ­ber árið 2017 var í fyrsta sinn leyfi­legt að fara með hunda og ketti á kaffi­hús og veit­inga­staði á Íslandi, eftir að reglu­gerð þess efnis hafði verið sam­þykkt.

Reglu­gerðin er nokkuð þröng og er í raun bara almennt leyfi frá hinu opin­bera – hver og einn rekstr­ar­að­ili getur svo ákveðið fyrir sig hvort hann leyfi dýr (hunda og ketti) inni á sínum stað.

Til þess að geta leyft gælu­dýr þurfa stað­irnir þó að upp­fylla ákveðin skil­yrði og staðla frá Heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu. Til að mynda skal tryggt að hundar og kettir séu ein­göngu í veit­inga­sölum en ekki í kringum staði þar sem mat­væli eru með­höndluð eða geymd.

Í reglu­gerð­inni segir meðal ann­ars:

Rekstrað­ilar veit­inga­staða í Reykjavík, sem nýta sér þessa heim­ild, skulu til­kynna það til heil­brigð­is­nefndar Reykjavíkur.

Rekstr­ar­að­ilar veit­inga­staða eru ábyrgir fyrir öryggi mat­væla. Þeim ber að tryggja að mat­væli sem þeir fram­leiða og fram­reiða séu varin gegn mengun. Kjósi þeir að veita hundum og köttum (hér eftir dýr) aðgang að veit­inga­sal skulu þeir tryggja að mat­væli verði ekki fyrir mengun af völdum dýranna. Rekstr­ar­að­ila er heim­ilt að vísa frá við­skipta­vinum með dýr.

Aðstaða og fram­koma við dýrin skal vera þannig að vel­ferð þeirra sé tryggð. Dýr þurfa að vera í taumi og eig­andi skal halda þeim hjá sér.

Ísland eftirbátur nágrannalandanna

Skiptar skoð­anir voru á reglu­gerð­inni þegar hún var sam­þykkt á sínum tíma. Formaður Félags ábyrgra hunda­eig­enda, Rakel Linda Krist­jáns­dóttir, fagn­aði henni til að mynda, á meðan for­maður Astma- og ofnæm­is­fé­lags­ins, Fríða Rún Þórð­ar­dóttir, var gagn­rýnin á hana og taldi víst að hún myndi skerða aðgengi fólks að veit­inga­stöðum.

Svipuð umræða kom upp þegar gælu­dýr voru leyfð í stræt­is­vögnum, en ákall þess efnis hafði verið hávært frá gælu­dýra­eig­endum um nokkra hríð, enda hafa gælu­dýr í ól almennt verið leyfð í almenn­ings­sam­göngum í nágranna­löndum okkar um langa hríð. Ekki virð­ast umræður um ofnæmi jafn­há­værar þar.

Ísland er á heild­ina litið nokkuð aft­ar­lega á mer­inni þegar kemur að leyfum og frjáls­ræði tengdu gælu­dýra­haldi í sam­an­burði við nágranna­löndin. Til að mynda er algeng­ara en ekki að leigu­í­búðir banni dýra­hald og dýra­eig­endur geti því lent í tölu­verðu basli þegar skipta þarf um leigu­hús­næði. Í fjöl­býl­is­húsum þarf ávallt leyfi frá meiri­hluta eig­enda fyrir dýra­haldi – nema íbúð­ar­eig­and­inn sem vill bæta fer­fætlingi við fjöl­skyld­una sé með sér­inn­gang.

Til sam­an­burðar er það algeng­ara en ekki í Þýska­landi að leigusalar hafi ekk­ert út á eðli­legt dýra­hald að setja, svo lengi sem látið sé vita af því fyr­ir­fram. Þeir sem banna það eru und­an­tekn­ingin, frekar en reglan. Þar eru hundar sömu­leiðis leyfðir á flestum veit­inga­stöðum, kaffi­húsum, versl­un­ar­mið­stöðvum, skemmti­görðum og almenn­ings­sam­göngum. Kettir ganga iðu­lega lausir, en sé fólk með ketti í ól á sama hátt og hunda gilda sömu reglur um þá og hundana.

Katta­kaffi­hús hafa lengi verið til um allan heim og notið vin­sælda. Fyrsta katta­kaffi­húsið á Íslandi var opnað þann 1. mars 2018 í Berg­staða­stræti og heitir ein­fald­lega Katta­kaffi­húsið. Þar eiga alltaf nokkrir kettir í heim­il­is­leit búsetu og geta réttir aðilar tekið þá að sér að vel ígrund­uðu máli. Á Katta­kaffi­hús­inu er nota­legt að tylla sér niður í mjúkum og loðnum félags­skap, sötra kaffi og gæða sér á ljúf­fengu kruð­eríi. Eins og gefur að skilja eru hundar ekki leyfðir þar.

Mannlíf fór á stúf­ana og athug­aði nokkur kaffi­hús á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með til­liti til þess hvort þau leyfðu hunda og ketti.

Dæmi um kaffihús sem hægt er að taka ferfætlinga með sér á eru:

Kaffi Lauga­lækur, Reykja­vík (Ætlast er til að setið sé á ákveðnum stað með dýrin)

Kaffi Áslákur, Mosfellsbær

Salka Valka, Reykjavík

Coocoo’s Nest, Reykjavík

Luna Flórens, Reykjavík

Pallett, Hafnarfjörður

Grái Kötturinn, Reykjavík

Iða, Reykjavík

Kaffi Loki, Reykja­vík (Reglur virð­ast þó ekki form­legar. Hundar mega ekki vera stórir. Kettir almennt vel­komnir.)

Babalú, Reykjavík

Mun algeng­ara er að kaffi­hús leyfi ekki gælu­dýr. Keðjur á borð við Te og kaffi og Kaffitár eru dæmi um slík. Algengt er að rekstr­ar­að­ilar beri fyrir sig ofnæm­is­hættu, en önnur telja sig hrein­lega ekki hafa kost á að leyfa dýr, út frá reglu­gerð­inni, til að mynda ef eld­hús eru hálf­opin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð