Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Yfirlýsing frá bónda í blóðmeraiðnaði: Lágafell er ekki bær nr. 6 eða 38

Yfirlýsing frá bónda í blóðmeraiðnaði: Lágafell er ekki bær nr. 6 eða 38

Fátt hefur verið rætt meira á Íslandi und­an­farið en hryssu­níð þau er náð­ust á faldar mynda­vélar og birt­ust í heim­ild­ar­mynd sem sýni­leg er á YouTube. Hafa bændur í blóð­mera­brans­anum legið undir ámæli hjá meiri­hluta þjóð­ar­innar síðan mynd­bandið birt­ist. Einn þeirra, bónd­inn á Lága­felli í Austur Land­eyjum gaf fyrir stundu frá sér yfir­lýs­ingu um málið. Yfir­lýs­ing­una má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Yfir­lýs­ing, 25. nóv­em­ber 2021

Yfir­lýs­ing vegna frétta af blóð­merum

– Frá lög­býl­inu Lága­felli í Austur Land­eyjum. Bærinn dreg­inn að ósekju inn í sorg­lega fréttaum­fjöllun um dýra­níð í grein­inni.

Fyrr í vik­unni birt­ist umfjöllun dýra­vernd­un­ar­sam­taka um blóð­töku úr fol­alds­hryssum á íslenskum bónda­bæjum, þar sem dregin var upp slá­andi mynd af því sem full­yrt var að væri altíða á þeim bónda­bæjum sem selja blóð úr merum sínum. Óhætt er að taka undir, að þau mynd­bönd sem sýnd voru í tengslum við umfjöll­un­ina, veki óhug og að spurn­ingar vakni um hvort eins sé farið hjá öðrum bændum sem starfa í grein­inni.

Á bónda­bænum Lága­felli í Austur Land­eyjum hefur verið stunduð ræktun hrossa sem sam­hliða hafa verið notuð í blóð­töku frá árinu 1985. Núver­andi ábú­endur bæj­ar­ins tóku við búinu árið 2001 og hafa verið með allt að 80 hryssur í blóð­bú­skap. Í dag eru 48 hryssur í því stóði sem not­aðar eru í blóð­gjafir. Tekið skal sér­stak­lega fram að Lágafell er hvorki bær nr. 6 eða 38, sem mest af umræddu myndefni kemur frá.

Mikils mis­skiln­ings virð­ist gæta um hvernig fram­kvæmd blóð­töku er á meiri­hluta þeirra bæja sem stunda blóð­bú­skap. Ljóst er að lang­flestir bændur gæta þess í hví­vetna að komið sé fram við hrossin þeirra af umhyggju og virð­ingu. Á Lága­felli fer blóð­taka þannig fram að blóð er tekið úr hryssum á um 10 vikna tíma­bili á ári, sem hefst alla jafna í ágúst. Utan þess tíma­bils ganga hrossin laus á svæði sem telur um 350 hekt­ara. Umsjón er þó vit­an­lega höfð með hross­unum allt árið um kring svo tryggt sé að ekk­ert ami að þeim og að þau skorti ekk­ert. Meðal hryssa á búinu gefur af sér um fimm lítra viku­lega og í fimm vikur.

Áður en blóð­taka er svo fram­kvæmd eru mer­arnar blóð­mældar af Ísteka/dýra­læknum. Séu blóð­gildi og -búskapur í lagi, er blóð dregið úr þeim hryssum sem sýna svörun. Þær sem ekki sýna svörun, eru sendar aftur í sýna­töku sem fer fram viku seinna. Þær sem sýna að horm­ónið sé til staðar gefa blóð. Merarnar eru stað­deyfðar á stungu­stað af dýra­lækni áður en blóð­taka hefst. Tryggt er að fram­kvæmdin sé eins streitu­lítil og kostur er á og hafa ábú­endur á Lága­felli búið svo um hnút­ana að dýrin séu tamin/vanin við blóð­tök­una. Folöld fylgja merum í gegnum þar til gerðar rennur og í blóð­töku, til þess að draga úr álagi á bæði merar og folöld. Í rétt­inni er búið svo um hnút­ana að tryggt sé að hrossin geti hvorki valdið sér né öðrum tjóni.

Þegar dýr­unum er smalað inn í rétt og rennur er beitt áhöldum á borð við 150 cm. plast­rörum, til þess að beina hross­unum rétta leið. Vissu­lega er dýr­unum stjakað með áhöld­unum en dýrin eru aldrei slegin eða vís­vit­andi meidd með nokkrum öðrum hætti. Rennur og básar, eru hafðir þröngir, til að minnka álag og streitu og svo þær nái ekki að snúa sér og slasa. Básinn er lok­aður að framan, og merin kemur í bás­inn og tveimur rörum komið fyrir fyrir aftan þær svo þær bakki ekki út úr básnum og lendi við það undir eða yfir rör og beislur og slasi sig. Böndin yfir þær eru eins konar axla­bönd, þeim til varnar. Ef hryssa prjónar upp, getur hún rifið úr sér nál­ina. Böndin og annar bún­aður er því hugs­aður til þess að verja þær fyrir óþarfa slysum og veita öryggi. Á Lága­felli er regla að við hvern bás stendur alltaf aðili sem fylgist með og róar mer­arnar á meðan á blóð­töku stendur. Dýra­læknir er alltaf á staðnum og hann er tryggir með­ferð og öryggi og segir fólki til í rétt­inni. Árlega fáum við eft­ir­lits­að­ila sem fylgj­ast með holda­fari, heilsu og hófum, og högum. Folöldin eru alin upp við það að fylgja mæðr­unum í bás­inn og gegnum renn­urnar, spekj­ast og þekkja umhverfið og menn­ina og eru yfir­leitt tamin í lok tíma­bils.

Dýra­læknir er alltaf á staðnum og tryggir, með­ferð, öryggi og segir fólki til í rétt­inni. Árlega koma eft­ir­lits­að­ilar frá Ísteka og MAST sem fylgj­ast með holda­fari, heilsu, hófum, og högum. Folöldin eru alin upp við það að fylgja mæðr­unum í bás­inn og gegnum renn­urnar. Við það spekj­ast þau og læra að þekkja umhverfið og menn­ina í lok tíma­bils.

Ábúendur á Lága­felli treysta sér ekki til að meta aðstæður ann­arra bænda við blóð­tökur, en sann­ar­lega er mynd­bandið er afar ógeð­fellt. Rétt er þó að vekja athygli á því, að ein­falt er að búa sögu sem á engan vegin við rök að styðj­ast, með því að klippa saman efni og setja það í bún­ing til að hrella og hræða fólk. Á Lága­felli eins og öllum öðrum bónda­bæjum á Íslandi hafa komið upp atvik þar sem erfitt hefur verið að ráða fram úr, er varða með­ferð dýra. Slík atvik þarf hins vegar alltaf að leysa með nær­gætni og virð­ingu fyrir dýr­unum. Bar­smíðar á dýrum eru algjör­lega ólíð­andi og það væri ósk­andi að mál allra bænda sem brjóta lög um vel­ferð dýra nr. 55/2013 yrðu rann­sökuð af MAST. Bæði mál blóð­bænda og ann­arra eft­ir­lits­skyldra aðila.

Óásætt­an­legt er með öllu að komið sé fram við dýr með þeim hætti, sem sjá mátti í mynd­band­inu. Dýra­vel­ferð skal ávallt höfð í hávegum þegar unnið er með dýr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð