Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Beggi Dan: „Síðustu vikurnar í lífi móður minnar voru henni hreinasta kvalræði“

Beggi Dan
Beggi Dan

Sonur Dönu Jóhanns­dóttur hefur skrifað opið bréf til stjórn­enda Land­spítalans en móðir hans lést eftir að hafa verið sett í ótímabæra lífsloka­meðferð á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja. Tilefni bréfsins er yfir­lýsing Land­spítalans þar sem kemur fram að læknirinn sem rann­sakaður er af lögreglu í tengslum við andlát móður bréf­skrifara og fimm annarra sjúklinga, fái enn að vinna á spítalanum.

Hér er bréfið í heild sinni:

Opið bréf til stjórn­enda Land­spítalans vegna Skúla Gunnlaugs­sonar læknis

Land­spítalinn hefur sent frá sér yfir­lýsingu þess efnis að Skúli Gunnlaugsson læknir verði áfram við störf á spítalanum þrátt fyrir að vera viðfangs­efni lögreglu­rannsóknar sem snýr að andláti fjölda sjúklinga í hans umsjón. Þar sem mér er málið skylt finn ég mig knúinn til að skrifa þetta bréf.

Mig langar raun­verulega ekki að rifja upp þessa harmsögu en ég vil að þið, stjórn­endur spítalans, séuð meðvituð um þá meðhöndlun sem Skúli veitti móður minni. Eftir að hafa lesið tilkynninguna ykkar dreg ég þá ályktun að þið séuð ekki með réttar upplýsingar og hafið þar af leiðandi gert mistök þegar þið ákváðuð að Skúli yrði áfram við vinnu á spítalanum.

Það sem hér kemur fram um störf Skúla er ekki bara mín skoðun og upplifun heldur eru þessar upplýsingar byggðar á niður­stöðum rann­sóknar land­læknis á dauða móður minnar ásamt upplýsingum úr sjúkra­gögnum hennar.

Óþörf lífslokameðferð sem stóð í ellefu vikur

Móðir mín lést á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja seinni hluta árs 2019. Ellefu vikum fyrir dauða hennar lagðist hún inn á spítalann í hvíldar­innlögn. Samdægurs var hún sett á lífsloka­meðferð sem fyrir­skipuð var af Skúla Gunnlaugs­syni. Ég vil að það komi skýrt fram að hún var ekki haldin neinum sjúkdómum eða kvillum sem ógnuðu lífi hennar.

Lífsloka­meðferð er úrræði sem eingöngu á að beita á dauðvona sjúklinga og á slík meðferð aðeins að standa yfir í örfáa daga. Ekki í ellefu vikur.

„Það er álit land­læknis að STG hafi mælt fyrir um og hafið lífsloka­meðferð án þess að staðfesta, tilgreina ástæðu eða leiða fullnægjandi líkum að því að dauðinn hafi verið yfir­vofandi. Ennfremur án viðeigandi samráðs við aðstand­endur og samstarfs­fólk.“

Skúli hafði ekki fyrir því að láta mömmu vita að hún væri að fara að deyja, hún hafði ekki hugmynd um þessa ákvörðun. Ég er alveg viss um að hana grunaði ekki að læknirinn, sem hún átti að geta treyst, væri búinn að fyrir­skipa óþarfa lífsloka­meðferð sem myndi draga hana til dauða.

Síðustu vikurnar í lífi móður minnar voru henni hreinasta kvalræði. Sýkingar voru ekki meðhöndlaðar, ekki var haldið að henni vökva, alvarlegur bæti­efnaskortur var virtur að vettugi auk þess sem risastór legusár sem gengu inn að beini fengu að grassera. Hún fékk drep í annað eyrað, hluti af því datt af. Í þau skipti sem hlúa átti að legu­sárunum þá fékk hún ekki deyfingu því Skúli hefur talið það óþarft að lina kvalir hennar, í það minnsta samþykkti hann ekki notkun deyfilyfja þegar kom að því að hreinsa sárin sem kvöldu hana svo sárt.

„Þetta hafði þær afleiðingar að mati land­læknis að í ellefu vikna langri legu hrakaði DJ; hún var með legusár, næringar­skort og sýkingar allt fram til andlátsins, sem verður að telja líklegt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar meðferðar sem hún hlaut.“

„Það er álit land­læknis að læknar HSS hafi sýnt af sér vanrækslu og hirðu­leysi gagnvart augljósum næringar­vandamálum og stað­festum bæti­efnaskorti sem hafa mögulega átt mikil­vægan þátt í versnandi einkennum og heilsufars­vandamálum.“

Skúli, sá hinn sami og er nýlega byrjaður að vinna á spítalanum ykkar, lét dæla það miklu af slævandi lyfjum í móður mína að hún var oft algjör­lega ófær um að tjá sig. Hún starði stjörf út í loftið og það sást í augum hennar að hún var logandi hrædd. Hún var það dofin af lyfjunum sem Skúli lét hana innbyrða að hún gat ekki beðið um hjálp. Oft vissi hún ekki einu sinni hvar hún var stödd.

„Það er álit land­læknis að verkja­meðferð hafi verið ranglega og óhóflega beitt við meðferð DJ í umræddri legu.“

Oft reyndi hún að koma því til skila að hún kærði sig ekki um lyfin sem deyfðu hana, þá voru notaðir morfínplástar og þeir stað­settir þannig að hún gæti ekki rifið þá af sér.

Við systkinin gerðum ítrekaðar og alvarlegar athuga­semdir við meðferðina á móður okkar en ekki var orðið við óskum okkar um að veita henni mann­sæmandi meðferð. Á fundum var blákalt logið að okkur um ástand hennar og hvers vegna Skúli tók þá ákvörðun að beita lífsloka­meðferð þegar engar forsendur voru fyrir slíku.

„SÁ virðist lítið sem ekkert hafa gert til þess að endur­skoða forsendur og eðli lífsloka­meðferðar DJ, þrátt fyrir sérþekkingu sína á málefninu. Hann létti vissulega við nokkur tilfelli á slævingarmeðferðinni, en virðist ekki hafa gert mikið meira. Ekki er að finna þess merki í gögnum að SÁ hafi rætt meðferðina eða greiningar við STG, þótt hann hafi átt að vera sérfróður um efnið. Höfuð­ábyrgð á meðferðinni var á höndum STG sem var formlega ábyrgur fyrir meðferð DJ í umræddum legum.“

„Embættið telur að ekki hafi aðeins verið um að ræða misbrest á almennri fagmennsku við veitingu heilbrigðis­þjónustu til DJ, heldur hafi í ákveðnum tilvikum einnig verið um að ræða alvarlega vanrækslu og mistök STG læknis, sem bar megin­ábyrgð á læknis­fræðilegri meðferð DJ.“

Landlæknir stígur inn

Eftir fráfall móður minnar sendi Eva systir mín kvörtun til land­læknis þar sem farið var fram á að embættið rann­sakaði meðferðina sem leiddi til þess að mamma dó. Við því var orðið og upphófst þá fagleg rannsókn land­læknis á störfum Skúla og meðhöndlun móður minnar. Fenginn var óháður sérfræðingur í öldrunar­lækningum til að fara yfir sjúkra­gögn, greiningar, meðhöndlun, skráningar í kerfi spítalans, nótur frá læknum og margt fleira.

Skúli fékk tækifæri til að svara fyrir sig en hafði ekki einu sinni fyrir því í upphafi að svara erindi land­læknis þrátt fyrir að augljósan alvarleika málsins. Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja stóð heldur ekki sína plikt þegar kom að samskiptum við landlækni.

Hrokinn í svörum Skúla til embættisins var sláandi og var greinilegt að læknirinn ætlaði sér ekki að viðurkenna neinn misbrest þrátt fyrir að augljóst væri að stórkostleg vanræksla hefði átt sér stað. Mér finnst rétt að benda á að í svörum sínum reynir hann að skella skuldinni á móður mína og á okkur systkinin, börnin hennar.

„Það er álit land­læknis að STG yfir­læknir hafi ekki staðið við sína ábyrgð og skyldur við meðferð DJ og í staðinn leitast við að varpa ábyrgð sinni á sjúklinginn. “

„Það er álit land­læknis að viðbrögð HSS við upphaflegri kvörtun þar sem fram koma afar alvarlegar ávirðingar og spurningar um meint frávik og brot í veitingu heilbrigðis­þjónustu, séu með öllu ófullnægjandi og ámælis­verð. Með þessu hafi viðkomandi stofnun, sem ábyrgð ber á að svara fram kominni kvörtun, sýnt bæði kvartanda og embætti land­læknis, sem er eftirlits­aðili með heilbrigðis­þjónustu, óvirðingu.“

„Það er álit land­læknis að STG hafi ekki aðeins komið fram með ótilhlýðilegum hætti við aðstand­endur skjólstæðings síns meðan á meðferð stóð, svo sem lýst er í kvörtuninni og fram kemur í sjúkra­gögnum, heldur hafi hann einnig sýnt af sér ótilhlýðilega afstöðu og ummæli í garð aðstand­enda í andsvörum sínum í þessu máli.“

Niður­stöður rann­sóknar Land­læknis eru sláandi svo ekki sé meira sagt, það var gríðarlegt högg að lesa álitið sem staðfesti að það sem okkur grunaði væri rétt.

Kærður til lögreglu vegna gruns um manndráp

Um leið og svört úttekt land­læknis barst okkur héldum við systkinin til lögreglunnar á Suðurnesjum þar sem við lögðum fram kæru á hendur Skúla og tveimur öðrum starfs­mönnum Heilbrigðis­stofnunar Suðurnesja. Í framhaldi af því upphófst viðamikil rannsókn lögreglu sem enn er í fullum gangi.

Skúli ráðinn til Landspítalans

Hún var einkennileg tilfinningin sem greip mig þegar ég uppgötvaði að þið hefðuð ráðið Skúla, lækni sem grunaður er um alvarlega og refsiverða háttsemi gagnvart sjúklingum, í vinnu á sjúkra­húsinu ykkar. Þetta gerðuð þið þrátt fyrir rannsókn land­læknis og þá staðreynd að hann er með stöðu sakbornings í sakamála­rannsókn þar sem meint fórnar­lömb eru ellefu talsins, af þeim létu sex lífið.

Samkvæmt fyrr­nefndri yfir­lýsingu er Skúli í „endur­hæfingu“. Ég vil gjarnan fá að vita í hverju sú endur­hæfing er fólgin nákvæmlega og hvernig stendur á því að hann fær sérmeðferð hjá Land­spítalanum. Mér þætti vænt um að fá svör við þessum spurningum sem fyrst.

Ég mun seint skilja hvers vegna Skúli er við störf hjá ykkur á þessum tíma­punkti. Augljós­lega á sjúkrahús að vera öruggur staður og því vona ég að þið gerið það eina rétta í stöðunni og víkið Skúla Gunnlaugs­syni úr starfi á meðan niður­staða fæst í þau grafal­varlegu mál sem nú eru til rann­sóknar hjá lögreglu. Allt annað er óásættanlegt.

Höfundur er Guðbjörn Dan Gunnarsson, kallaður Beggi Dan, og sonur konu sem lést á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto