Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Búið að breyta ráðherratitlum ríkisstjórnarinnar – Sjáðu óborganlegt grínmyndband Villa Neto

Búið að breyta ráðherratitlum ríkisstjórnarinnar – Sjáðu óborganlegt grínmyndband Villa Neto
Mynd/skjá­skot: sam­sett

Sagan um titla nýju ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar virð­ist vera hin enda­lausa.

Þegar ný rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks var kynnt á Kjar­vals­stöðum um síð­ustu helgi voru titlar margra ráð­herr­anna kynntir öðru­vísi en þeir hafa svo ratað á vef stjórn­ar­ráðs­ins. Eitthvað var um mis­ræmi; eitt nafn á ráðu­neyti var notað fyrr um dag­inn og annað seinna.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir var í upp­hafi sögð ráð­herra nýsköp­unar, iðn­aðar og háskóla. Á vef stjórn­ar­ráðs­ins er hún nú titluð sem vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Háskól­arnir á bak og burt úr titl­inum.

Ásmundur Einar Daðason var kynntur sem skóla- og barna­mála­ráð­herra en er nú skráður mennta- og barna­mála­ráð­herra á vefnum.

Lilja Alfreðs­dóttir var ýmist sögð við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra eða ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Hið síð­ar­nefnda, og lengra, virð­ist hafa orðið ofan á ef marka má vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Svandís Svav­ars­dóttir var sagður nýr ráð­herra í ráðu­neyti mat­væla, sjáv­ar­út­vegs og land­bún­aðar. Nú er tit­ill­inn hins­vegar örlítið styttri; sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son fékk kynn­ing­una „ráð­herra umhverfis- og lofts­lags­mála“ en heitir nú umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra.

Jón Gunn­ars­son var ýmist sagður dóms­mála­ráð­herra eða inn­an­rík­is­ráð­herra. Form­legur tit­ill er þó inn­an­rík­is­ráð­herra – dóms­mála­ráðu­neytið fellur því inn í end­ur­vakið inn­an­rík­is­ráðu­neyti.

Sigurður Ingi Jóhanns­son er nýr inn­við­a­ráð­herra. Undir þann hatt falla hús­næðis-, sveita­stjórnar-, sam­göngu- og skipu­lags­mál.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son hefur ýmist verið titl­aður félags- og vinnu­mála­ráð­herra eða félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Ekki svo mik­ill munur þar á, en það síð­ar­nefnda hefur hrósað sigri á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Örfá ráðu­neyti hafa haldið eldri og ívið þjál­ari nöfnum sínum. Það er for­sæt­is­ráðu­neytið, fjár­mála- og efn­hags­ráðu­neytið, utan­rík­is­ráðu­neytið og heil­brigð­is­ráðu­neytið.

Djamm- og þynnkumálaráðherra

Leik­ar­inn og uppi­stand­ar­inn Vilhelm Neto gerði grín að hringa­vit­leysu hinna óþjálu titla ráð­herr­anna á Instagram-reikn­ingi sínum á dög­unum.

Í mynd­band­inu bregður hann sér í hlut­verk hinna ýmsu ráð­herra og kynnir sig meðal ann­ars sem síma- og inter­net­mála­ráð­herra, mjólk­ur­mála­ráð­herra, land­bún­aðar- og geim­veru­mála­ráð­herra og djamm- og þynnku­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð