Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigrún Dóra lét börnin sín fjögur frá sér: „Ég verð heimilislaus í enn eitt skiptið um áramótin“

Sigrún Dóra lét börnin sín fjögur frá sér: „Ég verð heimilislaus í enn eitt skiptið um áramótin“

Jólin nálg­ast og ekki geta allir haldið áhyggju­laus jól meðal ann­ars vegna fjár­hags­vand­ræða og hús­næð­is­á­hyggna. Sigrún Dóra Jóns­dóttir er ein af þeim. Hún birti í gær, 2. des­em­ber, texta á Facebook-síðu sinni sem er eft­ir­far­andi en með fylgdi mynd af greiðslu­skjali frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins. Upphæð greiðslu 208.700 krónur:

* Deilist af vild*
Með því að sýna ykkur þetta er ég ekki að vera nei­kvæð. Ég er að sýna ykkur stað­reyndir.
Ég á rétt á til­vist eins og allir hinir. Ég hefði svo oft getað verið skyn­sam­ari með aurana mína en hvernig er hægt að ætl­ast til þess að fólk beri virð­ingu fyrir því sem hvort sem er klár­ast um leið og aldrei er til nóg af?
Síðasta sem ég þrái er að vera rík enda gæti ég það ekki, ég myndi alltaf gefa með mér. En *andsk..* hafi það! Í raun­inni vill kerfið mig dauða, börnin mín móð­ur­laus, alla­vega gefur ríkið mér EKKI tæki­færi á að hafa efni á að einu sinni taka þau til mín yfir helgi einu sinni.
Ég hef alla tíð lifað á hnef­anum og ég er orðin hund­þreytt á því. Það er des­em­ber og ég á enn eina ferð­ina að vera upp á Guð og lukk­una komin. Ég hef flestar aðventur þurft nán­ast að fara í vændi til að hafa efni á jólum.
Mamma mín og pabbi þurftu líka að leggja mikið á sig og ef það er eitt­hvað sem mamma mín og pabbi minn mega vera hreykin af þá er það að þau sáu sko til þess að ég og mín systk­ini ættum gleði­leg jól. Sama þó svo að jólin væru þeim senni­lega erf­ið­asti tími árs­ins.
Ég hef aldrei átt hluta­bréf, ekki þau heldur. Ég hef aldrei veðjað eða tekið áhættu, ekki þau heldur. Það gerði ekk­ert okkar neitt sem hægt væri að tína til sem ástæðu fyrir fátækt­inni. Af hverju áttu þau og núna ég ekki sama rétt á jólum og aðrir?
Ég drep mig aldrei en ef ég drepst fyrir aldur fram getur ríkið átt mitt líf, að auki við öll hin á sam­visk­unni. Ekkert hafa þau gert til að ég lifi svo mikið er víst.
Ég á fjögur börn. Það er LANGT síðan ég ákvað að reyna ekki einu sinni að gefa öðrum en þeim jóla­gjafir þetta árið. Endilega segið mér hvernig ég á að fara að því að kaupa fjórar þegar ég þarf að greiða 200 þús í leigu? Ég verð heim­il­is­laus í ENN eitt skiptið um ára­mótin og miðað við fram­færsl­una er eng­inn staður sem ég hef efni á annar en dauð­inn. Hver nennir að lifa svona? Ég hef gert það í eitt og hálft ár. Með minna af því að þarna eru þó tíkalls­virði af des­em­ber­upp­bót.
Lang­flestir þeirra sem eru öryrkjar er fólk sem ætti að halda á lífi sem lengst því þau gætu kennt ykkur hinum mest!
P.S. Ég fæ húsa­leigu­bætur og ég er lánsam­ari en margir á mínum aldri af því að ég hef rétt á smott­eríi í líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur. Ég er hér að gagn­rýna ríkið, trygg­inga­stofnun og sýna fram á stað­reyndir örorku­bóta. Ég á ekki að þurfa að útskýra né rétt­læta útgjöld mín. Þið sjáið svart á hvítu að inn­koman er ekki neinum bjóð­andi!“

Það er des­em­ber og ég á enn eina ferð­ina að vera upp á Guð og lukk­una komin

Sigrún Dóra seg­ist setja á síð­una sína efni sem gefur og gleður og áhuga­samir geta fylgst með henni. https://www.facebook.com/spakonan.spil.5

Í formi orða, samkenndar og samstöðu

„Mér finnst að við eigum öll að eiga tæki­færi til til­urðar,“ segir Sigrún Dóra. „Tilurð fyrir mér er eft­ir­far­andi: Ég er eins og ég er, ég er mótuð af því hvaðan ég kem, ég er ekki eins og aðrir en það sem ég er hefur sama rétt til að vera og aðrir.

Mér finnst að fyrst við á annað borð höldum jól og ef jólin eiga að vera gleði­tími ættum við sem sam­fé­lag að taka höndum saman um að hann verði það hjá öllum. Ekki að við ættum að kepp­ast við að kaupa flott­ustu jólin, sama hvað felst í þeim kaupum, heldur setja okkur það mark­mið að gleðja, gefa, þakka og njóta sem best. Við getum gefið það meðal ann­ars í formi orða, sam­kenndar og sam­stöðu.

Mér finnst að fyrst við á annað borð höldum jól og ef jólin eiga að vera gleði­tími ættum við sem sam­fé­lag að taka höndum saman um að hann verði það hjá öllum

Ég gæti vel setið hér og sagt sorg­ar­sögu mína. Ég gæti líka þulið upp tölur um pen­ing­ana sem ég hef úr að moða og það væri sam­fé­lags­lega sam­þykkt hegðun af mér að höfða til sam­visku fólks og taka við styrkjum. Áhersla mín er bara ekki að kalla eftir vor­kunn né ölm­usu. Ég er til­búin enn eina ferð­ina að vera dæmi­saga um rang­læti og ég þarf ekk­ert að græða á henni. Ég vil ekki vera fórn­ar­lamb. Ég vil vera dæmi um það sem er bannað. Ég hef gengið í gegnum margt og mætt mörgum hindr­unum á leið­inni. Saga mín er bara enn ein sagan um tæki­fær­is­missi.

Ég er öryrki af ástæðu sem og allir hinir. Þeir sem halda því fram að fólk leiki sér að því að vera á örorku ættu að prófa að sækja um hana og eins klár og betri þau telja sig vera en við öryrkjarnir ættu þá klár­lega að geta sjálf skautað í gegnum örorku­mat og á spena hjá rík­inu. Það er svo ósköp ein­falt að dæma og ákveða. Sér­stak­lega fyrir þá sem kunna ekki að setja sig í spor ann­arra eða hafa sam­kennd og skiln­ing með því að við erum ekki öll eins. Öll eigum við rétt á að vera.“

Lét börnin frá sér

Sigrún Dóra segir að aðstæður sínar og stað­reyndir séu gjör­ó­líkar aðstæðum og stað­reyndum ann­arra. „Ég er samt til og ég á og hefði átt að hafa sama rétt og tæki­færi til til­urðar og allir hinir sem fædd­ust aðra daga á öðrum árum og í fang ann­arra for­eldra. Ég hef aldrei átt sama rétt og ég er ekki sú eina. Við erum þús­undir sem erum tæki­fær­is­laus í dag og höfum verið dæmd til þeirrar til­urðar að fá ekki tæki­færi.“

Hún lét börnin sín fjögur frá sér.

„Þegar ég tók þá ákvörðun að setja börnin mín frá mér og fjar­lægja mig þeim gerði ég það þeirra vegna. Sú stað­reynd að ég ákvað að þetta væri öllum fyrir bestu og að ég hafi beðið aðra um að hugsa um börnin mín er nútíma­sam­fé­lagi nán­ast óger­legt að trúa. Í þeim sam­tíma sem við búum í skiptir álit og sam­fé­lags­staða meira máli en líðan barna. For­eldrar eru saman eða með börnin sín í harki og hörm­ungum fremur en taka ábyrgð á stöð­unni og bæta hana. Ég er mamma allra minna fjög­urra barna og því breytir eng­inn alveg sama hvar við búum.

Þegar ég tók þá ákvörðun að setja börnin mín frá mér og fjar­lægja mig þeim gerði ég það þeirra vegna

Sam­fé­lagið hefur samt sem áður aldrei gefið mér tæki­færi til að standa mig sem móðir frá banka­hruni sem ég á enga sök á og þaðan af síður for­eldrar mínir eða aðrir for­feður og mæður, enda hvergi að finna efnað fólk eða fólk sem á annað borð lék sér að banka­inni­stæðum, hluta­bréfum og ann­ars konar leikjum gerðum til að græða sem mest.“ Sigrún Dóra lenti illa í kjöl­far hruns­ins og nefnir fast­eigna­kaup með 100% láni. Hún varð síðan ein­stæð móðir með tvö börn undir fjög­urra ára aldri sem hún segir að hafi oft verið veik. „Ég missti svo vinn­una til sex ára í fjölda­upp­sögn enda ekk­ert skrítið, alltaf heima með veik börn. Í 14 ár hef ég verið dæmd til eymdar. Van­skila­skrá sem aldrei hverfur. Yfir mér er svart ský áhyggja, sam­visku­bita og von­leysis. Ég hef lifað á hnef­anum, hrein­lega hnú­anum, barist með kjafti og klóm fyrir því aleina að vera til og veita börn­unum mínum skjól.

Ég þró­aði með mér alkó­hól­isma og ég þró­aði með mér þung­lyndi og kvíða. Alkó­hól­ismi er alþekkt leið til að vera fyrir þá sem skilj­an­lega eru þung­lyndir og kvíðnir; að leita í efni til að líða betur er leið til að lifa, ekki til að drepa sig, enda eru alkó­hólistar senni­lega best gefna fólkið. Við erum ekki fædd í fyrra­dag og ef við vildum deyja, gerðum við það. Við leit­uðum í efni og vín til að vera því ekki yfir­gefum við þá sem við elskum. Alkó­hól­ismi er afleið­ing sem sam­fé­lagið svo dæmir og úthýsir sem er alveg merki­legur and­skoti af því að sam­fé­lagið leikur sér að því að þröngva fólki þangað. Allir sem ekki falla í með­al­mennsku­formið verða gróðr­ar­leið með­al­mennsk­unnar. Þeir sem áttu auð­velt með bók­ina og/eða fengu aura/tæki­færi í vöggu­gjöf enda í stöðum sem svo græða á okkur sem féllum utan þess ramma. Fólk sem er klárt að kroppa pen­inga, fólk sem verða læknar og stjórn­mála­menn, banka­stjórar, yfir­menn, fyr­ir­tækja­eig­endur, brask­ar­arnir sem gátu keypt, selt og grætt. Þeir sem áttu grund­velli til gróða. Fólkið sem fer út í dag­inn eða fór til að hafa lifi­brauð af eymdum ann­arra. Sumir vilj­andi en aðrir óvart. Hverja höfum við hin til að græða á? Varla hvoru öðru.“

Kærleikurinn og samstaðan

Sigrún Dóra talar um aðvent­una. „Aðventan snýst um gjafir. Kærleika. Ótrú­leg­asta fólk verður auð­mjúkt og gef­andi á þessum tíma. Auðvitað væri lítið varið í jólin ef þau væru alltaf. Af hverju þarf samt að koma að jólum svo við sjáum að kær­leik­ur­inn og sam­staðan er það sem skiptir máli?

Ég lofa þér því að þeir sem eiga pen­inga eiga aðrar ástæður til eymda. En ef þeir sem pen­ing­ana eiga gæfu þeim sem í eymd eru pen­inga af sínum, yrðu eymdir þeirra minni og eigið virði myndi aukast. Að gefa, gefur þér til baka. Sumir eiga pen­ing en aðrir eiga orð eða ást. Gjafir eru faldar í því að sem sá sem við gjöf­inni tekur sé betri á eftir. Gjafir eru til að bæta á, ekki kaupa sér ást né til að sýn­ast betri.“

Nei, Sigrún Dóra seg­ist ekki hafa efni á að halda jól eins og flestir gera hér á landi.

„Ég hef margoft bakað sörur í þús­unda­tali á aðventu, margoft hef ég gengið svo langt að það nán­ast kall­ist hór­dómur til þess eins að halda jól. Desember er dýr­asti mán­uður árs­ins. Það skiptir samt engu máli hvað mán­uð­ur­inn heitir, ég hef ekki efni á honum. Ég hef ekki efni á að leigja íbúð, borða eða fá börnin mín yfir helgi á þeim bótum sem ég hef fullan rétt á og eru því miður mitt eina öryggi. Íslenska ríkið og íslenskt sam­fé­lag, því miður, ef við segjum hlut­ina eins og þeir eru, vilja mig dauða. Það hlýtur að vera því ekk­ert gera þau til þess að ég lifi sem er mjög sorg­legt af því að mann­eskjan sem ég hef að geyma, lær­dóm­ur­inn sem ég hef þurft að draga af líf­inu, reynsla mín sem og ásýnd á lífið er eitt­hvað sem fólk ætti að borga mér fyrir að miðla áfram. Ég bý yfir svo mörgum hæfi­leikum og þekk­ingu að ef sam­fé­lagið vildi græða á því sem skiptir máli ætti það að eyða aur­unum sínum í fólk eins og mig.“

Hún vitnar í Magnús Eiríks­son.

„Ofmetnastu ekki af lífs­ins móð­ur­mjólk. Kirkju­garðar heims­ins geyma ómissandi fólk.”

Af hverju þarf samt að koma að jólum svo við sjáum að kær­leik­ur­inn og sam­staðan er það sem skiptir máli
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð