Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ég heiti Ingibjörg og ég er ljón: „Komið fram við einhverfa eins og þeir séu vitsmunalega skertir“

Ég heiti Ingibjörg og ég er ljón: „Komið fram við einhverfa eins og þeir séu vitsmunalega skertir“

Ingi­björg Elsa Björns­dóttir er með B.A. í rúss­nesku og sagn­fræði. B.Sc. í almennri jarð­fræði. M.Sc. í umhverf­is­efna­fræði og M.A. í þýð­inga­fræði.

Og hún byrjar pistil sinn á þessum orðum:

„Nú er árið 2021 senn að taka enda. Bráðum munum við standa með kampa­vís­glös á Gamlárs­kvöld, skála með tárin í aug­unum og kveðja hið liðna.

Hvernig væri nú ef íslenskt sam­fé­lag myndi strengja það ára­móta­heit að koma af virð­ingu fram við ein­hverfa, skynsegin ein­stak­linga hvort sem þeir eru börn, ung­lingar, full­orðnir eða aldr­aðir?“

Bætir við:

„Ég er ennþá að heyra nýjar sögur af ein­elti gegn ein­hverfum börnum og ung­lingum. Núna árið 2021 eftir alla okkar bar­áttu. +

Ég lenti sem ein­hverfur/ADHD ein­stak­lingur í ein­elti bæði í leik­skóla, í Haga­skóla, í Háskóla Íslands, hjá Rannís og svo má lengi telja.

Ætlar þess­ari glóru­lausu þján­ingu ein­hverfra og skynsegin fólks aldrei að ljúka?

Ég verð reið þegar ég frétti að ein­hverf börn séu ennþá í sömu stöðu og ég var sjálf fyrir 45 árum síðan.“

Og hún spyr:

„Getið þið sem eruð sögð vera venju­legt fólk ekki bara dratt­ast til að haga ykkur almenni­lega og koma vel fram við þá sem eru að ein­hverju leyti öðru­vísi en þið sjálf?

Mér hafa einnig verið að ber­ast sögur frá sam­býlum þar sem ein­hverfir ein­stak­lingar verða stundum fyrir and­legu ofbeldi. Oft ríkir tak­mark­aður skiln­ingur á því, að hinn ein­hverfi sé ef til vill með fullu viti og með fulla greind á bak­við frosna grímu ein­hverf­unnar.

Oft er komið fram við ein­hverfa eins og þeir séu mjög vits­muna­lega skertir. Slíkt getur farið í taug­arnar á þeim. Allt endar þetta með upp­reisn sem síðan getur orðið til þess að sá ein­hverfi er læstur inni í her­berg­inu sínu líkt og hann eða hún væri í fang­elsi.“

Inig­björg spyr aftur:

„Hvað er vanda­málið?“

Svarar líka:

„Vanda­málið er senni­lega fyrst og fremst skortur á almennri fræðslu um ein­hverfu og skynjun ein­hverfra. Þegar ég seg­ist vera ein­hverf/skynsegin/ADHD halda flestir að ég sé með sjúk­dóm og að ég sé mjög fötluð og jafn­vel vits­muna­lega skert. Ég er að vísu líka með sjúk­dóm sem veldur mér vand­ræðum (F29).

En ef menn halda að ég fatti ekki þegar verið er að tala niður til mín, þá er það mik­ill mis­skiln­ingur. Ég er nefni­lega yfir­burða­greind a.m.k. á þessu hefð­bundna sviði sem er yfir­leitt verið að mæla. Ef þið ein­fald­lega skiljið mig ekki og getið ekki fylgt mér eftir, þá er það ekki mitt vanda­mál. Ég er reyndar þeirrar skoð­unar að allir, já allir séu vel greindir. Fólk er bara mis­mun­andi greint.

Sumir eru mjög hand­lagnir og greindir í hönd­unum við að smíða og skapa. Aðrir eru með tón­list­ar­greind og geta sungið. Sumir eru fæddir leið­togar og hafa leið­toga­greind. Hvaða asna datt í hug að búa til stöðluð greind­ar­próf þegar það er nákvæm­lega ekk­ert staðlað við mann­kynið? Er vanda­málið sem við glímum við kannski frekar lækna­vís­indin og staðl­aðar grein­ing­ar­að­ferðir þeirra heldur en „vanda­málin sjálf,” heil­kennin, skynj­unin, sjúk­dóm­arnir eða hvað sem menn vilja kalla hlut­ina?“

Ingi­björg nefnir að „oft segir fólk sem telst vera með venju­legan heila að eig­in­maður minn sé svo mikil hetja að vera ekki búinn að yfir­gefa mig nú þegar þar sem ég er bæði ein­hverf/skynsegin /ADHD og með ótil­greindan geð­rofs­sjúk­dóm (F29). Þetta finnst mér afar und­ar­leg afstaða, þótt ekki sé meira sagt.

Ég er nefni­lega frekar skap­góð og skemmti­leg mann­eskja og auð­veld í umgengni dags dag­lega. Við hjóna­kornin eru alveg bull­andi ást­fangin af hvort öðru. Ást okkar og hjóna­band er mjög far­sælt og ham­ingju­samt. Við höfum fundið saman hinn eina sanna kær­leika og geri aðrir betur. Sonur okkar syngur oft líka af ham­ingju. Hann er svo ham­ingju­samur og líður svo vel. Við erum ein­fald­lega mjög ham­ingju­söm fjöl­skylda. Sonur minn er ekki ein­hverfur. Hann lík­ist föður sínum meira og sam­band þeirra er dásam­legt.

Mér finnst löngu kom­inn tími til að íslenskt sam­fé­lag fari að haga sér almenni­lega og bera virð­ingu fyrir þeim sem eru ein­hverfir eða sem vilja kalla sig skynsegin vegna þess að við ein­hverf skynjum heim­inn allt öðru­vísi en þið sem telj­ist vera með venju­legan heila.“

Og heldur áfram:

„Ég t.d. er með ein­hverfa heyrn, vil helst vera með fæt­urnar alltaf á jörð­inni, ég hreyfi mig öðru­vísi í gegnum þrí­víð rými heldur en venju­legt fólk. Mig skortir sam­hæf­ingu í hreyf­ingum. Samt var ég sett í hand­bolta, fót­bolta og körfu­bolta í leik­fimi í gamla daga. Þar var ég lögð hrotta­lega í ein­elti með hjálp margra íþrótta­kenn­arra, enda kasta ég næstum upp ef ég kem inn í íþrótta­hús og finn lykt­ina af svita, kart­nöglum og fim­leika­dýnum. Ég er nefni­lega örugg­lega líka með bull­andi flókna áfallastreitu eftir allt ein­eltið og ofbeldið sem ég hef orðið fyrir nú þegar og á kannski eftir að verða fyrir í fram­tíð­inni.“

Hún nefnir ein­fald­lega að „Ég verð því miður að segja farir mínar í íslensku sam­fé­lagi ekki alveg sléttar. Ég verð því miður að húð­skamma ykkur öll sem telj­ist vera með eðli­legan heila, félags­lega færni og nógu mikla greind til þess að þið eigið að geta vitað hvað telst vera ein­elti og and­legt ofbeldi. Ég bara verð að húð­skamma íslenskt sam­fé­lag í heild sinni. Meira að segja í Háskóla Íslands varð ég fyrir marg­vís­legu ein­elti og þar var oft talað niður til mín.

Ég eig­in­lega satt best að segja búin að fá nóg.“

Ingi­björg seg­ist ekki geta „horft upp á full­orðna, sterka karl­menn gráta eins og lítil börn, af því að þeir hafa þurft að horfa upp á ein­hverfu börnin sín lögð í hrotta­legt ein­elti. Einelti spyr nefni­lega ekki um stöðu barns eða for­eldris í sam­fé­lag­inu. Meira að segja Forseti Íslands gæti ekki komið í veg fyrir ein­elti hjá barn­inu sínu, ef barnið væri ein­hverft eða skynsegin. Viljið þið bara gjöra svo vel og byrja að bera almenni­lega virð­ingu fyrir ein­hverfum skynsegin mann­eskjum hvort sem þær eru börn, full­orðnir eða aldr­aðir.

Ég er að setja ykkur mörk. Ég hef nefni­lega lært það af kett­inum mínum að bera alltaf virð­ingu fyrir sjálfri mér, alveg sama í hverju ég lendi. Hafið þið nokkurn tím­ann séð ljón eða kött sem ber ekki virð­ingu fyrir sjálfum sér?

Nei, það hef ég ekki heldur.“

Og að „núna er ég ekki lengur kennitala, til­felli, borg­ari, öryrki, ein­hverf, skynsegin, geð­veik, ADHD eða hvað þetta nú allt þetta heitir. Ég er ein­fald­lega orðin mann­eskja og ég krefst þess að komið sé fram við mig af þeirri virð­ingu sem ég á fylli­lega skilið. Mín vegna má henda öllum þessum grein­ingum og merk­ingum í ruslið fyrir fullt og allt. Mann­kynið er ein­fald­lega sam­an­sett úr mörgum ólíkum ein­stak­lingum og hópum. Það hafa alltaf verið til ein­hverjir sem eru með öðru­vísi skynjun og öðru­vísi heilabú. Við bara hrein­lega viljum að tekið sé til­lit til fjöl­breyti­leika heil­ans og að það sé við­ur­kennt og skilið sé að hann getur verið alls­konar.“

Inigi­björg með orðum er ekki „að kvarta per­sónu­lega. Ég er núna eins og ljón. Ef ég sær­ist, þá bara sleiki ég sárin eins og dýrin gera og held áfram með líf mitt. Hefur þú ein­hvern tím­ann séð ljón kvarta yfir hlut­skipti sínu. Nei, það hef ég ekki heldur. Kettir sem fest­ast í gadda­vírs­girð­ingu gef­ast ekki upp heldur slíta sig lausa og sleikja sárin. Síðan halda þeir lífi sínu áfram. Orðið upp­gjöf er hrein­lega ekki til í minni orða­bók.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð