Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Átök, frumkvæði og kynlíf – Hvað segir Marsmerkið þitt um þig?

Átök, frumkvæði og kynlíf – Hvað segir Marsmerkið þitt um þig?

Samkvæmt stjörnu­spek­inni hefur plánetan Mars mikil áhrif á það hvernig við hegðum okkur sem kyn­verur. Fyrir marga eru Venus og Mars órjúf­an­leg heild þegar kemur að þessu, en aðrir stjórn­ast meira af annarri hvorri plánet­unni í róm­an­tískum sam­skiptum. Mars stjórnar því líka hvernig við nálg­umst verk­efni og hvenær við finnum sprengi­kraft og ástríðu. Einnig hvernig við reið­umst og gerum atlögu – orkan er hrá og frum­stæð. Þegar við stjórn­umst af orku Mars erum við stað­föst, bein­skeytt, ástríðu­full og metn­að­ar­gjörn. Ein­stak­lingur með sterkan Mars í stjörnu­korti sínu er yfir­leitt nokkuð her­skár – hann forð­ast í það minnsta ekki átök.

Hægt er að láta reikna út Mars­merki sitt á síðum á borð við Co-Star og Cafe Astrology, ásamt mörgum öðrum.

Hrútur

Sá sem er með Mars í Hrúti er afar ástríðu­fullur, hvat­vís og orku­mik­ill. Það er auð­velt fyrir þennan ein­stak­ling að finna til hvatn­ingar og láta til skarar skríða í þeim verk­efnum sem vekja áhuga hans. Honum þykir hins vegar ein­stak­lega erfitt að halda sig að ein­hverju sem hann hefur ekki ósvik­inn áhuga á.

Allt ger­ist hratt hjá Mars-Hrúti. Ákvarð­anir eru teknar snögg­lega og ekki litið um öxl. Þessi ein­stak­lingur elskar að byrja á ein­hverju nýju og hann hleypur ávallt í átt að áskor­unum. Barnsleg orka Hrútsins er áber­andi og kemur fram í ein­lægni, en getur líka þýtt að hann eigi það til að vera dóna­legur og óþol­in­móður í sam­skiptum.

Þessi ein­stak­lingur býr yfir mik­illi kynorku og er frekar hrár í kyn­lífi. Það er fremur auð­velt að koma honum til og hann lað­ast að fólki sem er bein­skeytt og með sterka nær­veru. Mars-Hrútar kunna að meta ein­lægni og að elsk­hugi þeirra gefi sig þeim á vald. Þeim þykir gaman að hvat­vísum ást­ar­leikjum og vilja gjarnan koma sér beint að efn­inu – þeir geta orðið dálítið óþol­in­móðir í löngum for­leikjum og eiga það jafn­vel til að vera svo­lítið sjálfselskir á þessu sviði. Þeir hafa oft gaman af elt­ing­ar­leik í til­huga­líf­inu.

Þeir sem eru með Mars í Hrúti eru oft frekar skap­stórir; þeir eru fljótir að reið­ast og skap þeirra getur verið eld­fimt, en eins eru þeir fljótir að jafna sig. Þetta eru ekki ein­stak­lingar sem fara í fýlu í langan tíma eða eru lang­ræknir. Helst vilja þeir bara rífa plást­ur­inn af og halda svo áfram.

Naut

Fólk með Mars í Nauti er stað­fast og fer í gegnum lífið af rólyndi og öryggi. Það er eng­inn æsingur í því. Þetta fólk er hins vegar þrjóskt og þegar það hefur tekið ákvörðun getur reynst þrautin þyngri að sveigja það. Mars-Nautið er metn­að­ar­gjarnt en trúir á að ná mark­mið­unum rólega, stöðugt og yfir­vegað. Hér er ekki anað að neinu. Það metur eigur sínar, heim­ili og þæg­indi mik­ils og slíkir hlutir virka því oft sem drif­kraftur á það. Þetta er ekki fólk sem heldur ótal boltum á lofti í einu, heldur vill það frekar ein­beita sér að fáum hlutum og klára þá með stæl.

Mars-Naut sem kyn­verur eru nautna­full og vilja taka sér tíma í hlut­ina. Þau kunna að meta næma elsk­huga og hafa oft gaman af því að blanda ein­hvers konar dekri eða mat inn í kyn­líf. Dæmi um þetta geta verið róm­an­tískar bað­ferðir, nudd og ef til vill súkkulaði og jarð­ar­ber. Að sama skapi eru naut athug­ulir elsk­hugar sem kunna sann­ar­lega að ýta á rétta takka þeirra sem njóta sam­vista við þau.

Þetta fólk getur verið dálítið lang­rækið. Það reið­ist ekki hratt, en skapið í þeim er seigt og þau eru oft lengi að jafna sig. Þau geta sann­ar­lega orðið mjög reið ef þeim er storkað um of – og þá er best að halda sig fjarri. Það skiptir öllu máli að bregð­ast trausti þeirra ekki á nokkurn hátt. Þá getur verið erfitt að eiga aft­ur­kvæmt.

Tvíburi

Sá sem er með Mars í Tvíbura er for­vit­inn og athug­ull. Hann nálg­ast við­fangs­efni ávallt eins og rann­sak­andi og hefur ein­stak­lega gaman af því að ræða mál fram og til baka. Líflegar rök­ræður eru honum mjög að skapi. Þegar hann fær áhuga á ein­hverju steypir hann sér á kaf ofan í það og getur eytt í það ómældum tíma og orðið ansi fróður um við­fangs­efnið. Hann hefur mikla þörf fyrir að skoða mál út frá öllum hliðum og getur sett sig í spor fólks með ólíkar skoð­anir. Það er honum mjög mik­il­vægt að skilja – helst allt.

Hann hefur gaman af fólki og vill eiga kost á sam­skiptum við ólíka ein­stak­linga. Hann kann illa að meta berg­máls­hella. Mars-Tvíburar kunna vel við það þegar margt spenn­andi er á seyði í kringum þá og fá orku úr því. Þegar ekk­ert er um að vera og lífið óspenn­andi og lit­laust eru þeir gjarnan upp­gefnir og verða þungir.

Sem kyn­vera er Mars-Tví­bur­inn for­vit­inn og fær örvun sína aðal­lega and­lega og vits­muna­lega. Örvun og spenna byrjar löngu áður en kemur að hinni lík­am­legu athöfn kyn­lífs­ins. Hnyttin stríðni, djúpar sam­ræður og það að TALA um kyn­líf er allt eitt­hvað sem kemur honum til. Hann er lík­legur til þess að kunna að meta lestur á eró­tískum sögum. Hann lað­ast að kláru fólki sem kemur á óvart.

Mars-Tví­bur­inn getur verið dálítið dynt­óttur og hann á það til að ríf­ast og vera þrætu­gjarn. Stundum hefur hann samt bara gaman af því að ýta á takka fólks til að fá við­brögð og kanna hvort eitt­hvað spenn­andi geti ekki komið út úr því. Hann hefur ástríðu fyrir orðum og þegar hann reið­ist er hann sér­fræð­ingur í að nota orð sín sem vopn á and­stæð­ing­inn.

Krabbi

Mars-Krabbinn hefur sterka sam­kennd og er við­kvæmur. Honum er afar umhugað um til­finn­ingar ann­arra og er bæði næmur og blíður. Hlut­irnir ger­ast ekki sér­lega hratt hjá honum en finni hann ástríðu fyrir verk­efni kafar hann djúpt ofan í við­fangs­efnið. Kveikja hans er yfir­leitt til­finn­inga­legs eðlis. Hann hefur mikla þörf fyrir aga og reglu til að þríf­ast sem best og vera í jafn­vægi. Hann er hjálp­samur og hefur sef­andi nær­veru.

Sem elsk­hugi býr þessi ein­stak­lingur yfir fram­an­greindri næmni og blíðu. Hann vill taka sér tíma og setur alla sína athygli á elsk­huga sinn. Hann þarf að finna fyrir öryggi í kyn­lífi og treysta þeim sem hann er með. Hann hefur mikla þörf fyrir að vernda elsk­huga sinn og þeir sem leyfa honum það er fólkið sem passar honum best. Þessi ein­stak­lingur lað­ast að fólki sem er næmt, traust og til­finn­inga­ríkt.

Skapið í Mars-Krabb­anum getur verið svo­lítið þungt og hann fer auð­veld­lega í vörn. Ef honum finnst að sér vegið á hann það til að vera hör­undsár og svo­lít­ill fýlu­púki. Það eru engar spreng­ingar í skapi hans og það getur stundum tekið tíma að átta sig á því að hann sé reiður. Hann er mjög gjarn á að vera passífur/agressífur. Hann á stundum erfitt með að setja fólki mörk og getur verið með­virkur.

Ljón

Fólk með Mars í Ljóni er sjálfsör­uggt, glað­lynt og orku­mikið. Þessir ein­stak­lingar eru almennt hrifnir af athygli og eiga auð­velt með að heilla aðra. Þeir hafa mikið aðdrátt­ar­afl og það er algengt að þeir taki að sér ein­hvers konar leið­toga­hlut­verk. Þeir eru afar metn­að­ar­gjarnir. Sköpun er þessum ein­stak­lingum mjög mik­il­væg – þeir nær­ast á henni og eru yfir­leitt mjög hug­mynda­ríkir. Þetta fólk er upp­fullt af ástríðu og hefur mik­inn vilja­styrk – þegar það ætlar sér eitt­hvað er fátt sem stöðvar það.

Þegar kemur að kyn­lífi og kynorku er Mars-Ljónið opið og það getur verið töfr­andi til­finn­ing að hafa óskipta athygli þess á sér. Það er auð­velt að koma því til, það hefur mikið úthald og vill að kyn­líf sé skemmti­legt. Mars-Ljónin vilja helst að ást (í það minnsta róm­an­tík) og kyn­líf séu sam­ofin – þannig líður þeim best. Þau taka sig ekki of alvar­lega og kunna að meta elsk­huga sem gerir það ekki heldur. Þeim þykir sjálfs­ör­yggi heill­andi og vilja mikla athygli og natni frá elsk­huga sínum. Þau lað­ast gjarnan að frekar sterkum karakt­erum. Þau kunna samt ágæt­lega við að fá á ein­hvern hátt að vernda þann sem þau eru með.

Mars-Ljón þurfa að vera með­vituð um að láta skapið ekki hlaupa með sig í gönur. Það geta orðið miklar spreng­ingar þegar þau reið­ast og þau eiga það til að vera bæði hvat­vís og dramat­ísk. Þau eru afar stolt.

Meyja

Mars-Meyjan er dugn­að­ur­inn upp­mál­aður. Hún getur haldið mjög mörgum boltum á lofti í einu og er ein­stakt leyni­vopn í flestum verk­efnum. Hún er metn­að­ar­gjörn og nákvæm. Tíma­stjórnun hennar er upp á tíu og þetta er ekki ein­stak­lingur sem skilar af sér verk­efnum of seint. Hún setur sér mark­mið og nær þeim.

Sem kyn­vera er hún jarð­bundin og flink í að finna út hvað það er sem elsk­hugi hennar þarfn­ast. Kynlíf er engin und­an­tekn­ing í nákvæmni hennar. Eins og í öðru leggur hún hart að sér í því til að ná árangri og metn­aður hennar fylgir henni ávallt inn í svefn­her­bergi. Hún á það þó svo­lítið til að setja sjálfa sig og eigin unað í annað sæti. Oft mætti hún líka slaka svo­lítið á þegar kemur að kyn­ferð­is­legum teng­ingum og hætta að rit­skoða sig. Það myndi hjálpa henni heil­mikið að taka oftar áhættu og treysta á það sem hún hefur fram að færa.

Þessi mann­eskja gerir stundum full­miklar kröfur á fólkið í kringum sig, er gagn­rýnin og á það til að missa sig svo­lítið í tuð og nöldur. Hún er oft áhyggju­full.

Vog

Mann­eskjur með Mars í Vog sækj­ast eftir friði og rétt­læti í líf­inu. Þær eru afar heill­andi. Þær vilja hafa hlut­ina í jafn­vægi og vinna best þegar þeim finnst jafn­vægi vera í kringum þær og innra með þeim. Þær eru hins vegar bæði óákveðnar og eiga það til að fresta hlutum fram á síð­asta dag (eða klukku­tíma). Þetta getur síðan gert þær stress­aðar.

Mars-Vogir finna sig vel í sam­skiptum við aðra og hafa ein­lægan áhuga á fólki. Þeim þykir gaman að ræða málin og kynna sér ólíkar skoð­anir. Þær eru oft góðir sátta­semj­arar og eru diplómat­ískar í eðli sínu.

Mars-Vogir lað­ast að fág­uðum og klárum ein­stak­lingum. Þær leggja mikla áherslu á að veita elsk­huga sínum unað og eru mjög gef­andi en ætl­ast til þess sama á móti. Þær vilja fá að breyt­ast og þroskast í kyntján­ingu sinni og kyn­líf í sam­böndum þeirra þarf sömu­leiðis að vaxa. And­rúms­loft og orka skiptir þær miklu máli í svefn­her­berg­inu og þær eru fljótar að detta úr stuði ef eitt­hvað er ekki „rétt“.

Mars-Vogir eru átaka­fælnar og geta því stundum verið dálítið lúm­skar þegar þær nálg­ast þrætu­mál. Þær eru gjarnan passífar/agressífar.

Sporðdreki

Ein­stak­lingur með Mars í Sporð­dreka nálg­ast hugð­ar­efni sín af mik­illi ákefð og ástríðu. Hann er afar rann­sak­andi og vill fara á dýpt­ina. Hann er ákveð­inn og um leið og hann veit hvað hann ætlar sér stoppar hann ekki fyrr en það er í höfn. Í honum er mik­ill drif­kraftur og hann nær yfir­leitt þeim mörgu og háleitu mark­miðum sem hann setur sér. Mars-Sporð­drekar búa yfir mik­illi her­kænsku og eru afar grein­andi. Þeir hugsa yfir­leitt marga leiki fram í tím­ann. Þeir virð­ast oft ískaldir á yfir­borð­inu og eru með gott pókerfés.

Þessir ein­stak­lingar eru yfir­leitt í miklum tengslum við eigin kyn­veru og hafa mikla kyn­löngun. Þeir eru losta­fullir og næmir, og þurfa á ákefð að halda frá elsk­huga sínum. Í kyn­lífi er ekk­ert tabú og úthaldið er mikið. Raunar eru þeir oft spenntir fyrir þeim hliðum kyn­lífs­ins sem eru á ein­hvern hátt tabú eða óhefð­bundnir. Ekki miklar vanillur, sem sagt. Þeir eru oft ögrandi, bæði kyn­ferð­is­lega og almennt.

Það er mjög mik­il­vægt fyrir Mars-Sporð­dreka að losa um orku, bæði kynorku og hreyfi­þörf. Annars geta þeir orðið ansi óánægðir. Þeir eru með stórt skap, þótt það sé ekki með sama sprengi­kraft og skapið í Ljóni eða Hrúti. Skap þess­ara ein­stak­linga er þyngra og seig­ara. Þeir geta verið reiðir lengi og eru gjarnir á lang­rækni.

Bogmaður

Mars-Bogmenn eru glað­lyndir, opnir og ein­stak­lega bjart­sýnir. Þeir nálg­ast við­fangs­efni sín af for­vitni og hafa gaman af því að læra nýja hluti. Helst myndu þeir vilja ferð­ast út um allan heim og læra lex­íur sínar á leið­inni. Þeir fara ófeimnir inn í nýjar aðstæður og búa yfir miklu sjálfs­ör­yggi. Þeir eru hug­mynda­ríkir og það hentar þeim vel að byrja á nýjum verk­efnum – hins vegar eru þeir ekki alltaf þeir bestu í að fylgja hug­mynd­unum eftir og klára verk­efnin.

Það getur stundum reynst þessu fólki þrautin þyngri að skuld­binda sig í sam­böndum. Það þarf oft tölu­verðan tíma til að hlaupa af sér hornin og það er ekki óal­gengt að það eigi þá fleiri en einn elsk­huga í einu.

Þeir sem eru með Mars í Bogmanni verða gjarnan spenntir fyrir kláru fólki og beittar og vit­rænar sam­ræður koma þeim til. Þetta eru ástríðu­fullir elsk­hugar sem kunna að meta fjör og húmor í kyn­lífi. Þeim líkar ekki mik­ill alvar­leiki.

Þol­in­mæði er ekki ein af sterku hliðum Mars-Bogmanna. Allt þarf helst að ger­ast strax og þeim dettur það í hug. Þeir eru með dálítið eld­fimt skap og þegar þeir verða reiðir vilja þeir helst flýja af hólmi og beina hug­anum eitt­hvert allt annað. Fyrir þá er hreyf­ing afar góð reiði­stjórn­un­ar­að­ferð. Þrátt fyrir að elska vina­legar rök­ræður eiga þeir það til að taka því per­sónu­lega þegar ein­hver er ekki sam­mála þeim. Þeir hugsa hlut­ina ekki endi­lega alveg út í gegn eða kynna sér þá til fulln­ustu áður en þeir mynda sér afar sterka skoðun – sem þeir eru til í að standa með og rök­ræða út í hið óend­an­lega.

Steingeit

Orka Mars-Stein­geita er ein­beitt og sterk. Þær eru ein­stak­lega metn­að­ar­gjarnar og þegar þær ákveða eitt­hvað er fátt sem fær stöðvað þær. Þær búa yfir mik­illi her­kænsku og skipu­leggja sig vel. Það er stöð­ug­leiki yfir þeim; þeim tekst oft að halda ró sinni í erf­ið­ustu aðstæðum og þeim virð­ist alltaf vera fært að taka kaldar ákvarð­anir, óháð til­finn­inga­legu ástandi. Þetta þýðir ekki að þær séu til­finn­inga­snauðar, heldur eru þær ein­fald­lega góðar í að temja til­finn­inga­hlið­ina og við­brögð sín. Mars-Stein­geitur hafa mikla þörf fyrir að vera við stjórn, þær þríf­ast á því að ná árangri og völd geta heillað þær dálítið.

Þetta eru mann­eskjur sem eru jarð­bundnar í kyn­lífi. Þær tengja mest í gegnum skyn­færi og allt það áþreif­an­lega sem lætur þeim líða vel. Þær eru þó ekki sömu lúxusk­ettir og Mars-Nautin. Það þarf ekk­ert auka skraut. Yfir­leitt þykir þeim best að kyn­líf sé frekar ein­falt og blátt áfram. Ákveðinn hrá­leiki kveikir í þeim, sem og elsk­hugar sem á ein­hvern hátt eru reyndir eða jafn­vel eldri en þær sjálfar. Þær lað­ast að ein­stak­lingum sem þær upp­lifa sem öfl­uga og jafn­vel valda­mikla á ein­hverju sviði – ef til vill í kyn­líf­inu sjálfu.

Mars-Stein­geitur eiga það til að vera of harðar við sjálfar sig. Það geta þær líka verið við sína nán­ustu. Fólkið í kringum þær getur upp­lifað mikla pressu frá þeim, sem erfitt er að standa undir. Þegar þær reið­ast eiga þær það til að verða kaldar og kasta sér af enn meiri ákefð út í vinnu.

Vatnsberi

Þeir sem eru með Mars í Vatns­bera eru yfir­leitt frekar óhefð­bundnir í nálgun sinni á verk­efni og sam­skipti. Þetta er frum­legt og sjálf­stætt fólk sem lætur ekki sér­stak­lega vel að stjórn. Þeim er það þvert um geð að vera talið „venju­legt“ og gerir það að gamni sínu að ögra og koma á óvart. Þetta er yfir­leitt mjög víð­sýnt fólk með mikið umburð­ar­lyndi sem hentar vel að fást við mann­úð­ar­störf eða annað sem inni­heldur það að berj­ast fyrir ein­hvers konar mál­stað. Það er alltaf hægt að treysta á frum­lega nálgun Mars-Vatns­bera á verk­efnin fyrir hendi.

Sami frum­leiki er uppi á ten­ingnum þegar kemur að kyn­lífi og kynorku. Mars-Vatns­berar þríf­ast best þegar kyn­lífið inni­heldur til­breyt­ingar og til­raunir. Ekkert er of skrýtið – en það er margt til sem er of venju­legt. Ekki er þar með sagt að kyn­líf þeirra sé aldrei í hefð­bundn­ari kant­inum – en það verður hins vegar að vera fjöl­breytt og ekki fest­ast í sama far­inu. Þessir ein­stak­lingar keyra áfram á hinu hug­læga og vits­muna­lega. Þar af leið­andi lað­ast þeir að gáfum – en gáf­unum verður að fylgja frum­leiki. Fólk sem er á ein­hvern hátt óvenju­legt, óhefð­bundið og sjálf­stætt heillar þá mjög.

Þetta eru þrjóskir ein­stak­lingar sem erfitt getur reynst að beygja þegar þeir hafa bitið eitt­hvað í sig. Þeir geta brugð­ist illa við því að fá ekki sínu fram­gengt.

Fiskar

Ein­stak­lingar með Mars í Fiskum eru næmir á umhverfi sitt og búa yfir ríku inn­sæi, sem þeir treysta almennt mikið á bæði í leik og starfi. Þeir eru frum­legir og sér­lega hug­mynda­ríkir. Dreym­andi geðslag þeirra getur þó orðið til þess að verk­efnin klár­ast ekki endi­lega, heldur stækka og taka sífellt á sig nýja mynd. Það er þeim ekki endi­lega eðl­is­lægt að standa við stranga skila­daga, þótt nútíma sam­fé­lag skil­yrði þá oft til þess. Þeir þurfa ákveðið frelsi á móti til að þríf­ast.

Þessir ein­stak­lingar geta verið dálítil kamelljón og eiga auð­velt með að aðlag­ast hvers kyns aðstæðum og fólki. Stundum er eins og þeir breyti hrein­lega um per­sónu­leika undir mis­mun­andi kring­um­stæðum, en þetta er ekki óeðli­legt í til­felli Fiska; þeir eiga sér mörg and­lit. Mars-Fiskar láta sig svo­lítið ber­ast með straumnum og eru afslapp­aðir gagn­vart líf­inu.

Sem kyn­verur eru þessir ein­stak­lingar frum­legir og heill­andi. Þeir eru róm­an­tískir en þar sem þeir eiga það til að sveifl­ast tölu­vert frá degi til dags er líka afar mis­mun­andi hverju þeir sækj­ast eftir í kyn­lífi hverju sinni. Þeir eru þó afar gef­andi og leggja ríka áherslu á að elsk­huga þeirra líði vel. Þeir lað­ast gjarnan að dul­ar­fullum, nið­ur­dregnum og ef til vill dálítið þurf­andi ein­stak­lingum.

Mars-Fiskar eiga það til að leyfa líf­inu svo­lítið að „koma fyrir sig“ og geta verið passífir. Þegar þeir reið­ast finna þeir oft fyrir sekt­ar­kennd vegna þess og eiga erfitt með að stappa niður fæt­inum og láta í sér heyra. Þannig hafa þeir líka til­hneig­ingu til að verða með­virkir. Þeir eiga oft erfitt með að taka ákvörðun og skýra afstöðu. Skoðanir þeirra virð­ast stundum breyt­ast eins og veðrið. Þeir finna oft sína leið í gegnum tján­ingu og bar­áttu fyrir ást og friði.

Marsmerki ríkisstjórnarinnar

Þar sem Mars hefur mikið að segja um átök, ákveðni okkar og það hvernig við leggjum til atlögu er ekki úr vegi að skoða aðeins nýskip­aða rík­is­stjórn Íslands með til­liti til Mars-merkis hvers og eins með­lims. Með því er ef til vill hægt að fá vís­bend­ingu um það hverjir væru lík­legir til að eiga í átökum hver við annan og hverjir nálg­ast hindr­anir á svip­aðan hátt.

Rík­is­stjórn Íslands.

Katrín Jakobsdóttir

Mars í Tvíbura

Bjarni Benediktsson

Mars í Hrúti

Sigurður Ingi Jóhannsson

Mars í Hrúti

Svandís Svavarsdóttir

Mars í Krabba

Guðlaugur Þór Þórðarson

Mars í Vatns­bera

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Mars í Vog

Lilja Dögg Alfreðsdóttir

Mars í Nauti

Ásmundur Einar Daðason

Mars í Bogmanni

Guðmundur Ingi Guðbrandsson

Mars í Fiskum

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Mars í Tvíbura

Jón Gunnarsson

Mars í Fiskum

Willum Þór Þórsson

Mars í Ljóni

Tvíburar og Hrútar ráðandi

Í rík­is­stjórn­inni eru tveir ráð­herrar með Mars í Tvíbura, tveir með Mars í Fiskum, tveir með Mars í Hrúti, einn með Mars í Krabba, einn með Mars í Vatns­bera, einn með Mars í Vog, einn með Mars í Nauti, einn með Mars í Bogmanni og einn með Mars í Ljóni.

Það má því segja að orka Mars í Tvíbura og Hrúti sé dálítið ráð­andi afl í rík­is­stjórn­inni, sér­stak­lega í ljósi þess að ráð­herr­arnir þrír sem leiða hana fyrir hönd sinna flokka eru með þessi tvö Mars­merki; Katrín í Tvíbura, en Bjarni og Sigurður Ingi í Hrúti. Þetta þýðir að fram­kvæmda­orka er mikil og sam­skipti eru lif­andi og spenn­andi. Þarna er drif­kraftur og for­vitni um við­fangs­efni til staðar.

Þótt tveir ráð­herrar séu með Mars í Fiskum er það mun passíf­ari og mýkri orka, eins og fram hefur komið. Þeir geta þó átt sínar lúm­sku hliðar, svo það er spurn­ing hvað við sjáum þá Jón Gunn­ars­son og Guðmund Inga gera á kjör­tíma­bil­inu.

Af tríó­inu er það að segja að Bjarni og Sigurður Ingi eru bráð­ari en Katrín. Katrín er lík­leg til að nálg­ast verk­efni af for­vitni og er alltaf opin fyrir því að heyra mis­mun­andi hliðar. Hún rann­sakar hluti ofan í kjöl­inn og á í engum vand­ræðum þegar kemur að rök­ræðum, enda hefur hún raunar ansi gaman af þeim.

Bæði Bjarni og Sigurður Ingi eru hvat­vís­ari en Katrín og skap þeirra getur verið eld­fimt. Katrín er lík­leg til að geta sætt ólík sjón­ar­mið, eins og hún hefur auð­vitað þurft að gera á síð­asta kjör­tíma­bili. Með Mars í Tvíbura hefur hún mikla burði til þess.

Hún getur þurft að slökkva nokkra elda sem Mars-Hrútarnir kveikja – en þetta fólk virð­ist hafa gaman af að takast á við áskor­anir saman, þótt gengið geti á ýmsu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð