Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lífsreynslusaga: Samdauna tárum kvenna

Lífsreynslusaga: Samdauna tárum kvenna

Ég veit ekki hvort eitt­hvað hafi breyst á Kvenna­deild Land­spít­al­ans frá því að ég missti. Mér þykir ég hafa lesið óheyri­lega margar sögur um deild­ina síðan.

Sögurnar eru frá konum sem hafa misst fóstur, barn, líf og hug­mynd um fram­tíð­ina en það er ein­fald­lega ekk­ert eða eng­inn sem grípur þær þegar áfallið dynur yfir.

Mannlegi þátt­ur­inn og sam­kenndin virð­ist ekki vera til staðar hjá öllu starfs­fólki sem tekur á móti konum í þess­ari stöðu. Ef til vill er starfs­fólkið orðið samdauna enda­lausum tárum kvenna sem þangað koma, það hins vegar má ekki ger­ast.

Ég fékk jákvætt þung­un­ar­próf, óvænt en vel­komið.

Ég elskaði þetta fóstur um leið og ég sá lín­una á próf­inu, en margar mæður tengja eflaust við þá til­finn­ingu.

Hugurinn fer á flug og það eru engin rök nógu góð til þess að stoppa hann eða staldra við; strákur eða stelpa, hvað mun það erfa fá mér og hvað frá föður sínum, hvað skal það heita?

Þessi til­finn­ing er svo sterk, þetta eðli að passa upp á barnið, sem er barn í huga flestra en ekki fóstur.

Að bíða eftir hlutum er ekki minn styrk­leiki og þess vegna pant­aði ég tíma í snemm­sónar sam­dæg­urs. Ég þurfti að bíða í nokkra daga áður en ég komst til kven­sjúk­dóma­lækn­is­ins míns til þess að sjá barnið í sónar.

Dagurinn rann upp og ég mætti í són­ar­inn, hann skoð­aði mig og sagð­ist svo ekki sjá neitt fóstur. Ég var komin með hnút í mag­ann áður en hann sagði þetta því eitt­hvað innra með mér vissi að það var ekki allt með felldu þegar hann byrj­aði á són­arnum.

Allt í einu kom þessi til­finn­ing sem átti bara eftir að áger­ast.

Ég spurði hann hvað það þýddi og hvort ég væri búin að missa það. Hann sagð­ist ekki halda það en vildi senda mig í blóðprufu til að úti­loka utan­legs­fóstur. Vísaði hann mér svo áfram á kvenna­deild­ina, þær skyldu fylgj­ast með mér og taka blóðprufur.

Þegar ég kom heim hágrét ég í örugg­lega tvo klukku­tíma, ég var svo reið og hrædd.

Var ég ólétt eða ekki?

Degi síðar fór ég á kvenna­deild­ina þar sem ég var skoðuð aftur og ekk­ert fannst. Þær tóku blóðprufu og sögðu mér að reyna að taka því rólega, sem var erfitt.

Ég þurfti að hringja til þess að fá að nið­ur­stöður úr blóðpruf­unni sem kom ekki vel út, allt benti til þess að þung­unin væri á enda.

Þær vildu taka fleiri blóðprufur til þess að úti­loka utan­legs­fóstur, sem þær svo gerðu.

Ég kom tveimur dögum síðar í aðra blóðprufu og fékk um leið bæk­ling um utan­legs­fóstur, eins konar fræðslu­bæk­ling sem engin gæti með nokkru móti til­einkað sér í þessum aðstæðum.

Á þessum tíma vann ég þannig starf að ég ferð­að­ist mikið erlendis. Ég átti flug stuttu eftir fyrri blóðpruf­una og spurði hjúkr­un­ar­kon­urnar á kvenna­deild­inni hvort ég ætti ekki að aflýsa því.

Nei, nei, þeim fannst ekki ástæða til þess, en fyrir þá sem ekki vita er lífs­hættu­legt að fara í flug með utan­legs­fóstur.

Ég hringdi svo oft á þessa deild næstu daga, ég þurfti að ganga á eftir öllu, meðal ann­ars nið­ur­stöðum úr blóðprufum í annað sinn.

Hrædd, ráða­laus og ósofin fór ég loks niður á kvenna­deild og sagð­ist ekki ætla að fara þaðan út fyrr en nið­ur­staða væri komin í mitt mál.

Loksins, lík­lega viku eftir són­ar­inn, fékkst læknir til þess að skoða mig og til­kynna mér að fóstrið væri ekki á réttum stað; utan­legs­fóstur.

Það er eng­inn bæk­lingur sem und­ir­býr konu fyrir svona fréttir, það er mann­legt inn­grip sem þarf, ekki bæk­lingur.

Faðmlag frá ókunn­ugum lækni eða hjúkr­un­ar­konu hefði ég miklu frekar þegið á þessum tíma­punkti. Í stað­inn fékk ég að heyra þá glöt­uðu romsu hversu algengt það væri að konur misstu fóstur, auk þess þá úti­loki utan­legs­fóstur alls ekki frek­ari barn­eignir í fram­tíð­inni.

HA?

Þessi skila­boð væri hægt að koma með síðar, löngu síðar, ekki á sömu mín­útu og maður reynir að skilja hvers vegna maður fái ekki að elska þetta barn og af hverju þessi hug­mynd hafi verið rifin frá þér.

Ég fór í aðgerð seinna og var komin heim um mið­nætti, tóm og örmagna.

Þegar ég lít til baka þá veit ég að það tók mig frekar langan tíma að kom­ast yfir þetta. Ég grét mikið og þótti allt ósann­gjarnt, enn þá með horm­ónaflæðið í rugli eftir þung­un­ina.

Loks tókst mér að horfa fram á veg­inn og vinna úr þessu.

Ég mun þó aldrei gleyma til­finn­ing­unni, og það gerir engin kona í sömu stöðu.

Sorgin sem fylgir er nístandi og ég get ekki ímyndað mér hvernig fólk tekst á við miss­inn þegar lengra er liðið á með­göng­una. Það eru hetjur.

Ég vona svo inni­lega að ein­hver breyt­ing hafi átt sér stað á kvenna­deild­inni. Að konur sem þangað komi núna fái ekki bara bæk­ling og „svona er þetta bara“ hvatn­ing­ar­ræðu með ábend­ingu um að þetta gangi bara betur næst.

Það þarf fræðslu, við­bragð­steymi, faðm­lag, umhyggju, hvað sem er, bara ekki annan bæk­ling.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð