Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Guðbergur Guðnason er látinn: „Það varð að lokum heimsfaraldurinn mikli sem lagði kappann“

Guðbergur Guðnason er látinn: „Það varð að lokum heimsfaraldurinn mikli sem lagði kappann“
Bergur Guðnason á góðum degi. Hann lést í gær. Mynd: Guðmundur Sigurðsson.

Guð­bergur Guðnason frá Flateyri lést á Lands­spít­al­anum í gær. Hann var 74 ára. Guð­bergur var betur þekktur sem Bíla-Bergur en það við­ur­nefndi fékk hann vegna akst­ursleikni hans og yfir­burða­þekk­ingu á bílum. Guð­mundur Sig­urðs­son, vinur hans,  minn­ist félaga síns á Facebook.„Það hryggir að segja frá að vinur minn í hálfa öld, Bíla-Bergur lést í gær á sjúkra­húsi í Reykja­vík. Það varð að lokum heims­far­ald­ur­inn mikli sem lagði kapp­ann, oft mátti litlu muna en þetta var öfl­ugur and­stæð­ingur og því fór sem fór,“ skrifar Guð­mundur.Hann segir að mann­lífið verði fátækara eftir frá­fall Bergs.„Óhætt er að segja að hann hafi um langt ára­bil verið þekkt­astur allra Flat­eyr­inga, það var sama hvar maður kom, alls­staðar var fólk sem sagði manni sögur af Bergi. Man eftir sól­baði í Flóka­lundi hvar við nokkrir félagar lágum í leiti á milli dans­leikja. Þar kom maður að, þegar hann vissi að við værum frá Flateyri hóf hann umsvifa­laust að segja okkur sögur af Bíla-Berg og sagð­ist þekkja hann vel. Við spurðum hvort hann hefði eitt­hvað séð hann á svæð­inu en komu­maður neit­aði því. Ég var ekk­ert að eyði­leggja frá­sögn­ina hans með því að upp­lýsa að þessi til­tekni Bíla-Bergur lægi hér með okkur í gras­inu,“ skrifar Guð­mundur.Hann rifjar upp að fyrr á árum bar það á góma að það gæti verið snið­ugt að gera Berg út til að stunda kappakstur.„Jón Gunnar Stef­áns­son, útgerð­ar­maður á Flateyri, hafði á orði þegar hann horfði á Berg dansa á bíl að tog­ara­út­gerð væri bara vit­leysa, ef menn ætl­uðu að eign­ast pen­inga ætti að fjár­magna Berg í kappakstur í útlöndum, það myndi skila á við marga tog­ara. Hygg að það hafi verið rétt hjá Jóni eins og svo margt annað,“ skifar Guð­mundur.Guð­bergur lætur eftir sig þrjár dætur.Mannlíf vottar aðstand­endum Bergs dýpstu samúð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ