Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tolli Morthens og Qing: „Vertu ljós og það lýsir“

Tolli Morthens og Qing: „Vertu ljós og það lýsir“
Tolli og Qing. Mynd: Róbert Reynisson

Góður ilmur af ilmol­íum og tei tekur á móti blaða­konu Mannlífs í húsi Heilsu­drek­ans í Skeif­unni þar sem við höfðum mælt okkur mót. Róandi kín­versk tón­list ómar og við blasir lista­gall­er­íið, fullt af kín­versku postu­líni.

Gest­gjafar eru Tolli Morthens, einn af nem­endum Drekans, og Dong Qing Guan, oft­ast kölluð Qing, eig­andi Heilsu­drek­ans. Qing er yfir­veguð í fasi þar sem hún leiðir blaða­konu í gegnum gall­er­íið og inn í sal­inn, þar sem æfing­arnar fara fram. Qing útbjó und­ur­sam­legt te, sem borið var fram í litlum postu­líns­bolla. Við setj­umst á púða við lágt lang­borð í salnum, hvert við sinn enda borðs­ins. Teið var án efa eitt það bragð­besta sem blaða­kona hefur smakkað.

Upp­lifunin var eins og að stíga örstutt inn í annan menn­ing­ar­heim þar sem öll skiln­ing­ar­vit voru virkjuð.

Heilsu­lindin er í horn­húsi í Skeif­unni, stað­sett innst inn í götu af rað­húsum. Það var mikil til­hlökkun að hitta Qing, eig­anda lind­ar­innar og fá að kynn­ast töfrum Drekans.

Heilsu­drek­inn hefur marga fasta­gesti og einn af þeim er Tolli Morthens sem hefur stundað æfingar hjá Heilsu­drek­anum til fjölda ára. Hann hitti okkur Qing í heilsu­lind­inni þar sem við fórum yfir heim­spek­ina, kín­verskar lækn­inga­hefðir og aust­ur­lensk æfinga­kerfi.

Best geymda leyndarmál Reykjavíkur

Tolli Morthens mynd­list­ar­maður.

Tolli byrjar á því að útskýra að Heilsu­drek­inn sé: „eitt best geymda leynd­ar­mál Reykja­víkur.“ Það er aug­ljóst hvað hann er búinn að vinna mikið í sér og kafa djúpt ofan í þessi fræði. Það er nán­ast hægt að þreifa á orkunni sem mynd­ast hefur þegar sam­ræður hefj­ast.

„Vertu ljós og það lýsir. Ég hef aldrei verið með neinn áróður gegn mínu fólki, en svona smá saman pikka þau upp þessi fræði. Vertu fyr­ir­mynd,“ segir hann.

„Það er svo gott að eld­ast með þess­ari aðferð en ásamt and­lega þætt­inum, þá er verið að taka á sömu orku­kerf­unum. Þetta eru allt við­ráð­an­legar æfingar á öllum stigum, meira að segja þegar maður er orð­inn 110 ára.

Svo hjálpar það mikið að allar æfing­arnar eru teknar frá grunni,“ segir Tolli.

Við æfum stress, við æfum kvíða og við æfum neikvæðar tilfinningar

„Það er eitt sem við gleymum og það er að við æfum stress, við æfum kvíða og við æfum nei­kvæðar til­finn­ingar ómeð­vitað á hverjum degi. Vegna þess að hug­ur­inn er alltaf að elt­ast við athygl­ina, þá er athyglin mikið meira á erf­iðum til­finn­ingum, sem er eðli heil­ans.

Heilinn er fyrst og fremst með það hlut­verk að hjálpa okkur frá sárs­auka og hættu, sem þýðir að við erum alltaf að næra það – við erum alltaf með erf­iðar hugs­anir. Og þar af leið­andi erum við alltaf upp­tekin við að forð­ast þessar hugs­anir. Qigong og tai chi vinna með allar orku­stöðv­arnar og megin núvit­unda­ræf­ingar eins og öndun, hug­ann, lík­ams­vit­und­ina og rýmið.

Þegar þú þjálfar þetta þá kemstu út úr sjálf­stýr­ing­unni. Hvernig tök­umst við á við það að vera með heila eins og við erum með. Kín­verjar koma með þessa heim­speki úr daoisma.  Þetta flæðir þaðan og þró­ast hér og þar og er svo komið hingað til Íslands. Þetta er ekki ein­hver dul­speki. Það þarf að læra þetta og það þarf að iðka þetta. Það flotta við Heilsu­drek­ann er að hér get ég iðkað þessar æfingar í sér­stakri mið­stöð sem er alltaf til staðar og með þennan háa gæða­stuðul.

Ég hugsa svo upp­hátt: af hverju notum við ekki meira þessa heim­speki hérna heima og inn í fyr­ir­tæki? Væri hægt að nota þessar aðferðir í byrjun í dags? Það eru til mörg þús­und rann­sóknir sem sýna hversu vel qigong og núvit­unda­ræf­ingar vinna með lík­amann í heild sinni,“ segir Tolli.

Qing talar um að hún leggi áherslu á það við nem­endur sína að nota þessa tækni út í lífið og svarar Tolli því þannig, sem nem­andi í þessum fræðum.

„Af því að mesti kraft­ur­inn kemur úr ást­inni, ef maður ætlar að flæða verður maður að vera tengdur inn í þessa orku. Því þar er mesta orkan. Þegar þú nærð orku upp úr engu þá ertu algjört „power“. Maður er alltaf að lenda í árekstrum, en ef maður hefur þetta lög­mál og fer að læra þetta þá hættir lífið að vera svona erfitt og dramat­ískt.“

Mörg þúsund ára gömul vísindi

Heim­speki Heilsu­drek­ans er að mað­ur­inn sé sam­of­inn nátt­úr­unni. Hug­myndin er unnin út frá alda­gam­alli kín­verskri hefð og er Heilsu­lindin sú eina á Norð­ur­lönd­unum sem sér­hæfir sig í þess­ari heim­speki.

Kínversk lækna­vís­indi eru mörg þús­und ára gömul, þar sem heim­ur­inn, mað­ur­inn og jörðin eru sem eitt og sveifl­ast lík­amar okkar eins og árs­tíðir. Qing byggir æfingaplanið út frá árs­tíð­unum og leggur mikla áherslu á and­lega heilsu. Hún seg­ist vilja skoða heild­ar­mynd­ina og þá skiptir matar­æðið líka mjög miklu máli.

„Unga kyn­slóðin er með­vit­aðri, en þegar ég var að opna Heilsu­drek­ann var ekki mikið um þessar pæl­ingar. Ungt fólk er að skoða alla þætti og vill sam­eina and­legu þætt­ina meira heilsurútínu sinni,“ segir Qing.

Qing hefur unnið að þessum fræðum í 20 ár og hefur séð hvað gigt­ar­vanda­mál eru algeng hér á landi. Hún telur að það geti meðal ann­ars stafað af veð­ur­far­inu sem við búum við, en líka út af matar­æð­inu. Þegar hún kom til lands­ins fyrir 30 árum var ekki mikið úrval af græn­meti og ávöxtum, en það hefur mikið breyst – henni og okkur sem búum á Íslandi, til mik­illar ánægju.

Kvíði – þunglyndi – gigt – þyngdarstjórnun

Qing kom til Íslands frá Kína fyrir 30 árum eða árið 1991, og hóf strax und­ir­bún­ing Heilsu­drek­ans. Drekinn var í smíðum í átta ár og var svo loks opn­aður 1999. Qing tal­aði um að hún hefði viljað virða fyrir sér íslenska lifn­að­ar­hætti og hvernig Íslend­ingar væru til heilsu, á meðan hún þró­aði heilsu­lind­ina. Hún tók sér tíma til að kanna lands­lagið en hún vildi sjá hvort að það væri svig­rúm og áhugi á Íslandi fyrir fornan kín­verskan heilsu­lífs­stíl og hvernig hún gæti mótað hann að íslenskum hætti. Átta árum síðar var Heilsu­drek­inn opn­aður.

Til Heilsu­drek­ans kemur fólk aðal­lega með vanda­mál sem tengj­ast kvíða, þung­lyndi, gigt eða vegna þyngd­ar­stjórn­unar. En líka til að við­halda hreysti.

Tolli seg­ist fljót­lega hafa kynnt sér heilsu­lind­ina hjá Qing eftir að hann frétti af henni.

„Maður finnur að þetta eru allt hug­leiðslu­hreyf­ingar. Með bar­daga­list­inni kynn­ist maður mögu­leikum lík­am­ans og sér hversu stutt er á milli þess að vera harður og fara út í mýkt­ina.“

Tolli nýtir sér þessa tækni í list­málun sinni, en hann seg­ist vera svo­lítið „ori­ental“ í sínum stíl. Qing seg­ist einmitt taka eftir feng shui í list­inni hans og segir hann það akkúrat vera málið.

„Ég æfi TAI CHI alla­vega þrisvar í viku og kynnt­ist Heilsu­drek­anum í kringum 2000. Fyrir það hafði ég stundað karate og taikwondo. Ég var búinn að fylgj­ast með þessu og lang­aði að læra kung fu, en end­aði á því að fara í tai chi og qigong.“

Qing tekur undir með Tolla og telur best að meta hvern ein­stak­ling fyrir sig og sjá hvaða með­ferð hentar hverjum og einum. Við séum öll ólík en þess vegna henti ólíkar aðferðir hverjum og einum. Hún segir að Drekinn: „sé eins og skip á sjónum, stundum þarf ég að takast á við mik­inn öldu­gang en á öðrum tímum er lygn­ara.“

Í Heilsu­drek­anum er hægt að fá heilsu­m­eð­ferðir. Hún kannar hjá hverjum og einum hverjir séu helstu streitu­punkt­arnir og sér hvar spennan hefur myndað stíflu svo hægt sé að vinna úr því og losa um stífl­una.

„Sumir vilja djöfl­ast í rækt­inni vegna eymsla hér og þar í lík­am­anum. En ef þessi hegðun er skoðuð út frá kín­verskri heim­speki, þá er eins og fólk sé í rækt­inni án þess að hafa höf­uðið með. Margt af því fólki sem kemur til mín er með eymsli eða óþæg­indi í lík­am­anum sem kemur út frá and­legu meini, þess vegna er mik­il­væg­ast að byrja þar.“

Alls konar fólk kemur til hennar, allt frá 4 ára til 90 ára, bæði Íslend­ingar og fólk frá öðrum löndum. Hjá henni eru fastakúnnar til 20 ára og umhverfið alþjóð­legt. Í byrjun komu aðal­lega Íslend­ingar sem höfðu búið erlendis og höfðu kynnst þess­ari tækni þar.

Qing leggur mikla áherslu á að nem­endur hennar nýti tækn­ina í sínu dag­lega lífi. Noti aðferð­irnar úr tai chi og skynji vind­inn og rign­ing­una, en hreyf­ingum tai chi má líkja við vind­inn, segir hún.

Hvað stendur Heilsudrekinn fyrir?

Qing seg­ist enn þá vera að þróa heilsu­að­ferð­irnar út frá dao-heim­spek­inni, sem er gömul kín­versk heim­speki. Leið­ar­ljós Heilsu­drek­ans er að aðstoða fólk að ná betri heilsu og þjálfa hug­ann og lík­amann með mildi og sam­kennd. Aðal­málið er að fólk njóti sín og finni fyrir ham­ingju og gleði í æfing­unum.

Qing setur saman áætlun og með­ferðir sem eru ein­stak­lings­mið­aðar með það mark­mið að öðl­ast betri heilsu.

Hjá heilsu­lind­inni eru hópar að æfa kung fu sem hafa keppt erlendis á alþjóð­legum mótum og seg­ist Qing vera óend­an­lega þakk­lát fyrir góðan árangur hóps­ins. Þau hafa margoft hlotið verð­laun fyrir sína frammi­stöðu og jafn­vel unnið gull­verð­laun. Það sem styrkir enn betur heilsu­lind­ina er teng­ingin við alþjóð­lega skóla í Kína þar sem þau fá allar nýj­ustu upp­lýs­ing­arnar um heilsu og hreyf­ingu.

Kostir hins smáa, veika og mjúka

Heim­spekin sem Qing not­ast við í heilsu­lind­inni byggir á daoisma. Í daoisma er það þannig að í stað þess að hampa hinu stóra, sterka, harða og karl­mann­lega (yang) eru kostir hins smáa, veika, mjúka og kven­lega (yin) dregnir fram og hampað. Að mað­ur­inn sé í flæði með öllu.

Heilsu­drek­inn hefur verið í sam­starfi við Qigong og Wu Shu, alþjóð­leg sam­bönd og seg­ist upp­færa sína heilsu­lind í takt við nýj­ustu rann­sóknir. Frá Drekanum koma líka kepp­endur sem hafa náð mjög góðum árangri í keppnum í kung fu og qigong á erlendum vett­vangi, en þær byggj­ast á hefð­bundnum kín­verskum bar­daga­í­þróttum sem eiga sér aldagamla sögu.

Í Drekanum er kennt kung fu fyrir krakka, en það er talið hjálpa þeim sem eiga erfitt með að ein­beita sér.  Með kung fu er unnið að því að byggja krakk­ana upp and­lega jafnt sem lík­am­lega. Æfing­arnar byggj­ast að miklu leyti á leik­rænni tján­ingu, þar sem krakk­arnir bregða sér í hlut­verk ýmissa dýra, til dæmis apa, fugla og tígris­dýra. Krökk­unum er skipt niður eftir aldri, en yngstu krakk­arnir eru fjög­urra ára.

Heilsu­drek­inn er í sam­starfi við kín­verskan íþrótta­há­skóla og þaðan koma kenn­ar­arnir sem kenna í Drekanum.

Ferðaðist ein til Íslands

Qing fædd­ist í Norður-Kína, en flutt­ist síðar meir til Peking til að fara í háskóla. Hún stund­aði nám við China Academy of Chinese Medical Sciences og Capital Uni­versity of Physical Education And Sports og að loknu námi lang­aði hana að setja upp sína eigin heilslu­lind. Á þessum tíma var ekki eins mikið frelsi í Kína og er í dag og ákvað hún því að leita á önnur mið og varð Ísland fyrir val­inu. Að vera kona og vilja vera kenn­ari í Kína á þessum tíma var ekki auð­velt. Hún vildi eitt­hvað allt öðru­vísi, kynn­ast annarri menn­ingu og varð það til þess að hún ferð­að­ist ein til Íslands og kom sér fyrir.

Nota tæknina í daglegu lífi

Qing leggur mikið upp úr því að spjalla við nem­endur sína í byrjun hvers tíma og sjá hvar hóp­ur­inn er staddur and­lega og finna hver orkan sé, út frá því sem hún vill leggja áherslu á.

Það sem hún leggur áherslu á er að nota tai chi ekki bara inni í tím­anum heldur nota tækn­ina úti í dag­legu lífi og anda, slaka á, koma sér í ró og taka sér tíma, því það koma alltaf lausnir. Takast á við lífið í friði og ró, án þess að stjórna.

Í dag finnst Qing gott að geta notað það sem henni finnst best við kín­verska menn­ingu og það sem henni finnst best við íslenska menn­ingu og blanda því saman.

Hún endar sam­talið á gömlu kín­versku orða­til­tæki: „You will never cease to learn as long as you live.“

Við mælum með að skoðuð sé síða Heilsu­drek­ans og sam­band haft ef ein­hverjar spurn­ingar vakna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð