Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Andrea segist ekki nenna að kæra nauðgun á sér: „Ég mun aldrei ná fram réttlæti“

Andrea segist ekki nenna að kæra nauðgun á sér: „Ég mun aldrei ná fram réttlæti“

Í hinum flotta, fjöl­menna og opna hópi hópi á Facebook, Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu, sem telur tæp­lega fimm þús­und ein­stak­linga er margt óhugn­an­legt að finna; færslur sem sýna fram á hversu mikið ofbeldi er því miður að finna í okkar pínu­litla sam­fé­lagi lengst á norð­ur­hjara, sem lengi hefur státað sig af því að vera fyr­ir­mynd­ar­sam­fé­lag í sam­an­burði við flestar ef ekki allar þjóðir heims.

Andrea Aldan Hauks­dóttir segir frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hún var beitt, og ekki annað hægt en að segja að hún sé hug­rökk og bar­átt­uglöð, eins og þessir flottu ein­stak­lingar sem eru í hópnum Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu.

Andrea nafn­greinir mein­tan ger­enda sinn en Mannlíf mun ekki gera það, að svo stöddu.

Hér má sjá hluta úr færslu Andreu, birt með góð­fús­legu leyfi hennar:

„Ég sendi fyr­ir­spurn á lög­fræð­ing sem var marg­mælt með á Twitter-sam­fé­lag­inu fyrr á árinu.

Ég ætl­aði loks­ins að leggja fram kæru á hendur [þeim] sem nauðg­aði mér haustið 2011.

Mig langar ekk­ert sér­stak­lega að fara í mál, fara í gegnum mála­ferli og senda þau vitni sem ég hef í ferli, fara í gegnum rétt­ar­kerfi sem myndi bregð­ast mér.

Í þessu til­viki nennir kerfið ekki einu sinni að svara tölvu­póst­inum mínum.

Takk fyrir það.

Kerfið er möl­brotið og í raun­inni nenni ég ekki að fara í gegnum það. Ég mun aldrei ná fram rétt­læti í gegnum dóms­kerfið. Það eina sem ég vil er að fá að segja minn sann­leika um þennan mann sem í dag á konu og barn.

Konan veit greini­lega ekki hvers­konar mann [hann] hefur að geyma, og mæti [hann] ekki afleið­ingum gjörða sinna væri mín þögn að styðja undir þann veru­leika, að einn dag­inn gæti barnið hans lent í því sama.

Að karl­maður nýti sér ofurölvi ástand þess til að brjót­ast inn í lík­ama ann­arrar mann­eskju og ríða eins og ein­hverjum hlut.

Ég kynnt­ist [honum] í gegnum vin­konu mína stuttu eftir að ég end­aði ofbeld­is­sam­band. Ég var mjög týnd í líf­inu og hafði ánetj­ast kanna­bis. [Hann] rækt­aði kanna­bis og við keyptum stundum af honum gras og reyktum með honum. Stundum hitt­umst við bara tvö, reyktum og hlust­uðum á tón­list.

Á þeim tíma fannst mér hann smá kúl, og hann gaf til kynna að hann vildi eitt­hvað meira. Ég sagði honum að ég vildi bara vin­skap, enda nýkomin úr erf­iðu sam­bandi.

Ein­hverjum vikum seinna var staffa­djamm á þeim vinnu­stað sem ég vann á á þeim tíma og það var opinn bar. Ég var í mik­illi óreglu á þeim tíma og drakk alltof mikið. Ég man ekk­ert frá og með eft­ir­mið­deg­inum.

Á ein­hverjum tíma­punkti hafði ég dáið áfeng­is­dauða inni á kló­setti á Dönsku kránni. Stuttu seinna hefur hann komið keyr­andi, edrú, á bíl og náð í mig.

Ég vakna dag­inn eftir nakin í rúm­inu hans. Man ekki skít. Ég klæði mig og fer fram í eld­hús þar sem hann er. Ég spyr hvað hefði gerst í gær, hvort við hefðum sofið saman. Hann svarar:

“Þú vildir þetta.”

Upp frá þessu grennt­ist ég úr öllu hófi, gjör­sam­lega hvarf inn í mig, flosn­aði upp úr skól­anum og skildi ekki af hverju mér leið svona ömur­lega. Það hafði auð­vitað verið mér að kenna að vera svona full. Það eru rúm­lega 10 ár síðan en það eru bara þrír mán­uðir síðan mig dreymdi síð­ast martröð um hann.

Það er nákvæm­lega ekk­ert eðli­legt við það að edrú karl­maður keyri með ofurölvi stelpu heim, hvað þá örvist við mann­eskju í því ástandi, og hvað þá að hafa það í sér í að ríða henni.

Þetta er ekk­ert annað en við­ur­styggi­leg nauðgun og trún­að­ar­brot, og eftir 10 ára sárs­auka og skömm í þögn er það eina sem mig langar að skila skömminni. Þetta er það eina sem ég vil gera. Segja það upp­hátt, undir mínu nafni.

Sorrí með mig, þú hefðir bara átt að sleppa því að nauðga mér.

Farðu vel með þig og ég vona að þú lendir aldrei í því að ein­hver nauðgi barn­inu þínu.

Ég vona að það séu ekki allir eins og þú.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð