Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun: Braut á vinkonu sinni meðan hún svaf

Dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun: Braut á vinkonu sinni meðan hún svaf

Síð­ast­lið­inn föstu­dag stað­festi Lands­réttur dóm hér­aðs­dóms yfir manni sem var sak­felldur fyrir að hafa nauðgað konu í sept­em­ber árið 2019. Maðurinn hlaut átján mán­aða fang­els­is­dóm og var dæmdur til að greiða brota­þola eina og hálfa milljón króna í bætur.

Maðurinn er á þrí­tugs­aldri en var 22 ára þegar brotið var framið. Fram kemur í dómnum að hann og konan hafi verið trún­að­ar­vinir á þeim tíma. Maðurinn er ekki nafn­greindur í dómnum.

Í dómnum segir að konan hafi leyft mann­inum að gista heima hjá sér þegar þau fóru út að skemmta sér, því hann hafði skilið bíl sinn eftir heima hjá henni. Konan hafi gert mann­inum það fylli­lega ljóst að ást­ar­sam­band þeirra á milli væri ekki í boði, heldur væru þau ein­ungis vinir. Þau skemmtu sér saman og höfðu áfengi um hönd. Konan fór svo heim til sín, en mað­ur­inn hringdi síðan nokkrum sinnum í hana, ölv­aður. Hún leyfði honum að fá það gisti­pláss sem hún hafði áður lofað honum, hleypti honum inn og fór svo sjálf upp í rúm að sofa. Maðurinn lá á hinni hlið rúms­ins.

Konan seg­ist svo hafa rankað við sér um nótt­ina við skringi­lega til­finn­ingu. Henni hafi fund­ist líkt og hana væri að dreyma. Þá hafi hún fundið að mað­ur­inn lá þétt upp við hana, and­aði í eyra hennar og var með fingur uppi í leggöngum hennar. Konan greindi frá því að hún hefði frosið við þetta, því næst ýtt mann­inum í burtu og rekið hann á dyr.

Maðurinn neit­aði sök fyrir dómi og sagð­ist hafa verið þess full­viss að konan hefði verið vak­andi þegar hann stakk fingri sínum inn í leggöng hennar. Hann sagði hana fyrst hafa hreyft sig en þegar hann hafi fært hönd sína neðar og farið að eiga við kyn­færi hennar hafi hún gefið frá sér hljóð, „smá svona hljóð, svona ah“, sem hann hafi túlkað sem svo að hún væri jákvæð fyrir kyn­ferð­is­legu sam­neyti við hann. Honum hafi fund­ist eins og hún væri „til í“ hann. Hún hafi eftir það ekk­ert sagt við hann og hann hafi hætt eftir „smá tíma“.

Skortur á sam­þykki liggur til grund­vallar sak­fell­ing­unni. Í dómnum segir að brota­þoli hafi ekki getað spornað við verkn­að­inum vegna svefn­drunga. Við ákvörðun refs­ingar manns­ins var litið til þess að hann hefði ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi, hann hefði geng­ist við kyn­ferð­is­mök­unum og tjáð ein­læga iðrun vegna gjörða sinna. Hann hafi ekki haft styrkan og ein­beittan brota­vilja til að valda brota­þola skaða og sárs­auka.

Sömu­leiðis er í ákvörðun refs­ingar litið til þess að mað­ur­inn hafi brotið gegn mik­il­vægum hags­munum kon­unnar og brugð­ist trún­að­ar­trausti hennar. Brotið hafi haft „veru­leg nei­kvæð áhrif á líðan“ hennar.

Fram­burður kon­unnar var á báðum dóms­stigum tal­inn trú­verð­ugur og frá­sögn hennar af atvikum stöðug og skýr. Í dómnum kemur einnig fram að konan hafi greinst með áfallastreituröskun þegar mats­listi var lagður fyrir hana um mán­uði eftir að brotið var framið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð