Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Félagsbústaðir með allt niður um sig í Breiðholtinu – Ólöglegar framkvæmdir á vegum borgarinnar

Félagsbústaðir með allt niður um sig í Breiðholtinu – Ólöglegar framkvæmdir á vegum borgarinnar

Félags­bú­staðir, sjálf­stætt hluta­fé­lag í eigu Reykja­vík­ur­borgar, hafa staðið í ólög­mætum fram­kvæmdum við hús­næði sitt í Breið­holt­inu svo mán­uðum skiptir. Fram­kvæmd­irnar eru alfarið leyf­is­lausar og hefur félag­inu verið sent kvört­un­ar­bréf vegna máls­ins frá umhverfis- og skipu­lags­sviði borg­ar­innar.

Hinar ólög­mætu fram­kvæmdir við Írabakka hafa valdið íbúum hverf­is­ins ónæði.

Um er að ræða hús­næði Félags­bú­staða við Írabakka 2-16 í Breið­holti. Hinar leyf­is­lausu fram­kvæmdir hófust á vor­mán­uðum og hefur þeim ekki verið lokið enn. Lóðin er ófrá­gengin og fram­kvæmda­svæðið girt af með girð­ingum. Að sögn íbúa svæð­is­ins hefur lítið sem ekk­ert verið aðhafst þar í langan tíma.

Mannlíf leit­aði til Niku­lásar Úlfars Mássonar, bygg­inga­full­trúa borg­ar­innar, í leit að svörum um hvort fyrir fram­kvæmd­unum lægju til­sett leyfi. Erfitt reynd­ist að fá svar frá honum vegna máls­ins og það var ekki fyrr en Ólöf Örv­ars­dóttir, sviðs­stjóri umhverfis- og skipu­lags­sviðs, tók málið í sínar hendur sem skriður komst á það. Skrif­stofa bygg­inga­full­trúa fór í vett­vangskönnun og nið­ur­staðan var sú að Félags­bú­staðir væru ekki með leyfi fyrir fram­kvæmd­unum. Bygg­inga­full­trúi hefur síðan sent félag­inu kvört­un­ar­bréf vegna máls­ins.

Samkvæmt svörum frá borg­inni sóttu Félags­bú­staðir síð­ast um leyfi vegna hús­næð­is­ins í maí­mán­uði 2012 en þá var sótt um leyfi til að skipta um glugga milli íbúða, til að stækka opn­an­leg fög í stofu­gluggum og klæða að utan með klæðn­ingu. Síðan þá liggur ekk­ert leyfi fyrir til ann­arra breyt­inga eða fram­kvæmda og því ljóst að í vor var farið af stað með ólög­mætum hætti með til­heyr­andi raski fyrir íbúa.

Fyrir liggur að ekk­ert leyfi er til staðar vegna viða­mik­illa fram­kvæmda Félags­bú­staða við Írabakka.

Félags­bú­staðir er sjálf­stætt hluta­fé­lag sem er í 100 pró­senta eigu Reykja­vík­ur­borgar. Markmið félags­ins er að stuðla að vel­ferð í Reykja­vík með því að bjóða upp á hag­stætt leigu­hús­næði fyrir þá sem búa við knappan fjár­hag og kljást við félags­lega erf­iðar aðstæður. Félags­bú­staðir eiga og reka yfir 2.200 íbúðir í Reykja­vík.

Vegna fyr­ir­spurnar Mannlífs um fram­kvæmdir Félags­bú­staða í Breið­holti fór skil­mála­eft­ir­lit skipu­lags­sviðs borg­ar­innar á stúf­ana. Annars vegar var skoðað hvort leyfi þyrfti fyrir fram­kvæmd­unum og hins vegar hvort slíkt leyfi væri til staðar. Robert Pajdak, verk­fræð­ingur á umhverfis- og skipu­lags­sviði, var meðal ann­arra í mál­inu:

„Ekki hefur verið sótt um bygg­ing­ar­leyfi fyrir fram­kvæmdum á lóð­inni. Starfs­maður bygg­ing­ar­full­trúa skoð­aði fram­kvæmdir á staðnum og lóð­ar­höfum hefur verið sent bréf vegna máls­ins,“ segir Robert.

Félags­bú­staðir hafa áður verið í sviðs­ljós­inu vegna áður­nefnds hús­næði í Breið­holti, þar sem hinar leyf­is­lausu fram­kvæmdir standa yfir. Auðun Freyr Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Félags­bú­staða, sagði af sér árið 2018 sökum 330 millj­óna umfram­kostn­aðar við fram­kvæmdir á hús­næð­inu við Írabakka 2-16, á fjög­urra ára tíma­bili. Kostn­aður við fram­kvæmd­irnar var upp­haf­lega sam­þykktur 398 millj­ónir en end­an­legur kostn­aður var 728 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð