Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hamfarirnar í Súðavík: Heimiliskötturinn trylltist áður en höggbylgjan skall á húsinu

Hamfarirnar í Súðavík: Heimiliskötturinn trylltist áður en höggbylgjan skall á húsinu

Árla morg­uns mánu­dag­inn 16. jan­úar 1995 féll snjó­flóð á þorpið í Súðavík á meðan flestir voru í fasta­svefni. Í blind­byl og svarta­myrkri hófu heima­menn leit að sínum nán­ustu, ætt­ingjum og vinum við hrika­legar aðstæður.

Í bók Egils St. Fjeld­sted Þrek­virki er rætt við 40 manns sem annað hvort voru á heim­ilum sínum þegar flóðin skullu á þeim eða tóku þátt í björg­un­ar­störfum með ein­hverjum hætti. Í þessum spegli verður sögð saga þeirra sem bjuggu við Túngötu 4 í Súðavík á þeim tíma sem flóðið féll.

Túngata 12

„Hjónin Anna Jóhanna Gísla­dóttir (1949–2001) og Þráinn Ágúst Garð­ars­son (1946) bjuggu þar með dóttur sinni Hjördísi (1981). Þráinn var kokkur um borð í rækju­skip­inu Haffara ÍS, sem var vænt­an­legur til hafnar síðar um morg­un­inn. Gest­kom­andi var Sigríður Krist­jana Vagns­dóttir (1920–2007), móðir Önnu.

Þessi helgi var eins og flestar aðrar yfir vetr­ar­mán­uð­ina, nema að því leyti að sunnu­dag­inn 15. jan­úar átti Hjördís 14 ára afmæli. Dagurinn var fal­legur þegar snjónum kyngdi niður eftir hádegi. Hjördís stóð þá á tröpp­unum fyrir framan heim­ili sitt og horfði niður fyrir göt­una í átt að Túngötu 7. Fyrir utan húsið stóð Bella Aðal­heiður Vest­fjörð (1955–1995), móðir Petreu Vest­fjörð Vals­dóttur (1982–1995) bestu vin­konu Hjör­dísar, sem óskaði henni til ham­ingju með dag­inn.

Í glettni sagði hún: „Þú ferð bráðum að ná mér“. Örlögin urðu á þann veg að 2020 náði Hjördís Bellu Aðal­heiði í aldri, því hún var aðeins 39 ára þegar hún lést.

Á upp­vaxt­ar­árum Hjör­dísar í Túngötu 12 ræddu for­eldrar hennar oft um að skil­greint snjó­flóða­hættu­svæði væri aðeins örfáa metra fyrir ofan húsið. Í verstu veðr­unum, þegar for­eldr­arnir töldu mikla hættu á snjó­flóðum, kom fyrir að fjöl­skyldan svaf í stof­unni sem þau töldu örugg­ara þar sem hún sneri frá fjall­inu.

Rétt fyrir klukkan 06:20 vakn­aði Hjördís, fór fram úr rúm­inu og kveikti loft­ljósið
áður en hún skreið aftur undir hlýja sæng­ina. Skömmu áður hafði Anna móðir hennar
einnig vaknað þar sem hún hafði áhyggjur af Þráni um borð í Haffara ÍS vegna
veð­urs­ins, en bát­ur­inn lá í vari undir Grænu­hlíð.

Anna var rétt ókomin úr úr þvotta­hús­inu þegar heim­il­is­kött­ur­inn tryllt­ist, henni til mik­illar undr­unar. Gekk hún þá að svefn­her­berg­is­dyrum Hjör­dísar sem sett­ist upp í rúm­inu þegar hún sá móður sína standa í dyra­gætt­inni. Um leið heyrð­ist gíf­ur­legur hávaði og drunur er snjó­kóf sprakk upp með svefn­her­berg­is­glugg­unum. Kraftur högg­bylgj­unnar, á undan snjó­flóð­inu, var slíkur að amma Hjör­dísar, sem svaf í næsta her­bergi, féll fram úr rúm­inu.

Andartak leið þar til Hjördís átt­aði sig á að snjó­flóð hafði fallið á húsið og um leið hljóp hún skelf­ingu lostin í fang móður sinnar. Ef til vill var það öllum til happs, og kannski lífs, að fyrir ofan húsið var hár skafl sem varð til þess að flóðið fór yfir það og til beggja hliða. Mest hafði þó að segja að húsið stóð í jaðri flóðs­ins sem varð til þess að snjór­inn náði ein­göngu að brjóta tvennar hlið­ar­dyr og fyllti inn­gang og þvotta­hús þar sem Anna hafði staðið rétt áður.

Mæðgurnar þrjár átt­uðu sig fljótt á að þær væru fastar inni í hús­inu. Rafmagn var á en ekk­ert síma­sam­band. Reyndu þær fyrst að kom­ast út um þvotta­húsið en náðu aðeins að opna litla rifu á dyr­unum, sem nægði til að sjá að snjór­inn náði nán­ast upp í loft. Vissu þær að til­gangs­laust væri að reyna að kom­ast út um aðal­dyrnar, sem und­an­tekn­ing­ar­laust skóf fyrir í vondum veðrum. Reyndu þær næst að kom­ast út um svala­dyrnar að fram­an­verðu en sáu strax að snjó­veggur var fyrir þeim. Steig Hjördís þá upp í glugga­kistu við hlið­ina á svala­hurð­inni og náði að opna lítið opn­an­legt fag efst á stofu­glugg­anum. Út um það náði hún að greina ljóstíru í húsi fyrir neðan göt­una um leið og hún hróp­aði á hjálp. Gekk það þannig um tíma þar til hún sá glitta í mann í sort­anum sem var að moka við nálægt hús.

Hann varð ekki var við hrópin vegna veð­urofs­ans og vélsleða­hjálms sem hann bar á höfð­inu. Leið smá­tími þar til hún sá annan mann koma gang­andi í gegnum flóða­svæðið á Túngötu í átt að heim­ili hennar. Hrópaði hún af öllum lífs og sálar kröftum í átt að honum sem varð til þess að hann tók eftir henni. Reyndist þetta vera Gunnar Finnsson hrepp­stjóri, sem bjó á Túngötu 18, en hann gekk á milli húsa og athug­aði ástand íbú­anna. Þegar hann sá að ekk­ert amaði að mæðg­unum fór hann að næsta húsi fyrir innan, Túngötu 14.

Hjónin Barði Ingi­bjarts­son (1955) og Oddný Elínborg Bergs­dóttir (1960) bjuggu þar ásamt þremur börnum. Oddný Elínborg hafði vaknað upp við högg um klukkan 06:20, sem líkt­ist helst hávaða þegar snjó­fleki fellur fram af hús­þaki. Lágu þau enn í hjóna­rúm­inu þegar Gunnar bank­aði á glugg­ann hjá þeim. Þegar hann var búinn að upp­lýsa þau um stöð­una, eins langt og vit­neskja hans náði á þessum tíma, bað hann Barða að hjálpa mæðg­unum og hélt síðan áfram sinni för. Barði fór rak­leitt yfir að hús­inu þar sem Hjördís stóð enn í glugg­anum og hóf að moka frá svala­hurð­inni. Á meðan var eig­in­kona hans heima og und­ir­bjó börnin til að yfir­gefa heim­ilið.

Um leið og nægi­lega stór rifa mynd­að­ist í dyra­gætt­inni tók Hjördís eftir að móðir hennar stakk höfð­inu út og spurði Barða að ein­hverju sem hún greindi ekki. Svarið heyrði hún hins vegar nokkurn veg­inn og var það á þessa leið: „Nei, allt er farið“. Brá Hjördísi við þessi orð. Taldi hún víst að næsta hús við hlið­ina, Túngata 10, hefði orðið fyrir flóð­inu.

Á meðan Barði kláraði að moka frá svala­hurð­inni tíndu þær saman léttan sum­ar­klæðnað sem þær fundu. Allur hlýr vetr­ar­fatn­aður var graf­inn í þvotta­hús­inu þar sem fjöl­skyldan gekk um dag­lega og eina yfir­höfnin sem Hjördís fann var alltof stór regnjakki af föður hennar. Þegar mæðgurnar komu út á pall­inn fyrir framan húsið leit Hjördís út eftir göt­unni, í átt að Túngötu 10. Blasti þar við henni jaðar snjó­flóðs­ins, sem minnti helst á þver­hnípt bjarg á milli hús­anna.

Eftir stutt stopp á heim­ili Barða og Oddnýjar Elín­borgar fór allur hóp­ur­inn saman niður í Hrað­frysti­húsið Frosta. Til að kom­ast þangað fóru þau fyrst niður Gríms­brekku og þaðan inn á Aðalgötu, þar sem þau gengu fram á stór­skemmdan bíl í eigu Berg­lindar Maríu Krist­jáns­dóttur og Haf­steins Núma­sonar. Hjördísi varð star­sýnt á bíl­inn og byrj­aði hún þá fyrst að átta sig á að eitt­hvað alvar­legt hefði gerst.

Á sama tíma var hún efins því allt sem hún hafði séð áður var of óraun­veru­legt til að það gæti verið satt. Hugsaði hún með sér að kannski væri þetta ekki svo alvar­legt, ef til vill hefðu ein­göngu lausa­munir farið með flóð­inu. Þessar sak­leys­is­legu hugs­anir áttu eftir að breyt­ast er hún kom í hrað­frysti­húsið.“

Byggt undir brattri hlíð

„Heim­ildum ber ekki saman um hvort eitt eða tvö snjó­flóð hafi fallið með stuttu milli­bili á þorpið og sama gildir um tíma­setn­ingu. Kemur þar einkum þrennt til.

Í fyrsta lagi stöðv­að­ist vegg­klukka í Pósti og síma við Aðalgötu klukkan 06:17, þegar hún féll niður um leið og snjó­flóðið kom á húsið.

Í öðru lagi tók Elvar Ragn­ars­son vél­stjóri eftir tveimur trufl­unum sem komu fram á mælum á raf­orku­kerfi vara­afls­stöðvar Súða­víkur með nokk­urra sek­únda milli­bili um klukkan 06:20.

Í þriðja lagi taldi Snorri Edvin Her­manns­son (1934–2020) vett­vangs­stjóri aðgerða í Súðavík sig sjá merki um að tvö flóð hefðu fallið með stuttu milli­bili. Rök­studdi hann til­gát­una á þann veg að þegar snjó­flóð féll á sum­ar­bú­staða­byggð­ina í Tungudal á Ísafirði vet­ur­inn 1994 hafi sum­ar­bú­stað­irnir í innri hluta flóðs­ins sprungið í smátt og hús­þökin borist í heilu lagi langa vega­lengd.

Sum­ar­húsin í ytri hluta flóðs­ins færð­ust hins vegar nán­ast í heilu lagi tugi metra frá grunni sínum. Í Súðavík hafi mátt sjá sam­bæri­legt mynstur. Innri hluti flóðs­ins virt­ist hafa fallið á undan með þeim afleið­ingum að húsin tætt­ust í sundur um leið og hús­þökin lyft­ust upp og féllu síðan niður í heilu lagi. Benti þetta til að á undan snjómass­anum niður hlíð­ina hafi verið mik­ill loft­þrýst­ingur. Í ytri hluta flóðs­ins hefði snjómass­inn hins vegar lagt húsin saman og fyllt þau af snjó.

Hér verður hvorki skorið úr um hvort snjó­flóðin voru eitt eða tvö né nákvæm­lega hvað klukkan var þegar þessi örlaga­ríki atburður gerð­ist. Í fjöl­mörgum heim­ildum, eins og til dæmis á stóru upp­lýs­inga­skilti um snjó­flóðið við hlið­ina á gamla póst­hús­inu í Súðavík, er miðað við 06:20 og því verður stuðst við þá tíma­setn­ingu.

Vegna stór­hríðar sem stóð yfir sleitu­laust til fimmtu­dags var ekki hægt að kanna upp­tök snjó­flóðs­ins en talið er lík­legt að hengjur hafi fallið úr fjalls­brún­inni, og klettum neðan hennar, sem komið hafi af stað fleka neðar í hlíð­inni.

Áætluð lengd flóðs­ins var um 1.200 metrar, breiddin um 400 metrar og snjómass­inn um 80.000 rúmmetrar. Samkvæmt reikni­lík­ani, sem var gert fljót­lega eftir að flóðið féll, náði það rúm­lega 150 kíló­metra hámarks­hraða í um 100 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Talið er að dregið hafi úr hrað­anum og flóðið hafi verið á 65 kíló­metra hraða þegar það skall á efstu hús­unum við Túngötu og Nesveg.“

Ekki gleyma því sem gerðist

Í for­mála bók­ar­innar talar Egill um þá hug­mynd að rita sögu þeirra sem lentu í snjó­flóð­unum í Súðavík og Reyk­hóla­sveit 1995, ásamt hinum viða­miklu björg­un­ar­að­gerðum við erf­ið­ustu aðstæður sem hugs­ast getur. Hug­myndin hafði fylgt honum í all­nokkurn tíma.

„Eftir að hafa gefið út bók um Krapa­flóðin á Pat­reks­firði 1983 sem kom út 2020, og fundið fyrir þakk­læti frá þeim sem í þeim lentu, óx mér ásmegin að hefja ritun sögu þeirra atburða sem hér er fjallað um um.

Það má nefni­lega ekki gleyma því sem gerð­ist í þessum miklu nátt­úru­ham­förum og því gríð­ar­lega þrek­virki sem björg­un­ar­menn unnu við óheyri­lega erf­iðar aðstæður.“

Hægt er fræð­ast nánar um atburð­ina í bók Egils sem heitir Þrek­virki. Bókin prýðir fjölda mynda og er hægt að nálg­ast hana í helstu bóka­búðum og hjá höf­undi – sjá fés­bók­ar­tengil.

Heimild:

Egill St. Fjeld­sted. 2021. Þrek­virki. Egill St. Fjeld­sted. Reykja­vík.

Ópr. End­ur­minn­ingar Snorra Edvins Her­manns­sonar.

Snjóflóð 1995, Skýrsla um snjó­flóðin í Súðavík og Reyk­hóla­sveit í jan­úar 1995, bls. 8.

Viðtal. Höfundur við Hjördísi Þrá­ins­dóttur, 17. júní 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð