Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hilmar allsherjagoði:„Alinn upp á orgelbekknum í Dómkirkjunni því Páll Ísólfsson var barnapían mín“

Hilmar allsherjagoði:„Alinn upp á orgelbekknum í Dómkirkjunni því Páll Ísólfsson var barnapían mín“
Hilmar Örn Hilm­ars­son alls­herj­ar­goði. ása­trú­ar­menn halda í dag á vetr­ar­sól­stöðum upp á jólin sín. (Mynd: Frið­þjófur Helgason.)

„Þetta er upp­haf,“ segir Hilmar Örn Hilm­ars­son, alls­herj­ar­goði Ása­trú­ar­fé­lags­ins, þegar hann er spurður hvað dag­ur­inn í dag, 21. des­em­ber, þýði fyrir hann en ása­trú­ar­menn halda í dag á vetr­ar­sól­stöðum upp á jólin sín. „Þetta er hátíð sem er líf­fræði­lega nauð­syn­leg út af sól­ar­gangi en fólk hefur á öllum tímum fundið þörf fyrir að hafa þetta hátíð­leg tíma­mót og vera með helgi­at­hafnir. Þessi hátíð hefur verið iðkuð í öllum sam­fé­lögum á öllum tímum – þegar þessi nýja hringrás hefst; vetr­ar­sól­stöður.

Jólin eru nátt­úr­lega æva­gam­alt nafn úr heiðni.

Eitt af nöfnum Óðins er Jólnir og jólin hafa ætíð verið stór í hinum heiðna átrún­aði.
Jólin eru nátt­úr­lega æva­gam­alt nafn úr heiðni. Þetta er heiðið nafn sem sumir hafa tengt við „sól“ eða „hjól“. Það var alltaf ein­hver hátíð á þessum tíma­mótum. Það skipti máli að hjálpa sól­inni að koma aftur upp á tákn­rænan hátt. Það átti að vera til ákveðið magn af mat og drykk og sumir vilja meina að fólk hafi jafn­vel verið með ein­hverjar frjó­sem­is­há­tíðir sem tengd­ust þessu til að hjálpa sól­inni og frjó­magni jarðar. Eða þá skemmti­leiki. Þetta hefur alltaf verið mjög sterk hátíð. Hjá okkur ása­trú­ar­mönnum er þetta svo nátengt nátt­úr­unni sem vaknar með rísandi sól­ar­gangi. Þegar þessi nýja hringrás byrjar.“

Jólablót heima
Á heima­síðu Ása­trú­ar­fé­lags­ins, asatru.is, segir: „Jólablót við vetr­ar­sól­hvörf er hin forna hátíð ljóss­ins þegar sólin fer hækk­andi á lofti og dag tekur að lengja. Þetta eru tíma­mót nýs upp­hafs, nýs árs, nýs lífs og er því einnig hátíð barn­anna sem oft leggja sitt af mörkum við sér­staka ljósa­at­höfn. Er þá blótað til árgæsku, til heilla Freys, til árs og friðar.“
Vegna Covid-heims­far­ald­urs­ins munu ása­trú­ar­menn halda sín jóla­blót vænt­an­lega flestir heima hjá sér og svo var líka í fyrra. Annars væri þetta öðru­vísi. „Við værum þá saman komin í stórum sal, á bil­inu 150 manns,“ segir Hilmar Örn en þess má geta að 1. jan­úar 2021 foru félagar 5.118. „Það væri  mikið af tón­list og kveð­skap. Það væri sungið. Börnin eru yfir­leitt alltaf í önd­vegi. Þau fá litlar gjafir og eru með lít­inn helgi­leik þar sem þau eru með kerti og kveikja með þeim tákn­rænt á sól­inni en þá raða þau kertum í spíral. Þar sem þetta verður ekki gert í kvöld þá kveikjum við ljós í hjört­unum í stað­inn.“

Það er svo nauð­syn­legt að koma saman í þesssum litla hóp til að markera þetta nýja upp­haf en fyrir marga er þetta upp­hafið að nýju ári en við tökum smá­for­skot á sæl­una með nýja árið.

Hilmar Örn er heima í sótt­kví og mun halda þar upp á jólin í kvöld. „Ég kveiki á mínum kertum og held mitt blót heima í sótt­kví. Blótið í ár, eins og i fyrra, er frekar óhefð­bundið af því að við getum ekki verið með þessa sam­neyslu og veislu sem fylgir þessu yfir­leitt og við getum ekki einu sinni gefið fólki hangi­kjöt eða mandar­ínur á úti­blót­inu. Það er svo nauð­syn­legt að koma saman í þesssum litla hóp til að markera þetta nýja upp­haf en fyrir marga er þetta upp­hafið að nýju ári en við tökum smá­for­skot á sæl­una með nýja árið. Yfir­leitt eru jól og ára­mót miklu lengri hátíð hjá okkur ása­trú­ar­mönnum af því að við byrjum á vetr­ar­sól­stöðum og svo erum við langt fram á nýja árið að halda upp á þessi tíma­mót,“ segir Hilmar Örn sem heldur líka kristin jól með fjöl­skyldu og vinum. „Jólin hjá okkur eru þess vegna miklu lengri og kannski meiri og stærri í sniðum þegar allt er saman lagt.“
Hilmar Örn og og fjöl­skylda hans eru í sótt­kví og það verður kjúklingur í mat­inn í kvöld. „Það er af illri nauð­syn en við höfum ekki farið út í búð í smá­tíma. Annars ánetj­að­ist ég kalkúni þegar ég bjó í Englandi og hann verður í mat­inn á aðfanga­dags­kvöld. Síðan er það hangi­kjöt og fleira þegar bæt­ist í hátíð­ina.“
Hilmar Örn er spurður hvort hann ætli í spari­fötin í kvöld.
„Ég ætla ekki að vera í lopa­peys­unni. Það er mikil hátíð þegar ég fer úr henni.“

Siðareglurnar í Hávamálum

Blaða­maður tók líka við­tal við Hilmar Örn á sum­ar­mán­uðum þegar sólin var sem hæst á lofti. Þar sagði hann meðal ann­ars frá æsk­unni og tón­list­inni í lífi sínu.
„Ég hafði mjög sterkt ímynd­un­ar­afl og mikla hneigð til lista. Ég hafði mikla hneigð til að stunda list af ein­hverju tagi.“

Mér fannst kristni vera ágæt og mér finnst hún ennþá vera ágæt en hún heill­aði mig ekki.

Hann seg­ist hafa alist upp í mjög kristnu umhverfi.
„Það má segja að ég hafi verið alinn upp á org­el­bekknum í Dóm­kirkj­unni því Páll Ísólfs­son var barnapían mín og ég fór alltaf með honum í Dóm­kirkj­una þegar hann var að æfa sig. Dóm­kirkju­prestar voru heim­il­is­vinir og höfðu gaman af að tala við skrýt­inn strák um trú­ar­brögð. Mér fannst kristni vera ágæt og mér finnst hún ennþá vera ágæt en hún heill­aði mig ekki. Ég fór þangað sem ég fann sam­hljóm. Ég skoð­aði aðra trú. Ég hef alltaf haft mikla trú­ar­þörf og það hefur alltaf verið mik­il­vægt fyrir mig að horfa á stærra sam­hengi. Þó mér sé ekki vel við Carl Gustav Jung sál­fræð­ing þá er ég samt mjög sam­mála honum að trú­ar­þörfin sé ekki síðri þörf en kyn­hvötin eða þörfin fyrir að kom­ast af. Það er stór þáttur í okkur að þurfa að finna ein­hvern far­veg fyrir þá til­finn­ingu að maður sé hluti af ein­hverju stærra sam­hengi.
Það var ekki síst  undir áhrifum frá Einari, syni Páls Ísólfs­sonar, fræði­manns og skóla­stjóra Mála­skól­ans Mímis, sem ég dáði mjög. Ég gerð­ist rót­ari hjá Einari og hélt á glærum þegar hann byrj­aði með fyr­ir­lestra um rætur íslenskrar menn­ingar í Norræna hús­inu 1968. Síðan var Ása­trú­ar­fé­lagið stofnað þegar ég var 14 ára gam­all en því miður gat ég ekki gengið í það strax og þurfti að bíða þangað til ég var orð­inn 16 ára. Þannig að ég mætti í Þjóðskrá á 16 ára afmæl­is­dag­inn minn og skráði mig í Ása­trú­ar­fé­lagið. Þá voru innan við 40 manns í félag­inu.“
Hilmar Örn við­ur­kennir að hafa orðið fyrir for­dómum eftir að hann gekk í félagið.
„Já, smá. Í byrjun. Það var talað dálítið illa um félagið og það var litið á það eins og þetta væri ein­hver brand­ari og að okkur væri ekki alvara. Ég var í Mennta­skól­anum við Tjörnina og þar var á mál­fundi um trú haldið fram að þetta væri félag sem hefði verið stofnað á veit­inga­staðnum Óðali og gengi út á sukk. Við höfum verið gagn­rýnd og gerð hlægi­leg á margan hátt í ára­tugi. En ég verð að segja að ég fann fyrir ofboðs­legum við­snún­ingi árið 2000 í kringum kristni­há­tíð­ina á Þing­völlum þar sem átti að úthýsa okkur og stöðva okkar hefð­bundna blót. Þá breytt­ist þetta og fólk sá að okkur var alvara mitt í öllum far­s­anum þegar átti að úti­loka okkur frá kló­settum á Þing­völlum.“
Hvað heill­aði ungan strák við ása­trúna?
„Þetta eru ekki bara goð­sögur og tengsl við eitt­hvað sem maður veit að er ævafornt heldur líka sið­fræðin í Háva­málum.“

Ása­trú­ar­menn iðka trú sína á hvern þann hátt sem hverjum og einum hentar svo fram­ar­lega sem iðkunin brýtur ekki á bága við lands­lög.

Á heima­síðu Ása­trú­ar­fé­lags­ins, asatru.is, stendur:
„Ásatrú, eða heið­inn siður, bygg­ist á umburð­ar­lyndi, heið­ar­leika, dreng­skap og virð­ingu fyrir fornum menn­ing­ar­arfi og nátt­úr­unni. Eitt meg­in­inn­tak sið­ar­ins er að hver maður sé ábyrgur fyrir sjálfum sér og gjörðum sínum.
Í Háva­málum er einkum að finna siða­reglur ása­trú­ar­manna.
Heims­mynd ása­trú­ar­manna er að finna í Völuspá. Þar er sköp­un­ar­sög­unni lýst, þróun heims­ins, enda­lokum hans og nýju upp­hafi.
Í trú­ar­legum efnum hafa ása­trú­ar­menn aðal­lega hlið­sjón af hinum fornu Eddum. Margir ása­trú­ar­menn líta frekar á ása­trú sem sið eða lífs­stíl heldur en bein trú­ar­brögð.
Að kalla sið­inn ása­trú er reyndar vill­andi þar sem átrún­aður er ekki ein­ungis bund­inn við æsi, heldur hvaða goð eða vætti sem er að finna innan nor­rænnar goða­fræði og þjóð­trúar, svo sem land­vætti, álfa, dísir, vani, jötna, dverga og aðrar mátt­ugar verur eða for­feður.
Ása­trú­ar­menn iðka trú sína á hvern þann hátt sem hverjum og einum hentar svo fram­ar­lega sem iðkunin brýtur ekki á bága við lands­lög.“

Hilmar Örn Hilm­ars­son. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Prívat mennt­aður í tón­smíðum
Jú, Hilmar Örn fór að sækja athafnir Ása­trú­ar­fé­lags­ins en það er annað sem átti líka hug hans. Tón­listin. Hann lærði á blokk­flautu og síðar fiðlu og píanó og var í tón­list­ar­námi fram á ung­lingsár. Og hann samdi tón­list.
„Tón­listin var hluti af upp­eldi mínu. Ég var alltaf að reyna að hætta að gera tón­list og reyndi það með ýmsum ráðum og mér mistókst hrapal­lega. Svo ákvað ég að vera sá sem ég er sem er mjög fínt og hefur reynst far­sælt.“
Hver er Hilmar Örn Hilm­ars­son?
„Maður sem lifir fyrir tón­list og harm­oníu. Það er bara þannig.
Alveg frá upp­hafi. Hvað sem er. Nema að ég gat ekki hlustað á ómstríða tón­list fyrr en ég var ung­lingur. Ég var alinn upp í ákveð­inni spenni­treyju vest­rænnar tón­listar og popptón­list hljóm­aði mjög falskt fyrir mér. Ég fékk gæsa­húð og mér leið illa ef ég heyrði Kinks og ákveðnar hljóm­sveitir sem mér fannst hanga í tón­inum. Svo get ég líkt því við trú­ar­upp­lifun þegar ég allt í einu fatt­aði Bítlana. Ég fatt­aði allt í einu Led Zeppelin og ég fatt­aði Trúbrot. Ég gerð­ist mjög hand­geng­inn The Rolling Stones.“

Svo tók rokk­djöf­ull­inn við. Ég var í rokk­hljóm­sveitum. Sú fyrsta sem hafði nafn hét Fatima.

Hann seg­ist hafa „haldið tón­list­ar­nám­inu út“ til 15 ára ald­urs.
„Svo tók rokk­djöf­ull­inn við. Ég var í rokk­hljóm­sveitum. Sú fyrsta sem hafði nafn hét Fatima.“ Hann var trommu­leik­ari í hljóm­sveit­inni Fatimu á árunum 1972-1975. Hann var trommu­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar Felli­byl­ur­inn Þórarinn frá árinu 1979 og síðan var það Frostrósir sem spil­aði aðal­lega diskótón­list. Hljóm­sveitin fékk svo nafnið Þeyr og gaf út plöt­una Þagað í hel í lok árs 1980. Hilmar Örn samdi suma text­ana.
Aðrar hljóm­sveitir tóku við og má þar síð­ast nefna MÖK Trio sem kom meðal ann­ars fram á Galdra­há­tíð­inni á Ströndum árið 2001.
Kvik­mynda­tón­listin sem hann semur er ævin­týra­lega fal­leg og má þar nefna tón­list í kvik­mynd­unum Bennu-Njáls­sögu, Skytt­unum, Börnum nátt­úr­unnar, Bíódögum, Djöfla­eyj­unni, Englum alheims­ins og Fálkum.
Hann samdi og samdi og samdi. Og hann kynnt­ist dulúð ása­trú­ar­innar æ meira.
„Ég var jafn­framt mjög hrif­inn af gyð­ing­legri dul­speki og hebr­eska er lyk­ill­inn að henni,“ segir tón­skáldið og alls­herj­ar­goð­inn sem seg­ist hafa endað á því að tipla á tánum í kringum stúd­ents­prófið og hafi verið met­inn inn í Háskóla Íslands þar sem hann lærði hebr­esku í eitt ár.
„Ég ætl­aði svo í nám sem kall­ast „Music information techonology“ en þá var mér farið að ganga svo vel í tón­smíðum að ég þurfti að slaufa því.

Evrópsku kvik­mynda­verð­launin
Snemma beyg­ist krók­ur­inn. Örlögin réð­ust við tjörn­ina í Reykja­vík þar sem kyn­slóðir hafa rennt sér á skautum þegar hún er ísi lögð og ungir og aldnir hafa á sól­ríkum sum­ar­dögum hent brauð­molum til fugl­anna. Þar réð­ust svo­lítið örlög alls­herj­ar­goð­ans á tón­list­ar­svið­inu.

Börn nátt­úr­unnar var til dæmis til­nefnd til Ósk­arsverð­laun­anna og Hilmar Örn fékk árið 1991 Evrópsku kvik­mynda­verð­launin fyrir tón­list sína í kvik­mynd­inni.

„Ég og Friðrik Þór Frið­riks­son kvik­mynda­gerð­ar­maður kynnt­umst í Mennta­skól­anum við Tjörnina þegar ég var 16 ára og hann var að verða tví­tugur. Hann var með Fjala­kött­inn, kvik­mynda­klúbb mennta­skól­anna.
Sam­starfið hefur sann­ar­lega verið far­sælt. Börn nátt­úr­unnar var til dæmis til­nefnd til Ósk­arsverð­laun­anna og Hilmar Örn fékk árið 1991 Evrópsku kvik­mynda­verð­launin fyrir tón­list sína í kvik­mynd­inni.
„Það hafði mjög sterk áhrif á líf mitt því að þá var ég allt í einu kom­inn í alþjóð­legt sam­hengi og kynnt­ist fólki frá öðrum löndum. Ég hef síðan unnið með erlendum leik­stjórum þannig að þetta hafði mjög góð áhrif á feril minn.
Ég hef fengið þó nokkuð af verð­launum og ansi mikið af til­nefn­ingum í gegnum tíð­ina.“
Hilmar Örn er rólegur. Hlé­drægur. Lít­il­látur. Það er ein­hver ró yfir alls­herj­ar­goð­anum. Tón­skáld­inu. Þegar leitað er upp­lýs­inga á net­inu þá er fer­il­skráin löng. Hér skal stiklað á stóru:
Hann ruddi braut­ina hér á landi þegar kom að því að nota tölvur við tón­smíðar sem og þegar kom að nýjum hug­myndum varð­andi upp­tökur. Hann hefur unnið meðal ann­ars að til­rauna­verk­efnum með ýmsum tón­list­ar­mönnum svo sem Sigur Rós, Stein­dóri Andersen og Eivør Páls­dóttur.

Á Wikipedíu má finna þetta meðal ann­ars; og þetta eru ekki allar kvik­mynd­irnar sem hann hefur unnið við:
Soundtracks

1981 – Brennu-Njáls­saga (Íslenska kvik­mynda­sam­steypan), directed by Friðrik Þór Frið­riks­son.
1987 – Skytt­urnar (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.
1991 – Börn Nátt­úr­unnar (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.

1992 – Svo á Jörðu Sem á Himni directed by Kristinn Jóhann­es­dóttir.
1992 – Ævintýri á Okkar Tímum, directed by Inga Lísa Midd­leton.
1993 – Hin Helgu Vé, directed by Hrafn Gunn­laugs­son.
1995 – Bíódagar (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.
1995 – Á köldum klaka /Cold Fever (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ.                 Frið­riks­son.
1996 – Anton (Jutlandia Film), directed by Aage Rais-Nor­dentoft.
1996 – Djöfla­eyjan (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.
1997 – Sekten, directed by Susanne Bier.
1998 – Vildspor directed by Simon Staho.
1999 – I Tigerens Øje, directed by Ulla Boje Rasmus­sen.
1999 – Bye Bye Blue Bird (Danish Film Institute), directed by Katrin Ott­ars­dóttir.
1999 – Ungfrúin góða og húsið, directed by Guðný Hall­dórs­dóttir.
2000 – Englar alheims­ins (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.
2000 – På Fremmed Mark (???), directed by Aage Rais-Nor­dentoft.
2002 – Fálkar (Icelandic Film Corporation), film directed by F. Þ. Frið­riks­son.
2005 – Beowulf & Grendel, film directed by Sturla Gunn­ars­son.

Dreymir tón­list
Tón­skáldið og alls­herj­ar­goð­inn er spurður á hvað hann leggi áherslu í tón­smíðum sínum.
„Það sama og hvernig ég haga lífi mínu. Það er til­finn­ingin. Að fylgja alltaf til­finn­ingu og inn­sæi og leita að ein­hverri innri lógík. Ég er ekki á neinn hátt næmur – ég hef aldrei séð álf, huldu­konu eða draug þótt mig dauð­langi til þess – en ég get samt alltaf tengt mig við eitt­hvað með minni lélegu og göt­óttu lógík. Ég veit ekki hvað það er og ég þori ekki einu sinni að skil­greina það. Ég leita í eitt­hvað sem er stærra en ég er. Það er raun­veru­lega þannig.“
Nóbels­skáldið skrif­aði um hinn hreina tón. Er Hilmar Örn búinn að finna þann tón?
„Ég er mik­ill aðdá­andi Halldórs,“ segir hann og nefnir tón heims­ins sem Taóistar kalla Huang Chung. „Jörðin hefur sína eigin tíðni sem er kennd við vís­inda­mann­inn Winfried Schumann og menn hafa verið að elt­ast við þann tón.“

Það sem er verra er að ég er stundum að hljóð­blanda í draumum og er að stilla alls konar græjur. Það er miklu verra. Það er óþægi­legt. En að dreyma hreina tón­list er dásam­legt.

Hann dreymir stundum tón­list.
„Stöðugt.
Þetta er mjög algengt. Það sem er verra er að ég er stundum að hljóð­blanda í draumum og er að stilla alls konar græjur. Það er miklu verra. Það er óþægi­legt. En að dreyma hreina tón­list er dásam­legt.“
Hilmar Örn er spurður hvort hann haldi að ein­hver hinum megin sé að senda honum hug­myndir í gegnum drauma.
„Ég vildi geta sagt það en ég held að aug­ljós­asta skýr­ingin teng­ist dul­vit­und minni af því að þetta teng­ist þekk­ingu minni og áherslum. Ég held að við séum í sífelldri end­ur­vinnslu á því sem við tökum inn.“

Óum­deildur
Tón­listin. Ásatrúin. Hvað á þessi tvennd, þessi dúett í lífi Hilmars Arnar, sam­eig­in­legt?
Hilmar Örn var virkur í starfi Ása­trú­ar­fé­lags­ins árum saman jafn­hliða því sem hann samdi hvert lista­verkið á fætur öðru. Hann segir að þáver­andi alls­herj­ar­goði, Svein­björn Bein­teins­son, hafi notað sig mikið sem túlk þegar komu erlendir gestir og hann seg­ist hafa borið ómælda virð­ingu fyrir for­vera sínum því hann hafi verið svo sér­stakur.
„Þetta, ása­trúin, var ein­hvern veg­inn sam­gróið honum. Og hann var aldrei með nein láta­læti sem heill­aði mig líka.“
Tíminn leið. Árin liðu.
„Ég reyndi að vinna eins mikið með félag­inu og ég gat. Þetta var alltaf kjöl­festa í lífi mínu. Það að skipta um trú­fé­lag 16 ára gam­all var fyrsta stóra ákvörð­unin sem ég tók sem ungur maður. Þetta var engin smá ákvörðun fyrir mig sem var ákaf­lega trú­ar­þurfi. Þetta var upp á líf og dauða þannig séð. Þetta er eitt­hvað sem maður vill standa við. Þetta skil­greinir mig sem mann­eskju í sið­rænu og trú­ar­legu sam­hengi og teng­ist líka gildum mínum í líf­inu. Þetta er ekki létt­vægt.“

Það skiptir mig miklu máli að vera alls­herj­ar­goði og ég tek þessu mjög alvar­lega.

Hilmar Örn varð svo alls­herj­ar­goði árið 2003.
„Það var lík­lega vegna þess að ég var óum­deildur. Það er kannski það. Ég er svo venju­legur,“ segir hann og kímir. „Það hefur verið það sem hefur hjálpað mér. Það bjóst eng­inn við því að ég gerði eitt­hvað skrýtið. Það skiptir mig miklu máli að vera alls­herj­ar­goði og ég tek þessu mjög alvar­lega. Ég lít á þetta sem mikla ábyrgð sem ég þarf að standa við.“
Hilmar Örn er spurður í hverju starf hans sem alls­herj­ar­goði felist.„Það er allt frá því að vera rót­ari og yfir í það að vera með fólki á stórum stundum í lífi þess. Það að gefa barni nafn finnst mér vera skemmti­leg­ast af öllu sem og að gifta fólk en svo eru erf­iðar stundir eins og and­lát og útfarir sem er líka mik­il­vægur hluti. Maður er í öllu þessu ferli. Þetta er eitt­hvað sem gefur mér mikið. Stækkar mann.
Þetta segir mað­ur­inn sem seg­ist hafa næstum því alist upp á org­el­bekknum í Dóm­kirkj­unni og svo voru dóm­kirkju­prestar heim­il­is­vinir á æsku­heim­il­inu.

Línuleg hugsun
Hann er spurður út í kristna trú.
„Ég gagn­rýni ekki lengur kristna trú en ég gerði mikið af því þegar ég var tán­ingur. Mér finnst hún á margan hátt vera fal­leg og góð en hún hefur stundum farið út af spor­inu. Ég hef enga þörf fyrir guð­fræði­met­ing. Ég held þó stundum að það hefði verið betra ef Páll post­uli hefði haft minni áhrif í sam­bandi við hvernig kristin trú þró­að­ist. Það er bara mín skoðun og er meira til­finn­inga­legt heldur en rök­rænt.
Mér finnst að kirkjan sé mikið að reyna að leið­rétta sig og ég held að vanda­málið við ein­gyð­is­trú – sama hvort verið sé að tala um kristni, gyð­ing­dóm eða islam – sé að þetta er opin­ber­aður sann­leikur sem er klapp­aður í stein og óum­breyt­an­legur. Þetta er mjög línu­leg hugsun og í vest­rænni heims­mynd byrjar tím­inn í Fyrstu Mósebók og endar í 22. kafla Opin­ber­un­ar­bók­ar­innar. Ég held að líf okkar sé miklu meiri hringrás heldur en lína. Og við eigum að hugsa í hringrás og við erum hluti af henni eins og sól­ar­hringnum, árinu og mannsæv­inni. Það er það sem skiptir máli.“

Það hefur kennt mér mikið um umburð­ar­lyndi sem ég held að við verðum að rækta með okkur.

Hvað með ríg á milli fólks sem aðhyllist ólík trú­ar­brögð?
„Hann skilar engu. Ég hafði mikla þörf fyrir að gagn­rýna önnur trú­ar­brögð þegar ég var tán­ingur eins og ég sagði og háði mikla upp­reisn gegn því sem hægt var að gera gagn­vart trú­ar­brögðum en ég hef ekki fundið þörf fyrir það síð­ustu ára­tugi. Ég hef frekar fundið það sem sam­einar trú­ar­brögð og er þakk­látur fyrir sam­trú­ar­legar athafnir sem ég hef tekið þátt í svo sem brúð­kaup og nafn­gjafir og ekki síst útfarir þar sem ég hef verið gestur í kirkjum lands­ins en mér hefur verið sýndur sá sómi og heiður að fá að vera með athafnir í kirkjum sem er langt frá því að vera sjálf­sagt. Það hefur kennt mér mikið um umburð­ar­lyndi sem ég held að við verðum að rækta með okkur.“
Alls­herj­ar­goð­inn er spurður um skoðun hans varð­andi þörf fólks til að trúa á guð, vætti, goð eða annað.
„Ég held að við þurfum að spegla okkur og upp­lifa í stærra sam­hengi. Ég held að við byrjum að vinna í dramb­inu í okkur þegar við mælum okkur saman við eitt­hvað sem er stærra en við sjálf sem teng­ist trú­ar­brögðum. Við höfum séð hvernig við höfum skemmt nátt­úr­una og fund­ist við vera mik­il­væg­ari og merki­legri en hún og hugsum um eigið ævi­ferli eins og heim­ur­inn byrji og endi með manni sjálfum. Við eigum að hugsa eins og við höfum byrjað í gegnum ótal for­feður og for­mæður og eins og við séum að halda áfram að lifa í gegnum ótal afkom­endur og skila jörð­inni í betra ásig­komu­lagi til næstu kyn­slóðar en við fengum hana. Þetta sam­hengi og þessi hugsun held ég að gæti komið okkur til bjargar.“

Að deyja inn í fjall
Líf og dauði. Dauði og líf.

Ég er líka mjög hrif­inn af þeirri hug­mynd að menn lifi áfram í verkum sínum og þar getur maður nálg­ast lof­gjörð eft­ir­lif­anda og þakkað fyrir lífs­hlaup og lífs­verk sem hefur verið gert af góðum hug.

Hvað er lífið og hvað er dauð­inn?
„Þessi hringrás sem er grund­völl­ur­inn í ása­trúnni finnst mér vera mjög hjálp­leg hugsun. Líf kviknar. Það dafnar. Hnignar. Eyðist. Það er þessi heims­sýn sem mér finnst vera svo góð. Maður á að reyna að lifa eins inni­halds­ríku lífi og maður getur hérna megin grafar og vona svo og treysta að maður haldi áfram í ein­hverri mynd ann­að­hvort í gegnum líf­fræði­lega afkom­endur eða eitt­hvað sem maður getur gefið heim­inum eins og til dæmis tón­list. Það eru margir menn sem lifa í mér í gegnum þeirra skrif og þeirra tón­list. Ég á marga leið­toga í lífi mínu sem hafa komið til mín í gegnum list­ina og sem hafa stækkað mig og skil­greint mig. Mér finnst vera gott að geta lifað í svona verkum,“ segir tón­skáldið. Alls­herj­ar­goð­inn.
„Ég hef ákveðna trú á end­ur­holdgun. Ég er líka mjög hrif­inn af þeirri hug­mynd að menn lifi áfram í verkum sínum og þar getur maður nálg­ast lof­gjörð eft­ir­lif­anda og þakkað fyrir lífs­hlaup og lífs­verk sem hefur verið gert af góðum hug.“
Hilmar Örn segir að margar handa­vistir séu í bók­menntum ása­trú­ar­manna og að úr miklu sé að velja.
„Fólk getur dáið inn í fjall eins og fjallað er um í mörgum sögum. Eitt dæmi er Kráku-Hreiðar Ófeigs­son sem kaus að deyja inn í Mælifell og þetta er eitt af mörgum dæmum þar sem menn velja sér hand­an­vist í fjalli og eru þar með ætt­ingjum og vinum í eilífum fagn­aði. Menn geta dáið inn í steina og setið þar og kveðið eins og Gunnar á Hlíð­ar­enda. Hel er ekki slæmur staður þótt það hafi fengið á sig slæma mynd í gegnum kristni en menn hafa ruglað því saman við „hell“. Egill Skalla­gríms­son sagði í Son­ar­tor­reki að hann muni glaður og með góðum hug heljar bíða. Svo erum við með sal eins og Gimlé þar sem allt góða fólkið fer eins og segir í Völuspá. Sumir trúa því að þeir fari til Val­hallar eða húsa­kynna þess goð­magns sem þeir hafa áhuga á eins og Fensali hjá Frigg og Fólk­vangi Freyju. Þá er fjallað um end­ur­holdgun í Helga­kviðu Hund­ings­bana. Stærsta hug­myndin sem end­ur­spegl­ast í Háva­málum er að fólk lifi áfram í verkum sínum – á góðan eða slæman hátt. Ef menn hafa verið dólgar og lélegir þá eru þeir dæmdir af því fólki sem á eftir þeim kemur. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ