Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Glæpasagnadrottningin Yrsa var hrifin af hryllingi sem barn: „Ég er alveg til í að fá Covid“

Glæpasagnadrottningin Yrsa var hrifin af hryllingi sem barn: „Ég er alveg til í að fá Covid“
Reynir Trausta­son og Yrsa Sig­urð­ar­dóttir

Yrsa Sig­urð­ar­dóttir, met­sölu­rit­höf­undur og spennu­sagna­drottn­ing, er nýjasti gest­ur­inn í hlað­varp­inu Mann­lífið með Reyni Trausta­syni. Fyrir jólin gaf Yrsa út spennu­sög­una Lok, lok og læs, og venju sam­kvæmt trónir hún á toppi met­sölu­lista jóla­bóka­flóðs­ins.

Gott að breikka sjóndeildarhringinn snemma

Yrsa er fædd í Reykja­vík og bjó þar fyrst um sinn áður en fjöl­skylda hennar flutt­ist til Hafn­ar­fjarðar. Seinna fluttu þau svo til Texas í Banda­ríkj­unum. Eftir Texas lá leiðin til baka í Hafn­ar­fjörð og enn síðar flutt­ist Yrsa svo á Sel­tjarn­ar­nesið.

Yrsa segir það hafa gefið sér mikið að búa erlendis og upp­lifa ólíka menn­ing­ar­heima.

„Þegar ég er í Texas – það er sjö­tíuogeitt­hvað – þá er Ísland svaka­lega eins­leitt. Ekki það að maður hafi verið að spá í það sem barn. En þegar maður er kom­inn þangað og býr erlendis – ég og systir mín vorum til dæmis í barna­skóla þar sem við vorum eig­in­lega einu hvítu nem­end­urnir. Þetta gerir manni gott, að breikka sjón­deild­ar­hring­inn snemma. Það gerði manni líka mjög gott að vera alltaf að skipta um skóla, því þá lærir maður félags­færni. Að vera alltaf nýi nem­and­inn.“

Yrsa segir það ekki hafa verið sér­stak­lega erfitt fyrir sig að skipta svona oft um skóla og umhverfi. Hún seg­ist hafa verið heppin og alltaf hafa lent á góðum krökkum.

„Börn eru nátt­úru­lega bara almennt og upp til hópa góð og taka nýjum nem­endum vel. Kannski er það öðru­vísi í dag, þar sem fólk flytur meira, en ég man ekki eftir að það hafi verið neitt vanda­mál.“

Hún seg­ist alltaf hafa saknað Íslands þegar hún var í burtu. „Maður sakn­aði Íslands þegar maður var í Texas og sakn­aði Texas þegar maður var á Íslandi.“

Yrsa var tólf ára gömul þegar hún flutti aftur heim frá Texas. For­eldrar hennar höfðu verið þar í sér­námi; móðir hennar í dokt­ors­námi í stærð­fræði og faðir hennar í sér­námi í lækn­is­fræði í smit­sjúk­dómum.

Mikill lestrarhestur

Yrsa seg­ist hafa verið glöð sem krakki; alltaf í góðu skapi og ófeimin. „Mikill lestr­ar­hestur. Ég ætl­aði mér að verða stjörnu­fræð­ingur, mér fannst það svo frá­bært eitt­hvað.“

Aðspurð hvað það hafi verið sem hún las segir hún það hafa verið ýmis­legt. „Ég las bara allar barna­bækur sem barn og kannski svona um ell­efu eða tólf ára aldur þá fór maður að lesa kannski Agatha Christie, ég las allt Dickens.. ég nátt­úru­lega las svo mikið á ensku þarna. Jane Austen. En svo þegar ég eld­ist fer ég meira yfir í að lesa svona glæpa­sögur, hryll­ing og svo­leiðis.“

„Ég var reyndar alltaf mjög hrifin af hryll­ingi sem barn.“
Yrsa Sig­urð­ar­dóttir

Verkfræðin hjálpar að halda utan um söguþræði

Yrsa segir að sem barn hafi hana aldrei dreymt um það að verða rit­höf­undur. Hún hafi verið mjög sátt við að vera les­andi.

„Svo fer ég út í verk­fræði. Ég sé ekki eftir því. Það er mjög skemmti­legt starf og ég hvet þá sem eru svona að velta því fyrir sér hvað þeir eigi að gera, að velta verk­fræð­inni vel fyrir sér. Verk­fræði er svo skemmti­leg að því leyti að þú ert mjög oft að vinna í verk­efnum og verk­efni eru þess eðlis að þú færð síður leið á starf­inu, því það er alltaf eitt­hvað nýtt. Eitthvað sem á sér svona upp­haf og endi, svona hápunkt.“

Yrsa lærði sjálf bygg­ing­ar­verk­fræði. „Þegar ég var að læra verk­fræði var á Íslandi hægt að velja um véla-, bygg­inga- og raf­magns­verk­fræði, en í dag er þetta orðið miklu fjöl­breytt­ara og hægt að velja fleira.“

Verkfræði gegn ritstíflu

Yrsa fæst enn við verk­fræði að ein­hverju leyti, þó það sé ekki mikið.

„Að skrifa bók, maður gerir það ekki dag eftir dag, eins og svona átta tíma vinnu. Þannig að það skilur eftir heil­mik­inn tíma þar sem hægt er að vinna. Bæði finnst mér mjög gaman í vinn­unni og svo er þetta líka þannig að þetta léttir af manni smá pressu, þannig að ég fæ aldrei svona rit­stíflu, af því að ef ég get ekki skrifað þá fer ég bara aftur að vinna átta tíma á dag sem verk­fræð­ingur og heim­ur­inn hrynur ekk­ert.“

Þrátt fyrir þetta þarf Yrsa ekki að vinna sem verk­fræð­ingur lengur, út frá fjár­hags­legu sjón­ar­horni. Hún lifir vel á skrifum sínum. „Ég er heppin með það.“

Yrsa segir að á vissan hátt hjálpi verk­fræðin henni í skrif­unum. „Ég á til dæmis mjög auð­velt með að halda utan um sögu­þráð og plott í höfð­inu.“

„Eitt morð er ekk­ert á við að reisa heila virkjun.“

Hún segir það ekki svo óal­gengt meðal glæpa­sagna­höf­unda að halda áfram að vinna aðra vinnu með­fram skrif­unum, þó það gangi vel. Það sé síðan ekki heldur hægt að lifa á þessu öðru­vísi en að koma bókum sínum út fyrir land­stein­ana, vegna smæðar mark­að­ar­ins hér.

„Ekki nema að fá rit­laun. Og því miður þá er til­hneig­ingin sú að ungir glæpa­sagna­höf­undar sem þurfa á því að halda virð­ast ekki hljóta náð fyrir augum þeirra sem velja hverjir eiga að fá rit­laun, sem er mjög sorg­legt.“

Sjálf hefur Yrsa aldrei verið á rit­launum.

„Ég hef alltaf verið í fullri vinnu með. Það myndi ekki hvarfla að mér að sækja um þau, vegna þess að ég þarf ekki á þeim að halda og ég vil ekki taka þau frá ein­hverjum öðrum. Ef ég er að gefa mér að ég fengi þau, sem er ekk­ert víst.“

Reynir Trausta­son í við­tali sínu við Yrsu

Bjó óvart til persónu sem var til í alvörunni

Yrsa seg­ist alls óhrædd við að lenda í þeim aðstæðum sem hún hefur skapað per­sónum sínum. Hún sé ósköp róleg og ekki sér­lega hrædd týpa. Hins­vegar ótt­ist hún að lenda í því að skapa per­sónur og nöfn, og setja í bók, sem óvart passi við ein­hvern í raun­veru­leik­anum. Raunar hafi það tvisvar komið fyrir. Seinast í nýju bók­inni hennar, Lok, lom og læs.

„Það kom póstur til útgef­and­ans míns frá fólki sem býr á bæ sem heitir Hvarf. Bókin ger­ist á Hvarfi og dóttir hjón­anna á þessu raun­veru­lega Hvarfi heitir Sóldís og það er Sóldís í bók­inni. Þetta er nátt­úru­lega bara til­viljun og var voða vina­legt frá þeim, þau voru ekk­ert reið. En manni finnst leið­in­legt þegar svona kemur fyrir. Svo er svo tak­mark­aður pottur af nöfnum á Íslandi, þegar maður er búinn að skrifa sautján bækur og sex barna­bækur – ég skrif­aði eina í fyrra líka. Þá ertu svona búinn að rúlla í gegnum algeng­ustu nöfnin.“

Vill ráðleggingar áður en hún skrifar svarta aðalpersónu

Yrsa er byrjuð að móta næstu bók, en hún mun verða nokk­urs konar fram­hald af þeirri síð­ustu.

„Þetta verða fjórar bækur – þetta er svona ný sería. En ólíkt fyrri ser­íum þá ætla ég alltaf að láta vera nýjan og nýjan aðal­karakter úr lög­reglu­liði. Þannig að ég veit að næsta bók verður um per­sónu sem kemur fyrir í fyrstu bók­inni, en hún verður aðal í næstu bók. Það er rétt­ar­læknir sem heitir Iðunn. Þannig að ég veit það og ég veit svona sirka í hvaða aðstæður ég ætla að setja hana.

Svo er ég í örlitlum vand­ræðum með þriðju bók­ina, vegna þess að þriðja per­sónan í Lok, lok og læs sem á mögu­lega að fá þriðju bók­ina er svört lög­reglu­kona. Og ég veit ekki hvort ég mun hafa hana sem karakter í þriðju bók­inni vegna þess að það er bara ansi flókið mál, af því að ef það er ein­hver kom­inn, ein­hver svartur Íslend­ingur sem er að skrifa, þá verð ég ekki með það. Vegna þess að ég get ekki lýst með sama hætti þeim reynslu­heimi eins og ein­hver sem hefur upp­lifað hann. Ég vil ekki gera það ef það er á ein­hvern hátt óvið­eig­andi eða gerir þessum litla hópi erf­ið­ara fyrir.

Þannig að ég ætla að leita uppi þrjár konur, þær heita held ég Andras­istar á Instagram, og ætla að ræða aðeins við þær og bara spyrja þær um álit. Er þetta eitt­hvað sem ég ætti að gera, eða er þetta bara eitt­hvað sem ég ætti algjör­lega að sleppa, af því að eins og ég segi vil ég ekki vera að gera slæmt ástand verra. Hug­myndin var ekki sú, heldur er hún sú að vera meira – ég veit ekki hvað íslenska orðið er, en eins og sagt er á ensku: inclusive. Ég er orðin 58 ára og þá verður maður að passa sig á því að vera ekki fastur í sínum aðstæðum.

Maður þarf bara virki­lega að passa upp á það að maður taki inn í sínar bækur fjöl­breytt­ara fólk heldur en maður er sjálfur í raun­inni.

Ég átt­aði mig á því þegar ég var búin að skrifa held ég níu glæpa­sögur, að það var ein sam­kyn­hneigð mann­eskja í níu bókum. Þetta var bara ótrú­lega asna­legt af mér og þá bara fór ég í að laga það. Maður þarf bara að vera dálítið með­vit­aður um að manni hættir til að vera svona inni í sinni eigin búbblu, ein­hvern veg­inn.

En svo eru bara ákveðnir hlutir sem eru við­kvæmir og maður vill ekki gera rangt. Maður vill reyna að gera hlut­ina betri en ekki verri. Þannig að maður þarf alla­vega að vera mjög dug­legur að leita sér upp­lýs­inga og passa sig mjög vel að vera ekki að gera eitt­hvað í ein­hvers konar van­þekk­ingu, eitt­hvað sem er asna­legt.“

Trúir ekki á drauga

Þrátt fyrir að hafa skrifað tölu­vert um drauga á hroll­vekj­andi og sann­fær­andi hátt, trúir Yrsa ekki sjálf á drauga.

„Nei, ég geri það reyndar ekki. Mér finnst þetta alveg frá­bært konsept og ég er til í að gefa því séns, en ég er nátt­úru­lega svo mikil raun­greina­mann­eskja að ég á svo­lítið erfitt með að taka það alla leið. Að trúa því. En í raun og veru þá væri það frá­bært. Ég vona að það séu til draugar og ég hef sagt að ef það eru til ein­hverjir draugar, þá er ég svo­leiðis aldeilis til í einn draug heim til mín. Það hefur aldrei neinn viljað koma. Mig langar ekki til að lifa að eilífu, en ég væri alveg til í að koma aftur og sjá hvernig heim­ur­inn hefur þró­ast. Svona draugur sem poppar upp á svona hund­rað ára fresti.“

Ekki góð framtíðarsýn að lifa til 150 ára

Aðspurð hvað það sé sem hún haldi um dauð­ann, seg­ist Yrsa halda að það sé bara hluti af því að vera til.

„Ég hlakka ekk­ert til, maður er glaður að fá að vera á lífi. En ég held að það sé bara ágætt; að þetta sé bara búið. Ég ber fulla virð­ingu fyrir fólki sem trúir á líf eftir dauð­ann. Vonandi hafa þau rétt fyrir sér en ekki ég. En ég hugsa bara reyndar ekk­ert mikið um það. Nema bara að því leyt­inu til að mér finnst að maður þurfi að fá það út úr þessu eina lífi sem maður hefur, reyna að gera það besta úr þeim aðstæðum sem maður hefur og reyn­ast fólki vel. Það er svona kannski meira mín líf­speki; að lifa líf­inu lif­andi.

Ég veit líka að fólk er eitt­hvað að tala um að í fram­tíð­inni getum við lifað til 150 ára. Það er bara ekk­ert góð fram­tíð­ar­sýn. Vegna þess að það þýðir að það kostar þá næstu kyn­slóðir – og ég er alveg til í að ég bara fái að fara þegar minn tími kemur, til þess að við­halda því að börn geti fæðst.“

„Ef við ætlum öll að lifa for­ever , þá eru engin börn að fara að fæð­ast. Við myndum sjá til þess.“

Í Kringluna að sleikja handrið og lyftutakka

Að lokum best talið aðeins að Covid. Sjálf er Yrsa ekki búin að fá sjúk­dóm­inn og er þrí­bólu­sett.

„En ég er alveg til í að fá Covid. Bara klára þetta. Ég er jafn­vel að hugsa um að fá mér Covid, en ekki yfir hátíð­arnar. En í jan­úar veit ég ekki nema ég bara mæti niður í Kringlu og sleiki hand­rið og lyftu­takka. Ljúka þessu bara af.

Á meðan maður er vel bólu­settur… þetta er nátt­úru­lega fárán­legt og ég er ekki að biðja fólk um að gera þetta og ég fer ekki og geri þetta. En eins og þetta lítur út núna, þá bara á maður örugg­lega eftir að fá Covid. En samt, ég hef ekki fengið flensu í 20 ár. Þannig að kannski get ég bara ekki fengið Covid.“

Yrsa stefnir á útgáfu tveggja bóka á næsta ári. „Ég er hálfnuð með barna­bók sem ég ætla að klára, núna bara í jan­úar held ég. Svo verður bókin um Iðunni rétt­ar­lækni og von­andi eitt­hvað skemmti­legt mál sem hún þarf að fást við.“

Aðspurð hvort þetta verði svona næstu tíu eða tutt­ugu ár glottir Yrsa.

„Ég hugsa að ég skrifi nú ekki alveg ofan í kist­una, en það er ekki enn kom­inn sá tíma­punktur að ég finni að nú sé þetta bara orðið fínt. En það kemur að því. Það kemur að því.“

Viðtalið við Yrsu á VefTv er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð