Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Völvan 2022 – Metoo: Kvenfyrirlitning í bönkum, Sölvi í miðlífskrísu og fleiri konur tala um Megas

Völvan 2022 – Metoo: Kvenfyrirlitning í bönkum, Sölvi í miðlífskrísu og fleiri konur tala um Megas
Völvan 2022

Völvu­blað Mannlífs er komið út. Í blað­inu má lesa spá völv­unnar um kom­andi ár, bak­sýn­is­spegil aftur úr forn­eskju, yfir­reið um menn­ingu og listir og sjá hver bar sigur úr býtum í vali les­enda á Hetju árs­ins 2021 og margt fleira.

Til að lesa spá Völv­unnar í heild sinni er hægt að lesa blaðið hér.

Metoo

„Hreins­un­ar­eldur Metoo-bylt­ing­ar­innar heldur áfram. Konur opna sig á öllum sviðum sam­fé­lags­ins og fjalla um ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir á vinnu­vett­vangi og ann­ars staðar. Þessu er hvergi nærri lokið. Ég sé umræðu um kven­fyr­ir­litn­ingu í bönkum lands­ins, sem og í Seðla­banka Íslands. Ég sé ekk­ert bakslag hvað þetta varðar – heldur er bara verið að snúa risa­stóru olíu­skipi. Það er þungt og tekur tíma.

Öflugar femínista­hreyf­ingar munu halda áfram sínu striki í bar­átt­unni gegn ofbeldi.

Umræðan verður þó áfram mjög pólaríseruð. Við erum smátt og smátt að læra að lifa í nýjum heimi og förum að verða meira til­búin í að eiga erfið og flókin sam­töl. Við erum að átta okkur á því hvernig sam­fé­lag við viljum byggja. Við erum líka að læra að við viljum byggja þetta nýja sam­fé­lag saman en ekki sundruð. Á þessu ári förum við að tala meira um það hvað við eigum að gera næst; hvert næsta skref verður. Til dæmis hvað við eigum að gera við ger­endur.

Á þessu ári verður hávær­ari umræða um betr­un­ar­stefnu, fanga­vist og sátta­með­ferðir.

Af Knatt­spyrnu­sam­bandi Íslands er það að segja að á árinu mun fara fram mjög nauð­syn­leg og opin­ská umræða um kyn­ferð­is­af­brot. Þær upp­lýs­ingar sem við höfum fengið síð­ast­liðið ár hafa verið mörgum áfall. Nú er að vinna úr því. Ég sé það fyrir að ein­hverjir knatt­spyrnu­menn muni stíga fram og játa brot sín. Það mun ýta umræð­unni áfram, þar sem ákveðnir ger­endur taka þátt og vilja bera ábyrgð á sínu. Ég sé þó fyrir mér að það séu ákveðnir ein­stak­lingar sem halda áfram að fara í vörn og vilja ekk­ert við­ur­kenna. Þarna er ég að tala um ein­stak­linga sem ég sé að hafa ekki alveg hreina sam­visku. Þeir munu halda áfram að klóra í bakk­ann en það mun ekki gefa þeim neina hug­arró. Við þurfum alltaf að mæta sam­visku okkar að lokum.

Ég sé þó nýja kyn­slóð knatt­spyrnu­manna sem eru mun meira til­búnir í þessa umræðu alla og umbætur en for­ver­arnir. Fram­tíðin er björt. Þeir ungu drengir sem ég sé innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar munu láta að sér kveða og sýna að drop­inn er sann­ar­lega að hola stein­inn.

Af Gylfa Þór Sig­urðs­syni er það að segja að hann mun að end­ingu sleppa fyrir horn í því máli sem nú er verið að rann­saka. Ann­að­hvort verður hann ekki ákærður og málið látið falla niður, eða þá að hann verður að end­ingu sýkn­aður. Hvort sem verður, sé ég að hann verður hólp­inn gagn­vart dóms­vald­inu. Hann hefur þó beðið var­an­lega álits­hnekki og orð­spor hans er veru­lega laskað.

Jón Baldvin Hanni­bals­son mun hvergi bakka í sínum mál­flutn­ingi. Hann mun ekki gang­ast við þeim sökum sem á hann hafa verið bornar, en kon­urnar standa eftir sem áður með sínum sögum. Mér sýn­ist Jón Baldvin hugs­an­lega fara enn lengra inn í þann hugs­un­ar­hátt að hann sé fórn­ar­lamb í þessum aðstæðum og umræð­unni sem á sér stað. Í það minnsta mun hann tjá það meira út á við. Hann mun lík­lega skrifa meira af pistlum og greinum, það er eins og hann verði óheflaður og á útopnu.

Hann hefur mikla þörf fyrir að gefa fólki það sem hann telur vera rétta mynd af sér og sínum afrekum. Honum er mjög annt um almenn­ings­á­lit, en telur sig geta beygt það og stjórnað því. Hann vill fá að skrifa sög­una sjálfur og mun gera það í meira mæli.

Jón Baldvin vill skilja meira eftir sig undir það síð­asta sem hann telur marka spor hans í stjórn­málum í gegnum tíð­ina. Mér sýn­ist að á þessu ári skrifi hann ef til vill skýrslu er varðar kvóta­kerfið.

Mér sýn­ist Ingólfur Þór­ar­ins­son, eða Ingó veð­urguð, ekki sýna auð­mýkt eða gefa mögu­leika á ein­hvers konar sam­tali. Það er eins og hann eigi eftir að fara enn lengra í hina átt­ina á þessu ári. Mér sýn­ist verða tölu­verð neysla og djamm á honum. Hann er í afneitun gagn­vart þeim ásök­unum sem á honum hafa dunið og er ekki til­bú­inn til þess að fara ofan í saumana á þeim eða skoða sjálfan sig gagn­rýnum augum. Hann lítur á sig sem fórn­ar­lamb í þessu öllu saman.

Það eru þó tvær hliðar á pen­ingnum. Ingólfur er á leið inn í þannig tíma­bil í líf­inu að ef honum tekst að sýna æðru­leysi gæti það hugs­an­lega gjör­breytt lífi hans og veitt honum aukna ham­ingju. Hann gæti kom­ist í teng­ingu við ein­hvers konar æðri mátt og fundið sig betur í fram­hald­inu. Þetta er ákveðið fíkni­þema – hann þarf að fylla hol­una með ein­hverju.

Þetta ger­ist ekki á þessu ári, en gæti gerst síðar ef hann sleppir tak­inu og sýnir auð­mýkt.

Sölvi Tryggva­son verður frekar óút­reikn­an­legur á þessu ári. Það er ein­hvers konar mið­lífskrísa í kort­unum hjá honum. Það er eins og hann muni hugs­an­lega mála sig meira út í horn. Hann verður mikið gagn­rýndur, því hann virð­ist ekki vera til­bú­inn í sam­talið og vill ekki taka ábyrgð á neinu. Honum mun áfram finn­ast erfitt að líta í eigin barm.

Hann er hræddur við að eld­ast og mér sýn­ist verða dálítið skemmt­ana­líf á honum. Hann er lík­legur til þess að slá hlut­unum upp í kæru­leysi og gefa skít í allt.

Það mun þó verða ákveðið augna­blik þar sem hann mun koma fram af heið­ar­leika og segja frá ein­hverju mjög per­sónu­legu sem hefur að gera með mál­efni innan dyra svefn­her­berg­is­ins.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Auðunn Lúth­ers­son, eða Auður, hefur látið lítið fyrir sér fara und­an­farið eftir þær ásak­anir sem komu fram á hendur honum. Mér finnst eins og hann muni eitt­hvað tjá sig á nýju ári. Mér sýn­ist að hann muni koma fram og biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar. Hann mun opna sig og fara inn í umræð­una. Hann við­ur­kennir hrein­skiln­is­lega það sem hann hefur gerst sekur um og talar sömu­leiðis um neyslu og skað­leg áhrif hennar. Hann fær ákveðið bakslag en tekur ágæt­lega á móti því. Seinni part árs­ins munum við sjá örlítið meira af honum, en með nýjum hætti. Hann mun í auknum mæli vinna í laga­smíðateymum erlendis – meira á bak við tjöldin.

Fleiri mál munu líta dags­ins ljós vegna Megasar. Umræðan opn­ast og konur sem segja hann hafa meitt sig í áranna rás stíga fram. Hann mun ekki svara fyrir þessar ásak­anir. Megas verður að end­ingu tek­inn af heið­urs­launum lista­manna.

Bar­áttu­konan Edda Falak hefur látið mikið til sín taka í Metoo-umræð­unni á þessu ári. Árið 2022 gæti orðið dálítið flókið fyrir hana; það eru miklar umbreyt­ingar að eiga sér stað innra með henni. Hún verður að vissu leyti nokkuð landamæra­laus; hún veit ekki alveg hvar hún byrjar og endar. Hlutir fara að hafa meiri áhrif á hana sál­rænt og hún mun taka hlutum per­sónu­lega í auknum mæli. Hún gæti farið að upp­lifa sig svo­lítið sem fórn­ar­lamb og finn­ast allir vera að ráð­ast á sig. Til þess að finna ein­hverja ró gæti hún fundið upp á því að fara meira út að skemmta sér, en það mun bara gera hana þreytta með tím­anum. Hún gæti hugs­an­lega lent í ein­hvers konar kulnun.

Kost­ur­inn við þetta tíma­bil er að upp úr kulnun eða örmögnun gæti hún fundið sál­arró. Hún fer að finna fyrir egódrep­andi áhrifum og verður miklu næm­ari á til­finn­ingar fólks­ins í kringum sig. Hún mun hitta ein­hvern og upp­lifa teng­ingu við við­kom­andi sem hún hefur aldrei kom­ist nálægt áður. Þetta er eins og ein­hvers konar sálu­fé­laga­teng­ing.

Edda mun koma til baka úr þessu tíma­bili öfl­ugri en áður og mun geta látið margt gott af sér leiða í fram­hald­inu. Rétt er að nefna að þetta tíma­bil tekur í kringum tvö ár í heild­ina.

Sólborg Guð­brands­dóttir bar­áttu­kona mun á kom­andi ári finna nýjar hliðar á sér og fara út fyrir kass­ann. Hún gæti lent í því að fara örlítið fram úr sér, því þetta er afar bylt­ing­ar­kennd og rót­tæk orka sem mun umlykja hana á árinu. Orkan er inn­blásin og raf­mögnuð og mun veita öðrum kraft.

Sólborg mun koma með sterka vinkla í sam­fé­lags­um­ræð­una svo eftir verður tekið og setja hluti í sam­hengi sem mun fara vel í almenn­ing. Hún verður mjög áber­andi þar sem hún kemur sér fyrir og verður meiri upp­hafs­kona, sem setur af stað strauma og stefnur. Hún mun tala fyrir fram­tíð­inni og koma fram með nýja og ferska vinkla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð