Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þórður myrti tvívegis á 10 árum: „Ég er kominn með djöfulli ljótan stimpil á mig“

Þórður myrti tvívegis á 10 árum: „Ég er kominn með djöfulli ljótan stimpil á mig“

Þórður Jóhann Eyþórs­son varð tveggja manna bani á aðeins 10 árum. Síðara morðið fór fram þegar hann var enn á skil­orði vegna fyrra morðs­ins.

Hæsti­réttur Íslands dæmdi Þórð í þyngstu refs­ingu sem rétt­ur­inn hefur dæmt á síð­ustu öld, 20 ára fang­elsi. Dómurinn var annar mann­dráps­dóm­ur­inn sem Þórður hefur fengið sem var sagður hafa verið í afar slæmum félags­skap þegar hann var ungur. Um það bil tólf ára gömlum hafði lög­reglan fyrst afskipti af honum vegna minni­háttar afbrota. Eftir skyldu­nám hélt Þórður út á vinnu­mark­að­inn. Hann stund­aði meðal ann­ars verka­manna­vinnu, fór á sjó­inn og starf­aði hjá Raf­magns­veitu rík­is­ins.

Þegar mál Þórðar Jóhanns var tekið fyrir í Hæsta­rétti á sínum tíma, áttu lög­fróðir menn allt eins von á að þá yrði brotið í blað í sögu rétt­ar­ins og gripið til ákvæð­is­ins um ævi­langt fang­elsi í fyrsta sinn í nútíma rétt­ar­sögu, en það fór sem sagt á annan veg. Mál Þórðar telst þó ein­stakt því upp­haf­lega var hann í hér­aðs­dómi dæmdur í ævi­langt fang­elsi. Dómnum var áfrýjað og var afstaða dóm­ara í Hæsta­rétti klofin. Nið­ur­staðan varð tutt­ugu ár.

Dæmdur fyrir tvö morð

Þórður myrti Óskar Árna Blom­ster­berg á ný­ársnótt 1983 með því að stinga hann en Þórður hafði lengi eldað grátt silf­ur við fórn­ar­lambið sem lauk með upp­gjöri hina örlaga­ríku nótt. Þórður var mjög drukk­inn þetta kvöld og bar hann fyr­ir sig að hann hafi ekki gert sér grein fyr­ir því hvernig hníf­ur­inn sneri í hendi hans þegar hann lagði til at­lögu gegn Óskari.

Aðfara­nótt 1. jan­úar árið 1983 þegar Þórður var 26 ára hélt hann til sam­kvæmis að Klepps­vegi 42. Þar hitti hann fyrir Óskar Árna Blom­ster­berg. Þeir Þórður höfðu lengi eldað saman grátt silfur, eða frá því að þeir voru 16 ára og slóg­ust vegna stelpu fyrir utan Þórscafé. Þegar Þórður hafði Óskar undir komu þrír vinir Óskars honum til hjálpar og börðu á Þórði. Honum fannst hann aldrei hafa orðið fyrir eins mik­illi auð­mýk­ingu.

Þórður hafði drukkið tals­vert þegar til veisl­unnar kom og hófst fljót­lega mikið rifr­ildi á milli hans og Óskars. Þórður brá sér inn í eld­hús þar sem hann sótti eld­hús­hníf. Síðan hélt rimma þeirra Óskars áfram. Óskar fékk fjórar stungur í bakið og gengu þrjár á hol. Hann var lát­inn þegar lög­regla kom á stað­inn. Þórður fékk 13 ára dóm og sat hann inni í 7 ár. Hann not­aði tím­ann meðan hann sat inni til náms og útskrif­að­ist sem vél­virki og renni­smiður.

Seinna morðið á reynslulausn

Tíu árum síðar stakk Þórður svo fyrr­ver­andi sam­býl­is­mann þáver­andi kær­ustu sinn­ar. Um­rætt kvöld hafði Þórður einnig drukkið mikið og tekið inn am­feta­mín þegar hann frétti af því að kær­asta hans hefði reynt að finna hann á skemmti­stað í Reykja­vík áður en hún hélt heim með fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni sín­um.

1. des­em­ber 1992 hafði Þórður tekið upp sam­band við unga konu. Helgina 21. til 22. ágúst hafði Þórður drukkið stíft og sömu­leiðis tekið inn amfetamín. Að kvöldi sunnu­dags­ins 22. ágúst var hann staddur á veit­inga­hús­inu Keis­ar­anum á Lauga­vegi þar sem hann frétti að stúlkan sem hann hafði búið með hafi verið að leita að honum en nú væri hún heima hjá Ragnari Ólafs­syni, fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni. Ásamt þeim vini sínum sem hann bjó með, ók Þórður á Snorra­braut 36 þar sem Ragnar bjó. Þórður sá stúlk­una ásamt Ragnari inn um glugga á íbúð­inni og fauk þá í hann. Þórður tók upp hníf sem hann var með á sér og spark­aði upp hurð­inni og fór beint inn í eld­hús. Ragnar kom á móti honum og fór hníf­ur­inn einu sinni í hann.

Þórður var á reynslu­lausn frá afplánun dóms vegna mann­dráps þegar hann framdi annað morðið á Ragnari, og tald­ist því hafa rofið skil­orð, og því bætt­ust fjögur ár ofan á sextán ára dóm fyrir morðið sjálft. Þórður var dæmdur í 20 ára fang­elsi af hér­aðs­dómi fyrir ítrekað mann­dráp og hæsti­réttur stað­festi þann dóm árið 1994.

„Þetta var bara eitthvert ljúgvitni“

Eftir að hafa afplánað dóm sinn komst Þórður aftur til kasta lag­anna er hann var hand­tek­inn árið 2016 í tengsl­um við rann­sókn á Guðmund­ar­mál­inu, einu þekkt­asta og um­deild­asta saka­máli Íslands­sög­unn­ar. Þá var hann á sex­tugs­aldri og en hann var 16 ára gam­all þegar Guðmund­ur Ein­ars­son hvarf hinn 29. janú­ar 1974 í Hafnar­f­irði.

„Þetta var bara eitt­hvert ljúg­vitni,“ sagði Þórður í við­tali eftir hand­tök­una. „Ég var spurður hvort ég hefði verið far­þegi í bjöllu árið 1974 á Ham­ars­braut­inni. Stefán átti að vera keyra bíl­inn. Hann á að hafa misst stjórn, keyrt á eitt­hvað skilti og svo á Guðmund. Þetta er nú bara ein­hver lyga­saga og ef ég hefði verið höf­undur hennar, þá hefði ég nú látið okkur rúnta um á flott­ari bíl.“

Þórður harð­neit­aði allri aðkomu að mál­inu hjá lög­reglu og var sleppt að loknum yfir­heyrslum.

Náði tökum á lífi sínu

Eins og áður sagði hlaut Þórður þyngstu refs­ingu, sem nokkur Íslend­ingur hefur hlotið á þess­ari öld, eftir að hafa stytt tvo menn lífi og þann síð­ari þegar hann var á skil­orði.

Þórður seg­ist sjálfur hafa náð tökum á sínu lífi árið 2006. Hann sé reglu­maður í dag og í vinnu.

„Ég er kom­inn með djöf­ulli ljótan stimpil á mig. RLR segir til dæmis að ég sé fík­ill og dópisti. En meiri­hlut­inn af því sem um mig hefur verið sagt er til­bún­ingur. Ég hef ekki gert neinum neitt nema það sem ég hef setið inni fyrir,“ segir Þórður sem venju­lega er kall­aður Doddi.

„Með ofnæmi fyrir vímuefnum“

Bubbi Morthens er einn æsku­vina Þórðar. Í sam­tali við Eintak árið 1994 sagði Bubbi vin sinn ein­fald­lega ógæfu­mann sem aldrei hefði átt að smakka vín eða fara að fikta við vímu­efni. „Alveg frá byrjun varð hann kol­vit­laus með víni. Hins vegar er hann því­líkur öðlingur edrú að það er leitun að öðrum eins. Meiri­hluti þeirra sem er í fang­elsum hafa lent þar vegna þess að þeir hafa ofnæmi fyrir vímu­ef­hum. Það sem þeir hafa gert hefðu þeir ekki gert edrú. Það sem hann hefur nú lent í er bein afleið­ing þess að hann er með ofnæmi fyrir vímu­efnum,“ segir Bubbi.

Þórður var dæmdur í 20 ára fang­elsi í Hæsta­rétti. Sjálfur full­yrti hann að rann­sókn máls­ins hefði verið ábóta­vant. „Sak­sókn­ari stimpl­aði mig dópista og fíkil aðeins vegna þess að ég hafði tekið inn amfetamín þessa einu helgi. Rann­sóknin var út í hött. Yfir­leitt er aðdrag­andi glæpa kann­aður. Þar af leið­andi hefði að sjálf­sögðu átt að tala við fólkið sem ég var að skemmta mér með umrædda helgi,“ sagði Þórður hneyksl­aður í við­tali.

„Það er ekki fræði­legur mögu­leiki; ég hefði framið þessa glæpi edrú. Ég hef aldrei kennt neinum öðrum um örlög mín. Ég er þó ánægð­ari með að hafa fengið 20 ára fang­elsi heldur en ævi­langt. Til­finn­ingin að hafa banað tveimur mönnum er auð­vitað ólýs­an­leg. Það er ekk­ert sem getur bætt fyrir það, hvorki fanga­vist né annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ