Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Völvan 2022 sér Davíð Oddsson hverfa á braut – Helgi Seljan rís upp og Logi Bergmann í vandræðum

Völvan 2022 sér Davíð Oddsson hverfa á braut – Helgi Seljan rís upp og Logi Bergmann í vandræðum

Völvu­blað Mannlífs er komið út. Til þess að lesa spá völv­unnar um kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér.

Fjölmiðlar

„Davíð Oddsson hættir sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins á árinu. Mið­ill­inn mun hagn­ast á brott­hvarfi hans og byrja hægt og rólega að end­ur­nýja sig. Nýtt fólk stígur til met­orða á Morg­un­blað­inu og miðl­inum mun ganga betur í kjöl­farið.

RÚV er ekki að halda nægi­lega vel utan um starfs­fólk sitt. Enn fleiri munu segja skilið við rík­is­fjöl­mið­il­inn á nýju ári og hann veik­ist með brott­hvarfi fleira lyk­il­fólks. Launamál hjá RÚV kom­ast í brenni­depil. Fólkið sem hverfur á braut hrökkl­ast út ósátt og kvíðið. Meira verður um kulnun þar inn­an­húss á árinu. Í fram­hald­inu verður ein­hver end­ur­nýjun inn­an­húss.

RÚV verður á aug­lýs­inga­mark­aði eins og áður þrátt fyrir gagn­rýni og heldur þannig sinni yfir­burða­stöðu.

Vin­sældir RÚV hjá almenn­ingi halda þó áfram að vera nokkuð miklar og unga fólkið sækir í mið­il­inn í auknum mæli. RÚV heldur áfram á þeirri veg­ferð að end­ur­nýja sig og verður sífellt ferskari mið­ill sem höfðar til yngri ald­urs­hóps.

Ég sé Loga Bergmann Eiðsson lenda í ein­hverjum vand­ræðum á nýju ári. Hann verður mikið á milli tann­anna á fólki. Það er eins og það komi eitt­hvað í ljós í tengslum við hann. Ég sé aðra mann­eskju nálægt þessu. Ég sé því miður ekki nákvæm­lega hvað þetta er eða hvernig þetta mun enda, en mér sýn­ist geta brugðið til beggja vona hvað mála­lyktir varðar hjá Loga Bergmann í þessu máli.

Helgi Seljan er, eins og frægt er orðið, einn þeirra lyk­il­manna sem hafa horfið af skjáum lands­manna und­an­farin miss­eri. Hann þurfti á veik­inda­leyfi að halda eftir það mikla álag sem hann var undir eftir að hafa afhjúpað ámæl­is­verð við­skipti Samherja í Namibíu. Í haust opn­aði hann sig síðan um það mikla áreiti og árásir sem hann mátti þola frá Sam­herj­a­mönnum í kjöl­farið. Hann tal­aði við sama til­efni opin­skátt um and­leg veik­indi sín.

Árið 2022 verður stórt ár í lífi Helga og hann mun rísa á ný. Hann er núna staddur í miðri end­ur­fæð­ingu – segja má að hann sé núna eins og fugl­inn Fönix, að steypa sér í eld­inn, áður en hann end­ur­fæð­ist síðan upp úr ösk­unni. Hann er að end­ur­skoða allt um þessar mundir. Í apríl kemur augna­blikið þar sem hann byrjar að rísa upp og átta sig á því hvað hann þarf að gera og hvert hann vill fara. Hann mun end­ur­skoða leið­ina sína og að end­ingu feta nýja braut sem verður honum mikið gæfu­spor. Þetta eru virki­lega spenn­andi og öfl­ugir tímar.

Stundin mun áfram fletta ofan af spill­ingu og vinna úr stórum og miklum málum á árinu. Ég sé þau einna helst verða með fleiri stór ofbeld­is­mál á næst­unni.

Í fjöl­miðlum almennt verður dýra­vernd meira áber­andi og hul­unni verður svipt af fleiri málum er varða slæma með­ferð á dýrum á Íslandi. Sömu­leiðis munu lofts­lags­mál fá stærri sess í umfjöllun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð