Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Völvan 2022: Ný kvikmynd Bjarkar floppar, Emmsjé Gauti einlægur í lukkuálögum og Bubbi vill sameina

Völvan 2022: Ný kvikmynd Bjarkar floppar, Emmsjé Gauti einlægur í lukkuálögum og Bubbi vill sameina

Völvu­blað Mannlífs er komið út. Til þess að lesa spá völv­unnar um kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér.

Tónlist

„Bubbi Morthens er sam­of­inn þjóð­ar­sál okkar Íslend­inga. Hann heldur sínu striki á árinu og talar fyrir sam­tali og ein­ingu. Hann vill vita hvernig við ætlum að halda áfram með Metoo-verk­efnið. Fólki líkar ekki alltaf það sem hann segir og gerir, en hann verður brú á milli and­stæðra póla á næstu miss­erum, eins konar sátta­semj­ari.

Einn af hæfi­leikum Bubba er að hann getur talað við báðar hliðar og sam­einað fólk, ef fólkið er til­búið í það. Hann er reiðu­bú­inn til að tjá sig og taka gagn­rýn­inni sem kemur óum­flýj­an­lega. Bubbi talar fyrir því sem honum finnst vera sann­leik­ur­inn – hann festir sig ekki í póli­tískri rétt­hugsun, heldur talar út frá því sem hann trúir. Hann bendir á keisar­ann þegar hann er nak­inn og talar inn í það sem er í deigl­unni.

Tón­list­ar­konan Guðrún Ýr Eyfjörð, eða GDRN, er sann­ar­lega búin að marka spor sín í tón­list­ar­brans­anum og er nú að upp­skera eftir miklar breyt­ingar síð­ustu ár. Hún er ekki upp­tekin af sjálfri sér eða sviðs­ljós­inu. Athyglin sem hún fær fylgir dugn­aði hennar, hæfi­leikum og vinnu­semi. Hún mun hljóta miklar við­ur­kenn­ingar á árinu og er stödd á tíma­bili mik­illar upp­skeru sem hún má sann­ar­lega njóta. Ég sé líka að hún mun fást við leik­list í auknum mæli. Slíkt verk­efni mun koma í fangið á henni á þessu ári og hún ætti að taka því opnum örmum, því þetta er lukku­tími.

Bríet mun halda áfram á sömu braut og ekk­ert lát mun verða á vel­gengni hennar. Hún er komin til að vera og þetta er hennar vett­vangur – að vera popp­stjarna. Hún mun áfram fara var­lega í að tjá sig um stjórn­mál og slíkt; hún velur heldur að standa utan við þá umræðu opin­ber­lega.

Bríet og Rubin Pollock, gít­ar­leik­ari í hljóm­sveit­inni Kaleo, munu halda sínu sam­bandi áfram. Þau munu ganga í gegnum örlítið erfitt tíma­bil á árinu og þurfa að hugsa sig um og átta sig á því hvert þau stefna sem par – en ástin sigrar að lokum.

Valdimar Guð­munds­son er að upp­lifa sterka umbreyt­ing­ar­orku. Hann er með ákveðna þörf fyrir að breyta um stefnu og marka sér ný spor, bæði út á við og inn á við. Hann er nýorð­inn pabbi í fyrsta sinn og mun farn­ast vel í því hlut­verki. Líf hans er fullt af ást þessi miss­erin. Hann mun finna fyrir því hvernig nýja hlut­verkið er að breyta honum til fram­búðar og það mun síðan hafa tölu­vert mikil áhrif á sköpun hans og því hver næstu skref hans verða í list­inni. Það er eins og hann finni nýjan inn­blástur og ég spái því að hann muni semja mikið af nýju efni á næst­unni sem muni fá virki­lega góðar und­ir­tektir. Þetta er tími þar sem hann getur hrist af sér allt það sem heldur aftur af honum og skorið böndin við fólk sem hefur ekki góð áhrif á hann. Hann gæti lent upp á kant við fólk og rif­ist við vini og sam­starfs­fólk, því það er mik­ill sprengi­kraftur í gangi innra með honum og það getur reynst honum erfitt að halda aftur af sér og temja skapið.

Þetta er sann­ar­lega góður tími til að ná hinum ýmsu mark­miðum. Valdimar gæti upp­lifað dálitla hvat­vísi á kom­andi mán­uðum og þarf aðeins að vera með­vit­aður um það – betra er að horfa fram á veg­inn og á lang­tíma­mark­mið. Eftir þann umbreyt­ing­ar­tíma sem nú er í gangi mun Valdimar að end­ingu upp­lifa sátt og að hann sitji betur í sjálfum sér og þekki sjálfan sig betur.

Jóhanna Guðrún Jóns­dóttir söng­kona er að koma út úr miklu breyt­inga- og umróts­tíma­bili, en nú fer öld­urnar að lægja. Hún finnur að hún er þar sem hún vill vera og er ham­ingju­söm. Henni finnst hún vera búin að vaxa mikið og kom­ast nær kjarna sínum. Hún situr betur í sér núna en áður og fjölgun á nýju ári mun veita mikla ham­ingju. Ástin blómstrar og hún upp­lifir miklu minni þörf fyrir að stjórna umhverfi sínu. Hún upp­lifir sig örugga og rólega og finnst hún vera í betra flæði. Hún getur núna sleppt tak­inu og látið sig fljóta. Það er því mikið gæða- og ham­ingjuár í vændum hjá Jóhönnu Guðrúnu og hún mun gefa út meiri tón­list sem hún er virki­lega ánægð með.

Magnús Eiríks­son, tón­list­ar­maður og laga­smiður, sem á stóran sess í hjörtum þjóð­ar­innar, hlýtur loks­ins heið­urs­laun lista­manna á árinu og er eins vel að þeim kom­inn og hugs­ast getur. Hann tekur á móti þeim auð­mjúkur og af hóg­værð, eins og honum einum er lagið.

Björk Guð­munds­dóttir leikur í nýju kvik­mynd­inni The Northman, sem kemur út árið 2022 og er beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu. Myndin mun því miður ekki ganga nógu vel – en það skiptir engu máli því ást­fangna Björk er að hnoða saman plötu sem mun fara á lista yfir áhrifa­mestu plötur 3. ára­tugar 20. ald­ar­innar.

Gauti Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti eins og hann er jafnan kall­aður, mun eiga gott ár. Mér finnst vera heppni í kort­unum hjá honum sem þýðir að það sem hann ákveður að taka sér fyrir hendur verður með ákveðin lukku­álög yfir sér. Mér sýn­ist að það muni koma tölu­vert af nýrri tón­list frá honum á árinu. Hann mun syngja meira og vera ein­lægur. Það leggst vel í áheyr­endur og nýja tón­listin hans mun fá mikla hlustun.

Reykja­vík­ur­dætur fá loks­ins verð­skuld­aða athygli og við­ur­kenn­ingu hér heima eftir þrus­u­tón­leika sem þær halda á árinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð