Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Baddi hefur verið rúma hálfa öld á sjó: „Verbúðin kemst ekki í hálfkvisti við raunveruleikann“

Baddi hefur verið rúma hálfa öld á sjó: „Verbúðin kemst ekki í hálfkvisti við raunveruleikann“
Björn Björns­son ævin­lega kall­aður Baddi í heim­sókn í Hólminum á meðan landað er. Þessi mynd yrði ekki lak­ari með hljóði því Baddi er mik­ill sagna­brunnur. Mynd: Símon Már.

„Ég byrj­aði á sjó sum­arið sem ég varð 11 ára, var með Birni Ing­ólfs­syni föður mínum á trillu, Óla SH 14. Við rerum frá Stykk­is­hólmi á hand­færi og hauka­lóð auk þess sem við nytj­uðum nokkrar eyjar á Breiða­firð­inum. Ég lít alltaf á mig sem Breið­firð­ing en ekki Hólmara enda á ég mínar ættir úr eyj­unum og svo vestan frá Flateyri,“ segir Björn Björns­son sem verið hefur á sjó meira en hálfa öld. 

Á sjó með popparanum

Eftir nokkur sumur á trill­unni með pabba sínum tóku stóru bát­arnir við drengnum. „Ég fór á Þórs­nesið og elsta skrán­ing sem ég hef fundið á Þórs­nes­inu er frá maí 1975 Þetta var um það bil 70 – 80 tonna tré­bátur. Við byrj­uðum sum­arið á skaki en fórum svo á skel um haustið. Ég færði mig svo yfir á Sifina, sem var gerð út hér í Hólminum. Þar vorum við sam­skipa, við Ólafur Ragn­ars­son Poppari sem þá var reyndar ekki kom­inn með þá miklu nafn­bót og enn ekki búinn að semja þjóð­söng þeirra Flat­eyr­inga, Hafið og fjöllin.

Kokk­ur­inn var svað­blautur og hafði alltaf með sér eitt­hvað sem styrkti hjartað

Um ármótin hætti Óli og fór á Flateyri varð þar vél­stjóri á Ásgeiri Torfa­syni ÍS 96 sem þá var á netum. Um 60 tonna bátur sem Benedikt Vagn Gunn­ars­son gerði út, ævin­lega bara kall­aður Benni Vagn. Þegar leið að hausti hringdi Óli til að segja mér að þarna væri gott að vera og hvatti mig mjög til þess að koma. Ég lét slag standa, það var margt sem freist­aði ég var far­inn að drekka drjúgt og fátt betra en að kom­ast á ver­búð og laus undan öllum aga. Eggert Jónsson var með bát­inn og við rérum á línu. Þá voru líka gerðir út tveir 200 tonna línu­bátar frá Flateyri með mjög svip­aða línu­lengd og við. Eggert var alveg ákveð­inn í að gefa þeim ekk­ert eftir. Rétt eins og allir vita er vetr­ar­ver­tíð á Vest­fjörðum ekki fyrir við­kvæma.  Kallinn sótti eins og hægt var og vel það á þessum litla tré­bát við héngum alveg í afla­tölum stóru bát­anna. Hins vegar var voru landstímin okkar stundum þannig að við urðum allir að vera upp í brú og við­búnir hinu versta. Ég man alveg eftir að tré­smiðir hafi þurft að bíða okkar á bryggj­unni til að laga það sem aflaga hafði farið á meðan við lönd­uðum og tókum balana um borð. Kokk­ur­inn var svað­blautur og hafði alltaf með sér eitt­hvað sem styrkti hjartað, þar komst ég fyrst upp á lag með að drekka út á sjó. Ásgeir var mjög blautur bátur þannig að ég og kokk­ur­inn vorum sam­mála um það breytti ekki öllu þó við aðlög­uðum okkur skip­inu,“segir Baddi og hlær.

Sig­hvatur GK 57 heldur til hafs í fal­legu sum­ar­veðri.

„Þetta var frá­bær ver­tíð, við fisk­uluð vel og þén­uðum vel, áhöfnin var frá­bær og Benni Vagn ein­hver besti útgerð­ar­maður sem ég hef verið hjá.“

Þegar tal­inu er vikið að ver­búð­ar­líf­inu kemur ein­hver for­tíð­ar­ljómi yfir sæbarið and­lit Badda. „Á meðan ég drakk ennþá voru ver­búðir hreinar paradísir, þar var fólk sem alltaf var til í allt. Ég hef verið víða um land og átt lönd­un­ar­frí víða og af því að sumt fólk er að efast um sjón­varps­þætt­ina vin­sælu um Ver­búð­ina, þá get ég lofað þér því að þætt­irnir kom­ast ekki í hálf­kvisti við raun­veru­leik­ann.“

Útgerðarmanni stungið í snjóskafl

Blaða­maður og Baddi rifja upp sögu af því þegar útgerð­ar­maður á Flateyri kom til að stilla til friðar í stærstu ver­búð þorps­ins. Garrinn tók á móti honum, tók í háls­málið og í buxna­streng­inn og skutl­aði honum út í skafl.

„Fólk sem telur of mikið fyll­erí, of mikið af spítti og of mikið af nekt og kyn­lífi vera í þátt­unum hefur aldrei komið í alvöru ver­búð. Ég er ekki frá því heldur að ver­búðir hafi bjargað iðn­að­ar­mönnum um margt hand­takið. Oft voru átök og þá varð sitt­hvað undan að láta. Þetta var ekki bara ver­búð­ar­liðið, heima­menn sóttu mjög í þetta enda mikið af skemmti­legum stelpum og mikið fjör. Af því að þessi þátta­röð er tekin upp í Súganda þá er ég alltaf að bíða eftir öllu fjör­inu sem var á Pallinum. Það var alvöru ver­búð.“

Gamli mað­ur­inn heldur á hafið. Þrett­ánda­gleði Badda var að halda út í storm­inn.

Á þeim ára­tugum sem Björn hefur verið til sjós hafa tekjur verið upp og ofan. Sumir útgerð­ar­menn hafa reynt að klípa allt af sem hægt er að ná af áhöfn­inni.

„Ég man eftir því þegar byrjað var að landa í gáma til útflutn­ings, þá var ég á Pat­reks­firði. Útgerðin hafn­aði að gera upp við áhöfn­ina á verð­inu sem fékkst fyrir fisk­inn. Borguðu okkur bara hlut af land­sam­bands­verði sem var aldrei hátt. Ég hékk svo sem ekk­ert yfir þessu fór bara annað, það virt­ust allir gera upp á sölu­verði nema Pat­reks­firð­ing­arnir, það var sér­stakt.“

Engin leið að hætta

Frá því fyrir alda­mót hefur Baddi verið á beitn­inga­véla­bátum sem þykir ekki vera nema fyrir harð­gerð­ustu menn. Sumir kalla þessa báta sem róa í öllum veðrum hreinar þrælakistur.  Hann segir þó að menn sé heldur farnir að slaka á. Í meira en hálfa öld hefur Baddi verið á dekk­inu við flestan þann veiði­skap sem gert er út á hér við land.

Þegar hann er spurður hvort ekki fari að koma að lokum dregur hann við sig svarið.

„Ég veit ekki, lengi hef ég sagt að nú fari ég að hætta en ein­hvern veg­inn heldur maður alltaf áfram. Ég kann vel við mig á lín­unni og hér á Sighvati er gott að vera. Það er ein­hvern veg­inn alltaf gaman að koma um borð og hitta strák­ana. Það er alltaf líf­legt í borð­salnum og í stakka­geymsl­unni. Það er vin­skapur með allri áhöfn­inni.

Mér hefur aldrei þótt leið­in­legt á sjónum en þetta er að verða hel­víti erfitt sér í lagi í miklum brælum.“

53 ár á sjó

En hvað tekur við hjá manni sem hefur allt sitt líf verið á sjó og kann ekk­ert annað. Meira að segja hættur fyrir hart nær 20 árum að stunda bari og hvergi er eftir ver­búð?

„Ég er stundum spurður hvort ég fái mér ekki trillu þegar ég hætti að vera sjó­maður, ég veit ekki hvað verður, ég sé hafið ekki sem neina róm­an­tík. Það eru engar hill­ingar út við ystu sjón­arönd. Þú veist hvað skáldið sagði: Ég hefði átt að sigla, ég hefði átt að fljúga, ég hefði átt að skoða mig um.  Kannski mun ég bara njóta þess sem Örn Arnarson fór á mis við. Kannski mun ég bara ferð­ast þegar ég hætti til sjós. Lesa góðar bækur og ferð­ast um heim­inn,“ sagði Björn sem hélt út í storm­inn á Þrett­ánd­anum, sæbörð hetja hafs­ins tölu­vert á sjö­tugs­aldri að leggja upp í 53 árið sitt til sjós.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð