Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Röddin vöðvi sálarinnar: „Heilaði sig af áfallastreituröskun í gegnum hljóðin“

Röddin vöðvi sálarinnar: „Heilaði sig af áfallastreituröskun í gegnum hljóðin“
Þórey Sig­þórs­dóttir. Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

„Röddin vöðvi sál­ar­innar“ er til­vitnun í Alfred Wolfsohn og segir, að mínu mati, allt sem segja þarf um eðli radd­ar­innar og hvernig við nálg­umst hana. Þess vegna ákvað ég nota þessa til­vitnun sem yfir­heiti á þeim nám­skeiðum sem ég býð upp á í tengslum við rödd­ina. Hvort sem ég er að þjálfa leik­ara eða aðra sem nota rödd­ina sem atvinnu­tæki, í miðlun og til að verða betri í sam­skiptum yfir­leitt.“ Þetta segir Þórey Sig­þórs­dóttir, leik­ari, leik­stjóri og radd­þjálfi.

Mannlíf heyrði í Þóreyju til að fræð­ast betur um radd­nám­skeiðið. Nám­skeiðið heitir Röddin – Vöðvi sál­ar­innar og er fyrir þá sem nota rödd­ina sem atvinnu­tæki eða vilja styrkja rödd­ina og öðl­ast öryggi í að tala fyrir framan fólk á fyr­ir­lestrum, fundum eða í per­sónu­legum sam­skiptum.

Hljóð úr deyjandi mönnum ásóttu hann

Þórey not­ast við radd­þjálf­un­ar­að­ferðir Nadine George og æfingar sem Þjóð­verj­inn Alfred Wolfsohn þró­aði. Hann var söngv­ari og sem ungur maður neydd­ist hann til að taka þátt í fyrri heims­styrj­öld­inni. Hann varð aldrei samur. Eftir þá reynslu ásóttu hljóðin úr deyj­andi mönnum hann og hann fór að hugsa að ef hljóðin í deyj­andi lík­ömum væru svona mögnuð, hvað þá með hljóðin í heil­brigðum lík­ama? Hann fór að rann­saka mögu­leika radd­ar­innar og það má segja að hann hafi heilað sig af áfallastreituröskun í gegnum hljóðin með aðferðum sem hann þró­aði í kjöl­farið.  

Frá vinstri: Þórey, Ros Steen, pró­fessor emerita við Royal Conservatoire of Scotland, einn helsti radd­sér­fræð­ingur Skotlands, og Nadine George. Í Glasgow í júlí 2019 á ráð­stefnu radd­kenn­ara sem kenna Nadine George Voice Work.

Margir bíða eftir því að vinna með henni

„Þetta er ein­yrkja­fyr­ir­tæki hjá mér, en ég hef verið að vinna með aðferð Nadine George síðan 1996 þegar ég kynnt­ist henni á nám­skeiði fyrir unga leik­ara í Danmörku. Nadine er bresk en hún hefur kennt mikið í nor­rænum leik­list­ar­skólum. Árið 1999 tók ég þátt í fyrsta alþjóð­lega nám­skeið­inu hennar í London.

Eftir það skipu­lagði ég árlega með henni nám­skeið, hér á Íslandi, fyrir leik­ara í sam­vinnu við Borg­ar­leik­húsið, Þjóð­leik­húsið og FÍL allt til árs­ins 2008 þegar hrunið kom. Það var ekki fyrr en 2019 sem við gátum fengið Nadine til lands­ins aftur og svo skall Covid-19 á, en nú bind ég vonir við að ég geti skipu­lagt nám­skeið með henni á Íslandi nú í ár. Ég veit að það bíða margir eftir tæki­færi til að vinna með henni.

Á þessum tíma fór ég að kenna þessa aðferð sjálf, bæði í Lista­há­skóla Íslands og í  Kvik­mynda­skóla Íslands á leik­ara­braut, og er sú eina á Íslandi sem hef rétt­indi til að kenna þessa aðferð. Ég kenni líka á nám­skeiðum sem ég skipu­legg sjálf og sér­sníð að þörfum við­skipta­vina minna.“

Tilfinningin er mjög valdeflandi

Þórey með nám­skeið á Þingeyri „Röddin sem atvinnu­tæki.” Lós­mynd­ari: Ásgeir Helgi Þrast­ar­son

Þórey segir að reynslu­sögur nem­enda hennar séu margar og það sé svo sann­ar­lega gef­andi að heyra þær, vit­andi að hún sé að koma af stað bylgju­hreyf­ingu sem hafi djúp­stæð áhrif á líf fólks til hins betra. 

„Allir upp­lifa þá mögn­uðu til­finn­ingu að finna að rödd þeirra er miklu stærri en þeir áttu von á og sú til­finn­ing ein og sér er strax mjög vald­efl­andi.“

Hún segir að það sé gott að skoða dæmisögur til að setja hlut­ina í sam­hengi;

Kona sem var á karllægum vinnu­stað þar sem hún upp­lifði að ekki væri á hana hlustað fann mikla umbreyt­ingu þegar hún fór að mæta til leiks frá öðrum stað í sjálfri sér, með nýja orku og nær­veru sem skil­aði sér í því að  atvinnu­rek­and­inn fór að taka inn nær­veru hennar og hlusta á hana á nýjan hátt.

„Það eru lífs­gæði að finna það, að maður hefur rödd á vinnu­stað og á hana er hlustað. Þetta snýst ekki bara um rödd­ina, þú mætir líka öðru­vísi til leiks, með sterk­ari nær­veru og rödd.“

Kona sem var að ganga í gegnum skilnað fann að hún gat í fyrsta sinn tjáð sig við mann­inn sinn án þess að missa rödd­ina út af kökknum í háls­inum.

„Þetta gladdi mig sér­stak­lega að heyra. Það er stórt skref í lífi hvers og eins og ákveðin lífs­gæði að geta staðið fyrir máli sínu og til­finn­ingum í per­sónu­legum sam­skiptum ekki síst við erf­iðar aðstæður eins og skilnað.“

Karl­maður sem var bara ansi góður í því að halda fyr­ir­lestra, en þurfti þegar kór­ónu­veiran datt inn að færa þá alla yfir á netið og fékk sjokk þegar hann þurfti að horfa á sig, náði miklum árangri í því að skerpa færni sína í net­fyr­ir­lestrum þar sem þú sem fyr­ir­les­ari hefur ekki áhorf­endur til að næra þig með við­brögðum þínum.

„Eitt er að hafa öryggið til að tala, hitt er að ná nýjum hæðum í fram­setn­ing­unni og því að byggja upp með­vit­und, fín­pússa radd­beit­ingu og frá­sagn­ar­stíl. Vera fær um að nýta sér ólíka miðla og nálgun í því að setja fram efni.“

Fræði­maður sem hafði haldið fyr­ir­lestra í gegnum árin náði að öðl­ast með­vit­und og dýpka færni sína mikið. Auk þess fann hún hvernig hún gat tengt á milli per­sónu­lega lífs­ins og fags­ins. Hvort tveggja hafði áhrif í báðar áttir.

Hún skynj­aði hvernig hún gæti dýpkað færni sína og orðið meira „authentic“ eða ekta, sem fyr­ir­les­ari. Á sama tíma upp­götv­aði hún hvernig það að hafa ekki rödd í per­sónu­lega líf­inu hafði komið niður á nánum sam­skiptum hennar í gegnum lífið. Jafnvel komið niður á henni sem fyr­ir­les­ara. Hún átt­aði sig á sam­heng­inu og gat unnið með að breyta því.

Dokt­or­snemi sem hafði eytt miklum tíma, fjár­munum og orku í að mennta sig ákvað að taka góðan tíma í að þjálfa fyr­ir­lestra­tækni sína svo hún gæti flutt vörn­ina stress­laus og notið þess. Sú vinna skil­aði sér og hún topp­aði á réttum tíma, í vörn­inni sjálfri.

Æfingar sem opna á flæðið og hafa áhrif á atvinnutækifæri

„Ég er sann­færð um að það hefur haft áhrif á þau atvinnu­tæki­færi sem henni buð­ust strax í kjöl­farið. A.m.k. ekki skemmt fyrir. Ég er alltaf dálítið hissa á því hversu hlut­falls­lega fræði­menn virð­ast eyða litlum tíma í að þjálfa fram­setn­ingu efn­is­ins miðað við efn­is­öflun.

Ég er sjálf með meistara­gráðu í menn­ing­ar­miðlun frá Háskóla Íslands og vann loka­verk­efni mitt undir hand­leiðslu Eggert Bern­harðs­sonar sagn­fræð­ings, sem setti á fót það nám. Blessuð sé minn­ing þess frá­bæra kenn­ara og menn­ing­ar­miðl­ara. Hug­mynda­fræðin í því námi snýst einmitt um að koma öllum þessum fræðum yfir á manna­mál svo við hin fáum að njóta.

Það kom líka skemmti­lega á óvart þegar graf­ískur hönn­uður sem kom á nám­skeið hjá mér sagði mér að „eftir hvert skipti hefði hún farið á kaffi­hús og skissað á fullu því hún hefði verið svo inn­blásin eftir tím­ann“, því þessar æfingar hjálpa til við að opna inn í flæðið og sköp­un­ar­gleð­ina. Þær hafa stundum verið nýttar í tengslum við ritsmiðjur í skap­andi skrifum.“

Raddþjálfunin breytti lífi mínu

„Það breytti lífi mínu að kynn­ast radd­þjálf­un­ar­að­ferð Nadine George. Ég fann áhrifin strax sem leik­kona, röddin opn­að­ist inn í nýjar víddir og sú þróun tekur engan enda.

Ég gleymi ekki augna­blik­inu þegar ég heyrði sög­una af Alfred Wolfsohn á mínu fyrsta nám­skeiði með Nadine. Ég fékk gæsa­húð og það kveikti alveg nýja hugsun hjá mér varð­andi rödd­ina. Þessi til­vitnun og hug­mynda­fræði situr enn sterkt í mér.

Smám saman fór ég líka að nýta mér þessar æfingar í að takast á við áföll í lífi mínu. Umbreyt­ingin sem ég upp­lifði á sjálfri mér sem leik­kona og mann­eskja varð til þess að ég vildi að aðrir fengju tæki­færi til að upp­lifa það.“

Þórey með nám­skeið á Þingeyri „Röddin sem atvinnu­tæki.” Lós­mynd­ari: Ásgeir Helgi Þrast­ar­son

Röddin tengd því hvernig við upplifum okkur

Þórey segir að aðal­á­herslan sé lögð á að lík­ams­tengja rödd­ina, stækka og styrkja hljóm­botn hennar. Þannig að þú lærir að þekkja og skynja mögu­leika radd­ar­innar og að hún svari þér í sam­ræmi við þær aðstæður sem þú ert að nota hana í. Að þú getir notað hana með­vitað og hún lendi ekki bara ein­hvers staðar. Þegar röddin er vel tengd þá verður öll texta­vinna líf­rænni og tengd­ari per­sónu­legri tján­ingu. Ekki eins mikil hætta á að maður verði til­gerð­ar­legur. Það má segja að þessi vinna stytti leið­ina í sterka og áhrifa­ríka texta­með­ferð og frá­sagn­ar­tækni.

„Það stór­kost­lega er að þegar þú ferð að þjálfa rödd­ina, þá upp­lifir þú svo margar jákvæðar auka­verk­anir sem nýt­ast þér sem mann­eskja. Þegar maður hugsar um það, þá er röddin  svo per­sónu­leg og tengd því hvernig við upp­lifum okkur. Svo stór hluti af sjálfs­mynd okkar. Við erum í raun að kjarna okkur því grunn­ur­inn að góðri radd­beit­ingu er öndun. Það hafa mörg fræði­ritin verið skrifuð um jákvæð áhrif djúpönd­unar, t.d. á kvíða, að það væri alveg efni í aðra grein. Þannig að radd­þjálfun stuðlar að vellíðan, fyrir utan það að byggja upp færni í frá­sagn­ar­tækni.“

Hreinsa og opna orkustöðvarnar

Þórey að kenna í Yogavin jóga­mið­stöð í Reykja­vík

Þá segir Þórey að æfing­arnar séu ein­faldar sem hún segir að sé frá­bært, en með ástundun er alltaf farið dýpra.

„Ég byggi kjarn­ann í minni þjálfun á æfingum Nadine. Auðvitað tek ég ýmis­legt með mér sem ég lærði frá mínum góða radd­kenn­ara í Leik­list­ar­skóla Íslands, Hilde Helgason, og minni reynslu úr leik­hús­inu.

Ég hef inn­leitt meiri orku­vinnu í radd­vinn­una, hreinsa og opna orku­stöðv­arnar og nýti mér hug­leiðslu. Sumar æfing­arnar frá Nadine eru hálf­gerð hug­leiðsla í hreyf­ingu líka. Þetta nám hefur hjálpað mér að fara dýpra og skerpa inn­sæi mitt sem kenn­ari og lista­maður. Svo þetta er allt saman mjög praktískt og styður hvert annað.“

Hverjir leita aðal­lega til þín?

„Til mín koma aðal­lega leik­arar, leið­sögu­menn, kenn­arar af öllu tagi og fólk sem þarf að standa fyrir máli sínu í sínu starfi.

Nú nýlega var ég að kenna nám­skeið hjá Mennta- og starfs­þró­un­ar­setri lög­regl­unnar, sem var frá­bært af því að þau gera sér grein fyrir því að röddin er eitt magn­að­asta vald­beit­ing­ar­tæki sem lög­reglan hefur. Eins er mik­il­vægt að geta kjarnað sig til að halda dóm­greind­inni í lagi við erf­iðar aðstæður fyrir fólk í svo krefj­andi starfi. Það er þekkt að við of mikla streitu fer dóm­greindin og þá eru við­brögðin ekki alltaf ásætt­an­leg.

Margar æfing­arnar eru frá­bærar til að vinna úr streitu. Í radd­þjálfun ertu stöðugt að vinna með rétt spennu­jafn­vægi og þá þarftu að læra hvenær og hvar þú styður við í lík­am­anum og hvernig þú slakar á á réttum stöðum. Sú tækni kemur sér vel alltaf vel þegar við verðum fyrir miklu áreiti.

Ég hef líka verið með nám­skeið fyrir stofn­anir sem sinna safna­miðlun, fjöl­miðla, starfs­menn Alþingis svo eitt­hvað sé nefnt. Mér finnst ótrú­lega skemmti­legt að kynn­ast fólki á svo ólíkum sviðum og kom­ast að því að kjarn­inn í því sem við þurfum að takast á við í líf­inu sem mann­eskjur er iðu­lega sá sami. Röddin er magnað atvinnu­tæki og ekki síður heil­un­ar­tæki ef við nálg­umst hana á þann hátt sem ég hef fengið að kynn­ast og þróa í gegnum mína frá­bæru kenn­ara.“

Þórey er með nám­skeið enn þá er hægt að skrá sig

hér.

Heima­síða:

thor­ey­sigt­hors.com

Hægt er að skoða Facebook-síðu hennar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð