Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimildarmyndin tók nýja stefnu við fráfall Hauks: „Ég man hvernig hjartað sökk í mér“

Heimildarmyndin tók nýja stefnu við fráfall Hauks: „Ég man hvernig hjartað sökk í mér“
Haukur Hilm­ars­son Mynd: GeiriX

Jón Grétar Jónasson Sig­ríð­ar­son vinnur nú að heim­ild­ar­mynd um vin sinn Hauk Hilm­ars­son sem féll í árás Tyrk­lands­hers á Kúrda í Afrin hér­aði í Sýrlandi árið 2018. Sandra Guðrún Guð­munds­dóttir tók nýlega við­tal við Jón Grétar í Frétta­blað­inu þar sem hann talar um til­urð mynd­ar­innar og vin­áttu sína við Hauk.

Jón Grétar Jónasson Sig­ríð­ar­son

Þeir félagar kynnt­ust þegar Haukur hóf störf í skóg­rækt­ar­fyr­ir­tæki föður Jóns Grétars þegar þeir voru ungir drengir.

„Hann var nokkrum árum eldri en ég og maður lærði mikið af honum og hann var eins konar fyr­ir­mynd,“ segir Jón Grétar um fyrstu kynni sín af Hauki.

Þeir Haukur voru ekki í stöð­ugum sam­skiptum þrátt fyrir að hafa kynnst ungir en Jón Grétar hafði sam­band við Hauk þegar þeir höfðu ekki hist í rúm átta ár og bað hann að taka þátt í gerð heim­ild­ar­myndar sem hann vildi gera um Hauk.

„Á þessum tíma er Haukur að snúa lífi sínu við. Hann var búinn að enda á eins konar vegg og var mjög ósáttur við sjálfan sig. Ég get í raun ekki ljóstrað upp neinu meira um hann og okkar sam­band án þess að ljóstra upp plott­inu í mynd­inni. Við fórum mjög djúpt ofan í hans til­veru. Myndin mun svara stórum spurn­ingum eins og af hverju hann fór til Sýrlands og nákvæm­lega hvað það var sem hvatti hann áfram,“ upp­lýsir Jón Grétar.

Þeir voru báðir ansi upp­teknir á þessum tíma og voru því ekki í miklu sam­bandi eftir að þeir klár­uðu fyrstu tök­urnar.

„Síðast þegar ég heyrði í Hauki lá honum eitt­hvað á hjarta sem hann þurfti að ræða við mig í per­sónu en ég hafði ekki tíma fyrr en vik­una eftir og það hent­aði ekki Hauki. Það sam­tal átti ég við hann rétt áður en hann fer fyrst til Sýrlands og ég mun aldrei vita hvort hann hefði rætt þær fyr­ir­ætl­anir við mig ef við hefðum hist. Mér finnst rosa­lega erfitt að hugsa til þess eftir á, um ef og hefði,“ segir Jón Grétar með trega.

„Ég man rosa­lega vel þegar ég heyrði það í útvarps­fréttum að Íslend­ingur hefði fallið í Sýrlandi. Ég man hvernig hjartað sökk í mér, því þó hann hafi ekki verið nafn­greindur þá vissi ég sam­stundis að þetta væri Haukur. Ég eyddi síðan ein­hverjum svefn­lausum nóttum grát­andi í að hlusta á sam­tölin sem við áttum.“

Stefna mynd­ar­innar hefur breyst, þar sem Haukur er nú tal­inn af en ári eftir hvarf hans ákvað Jón Grétar að halda áfram með mynd­ina.

Hilmar Hauksson

„Aðal­á­hersl­urnar sem breyt­ast eru að myndin mun snú­ast mikið um for­tíð Hauks, en hann vildi ekki að myndin sem við vorum að vinna upp­runa­lega saman fjall­aði mikið um það sem hann gerði fyrir árið 2014,“ segir Jón Grétar.

„Það var gríð­ar­lega erfitt fyrir mig að klára hand­ritið að þess­ari mynd. Mér tókst að lokum að setja saman sterka frá­sögn sem er knúin áfram af Hauki sjálfum. Myndinni verður skipt upp í sex kafla og gæti í raun verið sex þátta sería. Ég er með nokkra klukku­tíma af við­tölum við Hauk og eitt­hvað af myndefni. Myndin verður blanda af nýjum upp­tökum og upp­tökum sem ég tók með Hauki, en kjarn­inn mun alltaf koma frá Hauki sjálfum. Þetta er hans saga og það mun eng­inn geta sagt hana betur heldur en hann sjálfur.“

Að mati Jóns Grétars eiga Íslend­ingar fáar hetjur á borð við Hauk Hilm­ars­son. Þess vegna vilji hann segja sögu hans.

„Það eru ekki margir sem helga stærstan hluta líf síns því að aðstoða aðra. Haukur var vissu­lega umdeildur og með póli­tískar skoð­anir sem ekki hugn­ast öllum en sá Haukur sem ég þekkti var til­bú­inn að gera sitt besta til þess að hjálpa þeim sem minna mega sín,“ segir Jón Grétar.

Allt við­talið má sjá hér.

Styrkja má gerð mynd­ar­innar á síðu Jóns Grétars á Karolina Fund

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð