Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Óeirðirnar við Olís: „Þeir þrykkja honum í jörðina, halda honum niðri og berja hann“

Óeirðirnar við Olís: „Þeir þrykkja honum í jörðina, halda honum niðri og berja hann“

Þann 23. apríl árið 2008 kom til átaka milli lög­reglu og mót­mæl­enda á Suð­ur­lands­vegi við Rauða­vatn, þegar vöru­bíl­stjórar mót­mæltu þar háum olíu­sköttum og of stífum reglum um hvíld­ar­tíma atvinnu­bíl­stjóra. Lögregla greip til notk­unar piparúða á mót­mæl­endur og öskrin frægu „Gas, gas, gas! Af göt­unni!“ munu seint líða þjóð­inni úr minni.

Liður í röð mótmæla

Mótmæli þessa dags voru einn liður í röð mót­mæla vöru­bíl­stjóra sem höfðu byrjað í lok mars. Þau fóru þannig fram að vöru­bíl­stjórar lögðu bif­reiðum sínum á fjöl­förnum götum og stöðv­uðu þannig umferð. Það var þarna sem Sturla Jónsson kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið, en hann var fremstur í flokki í mót­mæl­unum og átti eftir að vera enn meira áber­andi í sam­fé­lags­um­ræð­unni í kringum efna­hags­hrunið. Seinna átti Sturla svo eftir að fara í hin ýmsu fram­boð, bæði í alþing­is­kosn­ingum sem og kosn­ingum til emb­ættis for­seta Íslands.

Mótmælin þann 23. apríl árið 2008 fóru fram við bens­ín­stöð­ina Olís á Suð­ur­lands­vegi, við Rauða­vatn og Norð­linga­holt. Um 20 vöru­bif­reiðum var lagt á veg­inn og umferð þannig hindruð. Um mán­uði fyrr hafði svip­aður gjörn­ingur farið fram í Ártúns­brekku, nokkur skipti í röð. Á Aust­ur­velli höfðu mót­mæli verið haldin og þann 1. apríl hafði þáver­andi for­seta Alþingis, Sturlu Böðv­ars­syni, verið afhentur und­ir­skrifta­listi vöru­bíl­stjóra um lækkun skatta á elds­neyti. Mótmæli áttu sér stað víðar um landið, meðal ann­ars á Suð­ur­landi og á Akureyri.

Daginn sem bíl­stjór­arnir lok­uðu Suð­ur­lands­vegi við Rauða­vatn var spenna í loft­inu og fleiri en vöru­bíl­stjórar mættu á stað­inn til þess að ýmist fylgj­ast með mót­mæl­unum og sýna bíl­stjór­unum stuðn­ing, eða láta að sér kveða.

Lög­reglu­menn mættu á svæðið í óeirð­ar­bún­aði með piparúða og ætl­uðu sér að koma í veg fyrir lok­un­ina og leysa mót­mælin upp. Það fór ekki betur en svo að það kastað­ist í kekki milli lög­reglu og bíl­stjór­anna. Átök brut­ust út og lög­reglu­menn beittu kylfum og piparúða á mót­mæl­endur. Myndband náð­ist af því þegar einn lög­reglu­mað­ur­inn gekk um og öskr­aði „Gas, gas, gas! Af göt­unni!“ af öllum lífs- og sál­ar­kröftum, milli þess sem hann úðaði á bíl­stjóra og aðra mót­mæl­endur. Mynd­bandið gekk ljósum logum um inter­netið í kjöl­farið og mót­mælin hafa síðar verið kennd við þessi öskur lög­reglu­manns­ins. Lög­reglu­menn voru harð­lega gagn­rýndir fyrir fram­göngu sína gagn­vart mót­mæl­endum og vöru­bíl­stjór­arnir sök­uðu þá um harð­ræði. 21 mót­mæl­andi var hand­tek­inn og 16 öku­tæki gerð upp­tæk vegna mögu­legra brota á 168. gr. almennra hegn­ing­ar­laga og fyrstu máls­grein 27. gr. umferð­ar­laga.

Þetta voru hörð­ustu átök sem brot­ist höfðu út milli lög­reglu og mót­mæl­enda á Íslandi í langan tíma.

Olíu skvett á lítið bál

„Það sem gerð­ist hér í morgun er að það var skvett olíu á frekar lítið bál, bál sem réð­ist mjög vel við. Það var skvett olíu á það í morgun og það er eitt­hvað sem menn eru ekki búnir að sjá fyrir end­ann á, hvernig gerir sig.“

„Ég bara skil ekki hvernig ráða­mönnum þjóð­ar­innar datt þetta í hug,“

sagði vöru­bíl­stjóri á vett­vangi.

„Ég held að eng­inn hafi átt von að því að til þessa kæmi, en það er mjög erfitt að segja til um það hvað það var og hvers vegna átökin brut­ust út upp­runa­lega. Lögreglu og vöru­bíl­stjóra greinir á um það,“ sagði Guð­mundur Gunn­ars­son, frétta­maður á RÚV, um málið í kvöld­fréttum RÚV þennan dag. Atburð­unum á Suð­ur­lands­braut hafði verið sjón­varpað í beinni útsend­ingu.

Atburðarásin

Í upp­hafi mót­mæl­anna var allt í ró og spekt. Lögregla mætti á svæðið með átta lög­reglu­bif­reiðir, ræddi við vöru­bíl­stjór­ana og reyndi að fá þá til þess að færa bif­reiðir sínar af umferð­ar­æð­inni. Þegar bíl­stjór­arnir neit­uðu að verða við kröfum lög­reglu fór fljót­lega að fær­ast harka í leik­inn. Fleiri bætt­ust í hóp­inn eftir að hafa séð sjón­varps­út­send­ingu frá mót­mæl­unum.

Mót­mæl­endur voru varaðir við gasi og kylfum og gert að yfir­gefa göt­una, þar sem þeir stóðu í stórum hópi. Einnig útskýrði lög­regla að mót­mæl­endur gætu allir átt á hættu að vera hand­teknir, þar sem það væri lög­brot að teppa göt­una með þessum hætti.

„Ef þú fylgist með hérna í nokkrar mín­útur, þá látum við verkin tala,“

sagði lög­reglu­maður í sam­tali við frétta­mann Stöðvar 2 á vett­vangi. Eftir það hófust lög­reglu­menn handa við að ryðja mót­mæl­endum úr vegi og sprauta gasi á þá. Bæði eggjum og grjóti var kastað að lög­reglu. Einn lög­reglu­maður var fluttur á slysa­deild með höf­uð­á­verka og nokkrir mót­mæl­endur leit­uðu lækn­is­hjálpar eftir að hafa fengið á sig piparúða.

Mót­mæl­endur sem höfðu safn­ast á svæðið héldu áfram að ögra lög­reglu og ýmsir fóru inn á bens­ín­stöð­ina að kaupa egg til að kasta. Gos­flöskur fengu einnig að fljúga í varn­ar­vegg lög­reglu­manna. Á þessum tíma­punkti höfðu tölu­vert margir ung­lingar safn­ast á svæðið til að halda óeirð­unum áfram og mikið til leyst bíl­stjór­ana af hólmi.

Atburð­irnir tóku und­ar­legri stefnu þegar útskrift­ar­efni í miðri dimmi­sjón mættu á svæðið íklæddir bún­ingum í anda nas­ista seinni heim­styrj­ald­ar­innar. Maður klæddur í gervi róm­versks lár­við­ar­skálds ark­aði upp að lög­reglu­mönnum með blóm í hendi og reyndi að færa þeim. Lögregla tók upp­á­tæk­inu heldur illa og teymdi mann­inn burt.

Það var ekki fyrr en um eft­ir­mið­dag­inn að sumir vöru­bíl­stjórar fjar­lægðu bif­reiðir sínar og Suð­ur­lands­vegur gat opnað fyrir umferð á ný. Aðrir bílar voru dregnir burt. Bíll Sturlu Jóns­sonar, tals­manns bíl­stjór­anna, var til að mynda dreg­inn burt í lög­reglu­fylgd.

Sturla Jónsson. Mynd/skjá­skot RÚV.

„Við skulum gera okkur fulla grein fyrir því að það var lög­regla sem átti upp­tökin að þessu,“ sagði Sturla í sam­tali við frétta­mann RÚV. „Það vildi til að það var strákur sem ætl­aði að fara að fjar­lægja bíl­inn hérna, og þá hefði opn­ast hér í gegn. Þeir meina honum það að fara inn í bíl­inn hjá sér og þegar menn ætla að styðja hann í því að fara inn í bíl til þess að fjar­lægja bíl­inn, þá gripu þeir á það að ýta við fólk­inu og spreyja úða á það allt saman, og hand­tóku hérna sex menn á eftir.“

„Ég ætla bara að vona að fólkið í land­inu átti sig á því að það þarf að fara að standa upp, til þess að þessir þing­menn þarna fari að vinna hérna heima fyrir fólkið, en er ekki alltaf erlendis í ein­hverri bölv­aðri þvælu sem varðar ekki fólkið,“ sagði Sturla enn­fremur.

Maðurinn sem hent hafði grjóti í lög­reglu­mann var eltur uppi og hand­tek­inn. Ekki náð­ist mynd­band af hand­tök­unni, en sjón­ar­vottur á vett­vangi lýsti henni svona í kvöld­fréttum RÚV: „Hann stoppar og þá kemur ein löggan að honum og ber hann tvisvar sinnum með kylf­unni. Hann lyftir ekki hendi eða gerir neitt. Svo koma þeir fjórir að honum og þeir þrykkja honum í jörð­ina, halda honum niðri og berja hann. Þá eru þeir komnir fimm saman, og berja hann áður en þeir hand­taka hann. Og þetta var ekk­ert smá, þetta var bara eins og í svæsn­ustu bíó­mynd. Ég er bara ennþá í sjokki.“

Pínleg upptaka af fréttamanni

Í hópi frétta­manna á vett­vangi var Lára Ómars­dóttir, þá starf­andi á frétta­stofu Stöðvar 2. Upptaka náð­ist af henni í beinni útsend­ingu þar sem hún sagði við sam­starfs­menn sína að mögu­lega væri hægt að fá ein­hvern til þess að kasta eggi að lög­reglu meðan á frétta­skoti þeirra stæði. „Ég get nú kannski fengið ein­hvern til að kasta eggi rétt á meðan við erum live á eftir,“ sagði Lára.

Lára Ómars­dóttir

Upptakan fór í mikla dreif­ingu og var Lára harð­lega gagn­rýnd í kjöl­farið. Hún bar því við að um grín hefði verið að ræða, en sagði starfi sínu þó lausu stuttu síðar með þeirri skýr­ingu að henni þætti hún hafa misst traust almenn­ings.

„Þetta er búið að fara mjög illa með okkur“

Sturla Jónsson rifj­aði mót­mælin upp þann 23. apríl 2018 í sam­tali við Frétta­blaðið, þegar ára­tugur var lið­inn frá atburð­unum. Hann sagði ástandið ein­ungis hafa versnað á þessum tíu árum.

Sturla sagði að eftir því sem hann best minnti hefði bens­ín­lítr­inn verið í kringum 89 krónur þegar mót­mælin fóru fram og lítri af dísilolíu um tutt­ugu krónum ódýr­ari. Þegar við­talið var tekið sagði hann verðið vera komið upp í yfir 200 krónur, bæði fyrir bensín og dísil.

„Þetta er búið að fara mjög illa með okkur. Það er bara svo­leiðis. 2008 kost­aði hvað, þrjá­tíu þús­und krónur rúm­lega að fylla á tank­inn á vöru­bíl? Sami tankur í dag er á rúm­lega hund­rað þús­und,“ sagði Sturla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð