Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hrannar Bragi Eyjólfsson: Ég tók hlutverk „aðstoðarþjálfara“ mjög alvarlega – þó ég væri með snuddu

Hrannar Bragi Eyjólfsson: Ég tók hlutverk „aðstoðarþjálfara“ mjög alvarlega – þó ég væri með snuddu

„Mér hefur alltaf verið mjög umhugað um Garðabæ og vel­sæld hans og íbú­anna. Ég ólst þar upp og hef búið þar alla mína ævi,“ segir Hrannar Bragi Eyj­ólfs­son sem sæk­ist eftir 4.-5. sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, en próf­kjörið fer fram 5. mars.

Hrannar er lög­fræð­ingur hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðnum og leik­maður Stjörn­unnar í úrvals­deild karla í hand­bolta. „Fjöl­skylda mín á að baki langa sögu í bænum og get ég stoltur sagt að hún hafi verið í þjón­ustu við Garð­bæ­inga í yfir 60 ár.

Ég hef und­an­farin ár fengið að starfa fyrir bæinn minn, meðal ann­ars setið í menn­ingar- og safna­nefnd, og það hefur aukið löngun mína til að leggja meira af mörkum í þágu hans.

Ég er einnig þeirrar skoð­unar að ungt fólk þurfi rödd á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Segja má að ég leggi höf­uð­á­herslu á traustan fjár­hag og rekstur í bænum, leik­skóla­mál og öruggar sam­göngur barna og ung­menna í bænum. Ég myndi beita mér fyrir því að Garðabær verði í for­ystu í leik­skóla­málum með því að tryggja að börn 12 mán­aða og yngri fái pláss á leik­skólum nærri heim­ilum sínum í bænum. Þá hef ég talað fyrir sam­göngu­málum meðal ann­ars í Urriða­holti þar sem ég vil und­ir­göng eða göngu­brú yfir Reykja­nes­braut þannig að börn og ung­menni geti kom­ist á öruggan hátt yfir í eldri hverfi bæj­ar­ins og á helstu íþrótta­svæði hans. Ég er einnig þeirrar skoð­unar að ungt fólk þurfi rödd á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ og þess vegna býð ég mig fram sem málsvara unga fólks­ins í bænum,“ segir Hrannar Bragi sem er 26 ára. „Einnig mun ég berj­ast fyrir öfl­ugri grunn­þjón­ustu fyrir alla bæj­ar­búa. Ég get nefnt margt annað eins og menn­ing­ar­mál, íbúða­upp­bygg­ingu fyrir yngra og eldra fólk, mál­efni og menn­ingu á Álfta­nesi og aukið íbúa­lýð­ræði.“

Hrannar Bragi hefur starfað fyrir ung­menna­hreyf­ingu Sjálf­stæð­is­flokks­ins bæði í Garðabæ og á lands­vísu.

Hvers vegna fórst þú út á þá braut á sínum tíma og hverju hefur þú áorkað í gegnum það starf?

„Það kom til vegna þess að ég, ásamt nokkrum vinum og vin­konum mínum, hafði áhuga á því að koma mál­efnum ungs fólks í umræð­una innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ. Við sáum að Huginn, félag ungra Sjálf­stæð­is­manna, var góður vett­vangur til þess og buðum okkur fram. Þar áttum við síðan gott sam­starf við þá sem eldri eru í flokknum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur nefni­lega lagt sig fram við að hlusta á raddir unga fólks­ins og ég vona að hann haldi því áfram. Síðar tók ég einnig þátt í starfi Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna eftir sömu hugsun.“

Þess má geta að Hrannar Bragi var á lista flokks­ins í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

„Sjálf­stæð­is­flokknum fannst mik­il­vægt að unga fólkið fengi pláss á list­anum og því var talað við okkur í Hugin. Við tókum nokkur sæti á list­anum og í kjöl­farið fengum við að sjá hvernig kosn­inga­bar­átta er háð. Það var gaman að kynn­ast fólki og það sem mér fannst sér­stak­lega skemmti­legt þá var að sjá hversu annt Garð­bæ­ingum er um bæinn sinn. Það skipti ekki máli við hvern maður tal­aði, allir voru til­búnir að veita góðum hug­myndum lið og þá heyrði ég líka hvað Garð­bæ­ingar eru margir hverjir með áhuga­verðar hug­myndir um fram­fara­mál í bænum. Það er auð­vitað gæfa Garða­bæjar hversu margir eru til­búnir að leggja sitt af mörkum til að fegra og göfga mann­lífið í Garðabæ.“

Mér finnst kostir bæj­ar­fé­lags­ins vera þeir að það er mikil áhersla lögð á að frjálsu félögin í bænum séu sterk.

Garð­bæ­ing­ur­inn er spurður um helstu kosti og ókosti Garða­bæjar.

„Garðabær er frá­bært bæj­ar­fé­lag. Mér finnst kostir bæj­ar­fé­lags­ins vera þeir að það er mikil áhersla lögð á að frjálsu félögin í bænum séu sterk. Þar á ég auð­vitað við Stjörn­una en líka til dæmis Ung­menna­fé­lag Álfta­ness, golf­klúbbana, skáta­fé­lögin og hesta­manna­fé­lögin. Garðabær hefur alla tíð skilið mik­il­vægi þeirra, alveg frá því að hann hét Garða­hreppur. Það hefur alltaf verið stefnt að því að Garðabær sé fjöl­skyldu­vænn bær og þar hefur verið vel hlúð að börnum. Þess vegna á ég svona fagrar minn­ingar úr æsku minni í Garðabæ. Ég hef ekk­ert nema gott um bernsku­spor mín í Garðabæ að segja.“

Boltinn

Hrannar Bragi seg­ist vera Stjörnu­maður alveg í gegn.

„Ég fékk Stjörnu­hjartað í arf og segja má að félagið sé mér í blóð borið. Afi minn, séra Bragi Frið­riks­son, stofn­aði félagið árið 1960 eftir fag­urri hug­sjón. Pabbi minn, Eyjólfur Bragason, var mikil skytta í hand­bolt­anum hér í Garðabæ. Við systk­inin höfum síðan á einn eða annan hátt unnið fyrir Stjörn­una, bæði sem þjálf­arar og leik­menn. Við bræð­urnir, ég, Aðal­steinn og Sverrir, höfum valið hand­bolt­ann en systir mín, Katrín, var í fim­leikum. Stjörnu­stelpur hafa auð­vitað verið í fremstu röð í fim­leikum, ekki bara á Íslandi heldur víðar í Evrópu. Síðan er mamma mín, Hrönn Kjærne­sted, eig­in­lega stærsta og skærasta stjarnan í þessu öllu saman. Hún er klett­ur­inn sem við stöndum á í fjöl­skyld­unni og er auð­vitað vel þekkt í bænum líka. Hún hefur verið kenn­ari í Hofs­staða­skóla í meira en þrjá­tíu ár, alveg frá því að skól­inn var í safn­að­ar­heim­il­inu Kirkju­hvoli, og því er hjörðin orðin stór sem hún hefur kennt.

Við bræð­urnir höfum barist í blíðu og stríðu fyrir Stjörn­una. Það er okkur mik­ill heiður og mik­ils­vert að fá að berj­ast fyrir jafn merki­legt félag og Stjarnan er. Það vita allir bæj­ar­búar hversu mik­il­vægu hlut­verki félagið hefur gegnt í bæj­ar­fé­lag­inu í um 60 ár frá stofnun þess. Ég hef notið þess að spila leik­stjórn­anda­stöð­una þar og einnig í varn­ar­leiknum. Við höfum nokkrum sinnum kom­ist nálægt því að vinna titla, og eigum nokkrar silf­ur­medal­íur í bik­ar­keppn­inni, en við vinnum enn að því að kló­festa gullið og bæta við titla­safn félags­ins. Við erum heppnir með að nú er hóp­ur­inn sterkur; þjálf­ar­inn, Patrekur Jóhann­es­son, er hæfur og með hreint Stjörnu­hjarta og stjórnin stendur þétt við bakið á okkur. Stjörnu­menn og Garð­bæ­ingar styðja okkur vel og það er gaman í bolt­anum um þessar mundir. Núna erum við enn þá inni í bik­arnum og stöndum vel í deild­inni. Seinni helm­ingur Íslands­móts­ins hefst að Evr­ópu­móti loknu og maður er spenntur að mæta í næsta leik.“

Hrannar Bragi er spurður hvað heilli hann við bolt­ann.

Mér þykir til dæmis mjög gaman að velta fyrir mér hvernig best sé að spila leik­inn

„Hand­bolti er frá­bær íþrótt og ég hvet alla til þess að prófa, bæði unga sem aldna. Ég auð­vitað ólst upp við leik­inn og mínar fyrstu minn­ingar eru margar hverjar bundnar við hand­bolta­völl­inn og Ásgarð. Þar stóð ég á hlið­ar­lín­unni og var víst fljótur að taka upp takta föður míns sem þjálf­ari. Ég ýmist sagði leik­mönnum til synd­anna eða sýndi þeim hvernig fara skyldi að hlut­unum. Það vakti auð­vitað mikla lukku en ég tók hlut­verk „aðstoð­ar­þjálf­ar­ans“ mjög alvar­lega á þessum árum – þótt ég væri með snuddu. Það var mér því eðl­is­lægt að fara í hand­bolt­ann. Leik­ur­inn krefst úthalds, styrks og útsjón­ar­semi. Hand­bolta­menn eru oft stórir og miklir en þetta er ekki síður and­legur leikur. Það er mikil speki fólgin í leik­skipu­lagi og það er það sem mér finnst skemmti­leg­ast við hann. Mér þykir til dæmis mjög gaman að velta fyrir mér hvernig best sé að spila leik­inn, hvernig leik­maður spilar inn á styrk­leika sína og veik­leika and­stæð­ing­anna og hvernig liðið kemur fram á leik­vell­inum. Þannig erum við miklir pæl­arar í fjöl­skyld­unni. Pabbi var þannig og við bræð­urnir erum það líka. Ég segi nú ekki til um hvort það sé gott eða slæmt. Aðal­steinn hefur þó náð miklum árangri í þjálfun hér heima, í Þýska­landi og nú í Sviss þar sem hann er bik­ar­meist­ari. Við erum öll mjög stolt af honum. Allir höfum við þó alltaf spak­mæli afa okkar hug­föst. Við förum drengi­lega fram og munum að Stjörnu­menn eiga ætíð að vinna í þágu þess sem er fag­urt, göf­ugt og gott.“

Hvað eiga bolt­inn og stjórn­málin sam­eig­in­legt?

„Maður þarf að vera útsjón­ar­samur og hafa úthald til að koma hugð­ar­efnum sínum í fram­kvæmd. Andlega þrekið skiptir miklu máli og maður þarf að vera fram­sæk­inn. Það er mik­il­vægt að þora að sækja fram – sér­stak­lega þegar maður er þeirrar skoð­unar að Garðabær eigi að vera í for­ystu á lands­vísu.“

Heiðarleiki

Lög­fræð­ing­ur­inn er spurður hvers vegna hann valdi það nám og hverjir séu helstu draumar og mark­mið varð­andi fram­tíð­ina með lög­fræð­ina í huga.

„Ég var nú alls ekki viss hvað ég ætti að taka mér fyrir hendur þegar ég varð stúd­ent en lög­fræðin varð fyrir val­inu. Það hefur nú bara reynst hár­rétt val. Hún á vel við mig og ég hef gaman af að velta því fyrir mér hverju fólk vill koma til leiða með lögum. Lögin eru auð­vitað sá rammi sem mann­eskjur setja utan um sam­fé­lög sín og það er áhuga­vert við­fangs­efni að rýna í. Mínir draumar með lög­fræð­ina eru þeir að ég geti orðið til góðs með sér­þekk­ingu minni og veitt öllu góðu lið.“

Að hvaða leyti gæti lög­fræðin nýst honum í stjórn­málum?

Ég vona að mín sér­þekk­ing geti hjálpað bæj­ar­fé­lag­inu og orðið til þess að við sköpum sam­fé­lag og umhverfi sem nær því besta út úr fólk­inu hér.

„Það er eig­in­lega það sama. Eins og ég sagði: Lögin setja ramma utan um sam­fé­lagið. Auðvitað er það Alþingis að setja lög, ekki Garða­bæjar, en sveit­ar­fé­lög setja þó reglur sem íbúar þurfa að hlýta. Forsjá og traust for­ysta er bænum því afar mik­il­væg. Ég vona að mín sér­þekk­ing geti hjálpað bæj­ar­fé­lag­inu og orðið til þess að við sköpum sam­fé­lag og umhverfi sem nær því besta út úr fólk­inu hér. Það er mik­ill mannauður í Garðabæ og kraft­ur­inn í æsk­unni hér er mik­ill.“

Hverjir eru stærstu draum­arnir varð­andi stjórn­málin? Bæj­ar­stjóra­stóll? Ráð­herra­stóll?

„Eigum við ekki bara að nota þekkta klisju úr bolt­anum: Við tökum bara einn leik í einu. En að öllu gamni slepptu þá er ein­beit­ingin mín nú á próf­kjörið. Vonandi gengur mér vel þar og þá vona ég að ég geti lagt mitt af mörkum við að gera góðan bæ enn betri.“

Hrannar Bragi er ungur maður og aug­ljós­lega hæfi­leik­a­ríkur. Hvað myndi hann vilja að ein­kenndi sig sem stjórn­mála­mann?

„Ég vona að fólk horfi á mig sem fyrst og fremst heið­ar­legan. Ég er ein­lægur þegar ég segi að ég vilji leggja öllu góðu lið. Ég get verið með stórar hug­myndir sem mig langar að fram­kvæma en ég veit að ekk­ert ger­ist nema að fjár­hag­ur­inn sé sterkur. Fjár­hagur er auð­vitað for­senda fram­þró­unar. Maður þarf að vera auð­mjúkur en um leið ein­beittur á loka­markið.“

Ævisaga afans

Hrannar Bragi á kær­ustu sem heitir Ásdís Rún Ragn­ars­dóttir sem hann segir að sé ynd­is­leg. „Við erum jafn­gömul og báðir upp­aldir Garð­bæ­ingar. Við festum kaup á íbúð í Urriða­holti nýlega og horfum björtum augum á fram­tíð­ina. Helstu áhuga­mál mín eru auð­vitað hand­bolti og svo finnst mér gaman að ferð­ast og upp­götva Ísland sífellt upp á nýtt.“

Lífið getur tekið á og er Hrannar Bragi spurður um mestu erf­ið­leika sem hann hefur gengið í gegnum. Lífs­reynslu. Sorg.

Það var fyrsta áfallið mitt í líf­inu, þá fjórtán ára gam­all.

„Ég er svo hepp­inn að hafa ekki þurft að ganga í gegnum mikla erf­ið­leika. Það er blessun mín og gæfa. Erfiðast var örugg­lega þegar afi minn, séra Bragi, kvaddi svip­lega árið 2010. Það kom eins og þruma úr heið­skíru lofti og ég gleymi aldrei þeirri stund þegar ég frétti af því. Það var fyrsta áfallið mitt í líf­inu, þá fjórtán ára gam­all. Fráfall hans hafði mikil áhrif á mig og ekki síst vegna þess að þá skildi ég fyrst hvað afi minn snerti mikið við sam­ferða­mönnum sínum. Ég man eftir yfir­fullri Vídalíns­kirkju í jarð­ar­för­inni hans og svo líka í Garða­kirkju. Jarð­ar­för­inni var streymt, sem var ekki venja þá, líkt og nú. Eftir að hafa lesið öll fögru orðin sem skrifuð voru um hann í minn­ing­ar­greinum var ég djúpt snort­inn og það er meðal ann­ars vegna þess að ég skrifa ævi­sögu þessa ynd­is­lega manns þessa dag­ana. Það er mér ljúf vinna. Hann er sann­ar­lega mín fyr­ir­mynd.“

Svo er það gleðin.

„Ég hugsa að mér líði sem best með Ásdísi uppi á Stöng, sum­ar­bú­staði fjöl­skyldu minnar. Þá fer brosið ein­hvern veg­inn ekki af mér. Ég er líka hepp­inn að eiga skemmti­lega fjöl­skyldu þannig að kvöld­stund með henni er eytt í hlátur og gleði. Svo er heldur ekki leið­in­legt að setja hann sláin inn við fögnuð Stjörnu­manna uppi í stúku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð