Björgunarmaður er kominn til tíkarinnar Pílu sem er í sjálfheldu á klettasyllu í Stigahlíð fyrir vestan.
Leit hefur staðið yfir Pílu síðan hún hrökklaðist af heimili sínu í Bolungarvík þann sjötta janúar síðastliðinn, vegna flugelda. Hafði hún ekki sést í tuttugu daga þrátt fyrir mikla leit eigenda sinna. Í dag hafði kajakræðari samband við eigendur Pílu og tjáði þeim að hann hefði séð tíkina frá sjó. Var hún í sjálfheldu á klettasyllu í Stigahlíð.
Sjá einnig: Tíkin Píla trylltist af hræðslu við flugelda: Týnd í 20 daga í snarbrattri hlíð BJÖRGUNARAÐGERÐIR
Eigandi Pílu gat ekki talað við Mannlíf þegar hringt var í hann rétt í þessu en staðfesti að maður væri kominn til Pílu og að björgun stæði yfir. „Það er maður kominn til hennar en það er ekki búið að bjarga henni.“
Hægt er að fylgjast með málinu á Facebooksíðunni Leitin að Pílu. Hér fyrir neðan má sjá manninn sem kominn er til hennar tala við hana.































Athugasemdir