Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Breki segir bankana ekki þurfa að hækka vexti í ljósi ofurhagnaðar: „Aðeins að róa sig, krakkar!“

Breki segir bankana ekki þurfa að hækka vexti í ljósi ofurhagnaðar: „Aðeins að róa sig, krakkar!“
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

„Bank­arnir munu vænt­an­lega ekki vera lengi að koma þessu út í breyti­legu vext­ina sína, sögu­lega séð. Ein­hverra hluta vegna hafa þeir verið miklu treg­ari þegar vextir hafa verið að lækka, þá tekur þetta marga mán­uði. Svo eru þeir mjög fljótir alltaf þegar vextir hækka að koma því út í verð­lagið,“ segir Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, í sam­tali við Mannlíf.

150.000 króna hækkun á 20 milljón króna láni

Í síð­ustu viku hækk­aði Seðla­banki Íslands stýri­vexti sína um 0,75 pró­sent. Þannig fara meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, úr tveimur pró­sentum upp í 2,75 pró­sent. Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum segir að verð­bólgu­horfur hafi versnað tölu­vert frá síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans. Verð­bólga mæld­ist 5,7 pró­sent í jan­úar og spá Seðla­bank­ans segir til um að verð­bólga verði 5,8 pró­sent á fyrsta fjórð­ungi árs­ins. Verð­bólgan sem nú er við lýði er mesta tólf mán­aða verð­bólga í um ára­tug. Viðbúið er að bank­arnir hækki vexti sína í kjöl­far stýri­vaxta­hækk­un­ar­innar eins og þeir hafa áður gert.

Ef tekið er mið af stýri­vaxta­hækk­un­inni einni er hægt að setja reikn­ings­dæmið þannig upp að af hverri milljón nemur 0,75 pró­senta hækkun 7.500 krónum. Þar með myndi greiðsla af 10 milljón króna láni hækka um 75.000 krónur á ári – 150.000 krónur á 20 milljón króna láni. Þetta eru því umtals­verðar fjár­hæðir sem um ræðir.

Skuldarar borga brúsann

„Það eru bara þeir sem skulda sem greiða þennan kostnað. Vandanum við verð­bólg­una er velt út á skuld­ara. Nú er ein­hver hluti þjóð­ar­innar sem ekki skuldar íbúð­ar­lán. Þau þurfa ekki að taka þátt í þessu, ekki með þessum hætti alla­vega, í aðhald­inu með okkur skuld­urum. Þeir aðilar verða ekki fyrir þessum mikla beina kostn­aði sem skuld­arar verða fyrir,“ segir Breki.

Samkvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi Arion banka hagn­að­ist bank­inn um 28,6 millj­arða króna á síð­asta ári. Um er að ræða met­hagnað en hann er meira en tvö­faldur á við árið á undan. Íslands­banki hefur einnig birt árs­reikn­ing og hagn­að­ist sam­kvæmt honum um 23,7 millj­arða á síð­asta ári. Það er þremur og hálfu sinnum meiri hagn­aður en árið 2020. Lands­bank­inn hagn­að­ist um 28,9 millj­arða króna árið 2021.

„Arion banki meira en tvö­fald­aði hagn­að­inn frá árinu á undan. Hagnaður árið 2019 var einn millj­arður. Á tveimur árum hafa þeir sem­sagt tutt­ugu og átt­faldað hagn­að­inn. Sem er nátt­úru­lega ótrú­legt.“

Breki segir að í ljósi þessa ætti ekki að vera erfitt fyrir bank­ana að láta það vera að velta stýri­vaxta­hækk­unum út í verð­lag til neyt­enda, í formi vaxta­hækk­ana.

„Við sáum það í upp­hafi Covid að bank­arnir juku vaxta­á­lagið sitt til íbúða­lán­taka. Kannski héldu þeir að í hönd færu ein­hver útlána­töp hjá þeim en svo var nú ekki raunin. Samt hafa þeir ekki enn sem komið er minnkað þetta vaxta­á­lag sem þeir juku í upp­hafi far­ald­urs­ins.“

Þetta segir Breki að snerti vaxta­málið svo­kall­aða. Neyt­enda­sam­tökin hafa stefnt við­skipta­bönk­unum með það fyrir augum að láta reyna á hvort fyr­ir­komu­lag breyti­legra vaxta hér á landi sér hrein­lega lög­legt.

„Við stefndum bönk­unum núna í des­em­ber fyrir óskýrar vaxta­á­kvarð­anir. Nú er það þannig að við vitum ekk­ert hvað bank­arnir ætla sér að gera. Það væri nú ágætt ef það væri, eins og lög gera ráð fyrir, skýrt hvernig vextir bank­anna tækju breyt­ingum. En það er því miður ekki þannig. Þess vegna þurftum við að fara í þetta dóms­mál.“

Breki segir að nú sem aldrei fyrr sé þörf á því að bæði bankar og önnur fyr­ir­tæki dragi úr arð­sem­is­kröfum sínum. Hann segir árs­reikn­inga sýna að það séu fleiri en bank­arnir sem séu að skila miklum hagn­aði, það eigi við um ótal fyr­ir­tæki líka.

„Við sjáum til dæmis að í sumum geirum hafa fyr­ir­tæki verið að auka velt­una um tugi pró­senta. Ef þú heldur í sömu hagn­að­ar­kröfu í pró­sentum talið þá eykst hún gíf­ur­lega í krónum talið. Þannig að það á við banka sem og önnur fyr­ir­tæki að nú sem aldrei fyrr er þörf á að draga úr arð­sem­is­kröfum. Við sjáum til dæmis að arð­semi Arion banka fer þarna úr 6,5 pró­sentum upp í 14,7 pró­sent milli ára frá 2020 til 2021. Aðeins að róa sig, krakkar, segi ég nú bara!“

Ávísun á höfrungahlaup verð- og launahækkana

„Það eru allir sam­mála um að þetta er tíma­bundið ástand,“ segir Breki. „Þar til frakt­flutn­ingar fara aðkom­ast í gang og þar til verður unnið bug á þessu flutn­inga­hökti sem er í heimskeðj­unni akkúrat núna og þar til hægt er að vinna bug á upp­skeru­brestum í ákveðnum geirum. Það er ekk­ert sem segir að þetta muni hafa ein­hver áhrif fram í tím­ann en vanda­málið er að ef við veltum þessu inn í verð­lagið þá er það ávísun á þetta venju­lega höfr­unga­hlaup verð­hækk­ana og launa­hækk­ana sem við erum því miður allt of vön, sögu­lega séð. Nú er bara komið að því að atvinnu­lífið sýni þá still­ingu sem atvinnu­lífið krefst alltaf af laun­þegum þegar laun­þegar eru að semja um laun og kjör.

Það er það sem við getum gert; að krefja fyr­ir­tæki um ráð­deild og að þau rói sig aðeins í arð­sem­is­kröfum.“

Breki segir að ef fyr­ir­tækin og bank­arnir svari þessu kalli sé vel hægt að halda út þetta tíma­bundna ástand.

„Annað er ávísun á óróa í haust þegar kjara­samn­ingar eru lausir – ef það á að velta þessu enda­laust inn í verð­lagið og halda í þessar háu arð­sem­is­kröfur. Slíkt höfr­unga­hlaup hefur aldrei skilað neinu nema auk­inni van­sæld.“

„Það vill eng­inn þann óstöð­ug­leika sem þessu mun fylgja. Hann er engum til góðs,“ segir Breki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi