Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ragnhildur Alda deilir lífsreynslu eftir að hafa lent á vegg: „Ég var farin að fá ofsakvíðaköst“

Ragnhildur Alda deilir lífsreynslu eftir að hafa lent á vegg: „Ég var farin að fá ofsakvíðaköst“

„Pabbi minn var á þingi. Hann Vil­hjálmur Egilsson. Þannig að ég er svo­lítið fædd og upp­alin í þessum bransa, þannig að ég fer inn í þetta alveg með opin augu,“ segir Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir, fyrsti vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, sem hefur ákveðið að gefa kost á sér til þess að leiða lista Sjálf­stæð­is­manna í borg­inni fyrir kosn­ingar í vor.

Ragn­hildur Alda er með B.Sc.-gráðu í sál­fræði frá Háskóla Íslands og meistara­gráðu í þjón­ustu­stjórnun frá við­skipta­fræði­deild HÍ. Hún fór í stúd­entapóli­tík­ina í Háskóla Íslands þegar hún stund­aði þar nám á sínum tíma; hún var í Vöku og var for­maður fjöl­skyldu­nefndar stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands. Hún var á sama tíma kosin vara­for­maður Heimdalls, félags ungra Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík. „Svo eftir Heimdall fór ég í Vörð, full­trúa­ráð sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík, og var í stjórn Varðar í tvö ár. Þannig að ég er búin að vera virk bæði í innra starfi flokks­ins og eins í stúd­entapóli­tík­inni. Svo hef ég verið mjög ötul í að starfa í kosn­inga­bar­áttu. Ég er orðin ansi seig í póli­tík­inni.“

Hún ólst upp á heim­ili þar sem vænt­an­lega var mikið talað um póli­tík. Hvað heill­aði hana og heillar aug­ljós­lega enn við póli­tík­ina? „Það sem mér hefur alltaf þótt mest heill­andi, er að þeir sem eru í stjórn­málum fá ákveðið tæki­færi til þess að þjón­usta fólk með miklu virk­ari hætti en venju­lega. Við erum öll með mis­mun­andi þarfir og það er hlut­verk stjórn­mála­manna að koma með lausnir sem henta sem flestum sem best í raun­inni.“

Ef stjórn­mála­menn hafa ekki áhuga á öllu ókunn­uga fólk­inu í kringum sig þá eru þeir ekki á réttum starfs­vett­vangi

Hún seg­ist oft tala mikið við fólk sem hún þekkir jafn­vel ekki vel og seg­ist ein­fald­lega hafa áhuga á því sem fólk hefur að segja. „Ef stjórn­mála­menn hafa ekki áhuga á öllu ókunn­uga fólk­inu í kringum sig þá eru þeir ekki á réttum starfs­vett­vangi.“

Á hvað vill svo Ragn­hildur Alda leggja áherslu? „Ég ætla að vera alda breyt­inga eins og maður segir.“ Hún hlær. „Leikur að orðum þarna; ég hef svo gaman af svona orða­leikjum. Mér hefur þótt stefnu­mótun borg­ar­innar í sam­göngu-, hús­næðis- og skóla­málum og öllum þessum grunn­þjón­ustu­stoðum hafa ein­kennst mikið af for­ræð­is­hyggju. Og þetta er bara góð leið að mjög lélegri þjón­ustu. Við erum bara þannig gerð að við getum aldrei séð fyrir nákvæm­lega hvað fólk þarf, þannig að við þurfum alltaf að bjóða upp á marga fjöl­breytta mögu­leika. Ég vil láta af þess­ari for­ræð­is­hyggju; snúa algjör­lega við blað­inu og byggja borg­ina frekar upp og móta stefnu­mótun þannig að hún verði raunsæ. Íbúum borg­ar­innar fer fjölg­andi og eins og bent er á í skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar, þá mun þurfa 27.000 íbúðir á næstu átta árum til þess að mæta þörf­inni. Þetta kallar á mikla upp­bygg­ingu í innviðum, þetta kallar á að borgin þurfi að stækka og þetta kallar á að við þurfum að láta af ein­streng­ings­legum skoð­unum á því hvernig hlut­irnir eigi að vera og bregð­ast strax við í að bæta umferð. Umferðin mun aukast. Þannig að við þurfum að finna leið til þess að bæta flæði og þjón­ustu, en ekki reyna að stýra fólki varð­andi það hvað á að gera. Fólk á að geta átt val. Og ég vil veita fólki val.“

Lenti á vegg

Ragn­hildur Alda er gift Einari Frið­riks­syni og á hún son­inn Vilhjálm. Hún segir áhuga­málin vera ferða­lög, jóga og hug­leiðslu og svo elskar hún kökur og eft­ir­rétti. Þá seg­ist hún vera mikil hunda­kona og fjöl­skyldan á hund. Svo nefnir hún hámá­horf.

„Ég geri þetta grimmt um jólin; þá tek ég alla þrí­leik­ina og reyni helst að klára nokkrar ser­íur. Svo er ég sólgin í Agatha Christie-bækur og glæpa­sögur með flottum kven­hetjum.“ Hún nefndi jóga og hug­leiðslu; hún seg­ist stunda jóga aðal­lega til að halda geð­heils­unni í lagi. Ragn­hildur Alda seg­ist hafa hlaupið á vegg. Lent á vegg. Það gerð­ist þegar hún var 21 árs.

„Ég var ófrísk þegar ég var 19 ára og byrj­aði að upp­lifa mik­inn kvíða á með­göng­unni og þá var allt annað við­horf en er í dag varð­andi slíkt. Ég fór til ljós­móður og tal­aði um þetta og hún spurði hvort ég væri ekki bara þreytt; ég sagði að svo væri ekki, heldur að mér liði bara illa. Það vissi eng­inn að það væri eitt­hvað „thing“ að vera með kvíða á með­göngu. Það var talað um fæð­ing­ar­þung­lyndi, en allt sem tengd­ist með­göng­unni; hvað var það? Ég hafði áður farið til heim­il­is­lækn­is­ins til að reyna að segja frá þessu og hann mælti með því að ég hlust­aði á róandi spólur. Þetta var mjög fínn karl og hann meinti vel; við erum búin að ná stór­kost­legum fram­förum hvað þetta varðar í þess­ari vit­und­ar­vakn­ingu.“

Fólk kann­að­ist ekki við mig lengur af því að ég var orðin alger hrísla vegna kvíða

Ragn­hildur Alda segir að henni hafi á þessum tíma fund­ist hún vera undir svo mik­illi pressu um að standa sig og sýna öllum að það hefði nú engin áhrif á hana að verða ung móðir og það væri ekk­ert að fara að stoppa hana. „Ég fór svo í algeran yfir­snún­ing. Svo fór maður í „crash“; ég hljóp alla­vega á vegg.“ Hún lenti á vegg. „Ég þurfti ein­fald­lega alveg að draga mig í hlé. Ég var komin með mik­inn kvíða og þetta gerði að verkum að ég þurfti alger­lega að breyta um hug­ar­far og þetta er eitt það versta sem ég hef lent í. Kvíðinn var mjög slæmur og þetta var þannig á tíma­bili að mér fannst orðið erfitt að fara út úr húsi, sem er ólíkt mér. Fólk kann­að­ist ekki við mig lengur af því að ég var orðin alger hrísla vegna kvíða. Það var samt bæði það versta og besta sem ég hef lent í, vegna þess að þegar maður lendir í því að missa allar und­ir­stöður og byggja sig upp á nýtt þá verður maður miklu sterk­ari. Ég er ekki frá því að það að hafa lent í þessu 21 árs hafi gert að verkum að ég þoli miklu meira álag í dag heldur en ella.“

Ragn­hildur Alda segir að erf­ið­asta augna­blikið á því ári, þegar henni leið sem svona illa, hafi verið þegar hún átt­aði sig í raun á hvað hún væri komin með mik­inn kvíða. „Þá fór ég til sál­fræð­ings og það var punkt­ur­inn; það var þessi botn. Ég hafði ekki stjórn á þessu og ég var farin að fá ofsa­kvíða­köst. Það var ógeðs­lega skrýtin til­finn­ing að geta ekki spyrnt við fótum þegar það gerð­ist. Ég held að það hafi verið versti dag­ur­inn á þessu tíma­bili. Ég tók þetta föstum tökum eftir þetta. Ég fór í gegnum sjálfs­vinnu í tengslum við þetta og var bara orðin hel­víti brött ári síðar.“

Getur hjálpað

Ragn­hildur Alda seg­ist eiga vin­konur sem hafi lent í kulnun og fengið áfallastreituröskun og að þar sem hún sé sú fyrsta í vin­kvenna­hópnum til að lenda í and­legum erf­ið­leikum þá hafi þær getað leitað til hennar. „Það er kostur að þekkja ein­hvern sem hefur lent í svona og sem hefur kom­ist upp úr svona erf­ið­leikum og þá getur fólk séð að það er annar kafli eftir. Þannig að ég er svo­lítið ánægð með að hafa fengið að lenda í þessu frekar snemma og geta verið ljós í myrkri fyrir svo allar hinar sem lenda í þessu síðar á lífs­leið­inni. Það er óum­flýj­an­legt að lenda í áföllum. Það er bara partur af líf­inu. En það er eitt sem er svo mik­il­vægt að muna: Hugrekki er ekki eitt­hvað sem maður fæð­ist með; það er eitt­hvað sem maður lærir af því að taka séns­inn: Mis­takast en halda áfram að taka séns­inn.“

Og ég held að það sé gott að hafa ein­hvern í for­svari sem hefur ekki bara skiln­ing á þessu heldur per­sónu­lega reynslu

Ragn­hildur Alda er spurð hvernig þessi reynsla geti nýst henni í því starfi sem hún sæk­ist eftir. „Ég held að þetta hafi mjög mikið að segja. Þetta kennir manni ákveðin bjarg­ráð sem eru rosa­lega góð til þess að nýta þegar streitan kemur. Starfinu sem ég sæk­ist eftir fylgir mikil streita þannig að maður þarf að kunna svo­lítið að lifa í gegnum hana og jafn­vel ná að nýta þessa streitu í eitt­hvað jákvætt. Ég held þess vegna að þetta muni gagn­ast mér ótrú­lega, fyrir utan það að sam­fé­lagið er orðið miklu opn­ara í að tala um vanda­mál af þessum toga en áður og við erum aktíf­ari í að fatta hversu mikil áhrif þetta hefur. Það er meira um kulnun en áður og fólk veit meira um kulnun. Og ég held að það sé gott að hafa ein­hvern í for­svari sem hefur ekki bara skiln­ing á þessu heldur per­sónu­lega reynslu. Ég held að það sé í raun­inni fram­tíðin, af því að miðað við pró­sentu­hluta fólks sem hefur lent í svona – hvort sem það er kvíði, kulnun, þung­lyndi eða streita – þá er þetta bara eitt­hvað sem meiri­hluti lands­manna er að díla við hvort sem er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð