Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hvað mega fjölmiðlar fjalla um? Lögbann á birtingu frétta í einu stærsta sakamáli aldarinnar

Hvað mega fjölmiðlar fjalla um? Lögbann á birtingu frétta í einu stærsta sakamáli aldarinnar

Mannlíf fjall­aði í gær um ákvörðun Lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra að kalla blaða- og frétta­menn til yfir­heyrslu með rétt­ar­stöðu sak­born­ings. Þessi ákvörðun hefur vakið umræður um hvað fjöl­miðlar mega og mega ekki fjalla um. Lengi hefur verið tek­ist á um það hér­lendis. Til dæmis neit­aði Arnar Páll Hauksson, þáver­andi frétta­maður RÚV, að svara spurn­ingum lög­manns for­seta Hæsta­réttar um heim­ild­ar­mann sinn þegar hann kom upp um stór­felld áfeng­is­kaup for­set­ans. Það mál var fyr­ir­mynd áfeng­is­kaupa ráða­manna í þátta­röð­inni Verbúðin.

Arnar Páll var kraf­inn svara um heim­ild­ar­menn sína árið 1989 en borg­ar­dómur dæmdi að hann þyrfti ekki að upp­lýsa um heim­ild­ar­mann sinn. Nokkrum árum síðar krafði lög­reglan Agnesi Braga­dóttur, þáver­andi blaða­mann Morg­un­blaðs­ins, um upp­lýs­ingar um sína heim­ild­ar­menn vegna skrifa hennar um enda­lok Sambands íslenskra sam­vinnu­fé­laga. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sagði henni skylt að svara. Þann úrskurð nam Hæsti­réttur úr gildi í jan­úar 1996.

Mega blaðamenn byggja fréttir á viðkvæmum gögnum?

Hæsti­réttur hefur tví­vegis dæmt að blaða­menn megi byggja fréttir á við­kvæmum gögnum. Hæsti­réttur dæmdi í bæði skiptin að fjöl­miðlar mættu byggja frétta­flutn­ing á gögnum sem þeir fengju í óþökk eig­enda þeirra ef umfjöll­unin væri hluti af þjóð­fé­lags­um­ræðu eða sneri að málum sem það hefur þýð­ingu fyrir almenn­ing að sé upp­lýst um.

Í sam­skiptum lög­regl­unnar við blaða­menn­ina sem um ræðir mun hafa verið vísað til tveggja greina í almennum hegn­ing­ar­lögum. Sú fyrri kveður á um sektir eða allt að árs fang­elsi ef ein­stak­lingur „brýtur gegn frið­helgi einka­lífs ann­ars með því að hnýs­ast í, útbúa, afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heim­ild­ar­leysi skjölum, gögnum, myndefni, upp­lýs­ingum eða sam­bæri­legu efni um einka­mál­efni við­kom­andi, hvort heldur sem er á staf­rænu eða hlið­rænu formi“. Seinni greinin segir að hver „sem í heim­ild­ar­leysi verður sér úti um aðgang að gögnum eða for­ritum ann­arra sem geymd eru á tölvu­tæku formi“ sæti sektum eða allt að eins árs fang­elsi. Í báðum greinum sem vísað er til er þó þann fyr­ir­vara að finna að þær eigi ekki við „þegar hátt­semin er rétt­læt­an­leg með vísan til almanna- eða einka­hags­muna“. Og þá vaknar spurn­ingin: á það við í þessum til­fellum? Vís­bend­ingar um það má lesa úr dómum.

Þrír dómar Hæstaréttar til hliðsjónar

Ef málið snýst um það að blaða­menn hafi skrifað fréttir upp úr gögn­unum verður að hafa þrjá dóma Hæsta­réttar til hlið­sjónar.

Sá nýleg­asti er frá árinu 2019 og snýr að lög­banni sem Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu setti á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar að beiðni Glitnis HoldCo tólf dögum fyrir kosn­ingar 2017. Þá hafði Stundin fjallað um fjár­fest­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og fólks sem honum tengd­ist fyrir hrun. Grein­arnar byggðu á gögnum úr Glitni sem voru háð banka­leynd. Bankinn varð gjald­þrota í hrun­inu og Glitnir HoldCo sá um upp­gjör þrota­bús­ins.

Glitnir HoldCo vildi einnig stöðva umfjöllun sem byggð­ist á gögnum sem urðu til í bank­anum og féllu undir banka­leynd. Hæsti­réttur sagði tvenn sjón­ar­mið og rétt­indi vera til hlið­sjónar. „Við það mat veg­ast ann­ars vegar á réttur stefndu sem fjöl­miðla til að gera almenn­ingi grein fyrir þeim upp­lýs­ingum sem fram koma í hinum umþrættu gögnum og hins vegar réttur þeirra sem gögnin fjalla um til að njóta þeirrar leyndar sem kveðið er á um í“ lögum, stjórn­ar­skrá og Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að Stund­inni og Reykja­vík media sem hún var í sam­starfi við hefði verið heim­ilt að vinna og birta fréttir á grund­velli gagna sem heyrt höfðu undir banka­leynd.

Eitt stærsta sakamál aldarinar

Tölvu­pósta­málið var í hámæli um miðjan fyrsta ára­tug ald­ar­innar. Þá hóf Frétta­blaðið birt­ingu á fréttum sem byggðu á tölvu­póstum sem blaðið hafði fengið í hend­urnar. Þar kom fram hvernig máls­met­andi menn sem tengd­ust Sjálf­stæð­is­flokknum höfðu komið við sögu í aðdrag­anda þess sem varð Baugs­málið, eitt stærsta saka­mál ald­ar­innar. Eigandi tölvu­póst­anna fékk sam­þykkt lög­bann á frétta­flutn­ing Frétta­blaðs­ins en tap­aði dóms­málum á báðum dóm­stigum, í hér­aði og Hæsta­rétti.

Ef ákvörðun lög­reglu að boða blaða­menn til yfir­heyrslu snýr ekki að skrifum þeirra heldur að því hvernig blaða­menn­irnir fengu gögnin sem þeir not­uðu má vísa til tveggja dóma. Annars vegar er umfjöll­unin hér að ofan um til­raunir Glitnis HoldCo að fá blaða­menn til að upp­lýsa um heim­ild­ar­menn sína. Hins vegar er dómur Hæsta­réttar frá árinu 2014 sem snýr að leka­mál­inu, þegar lög­regla reyndi að upp­lýsa hver hefði lekið upp­lýs­ingum til fjöl­miðla úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Síðar kom í ljós að það var annar aðstoð­ar­manna inn­an­rík­is­ráð­herra sem að lokum fékk skil­orðs­bund­inn átta mán­aða dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð