Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Anna Hildur, nýr formaður SÁÁ: „Ég var alltaf með kvíða, var alltaf þunglynd og alltaf með móral“

Anna Hildur, nýr formaður SÁÁ: „Ég var alltaf með kvíða, var alltaf þunglynd og alltaf með móral“
Anna Hildur Guð­munds­dóttir

„Auðvitað hefur þetta haft áhrif á sam­tökin. Þetta er álits­hnekkir. Stjórnin varð fyrir áfalli eins og allir aðrir. Þetta var eitt­hvað sem engin bjóst við. Þetta sam­ræm­ist hvorki gildum SÁÁ né gildum okkar sem ein­stak­linga, þannig að þetta var ekki gott fyrir sam­tökin,“ segir Anna Hildur Guð­munds­dóttir, áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi og nýr for­maður SÁÁ, um vand­ann og ólg­una sem kom nýlega upp í tengslum við SÁÁ sem varð til þess að þáver­andi for­maður sagði af sér.

Þetta var högg; við bogn­uðum en við brotn­uðum ekki.

„Þetta er ekki eitt­hvað sem lýsir sam­tök­unum. Þetta er ein­stak­lingur sem á þessa hegðun; þetta er ekki það sem sam­tökin standa fyrir. Þannig að hlut­verk okkar núna er að öðl­ast aftur traust almenn­ings af því að það er það sem skiptir okkur svo miklu máli af því að við treystum á almenn­ing að standa með okkur. Við erum alltaf að safna fyrir sam­tökin og fyrir bættri þjón­ustu fyrir alkó­hólista og aðstand­endur þeirra, þannig að það skiptir okkur miklu máli að ásýnd sam­tak­anna sé í lagi. Það er hlut­verk okkar núna að sýna íslensku þjóð­inni hvað við stöndum fyrir. Það er hlut­verk okkar að fá álit þjóð­ar­innar aftur með okkur. Þetta var högg; við bogn­uðum en við brotn­uðum ekki. Alls ekki. Þannig að ég trúi að traustið sé til staðar þegar við höldum áfram að sýna hvað það er sem við stöndum fyrir.“

Anna Hildur hefur setið í fram­kvæmda­stjórn SÁÁ síð­ast­liðin tvö ár. „Síðan kom atvikið þegar Einar Her­manns­son sagði af sér sem for­maður og þá vorum við for­manns­laus. Það að verða for­maður er ekki eitt­hvað sem ég hafði ásælst heldur var þetta röð atvika. Við í fram­kvæmda­stjórn­inni erum öll í öðrum störfum, en þar sem SÁÁ skiptir svo miklu máli fyrir mig og okkur, þá ákvað ég að bjóða mig fram til þess að leiða starfið fram að næsta aðal­fundi sem verður í vor. Mér þykir vænt um SÁÁ og vildi leggja mitt af mörkum.“

Verkferlar og siðareglur

Anna Hildur, sem býr á Akureyri og starfar sem áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi hjá Akur­eyr­arbæ, segir að for­maður sam­tak­anna sé jafn­framt fram­kvæmda­stjóri þeirra. Hún mun ein­ungis starfa sem for­maður, en það verði ráð­inn verk­efna­stjóri tíma­bundið til að sinna þeim verk­efnum sem fram­kvæmda­stjóri sinnti fram að næsta aðal­fundi.

„Við þurfum að búa til verk­ferla og siða­reglur í kringum stjórn­ina og vera í takt við önnur almanna­heilla­sam­tök. Það er í raun og veru margt sem við getum skoðað í innra starfi SÁÁ. Mér líst til dæmis vel á að sitt­hvor aðil­inn sé ann­ars vegar í fram­kvæmda­stjóra­stöð­unni og hins vegar í for­manns­stöð­unni. SÁÁ eru gras­rót­ar­sam­tök og það þarf að hafa í huga hvað gras­rótin vill; því þurfum við í fram­kvæmd­ar­stjórn­inni núna að eiga betra sam­tal við aðal­stjórn­ina.“

Kvíði og þunglyndi

Anna Hildur smakk­aði áfengi í fyrsta sinn þegar hún var í 7. bekk sem er eins og 8. bekkur í dag. „Ég var allt of ung.“

Hún fór síðan að drekka um helgar. „Svona var þetta. Maður datt í það um helgar eins og margir ung­lingar gerðu. Mér fannst gaman að djamma og fara út á lífið.

Ég var alltaf með kvíða, alltaf þung­lynd og alltaf með móral þó svo að ég hefði ekki verið að gera neitt af mér.

Ég fór síðan að drekka dag­lega þegar ég bjó erlendis. Mér var lengi búið að líða illa og svo vakn­aði ég eina nótt­ina og hugs­aði með mér að ég væri 32 ára gömul og að mér væri búið að líða illa í mörg ár og það stæð­ist ekki að mér ætti eftir að líða illa í 50 ár í við­bót, en ég var búin að reikna út að með­al­aldur kvenna væri 82 ár. Ég hugs­aði með mér að það hlyti að vera ein­hver orsök fyrir þess­ari van­líðan og hugs­an­lega ætti áfengi ein­hvern þátt í því hvað mér leið illa. Mér leið alltaf illa eftir að ég drakk. Ég var alltaf með kvíða, var alltaf þung­lynd og alltaf með móral þó svo að ég hefði ekki verið að gera neitt af mér. Ég átti ung börn og ég gat ekki hugsað mér að fara ein­hvern tím­ann út af heim­il­inu til að redda mér ein­hverju áfengi og skilja þau eftir. Ég hrædd­ist það mest af öllu. Ég hætti að drekka af því að ég vildi standa mig og vera til staðar fyrir dætur mínar,“ segir Anna Hildur sem fór í með­ferð á Vogi og síðar á Vík og hefur ekki drukkið síðan. Síðan eru liðin 19 ár.

Hún er spurð hvað hún hafi lært af því að hafa gengið í gegnum þessa reynslu. „Rosa­mikið. Ég hef aðra sýn á lífið. En ég skamm­ast mín ekki fyrir sögu mína. Sagan mín er sagan mín og þó svo að ég hafi drukkið í öll þessi ár þá komst ég upp með það og skil­aði alltaf mínu. En mér leið illa. Í dag er ég stjórn­andi í mínu ferða­lagi og það er það sem ég fékk þegar ég hætti að drekka – ég er sú sem ákveð í hvaða átt ég fer. Það eru ekki ein­hverjir aðrir sem ákveða það, heldur er það ég sem er við stjórn­völ­inn í mínu lífi. Og ég ræð hvort ég sé að fara áfram eða aftur á bak.“

Hvað er Bakkus í huga nýs for­manns SÁÁ? „Bakkus er ástand. Hug­ar­á­stand. Hann er í raun og veru þessi van­máttur sem býr innra með manni. Maður heftir hæfi­leik­ana sína til þess að vinna úr hlutum. Bakkus er hindr­andi. Í raun og veru leyfði hann manni aldrei að vera maður sjálfur. Maður var alltaf eitt­hvað allt annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ