Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dóri í Fjallakofanum er óttalaus: „Þegar ég stend upp stendur bara blóðspýjan beint út um buxurnar“

Dóri í Fjallakofanum er óttalaus: „Þegar ég stend upp stendur bara blóðspýjan beint út um buxurnar“
Halldór Hreins­son. Mynd úr einka­safni.

Halldór Hreins­son, eða Dóri í Fjalla­kof­anum eins og hann er oft kall­aður, er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Mann­lífið.

Flestir úti­vist­ar­menn þekkja Halldór, enda hefur hann reynst mörgum vel í þeim geira. Hann er sjálfur úti­vist­ar­maður og hefur oftar en einu sinni kom­ist í hann krappan í ævin­týrum sínum. Hann lenti til að mynda í alvar­legu hjól­reiða­slysi og hefur slasast á skíðum. Halldór fer yfir víðan völl og ræðir um Fjalla­kof­ann, kaup­mennsku frá blautu barns­beini, óvænta Dani á tröpp­unum hjá honum, þegar mið­ill lag­aði öxl­ina á honum og þegar hann bjó í Noregi og þeytti skífum á diskó­teki. Þá lenti hann reyndar illa í verka­lýðs­fé­lagi plötu­snúða.

Versl­un­ar­rekstur er í blóð­inu á Halldóri, ef svo má að orði kom­ast. Hann var lít­ill strákur þegar for­eldrar hans tóku við rekstri á Mela­búð­inni, sem enn er vin­sæl kjör­búð með gott orð­spor. Reyndar er Mela­búðin af mörgum talin eitt af stórum kenni­leitum Vest­ur­bæj­ar­ins. 

„Hún er vel rekin í dag eins og var þá. Ég nátt­úr­lega var kannski ekki dreg­inn í barna­þræl­dóm, en það bara fylgdi barna­upp­eldi þá, að á tíunda, ell­efta ári, varstu far­inn að hjálpa til.“

Halldór segir að versl­un­ar­mennska og aðstoð við við­skipta­vini hafi snemma átt vel við hann. Hann seg­ist telja að um sé að ræða eig­in­leika sem senni­lega sé í gen­unum – í blóð­inu. 

„Að hafa gaman af fólki, að hafa gaman af að gleðja; þarna, í svona kjör­búð, liggur við að þú sért að fara með þeim inn í jóla­há­tíð­ina, þegar þú ert að velja með þeim ham­borg­ar­hrygg­inn eða rjúp­urnar, og með­læti og annað. Þú færð svo mikla fyll­ingu og gleði í hjartað þegar það kemur svo til baka eftir helgi eða eftir hátíð og segir: „Þetta var svo ljúft og gott. Þúsund þakkir.“ Það eru verð­launin; það eru auð­æfin sem maður safnar að sér.“ 

Mynd úr einka­safni.

Gengur í gegnum eld og brennistein fyrir viðskiptavini sína

Þegar Halldór er spurður hvað hann geri þegar við­skipta­vinur sé ekki ánægður, seg­ist hann reyna að klífa fjöll og ganga í gegnum eld og brenni­stein, þar til hann nái að koma til móts við óskir við­skipta­vin­ar­ins. 

„Ég ætla að halda í þá von, að það sé telj­andi á fingrum ann­arrar handar eftir 50 ár í verslun, að það séu ein­hverjir sem ég bara náði ekki, ég bara gat ekki, alveg sama hvað ég reyndi. Kannski eru við­kom­andi samt í dag ekk­ert óánægðir þótt þeir hafi verið það þarna á sínum tíma.“

Þeir vita að ég er með „fet­ish“ og söfn­un­ar­áráttu fyrir vel hirtum, vel gengnum göngu­skóm

Halldór seg­ist stundum fá til sín gamla skó í Fjalla­kof­ann, þar sem eig­and­inn óski eftir nýjum sólum. Þetta sé sann­ar­lega hægt þegar um sé að ræða vand­aða göngu­skó. 

„Ég er að fá inn til mín 35 ára gamla skó. Bara vegna þess að þeir vita að ég er með „fet­ish“ og söfn­un­ar­áráttu fyrir vel hirtum, vel gengnum göngu­skóm. Með sögu og sál.“

Það gæti þurft að fara að telja þetta fram til skatts

Halldór á þann draum að stofna skíða­safn, þar sem meðal ann­ars verði kyn­strin öll af skóm. 

„Ég hef rætt þetta við ýmsa aðila, en ég hef ekki haft tök á að taka þetta nógu langt. Ágætur vinur minn á Dalvík, Jón Halldór, er með alveg gríð­ar­lega verð­mætt skíða­safn, bara heima hjá sér. Þú bara gengur inn í það þegar hann opnar dyrnar að sínu heim­ili, vegna þess að hann hefur ekki fengið hljóm­grunn og stuðn­ing hjá því sam­fé­lagi að kom­ast með þetta inn á ein­hvern stað þar sem hægt væri að stilla þessu upp. Þarna eru skíði – fyrsti for­stjóri ÁTVR; skíðin hans eru þarna. Möller-skíði og bara, „you name it“. Fyrir skíða­á­huga­fólk, þá er heim­sókn til Jóns Halldórs, þótt hann sé ekki að taka á móti fólki þarna í „lange baner“, þá er þetta að sýna að þetta verður að veru­leika. Það er bara spurn­ing hvort hann lifi það, eða ég lifi það. En ein­hverjir munu koma á svona fjalla­safni, sem getur verið fyrir skíði, ská­strik, fjalla­bún­aður. Það er engin smá breyt­ing sem hefur orðið á þessum ára­tugum frá síð­ustu öld.“

Aðspurður hvort hann sé kom­inn með mikið safn af svona munum, hlær Halldór áður en hann svarar. 

„Á ég ekki bara að svara eins og Skag­firð­ingar með hest­ana sína; það er eitt­hvað til. En ég er ekki að telja þetta svona, það gæti þurft að fara að telja þetta fram til skatts, sko.“

Danirnir á tröppunum

Halldór er þekktur fyrir greið­vikni meðal vina og kunn­ingja. Hann er beð­inn um að fara dálítið ofan í saumana á sögu um hann, sem blaða­maður hefur heyrt. Sagan snýst, að sögn blaða­manns, um Dani sem birt­ust á tröppum Halldórs og sögð­ust eiga að fá að vera heima hjá honum.

„Ég er ekki mikið fyrir að segja sögur af sjálfum mér. Ég læt bara verkin tala. Þarna var ég að ferð­ast með erlenda ferða­menn, fjöl­skyldu, sem var þarna í útreið­ar­túr á einum heitasta degi júlí­mán­aðar. Ég stalst inn í vín­búð­ina á Hvols­velli til þess að kaupa mér eina kippu af Tuborg Gull, af því að ég átti þarna fjóra tíma aflögu á meðan þau voru á sínu hesta­ferða­lagi.

Ég má aldrei ein­hvern ferða­mann sjá öðru­vísi en að athuga hvort allt sé í lagi, hvort hann sé eitt­hvað aumur. Ég sé til­sýndar þarna á þjóð­veg­inum, að þar er par, rykugt og illa farið af sól, svo ég stoppa og bara spyr; „hvor skal du hen?“ – reyni að beita minni dönsku. Þau koma bara inn í bíl­inn og ætl­uðu að fara síð­asta sól­ar­hring­inn á Vík, áður en þau færu heim. Ætluðu að kom­ast í Reyn­is­fjöru og svona. Þau gera það, nema að ég gef þeim nátt­úr­lega bara af mínum bjór. Ég spyr: „Er du tor­stig?“, og gaf þeim hvoru sinn bjór­inn, og þau voru svo ánægð.

Nema hvað, þarna var ég með þessa ferða­manna­fjöl­skyldu inni á Hótel Skógum og ég sé að strák­pjakk­ur­inn er með gítar. Ég spyr hann hvort hann sé að spila á þetta og hann seg­ist vera búinn að læra í San Francisco. Ég segi þá að ég sé þarna inni á hót­el­inu og að það væri gaman ef hann kæmi kannski inn í kvöld­mat­inn og tæki nokkur lög. Ég nátt­úr­lega átti ekki hót­elið, en ég byrj­aði á því að spyrja hót­el­stýruna: „Ef hann kemur, má hann þá spila?“ Nema hvað, hót­elið var smekk­fullt af Amer­ík­önum, þau koma þarna inn, hann sest í annað hornið á móti kærust­unni sinni og hann byrjar. 

Ég gleymi að segja þér frá því, að þarna áttu þau fimm evrur eftir í ferða­sjóð og áttu 36 eða 40 klukku­stundir eftir.

Það var gríð­ar­legt áfall fyrir snar­ólétta konu mína, þegar þau stóðu á tröpp­unum.

Hann byrjar að spila og þetta er svo fal­legt, þetta er Mads Mouritz, sem átti nú reyndar íslenska kær­ustu eftir þetta, en ég ætla nú ekki að fara út í það. Þetta fannst mér vera næsti Kim Larsen Dan­merkur, og það getur vel verið að hann sé á leið­inni þangað. En hann spilar þarna fjögur lög og það er staðið upp, það er klappað og hann þarf að taka auka­lag og gerir það. Svo fara þau út og ég kem á eftir þeim, og hann segir: „Þarna komumst við í himna­ríki og við erum hérna með 400 doll­ara eftir þetta, í tips.“ Þá segi ég að ef hann verði búinn að eyða þessu geti hann bara droppað við heima og gist á leið­inni út á völl. Ég var svo hug­hrif­inn af þessum per­formans – ég á nátt­úr­lega þessi lög, þessa diska og allt saman.

Það var gríð­ar­legt áfall fyrir snar­ólétta konu mína, þegar þau stóðu á tröpp­unum. Ég bað hana bara um að leyfa þeim að spila tvö lög inni í stofu. Ég kalla á nágrann­ana og er með svona smá stofu­konsert og eftir það voru ekki neinar áhyggjur; þau fengu bara að gista.“

Mynd úr einka­safni.

Harmleikur á Esjunni

Halldór hefur verið björg­un­ar­sveit­ar­maður í ára­tugi. Í því hafa verið skin og skúrir; stundum hefur hann þurft að takast á við mikla sorg. Eitt sinn var hann kall­aður út upp í Esju þar sem hann kom að hræði­legum vett­vangi.

„Horfandi á síð­ustu daga, hvað það er mik­il­vægt að eiga og hafa svona apparat sem björg­unar- og hjálp­ar­sveitir skáta eru. Ég var og er enn virkur með­limur í Hjálp­ar­sveit skáta í Reykja­vík. Það að hafa svona apparat hér, á þessu landi, er svo mik­il­vægt og það er svo mikil fórn­fýsi hjá þessu fólki, þótt það sé lítið um það, að ég komi að þá er maður ennþá að ein­hverju leyti í ein­hverju bak­landi.

Það er svo mikil fórn­fýsi hjá þessu fólki.

Þarna voru þannig aðstæður að við vorum ennþá í nýliða­þjálfun og við erum kölluð út. Í nýliða­þjálfun ertu kall­aður út í alls konar, til þess að athuga hvort þú hafir til brunns að bera það sem þarf. Við erum kölluð í snjó­flóða­leit upp í Esju og þú heldur að þetta sé bara ein kvöl­dæf­ing af mörgum. Svo þegar þú áttar þig á því, að það er verið að leita að félaga þínum, þá nátt­úr­lega tekur það gríð­ar­lega á og mikil sorg í kringum það, en þarna stuttu seinna er ég kom­inn til þess að stýra Skáta­búð­inni og þá var, og er reyndar enn, þannig starfs­manna­hald að 80 til 90 pró­sent starfs­manna voru félagar í hjálp­ar­sveit og björg­un­ar­sveit, og í kringum snjó­flóðin fyrir vestan, á Flateyri og Súðavík, þá sendi maður þá alla, alla félag­ana, til leitar.

Ég stóð einn eftir til þess að aðstoða með auka­búnað, það þurfti að ná í fleiri skóflur, eða snjó­flóðastangir, eða húfur eða vett­linga eða „what ever“. Þannig að þetta er virki­lega mik­ils virði, þetta fólk sem gefur sig í svona starf. Það fær mikla lífs­reynslu og svona öðru­vísi lífs­sýn.“

Í snjó­flóð­inu í Esjunni fór­ust tveir. „Einn sem komst undan og gat látið vita.“

Hjólreiðaslys á Grensásvegi

Halldór lenti eitt sinn í alvar­legu hjól­reiða­slysi þegar leið hans lá um Grens­ás­veg­inn í Reykja­vík.

„Ef maður færi að hátta sig hérna í stúd­íó­inu hjá þér, þá eru ör og mein hér og þar, allt tengt þessu rugli í manni; hjól­reiða­slys, mest skíða­slys. En ég segi það nátt­úr­lega öllum sem heyra vilja, að ég dett ekki. Ég dett ekki á skíðum og ég dett ekki á hjóli, en svo þegar maður er kom­inn á skýl­una fær maður spurn­ing­arnar: „En þetta? En þetta?“. 

Þarna á Grens­ás­veg­inum er ég bara á fullu adrena­lín­blasti.

Nýbúinn að upp­lifa enn eina fæð­ingu, fá eina æðis­lega dóttur í fjöl­skyld­una; Fanndísi, og mér halda engin bönd. Þannig að ég hjóla bara eins og ég væri á bíl. Ég er örugg­lega að hjóla á 50 kíló­metra hraða og ég veit að þegar þú ert að taka Grens­ás­veg­inn í suð­ur­átt, þá eru þeir á bens­ín­gjöf­inni, þessir sem eru á Miklu­braut­inni á leið­inni austur úr. Ég sé að það er að detta í gult og ég læt mig vaða yfir. Það verður rautt svona þegar ég er að fara fram­hjá bíl­unum, svo ég hendi mér á hjól­inu inn á svona milli­eyju og bjarga mér þar.“ 

Þar lenti Halldór í vand­ræðum og varð að bremsa af fullum krafti. „Ég bara lendi á kant­steini sem ég gat ekki hoppað upp á. Þeir voru hér áður fyrr, alla­vega í Vest­ur­bænum, svona ávalir, þannig að þú gast hoppað upp á þá, en þarna var hann bara þver, svo ég flýg í loft upp. Ég segi nú að þarna hafi tvær hellur brotnað; fyrst böggla ég hausnum niður, hjálm­ur­inn helst á, sem betur fer, en brotnar. Ég fer með öxl­ina í aðra hellu og brýt hana, og þá fer öxlin í kássu og svo enda ég á bak­inu. Þar var ég með svona góða mittistösku með vatni og peysu, sem tók svo­lítið bak­höggið. Svo kemur ein­hver annar á hjóli og spyr: „Get ég hjálpað þér? Ertu eitt­hvað slas­aður?“ og ég var svo rugl­aður og vit­laus að ég sagði: „Nei, nei, allt í lagi“ og drösl­aði hel­vítis hjól­inu bara þarna suður úr, yfir háls­inn, beint niður á bráða­mót­töku. 

Ég fer með öxl­ina í aðra hellu og brýt hana, og þá fer öxlin í kássu.

Í stuttu útfærsl­unni, þá segja læknar og hjúkkur – æðis­leg öll sem vinna þar – að þetta líti ekki vel út og ég muni eiga mein og hreyfi­getan muni tak­markast mjög. Þau setja mig í fatla og ég get mig varla hreyft og það er verið að sýna mér myndir þar sem höndin hefur eig­in­lega bara farið úr slíðr­inu.“

Miðill kemur í húsvitjun

„Ég veit ekki hvort það má segja það hérna, en móðir mín, Þorbjörg L. Mar­in­ós­dóttir, var mik­ill svona spi­ritúa­listi og mikið í and­legum mál­efnum og í tengslum við marga miðla. Þarna var Guðbjörg mið­ill á hæð­inni fyrir ofan Fjalla­kof­ann í Hafn­ar­firði, sem hringir í mömmu og segir: „Heyrðu, ég sé að strák­ur­inn þinn er eitt­hvað illa hald­inn“. Hún var búin að sjá mig þarna í tvo, þrjá daga, með fatla. Svo mamma hringir í mig og vill skamma mig fyrir að hafa ekki látið hana vita að ég hefði lent í þessu slysi. Ég sagði: „Þetta er bara eitt­hvað sem ég þarf að lifa við.“ Svo bara ekk­ert með það, en hún spyr hvort hún megi leyfa miðl­inum að koma inn til mín.

Ég gat ekki neitað því og dag­inn eftir, á sjötta degi, dag­inn fyrir end­ur­komu inn á spít­ala, þá kemur þessi elska og segir að það séu þarna þrír læknar sem bara klæjar í putt­ana að fá að kom­ast inn til mín með henni. Hún fer á axl­irnar mínar, og það er nátt­úr­lega öxlin sem er í steik, og ég í stutt­buxum eins og þú þekkir á sumrin. Ég var í hnepptri skyrtu og hún kemur þarna framan á mig og fer að strjúka bring­una og svo fer hún á ökklana og upp á hné. Svo er hún allt í einu farin að nálg­ast innra lærið og ég svona: „Bíddu, er þetta part af programmet?“ og ég bara lygni aftur aug­unum. Svo tekur hún svo­lítið ákveðið um axl­irnar og segir: „Þeir eru mjög ánægðir, mjög ánægðir.“ Daginn eftir, þegar ég fer inn á spít­ala, þá er ég bara kom­inn með meiri hreyfi­getu en áður hafði verið.“

Svo er hún allt í einu farin að nálg­ast innra lærið og ég svona: „ Bíddu, er þetta part af programmet?“

Hreyfi­geta Halldórs var sem sagt orðin meiri en hún hafði verið áður en hann lenti í slys­inu. Halldór segir lækn­ana hafa orðið að við­ur­kenna að um ein­hvers konar krafta­verk væri að ræða.

Mynd úr einka­safni.

Slasaði sig á glænýjum skíðum

Aðspurður hvort hann sé hrak­falla­bálkur vill Halldór ekki taka svo djúpt í árinni.

„En ég er ekki svona „handy man“. Ég er bara kaup­maður með þum­al­putta. Ég get gert ýmis­legt, en ég reyni að kom­ast hjá því að halda á hamri ef það er ein­hver annar betur til þess fall­inn.“

Þegar Halldór, sem er vanur skíða­maður, er spurður út í skíða­slys sem hann lenti eitt sinn í, við­ur­kennir hann að hann sé svo sem oft að tefla á tæp­asta vað.

„Þarna var ég bara að prófa glæný skíði. Ég get alveg staðið á skíðum. Þarna er ég að reyna skíðin við alveg fanta­góðar aðstæður í Skála­felli, í vest­ari hlut­anum af brekkunni, sem er til­tölu­lega brattur og er lit­aður svartur, þar sem mesti bratt­inn er. Ég bara var að finna þessi skíði svo svaka­lega, og ég keyri þau svo svaka­lega. Þetta er á þriðju­dags­kvöldi og ég í fjórðu ferð­inni, bara stíg upp úr bind­ing­unum – ég var bara ekki búinn að herða þau nóg. Þetta eru svona test-bind­ingar, og ég bara feis­plant­aði eins og kallað er, og dett bara fram fyrir mig og bar hendur fyrir mig. Ekkert með það, ég rann ein­hverja hund­rað metra og það fyrsta sem ég hugsa er bara: „Guð minn almátt­ugur, ég vona að eng­inn hafi séð mig.“ Ég bara veit að það var fjöldi krakka þarna hinum megin á aust­ur­svæð­inu, þar sem þeir voru að æfa. En þegar ég stend upp, þá stendur bara blóð­spýjan beint út um bux­urnar.

Þá hugs­aði ég: „Ókei, sestu niður.“ 

Það sem ég lenti í þarna er að þeir sem sóttu mig – ég gleymi þessu aldrei því ég er einn tíundi úr tonni, skrokkur sem þurfti þarna að bera ein­hverja 50 metra – komust ekki að, út af bratt­anum, með snjó­bíl eða neitt, þannig að þeir urðu bara að vera með börur. Svo fer þetta að kom­ast í fjöl­miðla og ég ákvað þá að halda mig til hlés. Þegar fyrst er talað um að skíða­maður hafi slasast í Skála­felli, ákveður næsti fjöl­mið­ill að henda aðeins meira í: „Aldraður skíða­maður illa hald­inn eftir alvar­legt skíða­slys í Skála­felli“ og svo áfram og áfram, þannig að þetta var komið upp á efsta stig allra lýs­ing­ar­orða. Það var bara spurn­ing hvort ég væri lífs eða lið­inn.“

Þá stendur bara blóð­spýjan beint út um bux­urnar.

Batinn eftir skíða­slysið var skjótur og góður að sögn Halldórs. Hann seg­ist hafa verið með einn besta sjúkra­þjálf­ara sem völ er á, sem hafi nuddað hann og komið honum í samt lag.

„En Gunnar skurð­læknir, frægi, sagði, þegar þeir voru tveir með mig á skurð­ar­borð­inu í þrjá tíma að þetta væri eins og eftir hand­sprengju. Þetta voru 34 spor. Það eina sem ég hef ama af, er að ég get ekki sparkað alveg eins fast í bolta. Þegar ég skora er það svona nett­leik­inn, en ekki hrað­inn á bolt­anum.“

Halldór hefur ekki orðið hræddur á skíðum eftir slysið. Hann seg­ist í raun ekk­ert hafa orðið neitt ótta­slegn­ari en áður.

„Það er nú svona minn Akki­les­ar­hæll og minn galli að mig skortir þetta hræðslugen.

Ég get elt þig í ísklifri; ég get elt þig fram á ystu nöf, upp á hæstu fjöll, hoppað fram af hengjum. Ég bara líð fyrir þetta, svo­lítið. Ég reyni að hlýða á mér skyn­sam­ari sem eru á undan, en ef ég væri að fara í for­ystu þá væri ég svona þessi for­ystu­sauður sem myndi ganga með féð fram af björgum. Það gæti alveg orðið þannig, bara því miður.“

Það er nú svona minn Akki­les­ar­hæll og minn galli að mig skortir þetta hræðslugen.

Hóf verslunarrekstur tvítugur og hélt svo til Evrópu

Það var í kringum tví­tugt sem Halldór hóf að reka sína fyrstu verslun. Þess hafði verið farið á leit við hann að hann tæki við kefl­inu í Mela­búð­inni. Hann segir að hann og þáver­andi kærasta hans hafi hins vegar ekki verið til­búin til þess á þeim tíma.

„Þú ert þá raun­veru­lega hálf­part­inn að gift­ast ein­hverju svona. Þannig að við segjum bara for­eldrum mínum að það verði frekar að taka skrefið og skoða aðra mögu­leika, selja, en ég ákvað engu að síður að reka Mela­búð­ina alveg á minn reikn­ing í heilt ár, á mína ábyrgð, á meðan þau voru að koma sér fyrir í sínu ævin­týri á Hvamms­tanga, sem var rækju­vinnslan og allt sem henni fylgdi. Það var mikið kapps­mál og áhuga­mál hjá karli föður mínum, sem var nátt­úr­lega búinn að vera í kaup­mennsku þá í 40 ár. Þetta var svona næsti kafl­inn í hans lífi.“

Eftir þetta ár var Mela­búðin seld og Halldór hélt til Evrópu.

„Við fórum að þvæl­ast um alla Evrópu – heim­ur­inn var bara Evrópa þá. Við fórum um á bíl, vorum búin að vera í interrail áður, og end­uðum svo í Noregi. Við vildum eiga góða stund þar á skíða­svæð­inu í Geilo.

Í Noregi eru Íslend­ingar eft­ir­sótt vinnu­afl. Allavega þá og ég held að svo sé enn. Þú gast fengið eins mikla vinnu og þú sótt­ist eftir. Ég fæ vinnu þarna, og við bæði, sem upp­vask­ari á hót­eli. Svo er ég orð­inn dyra­vörður á næt­ur­klúbbnum, sem var einn sá stærsti og vin­sæl­asti á staðnum. Svo var þörf á að bæta við á bar­inn og spurt hvort ein­hver væri með reynslu í bar­þjón­ustu, og ég hafði nú eitt­hvað talið mig hafa hjálpað föð­urnum heima að hrista í Bloody Mary eða Screwdriver. Svo ég rétti upp hönd og þá var ég kom­inn á bar­inn.

Þá er spurt hvort það sé ein­hver með reynslu og ég nátt­úr­lega rétti upp hönd.

Eitt leiðir af öðru og svo lendir diskó­tek­ar­inn í því – þetta var eitt vin­sælasta diskó­tekið þarna á svæð­inu – að það eru ein­hver veik­indi heima fyrir og hann þarf að fara. Þá er spurt hvort það sé ein­hver með reynslu og ég nátt­úr­lega rétti upp hönd og var nátt­úr­lega bara búinn að þeyta mínar skífur heima. En vert­inn á næt­ur­klúbbnum kemur til mín á þriðja degi og segir: „Heyrðu, þú ert bara með þetta alveg í putt­unum, því það er meira en 20 pró­senta aukn­ing í inn­kom­unni.“ Fólkið var allt á dans­gólf­inu og drakk bara meira. Það var nátt­úr­lega „part af programmet“. Nema, þarna leng­ist og teyg­ist á þessum veik­indum, þannig að í þriðju viku kallar hoved­meister­inn á hót­el­inu mig inn á teppið og ég sé að hann er með bréf í höndum. „Hvad er problemet?“ segi ég og þá segir hann: „Hér er ég bara með erindi frá norska skífu­þeyt­ara­fé­lag­inu.“

Ég spyr hvort það sé eitt­hvað til sem heitir verka­lýðs­fé­lag diskó­tek­ara.

Í Noregi á þessum tíma eru verka­lýðs­fé­lögin það sterk, að þarna eru þeir að segja að það sé ein­hver ófag­lærður og ófé­lags­bund­inn, og þar að auki ein­hver hálf­viti frá Íslandi, sem sé ekki með nein rétt­indi til þess að þeyta skífum á norsku diskó­teki, og það verði bara að stöðva það hér og nú, og fá til þess færan og fag­legan, félags­bund­inn skífu­þeyt­ara. Ég segi þá: „Ókei, hvað er vanda­málið? Ég get bara farið núna, en þú ert þá að missa besta skífu­þeyt­ara sem þú hefur nokkurn tíma haft. Þú ert að missa í leið­inni besta upp­vask­ara sem þú hefur haft.“ Því upp­vaskið var nátt­úr­lega svona aðal­djobbið.

Þá fórum við bara til Geilo og tókum þar við skíða­leig­unni. Maður er svona hálf­part­inn að loka hringnum aftur, að vera kom­inn í Hlíð­ar­fjall á Akureyri, þar sem við tókum yfir rekst­ur­inn á skíða­leig­unni þar. En þetta var þarna í kringum 1980 – fyrir nokkrum árum.“

Sjálfsbjargarviðleitni tónleikaþyrstra Íslendinga

Halldór seg­ist vera alæta á tón­list og mik­ill tón­leikaunn­andi. Hann rifjar upp þegar hann bjó í Noregi og margar hljóm­sveitir voru að koma þangað að spila.

„Þá var ekk­ert Tix eða Miði.is á lykla­borð­inu. Þú varðst bara að fara í röð. Eins og þegar ég stóð í röð­inni fyrir pabba og mig, fyrir Led Zeppelin-tón­leik­ana hérna. Nema hvað, við komumst að því að það seld­ist bara upp á þá tón­leika bara á þremur, fjórum tímum þarna í Ósló. Svo ég segi bara við mína stúlku: „Við bara keyrum þarna niður eftir og athugum hvort við getum ekki hjálpað til.“ Þegar við erum þarna á hún­inum klukkan átta, þá er nátt­úr­lega hægt að hitta rekstr­ar­stjór­ann og fá að hjálpa til. Hann segir meira að segja að við þurfum þess ekki, hann geti reddað miðum öðru­vísi.

Ég veit ekki hvort ég á að segja það, en við hlið­ina á honum var nátt­úr­lega ein­hver blaða­snápur, og honum fannst eitt­hvað mikið til þess koma að við værum frá Íslandi. Til þess að krydda og fá fólk til þess að lesa blaðið, þá segir hann að við höfum komið alla leið frá Íslandi til þess að sjá þessa tón­leika. Það var að sjálf­sögðu ekki rétt eftir okkur haft. Þá var auð­vitað sam­fé­lagið uppi í Geilo alveg spinn­egal en ég sagði að þetta væri bara sjálfs­bjarg­ar­við­leitni hjá okkur Íslend­ingum.“

Uppsagnarbréf frá Jóni Ásgeiri

Árið 1985 tók Halldór við Skáta­búð­inni, en hún var í eigu Hjálp­ar­sveitar skáta í Reykja­vík. Hann var þar í 14 ár en dreymdi eftir það um að vera sjálf­stæður.

„Ég fór inn í Fálka í níu mán­uði, í stöðu mark­aðs­stjóra sem síðan var bara lögð niður. En raun­veru­lega var ég á leið­inni inn í Útilíf. Fjöl­skyldan þar leit­aði til mín af því að þá var Bjarni nýfall­inn frá, sem var sóma­kaup­maður, og þau lang­aði að finna ein­hvern flöt á fram­tíð­ar­rekstri Útilífs. Svo atvikast það þannig, svona til þess að taka stuttu útgáf­una, að ég er að reyna eftir ver­una í Fálkanum að skoða mögu­leik­ana á Útilífi í ein­hverja þrjá, fjóra mán­uði; reyna að verð­leggja fyr­ir­tækið og svona. Þá er bara hringt í mig og sagt að það sé aðili búinn að kaupa, allt með húð og hári og að hann vilji hitta mig eftir klukku­tíma. Það er þá Baugur, sem öllu stýrði og réði. Þá hugs­aði ég bara: „Ókei. If you can’t beat them, join them.“ En svo er bara ekk­ert meira með það, nema að ég er þar í þrjú ár og á fal­legt bréf frá Jóni Ásgeiri, sem kannski þoldi ekki allt sem ég sagði og hafði skoð­anir á, en það er óþarfi að fara út í það hér.“

Með öðrum orðum, þá rak Jón Ásgeir Halldór.

„Já, ég á bréf. Upp­sagn­ar­bréf.“

Nýtt fyrirtæki í Hafnarfirði

En þegar einar dyr lok­ast, þá opn­ast aðrar. Þetta gerð­ist sama dag og Sam­vinnu­ferðir-Landssýn var tekið til gjald­þrota­skipta, 26. nóv­em­ber árið 2001.

„Þá ger­ist það að góður vinur, Magnús Gunn­ars­son, í Hafn­ar­firði, sjálf­stæð­is­maður, hefur sam­band. Hann var þá með sölu­skrif­stofu, útibú frá Sam­vinnu­ferðum, á sínum reikn­ingi, og leitar eftir því hvort ég hafi áhuga á sam­starfi. Mér fannst ferða­brans­inn alltaf spenn­andi og í stuttu máli þá náum við þarna saman með félag í Hafn­ar­firði, sem er raun­veru­lega ennþá til, ennþá á sömu kenni­tölu, 21 ári síðar. Það er núna svo­lítið rekið sem svona ferða­hluti Fjalla­kof­ans. Fjalla­kof­inn selur upp­lifun, Fjalla­kof­inn selur allan bún­að­inn í upp­lifun­ina og Fjalla­kof­inn fer með þér alla leið. Íslands­vinir heitir það, Iceland Explorer. Svo kemur annar kollegi minn frá Skáta­búð­ar­tím­anum og leitar eftir því hvort ég hafi áhuga á að stíga skrefið með honum inn í það tóma­rúm sem honum fannst vera eftir að Nanoq kaupir út Skáta­búð­ina á sínum tíma. Svo er það bara tekið til gjald­þrota­skipta eftir lóð­rétt fall niður á stuttum tíma. Þannig að við stört­uðum Fjalla­kof­anum 1. apríl árið 2004.“

Fjallakofinn

„Við byrjum bara með tvær hendur tómar, með „know how“ og þekk­ingu, hitt kom bara til okkar hvað af öðru. Erlendu fyr­ir­tækin fóru að leita að nýjum aðilum. Ég sagði við Scarpa-fjöl­skyld­una og Parisotto-fjöl­skyld­una – ég var búinn að vinna með þeim þarna í 16, 17 ár – að ef þau vildu að ég tæki aftur við vöru­merk­inu þá væri ég til­bú­inn í það. Það voru 40 aðrir Íslend­ingar sem gerðu slíkt hið sama, en þeir auð­vitað, eðli máls­ins sam­kvæmt, völdu mig með öll sam­skiptin áður.“

Í dag er Fjalla­kof­inn mik­ils virt fyr­ir­tæki sem nýtur vel­gengni á mark­aðnum.

Mér líður alltaf svo illa ef ég get ekki annað og sinnt hverjum og einum við­skipta­vini eins vel og mér hugn­ast og langar til.

„Við erum bara með góða úti­vist­ar­verslun sem reynir að gera betur í dag en í gær. En það er alveg gríð­ar­lega erfitt, vegna þess að til okkar sækir mik­ill fjöldi fólks og eftir að við komum hérna í Hall­ar­múl­ann þá er þetta bara eins og snjó­flóð. Mér líður alltaf svo illa ef ég get ekki annað og sinnt hverjum og einum við­skipta­vini eins vel og mér hugn­ast og langar til.

Að láta alla fara með góða til­finn­ingu til þeirra fjalla­ferða eða skíða­ferða sem þeir ætla sér að fara í.“

Mynd úr einka­safni.

Jökulfirðirnir og fjölskyldan

Halldór seg­ist eiga auð­velt með að slaka á og draga sig frá hinu hvers­dags­lega amstri.

„Besta hleðslu­stöðin er Jök­ul­firð­irnir. Ef ég fer í viku skútu- eða skíða­túr þangað, þá get ég hlaðið upp fyrir sum­arið. Svo að sjálf­sögðu bara sam­vera með fjöl­skyld­unni; við erum að fara núna í vetr­ar­frí­inu saman. Við nærumst á sam­veru og sam­veru­stundum okkar og það er ákveðin hleðsla inni í því. Þótt maður sé kaup­maður 24/7 þá verður maður að passa að raf­magnið klárist ekki á sjálfum þér eða þeim sem næst þér eru. Þannig að maður þarf að huga að því.“

Halldór er síður fyrir að vera í stórum hópum, að eigin sögn. Honum líður vel einum með sjálfum sér, eða með fjöl­skyldu sinni. Hann segir að enn sé langt í að hann setj­ist í helgan stein í kaup­mennsk­unni.

„Eins og á skíð­unum, þá er gott að eiga gott rennsli, og ég er svona bara að horfa í það, að þeir sem eru að renna með mér inn í fram­tíð­ina geti tekið við stýr­inu. Það held ég að ger­ist, því það eru aðilar þarna uppi sem eru með öll tögl og hagldir í fram­tíð­inni okkar.“

Stundum nauðsynlegt að stíga lengra

Aðspurður seg­ist Halldór nokkuð ótta­laus.

„Ég verð, bæði í rekstri og í fjöl­skyld­unni, að vera klettur sem heldur haus. Við erum búin að ganga í gegnum hrunið, við erum búin að ganga í gegnum svo margt, við erum búin að ganga í gegnum Covid, og þá lýsti ég fyrir starfs­fólk­inu að þetta væri bara eins og við værum að fara inn í eitt­hvert óvissu­á­stand þar sem við værum í rútu og það hefði fallið snjó­flóð á veg­inn. Ég veit ekki hvað þetta er langt, en við komumst í gegnum það. Það eru 20 aðrar rútur keppi­naut­anna þarna, en við komumst í gegnum þetta.“

Blaða­maður ber það upp við Halldór að hafa frétt af því að eitt sinn, þegar hart hafi verið í ári, rekst­ur­inn gengið brös­ug­lega og erfitt hafi verið að eiga fyrir launum, hafi hann tekið það upp hjá sér að bjóða öllu starfs­fólk­inu til Prag.

„Já.

Stundum er bara nauð­syn­legt að reyna að stíga lengra. Starfs­fólkið er jafn mik­il­vægt og fjöl­skyldan og við lítum á þetta sem eina stóra fjöl­skyldu, og maður verður stundum bara að sýna æðru­leysi og þakk­læti. Svo bara bjarga því ein­hvern veg­inn öðru­vísi, að splæsa á þau ein­hverju virki­lega góðu. Auðvitað nærðu þá mjög ánægðum og gef­andi starfs­mönnum, sem brosa framan í mann og annan, þegar þau eru búin að upp­lifa svona ferða­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi