Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Steinar skammar Ingólf Bjarna og Ríkisútvarpið: „Er að flækjast fyrir flýjandi konum og börnum“

Steinar skammar Ingólf Bjarna og Ríkisútvarpið: „Er að flækjast fyrir flýjandi konum og börnum“
Ingólfur Barni Sig­fús­son frétta­maður. Mynd: Erla Hlynsdóttir

Steinar Sveins­son leið­sögu­maður gagn­rýnir það hvers vegna RÚV ákvað að senda Ingólf Bjarna Sig­fús­son frétta­mann og töku­mann með honum til lands þar sem stríð er yfir­vof­andi. Að hans mati höfðu þeir lítið sem ekk­ert fram að færa í frétta­flutn­ingnum og gerðu fátt annað en flækj­ast fyrir flýj­andi fólki. Steinar fjallar um málið í færslum á Facebook-síðu sinni. Við skulum grípa niður í færslu hans um málið:
„Það er hið und­ar­leg­asta brölt hjá litla RÚV á litla Íslandi að senda frétta- og töku­mann í land þar sem stríð er yfir­vof­andi. Frétta­mað­ur­inn hafði í raun aldrei neitt sér­stakt að segja sem bætti ein­hverju við allt sem kom fram í stærri og þroskaðri alþjóð­legum fjöl­miðlum, eða sem aðrir íslenskir fjöl­miðlar höfðu eftir Íslend­ingum búsettum í Úkraínu og gjör­þekkja allar aðstæður í land­inu. Í raun gerði frétta­mað­ur­inn lítið annað en að bresta nán­ast í grát, og fljót­lega fóru allar fréttir að snú­ast um hans eigin upp­lifun og til­finn­inga­líf og nú síð­ast flótta hans af vett­vangi, þar sem hann virð­ist í bíla­röð meðal almenn­ings ein­göngu vera að þvæl­ast fyrir íbúum lands­ins sem eru á flótta.
Steinar segir að nær væri, fyrst frétta­mað­ur­inn er þó kom­inn á stað­inn, og alvöru atburðir eru brostnir á, að hann væri áfram í höf­uð­borg­inni ásamt alþjóð­legu liði frétta­manna. „Sem eflaust er stað­sett á nokkuð öruggu hót­eli sem báðir stríð­andi aðilar vita af, frekar en að hann sé á óskipu­lögðum flótta að flækj­ast fyrir flýj­andi konum og börnum.“Steinar stingur svo aftur niður penna þegar Ingólfur Bjarni og Ingvar Haukur Guð­munds­son töku­maður eru komnir á flótta frá Kænu­garði. Um flótt­ann sem hann kallar „und­ar­leg­heita­ferða­lag RÚV“ skrifar hann:

Steinar Sveins­son er ómyrkur í máli þar sem hann fjallar um ferða­lag fréttam­ans RÚV.

„Eftir ómark­vissar ,,fréttir” og grát­klökkar yfir­lýs­ingar um til­finn­inga­legt upp­nám sitt, sem engu bættu við til að upp­lýsa íslenskan almenn­ing og ánauð­ar­greið­endur að RÚV um stöðu mála fram yfir það sem alþjóð­legir fjöl­miðlar greina frá, þá var lagt á flótta og flækst fyrir heima­mönnum á raun­veru­legum flótta, konum og börnum. Til að forða sér lýsir frétta­mað­ur­inn því hvernig hann og íslenski töku­mað­ur­inn hafi keypt bíl og útvegað sér bensín, sem hann lýsir blygð­un­ar­laust að sé af skornum skammti, eðli­lega, enda stríðs­á­stand“.

Teymið bætti engu við inn­sýn íslensks almenn­ings

Steinar segir það vera í sam­ræmi við íslenska blaða­mennsku að flest inn­leggin snú­ist um sjálf­hverfu íslenskra frétta­manna; frétta­maður taki við­tal við frétta­mann um hvernig hann hefur það. Frétta­mað­ur­inn sé í aðal­hlut­verki.
„RÚV og íslenska fréttateymið hefur ekki gert úkra­ínsku þjóð­inni nokkurn greiða með þess­ari sjálf­hverfu Bjarma­lands­för sinni. Teymið bætti engu við inn­sýn íslensks almenn­ings í ástandið né upp­lýsti af viti um stöðu mála heldur þvæld­ist ráða­laust um götur Kænu­garðs og gerði ómark­viss innslög. Svo á flótta sínum þvæld­ist teymið fyrir konum og börnum á raun­veru­legum flótta frá heim­kynnum sínum, sem jafn­vel voru að skilja við menn sína sem urðu eftir til að berj­ast, tók undir sig far­ar­tæki og keypti bensín sem er af skornum skammti og aðrir á flótta gátu þá ekki notað. Eflaust hefur fréttateymi RÚV yfir­boðið síð­ustu bens­ín­dropana í krafti kaup­máttar og dag­pen­inga frá RÚV, þannig að þeir nýtt­ust ekki flótta­fólk­inu …“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð