Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fimm ára stúlka lést í hörmulegu járnbrautarslysi: „Hinum megin lágu ofurlitlir íslenzkir skór“

Fimm ára stúlka lést í hörmulegu járnbrautarslysi: „Hinum megin lágu ofurlitlir íslenzkir skór“

„Hryggi­legt slys varð við höfnina í gær síðdegis. Járnbraut­ar­lestin rendi á litla telpu fyrir framan Sláturfélagshúsin og varð hún undir gufu­vagn­inum.“

Svo hefst dap­ur­leg til­kynn­ing sem birt­ist í Morg­un­blað­inu, þann 23. ágúst árið 1916. Á þessum tíma var járn­braut­ar­lest notuð til þess að flytja efni úr Öskju­hlíð í hafn­ar­mann­virkin í Reykja­vík. Slysið varð á Skúla­götu, til móts við hús númer 20, þann 22. ágúst. Stúlkan, sem var ein­ungis fimm ára gömul, slas­að­ist mjög alvar­lega en lést þó ekki sam­stundis. Við slysið fór annar fótur hennar af fyrir ofan ökkla en hinn fót­ur­inn möl­brotn­aði og var svo illa far­inn að við aðgerð þurfti einnig að fjar­lægja hann. Hún var einnig með tölu­verða áverka á höndum, sem og tví­brotin á öðru læri. Ekki tókst að bjarga lífi stúlkunnar og lést hún dag­inn eftir slysið.

Slysum fór fjölgandi á svæðinu

Stúlkan virð­ist hafa haft ein­hverja með­vit­und í upp­hafi, þrátt fyrir hin alvar­legu meiðsl hennar. Hún gat að minnsta kosti sagt til nafns og látið vita hvar hún átti heima. Samkvæmt Ísafold sagð­ist stúlkan heita Lauga og að hún ætti heima í Bjarna­borg. Hún missti síðan með­vit­und og var borin rænu­laus upp á spít­ala, þar sem lækn­arnir Sæmundur Bjarn­héð­ins­son Matthías Ein­ars­son voru fengnir til þess að reyna að bjarga lífi hennar.

Í grein­inni í Morg­un­blað­inu er aðstæðum lýst svo:

„Fyrir framan Sláturhúsin eru skúrar og hús; er þar svo þröngt að eigi sér til lest­ar­innar fyr en hún kemur, enda verður þar hlykkur á braut­inni. Full­orðnum mönnum stendur þó engin hætta af þessu, því að bæði er að langar leiðir heyr­ist skröltið í lest­inni og svo gæta ökumenn þess jafnan að gefa viðvörun­ar­merki með gufupípunni. Og það gerðu þeir að þessu sinni. En óvita börn hafa eigi rænu á því að gæta sín, og því fór svo að þetta sorg­lega slys bar að höndum.“ (Morg­un­blaðið)

Það virð­ist því hafa gerst að stúlkan hafi hlaupið í veg fyrir lest­ina en eins og flestir þekkja getur það tekið ein­ungis augna­blik fyrir börn að hlaupa burt og kom­ast í háska. Í dag yrði senni­lega ekki skrifað með þeim hætti sem Morg­un­blaðið gerði og beindi að for­ráða­mönnum:

„Ætti þetta enn að vera mönnum alver­leg áminn­ing um það að líta betur eftir börnum sínum og láta þau eigi vera ein úti. — En þetta ætti einnig að verða til þess að vekja athygli manna á því, hvort eigi muni hægt að koma í veg fyrir fleiri slys hér við höfnina. Slysin eru nú farin að verða þar alltíð og með ýmsum hætti. Getur verið að mik­illar varkárni sé gætt, en sjaldan er þó of var­lega farið.“ (Morg­un­blaðið)

Hryggileg sjón blasti við

Fjöl­margir komu að slys­stað og var hin sorg­lega og hroll­vekj­andi lýs­ing skrifuð í Morg­un­blaðið:

„Fjöldi fólks safn­að­ist þegar að þangað sem slysið varð og máttu margir eigi tára bind­ast, því að svo var þetta hryggi­leg sjón. Hún lá þar í öngviti hjá braut­inni, milli hjóla eim­reið­ar­innar. En hinum megin við braut­ar­tein­inn lágu tveir ofur­litlir íslenzkir skór og fótur í öðrum. Var sem hann hefði verið kliptur af leggnum.“ (Morg­un­blaðið)

Eins og áður sagði lést stúlkan á spít­al­anum dag­inn eftir slysið. Morg­un­blaðið birti til­kynn­ingu þess efnis þann 24. ágúst. Þar kemur meðal ann­ars fram að áverkar hennar hafi verið enn alvar­legri en talið var í fyrstu.

„Stúlku­barnið, sem varð undir járnbraut­inni í fyrra­dag fyrir framan Sláturfélagshúsin, and­að­ist á spítal­anum snemma í gær­morgun. Hafði barnið orðið fyrir miklu meiri áverka, en menn hugðu í fyrstu. Það misti ekki aðeins annan fótinn, heldur urðu lækn­arnir að taka þá báða af, annan skamt fyrir neðan knéð en hinn um miðjan fótlegg. — Þar að auki lær­brotn­aði barnið á tveim stöðum og hlaut ýms önnur meiðsl.

Það var nær óhugs­andi, að það gæti lifað, enda and­að­ist það nokkru eftir að lækn­arnir höfðu bundið um það. Slys þetta er eitt­hvert hrylli­leg­asta og sorg­leg­asta, sem hér hefir borið við um langt skeið. Það hlýtur að fylla menn með­aumkun við for­eld­rana, sem mist hafa barnið sitt svo svip­lega. En það hlýtur líka að vekja menn til umhugs­unar um hvort hér sé farið um of óvar­lega t.d. við hafn­ar­gerð­ina.“ (Morg­un­blaðið)

Erfitt að stöðva lestina í skyndi

Í frétt­inni er það haft á orði að þegar hið hörmu­lega slys átti sér stað voru slys þegar farin að vera nokkuð tíð á svæð­inu, hverju sem þar væri um að kenna. Nefnt er að rætt hafi verið um að járn­brautin færi ef til vill nokkuð hratt með­fram höfn­inni, þar sem umferð væri mikil.  

Járn­braut­ar­lestin ók um svæðið með marga vagna á undan sér. Það þýddi það að við­bragðs­flýtir vagn­stjór­ans varð að vera umtals­verður til þess að ná að bregð­ast við slysa­hættu eða öðrum upp­á­komum í tæka tíð.

„Þá er erf­ið­ara fyrir for­mann­inn að stöðva lest­ina í skyndi, ef eitt­hvað ber út af,“ segir í grein­inni. Auk þess er bent á að þrátt fyrir að vagn­stjóri gefi ávallt merki um ferðir lest­ar­innar og noti gufu­pípu til þess að vara veg­far­endur við, þá sé ekki endi­lega víst að allir gefi því nægi­legan gaum. Auk þess væru lítil börn sem kæmust af ein­hverjum ástæðum frá for­ráða­mönnum sínum ekki fær um slíka var­kárni.

Ekki síðasta járnbrautarslysið

„Slys geta ætíð borið að, og þau bera ætíð að, en það verður ekki nógsam­lega brýnt fyrir mönnum að gæta sem mestrar varúðar, bæði þeim sem fara eiga með verk­færin og eins hinum, sem af ein­hverri til­viljun eru þar í nánd. Engum mun hægt að kenna þetta sorg­lega slys, sem leiddi barnið til bana. — En það má til að verða hvatn­ing öllum að gera sitt ítrasta til þess að fyr­ir­byggja að slíkt komi fyrir aftur.“ (Morg­un­blaðið)

Litla stúlkan sem lét lífið í hinu vofeif­lega slysi hét Guðlaug Eiríks­dóttir og var búsett í Bjarn­ar­borg á Hverf­is­götu 83.

Því miður átti eftir að verða annað járn­braut­ar­slys í Reykja­vík árið 1919. Það varð við Hring­braut, sem nú er Snorra­braut. Þar var það tveggja ára stúlka sem lét lífið með þessum hörmu­lega hætti. Hún hét Guðrún Aðal­heiður Elí­as­dóttir.

Bréf frá móður

Nokkru eftir slysið á Skúla­götu 22. ágúst 1916 birt­ist eft­ir­far­andi texti eftir Ólínu Guð­munds­dóttur, móður Guð­laugar Eiríks­dóttur heit­innar, í Vísi. Textinn ber tit­il­inn „Þakk­ará­varp“.

„Innilegt hjart­ans þakk­læti mitt til allra þeirra sem auðsýndu mér hlut­tekn­ingu, og styrktu mig, í fjar­veru manns­ins míns, við hið sára og hörmu­lega fráfall elsku litlu dóttur minnar, Guð­laugar Eiríksdóttur, er and­að­ist 25.þ.m. Sérstak­lega vil eg nefna: Jóhannes Magn­us­son versl­un­ar­mann og konu hans, Jakob Jónsson versl­un­ar­stjóra, þau Mel­staðs­hjón og Hæð­ar­enda­hjón, verkafólkið í Sjávar­borg, starfsfólkið í Sláturhúsinu, er allir gáfu mér höfðing­legar gjafir. Öllum þessum, og svo hinum mörgu öðrum, er sýndu mér rausn­ar­skap og samúð, bið eg algóðan guð að launa af ríkdómi sinnar náðar, þegar þeim mest á liggur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð