Gylfi Þór Þorsteinsson, sem var forstöðumaður farsóttarhúsanna í faraldrinum, hefur verið ráðinn aðgerðarstjóri teymis sem mun skipuleggja móttöku flóttafólks frá Úkraínu.
Gylfi Þór mun leiða þau verkefni sem við blasa og tengja saman stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki sem lagt geta málinu lið.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, skipar teymið. Í því verða fulltrúar frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, forsætisráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu, innviðaráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu. Þá verður óskað eftir þáttöku fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og að fulltrúi flóttamannanefndar eigi þar einnig sæti. Stofnanir ráðuneytsins munu taka þátt í starfinu eftir þörfum.
Gylfi Þór var yfir framkvæmd farsóttarhúsana í fraldrinum en þeim verður skellt í lás 1. apríl. Þegar mest var voru hátt í 600 manns á dag í 7 farsóttarhúsum. Gylfi Þór greindi frá því 1. mars að hann hefði skrifað undir starfslok sín.































Athugasemdir