Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kvennafundur þar sem ályktanir voru samþykktar að Ísland gengi úr NATO

Kvennafundur þar sem ályktanir voru samþykktar að Ísland gengi úr NATO

Alþjóð­legur bar­áttu­dagur kvenna er hald­inn hátíð­legur í dag, 8. mars og að því til­efni efndu Kaup­höllin (e. Nasdaq Iceland) í sam­starfi við UN Women á Íslandi, FKA – Félag kvenna í atvinnu­líf­inu og Samtök atvinnu­lífs­ins til við­burðar í Hörpu í gær þar sem opn­un­ar­bjöllu var hringt fyrir jafn­rétti. Kaup­hallir víða um heim hringja inn bjöllu fyrir jafn­rétti í þess­ari viku í sam­starfi við UN Women.

Eliza Reid for­seta­frú var heið­urs­gestur við­burð­ar­ins og hringdi bjöll­unni í ár. Í ræðu sinni minnt­ist Eliza sér­stak­lega á þá stað­reynd að þrátt fyrir að Ísland sé fram­ar­lega í jafn­rétt­is­málum séu konur hér á landi enn með lægri laun en karlar. Þær þéni því minna yfir starfsæv­ina og fái þar af leið­andi lægri líf­eyri. Hún benti einnig á þá stað­reynd að af 800 stærstu fyr­ir­tækjum á Íslandi séu aðeins 13% þeirra í höndum kvenna. Sömu­leiðis að meiri­hluti fjár­fest­inga í nýsköpun fari í hendur fyr­ir­tækja sem rekin eru af körlum.

Á alþjóð­legum bar­áttu­degi kvenna í ár er spjótum UN Women sér­stak­lega beint að áhrifum og tengslum kynja­mis­munar og lofts­lags­breyt­inga.

Kvennafundur þann 8. mars um að Ísland gengi úr NATO

Alþjóð­legur bar­átt­ur­dagur kvenna var fyrst minnst á þessum degi 8. mars árið 1932 á fundi Kvenna­nefndar Komm­ún­ista­flokks Íslands og síðan árlega eftir það af þeim sam­tökum og A.S.V. (Alþjóða­sam­hjálp verka­lýðs­ins). Í dag fagnar þessi dagur því 90 ára afmæli á Íslandi.

Kven­fé­lag sós­í­alista tók upp þráð­inn, en það var stofnað 30. mars 1939. Félagið tengdi saman afmæl­is­dag sinn og 8. mars og minnt­ist dags­ins með ýmsum hætti. Á árs­há­tíð Kven­fé­lags Sós­í­alista­flokks­ins 8. mars 1948 flutti t.d. Dýrleif Árna­dóttir ræðu um 8. mars og bar­áttu kvenna gegn stríði og fas­isma og Petrína Jak­obs­dóttir flutti erindi um Alþjóða­sam­band lýð­ræð­is­sinn­aðra kvenna og bar­áttu þess gegn stríði og fas­isma. Ljóð voru flutt og Guðmunda Elí­as­dóttir söng við und­ir­leik Fritz Weishappels. Kaffi var drukkið og dans stig­inn. Árin 1951 og 1952 gekkst Kven­fé­lag Sós­í­alista­flokks­ins fyrir almennum kvenna­fundum þann 8. mars þar sem m.a. voru sam­þykktar álykt­anir um að Ísland gengi úr Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO).

Menn­ingar- og frið­ar­sam­tök íslenskra kvenna, MFÍK, voru stofnuð árið 1951 og urðu strax deild í Alþjóða­sam­bandi lýð­ræð­is­sinn­aðra kvenna. Þau stóðu fyrir opnum fundi í Stjörnu­bíó 8. mars 1953 og var fund­ar­efnið kirkjan og frið­ar­málin. MFÍK hafa síðan minnst dags­ins með fundi þar sem ávarp Alþjóða­sam­bands­ins hefur verið lesið upp og sam­þykktar álykt­anir í til­efni dags­ins. Á þessum fundum hefur fjöldi þjóð­kunnra kvenna og karla komið fram og lista­menn hafa lagt sitt af mörkum. Þannig flutti Vigdís Finn­boga­dóttir ræðu um starf her­náms­and­stæð­inga árið 1961 og Þuríður Páls­dóttir söng með aðstoð Jórunnar Viðar á píanó. Árið 1966 var hald­inn fundur í Lindarbæ og þar flutti Hörður Ágústs­son list­mál­ari erindi um þróun íslenskrar bygg­inga­listar frá sögu­öld til vorra daga og sýndi skugga­myndir.

Baráttan gegn banda­rísku her­stöð­inni og aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) var fyr­ir­ferð­ar­mikil á dag­skrám MFÍK lengi vel, enda sam­tökin bein­línis stofnuð til að berj­ast fyrir friði í heim­inum. Andófið gegn Víetnam­stríð­inu setti nokkurn svip á dag­skrána á 7. og 8. ára­tug­unum.

Rauðsokkahreyfingin og kvenfélag sósíalista

Árið 1978 stóðu MFÍK, Rauð­sokka­hreyf­ingin og Kven­fé­lag sós­í­alista fyrir dag­skrá 8. mars sem bar heitið „Kjör verka­kvenna fyrr og nú.“ Þessi dag­skrá var síðar tekin saman í fjöl­ritað hefti og selt. Árið 1984 efndu 8 kvenna­sam­tök til sam­eig­in­legrar dag­skrár 8. mars með MFÍK auk þess sem Kvenna­lista­konur efndu til aðgerða fyrir utan mat­vöru­verslun í Aust­ur­stræti og vildu borga 2/3 af upp­settu verði mat­vara sem þær keyptu. Það sögðu þær vera í sam­ræmi við launa­mun kynj­anna í íslensku sam­fé­lagi.

Frá árinu 1984 hefur MFÍK staðið fyrir almennum fundi 8. mars ásamt fjölda ann­arra sam­taka og stétt­ar­fé­laga. Fleiri sam­tök hófu að minn­ast 8. mars á 10. ára­tugnum með sér­stökum hætti. Samtökin Stígamót voru stofnuð 8. mars 1990. Unifem á Íslandi hefur verið með fundi og á Akureyri hafa sam­tök minnst dags­ins frá árinu 1992.

Syngjandi sokkar

8. mars árið 1978 á alþjóð­legum bar­áttu­degi verka­kvenna 1978, hélt Rauð­sokka­hreyf­ingin ásamt Kven­fé­lagi sós­í­alista og Menn­ingar og frið­ar­sam­tökum íslenskra kvenna fjöl­mennan bar­áttufund. Þar var flutt dag­skrá um sögu og bar­áttu verka­kvenna í tali og tónum. Rauð­sokkar gáfu dag­skrána síðan út að við­bættum söng­textum og ítar­efni.

Sam­svar­andi dag­skrá um sögu og bar­áttu verka­kvenna var gerð um og í sam­vinnu við Verka­kvenna­fé­lagið Snót í Vest­manna­eyjum og flutt á ráð­stefn­unni Maðurinn og hafið í júlí 1978.

Rauð­sokkar héldu fjöl­sóttar dag­skrár í Reykja­vík um rit­höf­undana Ástu Sig­urð­ar­dóttur árið 1977, sem var end­ur­tekin í Nes­kaup­stað sama ár, og Jakobínu Sig­urð­ar­dóttur árið 1979. Kvenna­há­tíðin Frá morgni til kvölds var haldin í Tónabæ á árinu 1979 og end­ur­tekin á Akureyri. Önnur hátíð undir yfir­skrift­inni Konur og atvinnu­lífið var haldin árið 1980. Bar­áttu­söngvar gegndu stóru hlut­verki í Rauð­sokka­hreyf­ing­unni allt frá upp­hafi og margir tón­list­ar­menn lögðu henni lið. Rauð­sokka­kór starf­aði á árunum1978-1980 og margir söng­hópar komu og fóru. Gefin var út söng­bókin Syngj­andi sokkar.

Á vegum Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar var stofn­aður hópur um heilsu­vernd og heil­brigð­is­mál kvenna sem ákvað að þýða og stað­færa dönsku bók­ina Kvinde kend din krop (1975). Vinna við bók­ina tók tvö ár og kom hún út undir nafn­inu Nýi kvenna­fræð­ar­inn 1981.

Þegar komið var fram á níunda ára­tug­inn voru nýir vindar farnir að blása og tími breyt­inga rann upp. Rauð­sokka­hreyf­ingin var lögð niður árið 1982 og nýjar kvenna­hreyf­ingar urðu til.

Heimild:

Kven­sögu­safn Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð