Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Svetlana Álfheiður: „Rússneska þjóðin er allt í einu orðin þetta skrímsli“

Svetlana Álfheiður: „Rússneska þjóðin er allt í einu orðin þetta skrímsli“
Svetlana Álf­heiður

„Þegar árás Rúss­lands inn í Úkraínu hófst þá hélt ég að um þetta mál gætu ekki verið skiptar skoð­anir. En mér skjátl­að­ist. Pabbi sagð­ist ætla að hringja til baka af því að þau voru að hlusta á ávarp Pútíns til þjóð­ar­innar. Þegar hann sagði nokkrum dögum seinna „þetta er í raun ekki stríð“ og að engum sprengjum væri kastað á Kænugarð heldur væru þetta bara „æfinga­skot úkra­ínsks loft­varna­kerfis“ þá átt­aði ég mig á því hversu kröft­ugum áróðri er beitt og að hann er því miður að virka,“ segir Svetlana Álf­heiður, rúss­nesk kona búsett hér á landi.

„Ég á ekki orð til að lýsa til­finn­ingum mínum vegna ástands­ins. Þetta er súr­r­eal­ískt og ég held að ég sé ennþá í hálf­gerðri afneitun. Ég get ekki trúað að árið 2022 geti alls­herj­ar­stríð verið eina mögu­lega lausnin í sam­skiptum tveggja þjóða sem eiga þar að auki svo margt sam­eig­in­legt, sem deila sam­eig­in­legri sögu og menn­ingu og sem hafa lifað hlið við hlið öldum saman. Sumir kaflar í þeirri sögu voru kannski ekki bjartir – en ég er sann­færð um að að hlut­verk stjórn­mála­manna felist meðal ann­ars í því að tryggja að við lærum af þeim og byggjum gott traust og sam­vinnu milli þjóð­anna. Mér er sama hversu góða afsökun Rúss­lands­stjórn getur gefið fyrir því að hafa farið í stríð. Það er óaf­sak­an­legt.

Ég get ekki annað en hugsað að miðað við ástandið í dag voru kannski kjarn­orku­stríðsæf­ing­arnar okkar í æsku ekki til­gangs­lausar.

Hins vegar get ég ekki ímyndað mér hvaða töfra­lausn væri hægt að grípa til núna. Á einni viku virð­ist Rússland hafa glatað hálfri öld af jákvæðri þróun og stigið risa­skref aftur í tím­ann. Samkvæmt heims­á­liti breytt­ist landið úr nútíma­landi og gildum þátt­tak­anda í alþjóð­legum málum í árás­ar­gjarna villi­þjóð lausa við alla skyn­semi, sem lætur sem grunn­mann­rétt­indi séu ekki til. Ég get ekki annað en hugsað að miðað við ástandið í dag voru kannski kjarn­orku­stríðsæf­ingar okkar í æsku ekki til­gangs­lausar.

Sem betur fer eru flestir sem ég þekki sömu skoð­unar og ég og finnst ástandið vera það hrylli­leg­asta sem þeir hafa lent í á sinni lífs­tíð hingað til. Fyrir stuttu héldum við sak­leys­is­lega að Covid hefði verið það versta. Eins og er, er erfitt fyrir mig að hugsa um fram­tíð rúss­neskrar þjóðar. Að öllu óbreyttu munu fram­tíð­ar­horf­urnar verða sárs­auki, fátækt, sundr­ung fjöl­skyldna – ann­að­hvort bók­staf­lega hjá þeim sem eiga ætt­ingja í Úkraínu eða út frá ágrein­ingi vegna skoð­ana – algjör ein­angrun frá alþjóða­sam­fé­lagi og kúgun allrar mót­spyrnu innan Rúss­lands. Eins og á verstu tímum Sov­ét­stjórnar er almenn­ingur í Rúss­landi hand­tek­inn og fang­els­aður fyrir að tjá skoð­anir sínar, fyrir að fara á frið­sam­leg mót­mæli og fyrir að vilja kjósa fólk sem stendur fyrir heil­brigða skyn­semi og þráir að leggja lið í þróun lands­ins í takt við nútím­ann.“

Ég votta úkra­ínsku þjóð­inni inni­lega samúð mína og vona að þjóðir heims geti unnið að því í sam­ein­ingu að stoppa þessa hörm­ung.

Svetlana seg­ist varla geta ímyndað sér hvað ríki í hjörtum úkra­ínsks almenn­ings. „Á hverjum degi heyrum við fréttir af fólki sem þarf að yfir­gefa heim­ili sín og flýja burt til að bjarga börnum sínum frá stríð­inu. Hvaða hryll­ingur ríkir í hjörtum þess­ara barna? Lík­leg­ast lítur það út eins og verstu martraðir hafi orðið að veru­leika og skrímsli úr ævin­týra­bókum séu að lifna við. Og rúss­neska þjóðin er allt í einu orðin þetta skrímsli. En orr­ust­urnar og blóðið er raun­veru­legt.

Ég votta úkra­ínsku þjóð­inni inni­lega samúð mína og vona að þjóðir heims geti unnið að því í sam­ein­ingu að stoppa þessa hörm­ung. Ég óska þess heitt að þján­ingum beggja þjóð­anna muni linna og við öll getum vaknað upp af þess­ari martröð – og þótt skað­inn sé eflaust nú þegar skeður, er hann ef til vill ekki alfarið óaft­ur­kræfur.“

Illa lyktandi gasgrímur

Svetlana fædd­ist og ólst upp í nágrenni Moskvu en for­eldrar hennar fluttu þangað áður en hún fædd­ist. „Þau komu frá borg sem heitir Samara og liggur í um 1.000 kíló­metra fjar­lægð suð­austur frá Moskvu. Þau eru afar ein­lægt og harð­dug­legt fólk sem trúði á yngri árum mjög inni­lega á sós­íal­íska draum­inn, þannig að það má segja að upp­eld­isár mín í dæmi­gerðu, sov­ésku umhverfi hafi ein­kennst mjög af róm­an­tískum og útópískum keimi. For­eldrar mínir störf­uðu á rann­sóknar- og vís­inda­stofn­unum rík­is­ins. Þegar pabbi minn fékk ekki að vera flug­maður, sem var draumur margra drengja sem fædd­ust stuttu eftir heims­styrj­öld­ina síð­ari, út af lélegri sjón þá valdi hann menntun á sviði raf­iðn­aðar og vann svo á rann­sókn­ar­stofu rík­is­ins í þróun vél­rænna tækja (Scientific Research Institute of Electromechanics). Mamma lærði geim­ferða­verk­fræði við Háskóla geim­flug­iðn­aðar í Samara (Aerospace Uni­versity) og starf­aði síðar á rík­is­stofnun sem þró­aði meðal ann­ars fyrsta sov­éska geim­farið, Buran, sem part af geim­ferða­á­ætlun Rússa.“

Það má full­yrða að gagn­rýnin hugsun hafi hvergi verið í kennslu­á­ætlun á þessum tíma.

Svetlana segir að lífið hafi verið ein­falt og fram­tíðin björt þegar hún var lítil. „Á grunn­skóla­aldri fór ég ein út í búð til að kaupa mjólk í þrí­hyrndum mjólk­ur­fernum, klass­íska rúss­neska rúg­brauðið og einu kex­teg­und­ina sem til var. Ég hafði gaman af því að fara í maí­kröfu­göngur, sitja á öxl­unum á pabba og veifa litla, rauða fán­anum. Ég hafði líka gaman af því að teikna og gat setið dögum saman við þá iðju að leira per­sónur úr upp­á­haldsteikni­mynd­unum mínum. Ég lærði samt nógu snemma að list var „ekki alvöru starf“ – enda ekki nógu gagn­legt fyrir sam­fé­lagið – og trúði því án þess að efast; eins og ég trúði öllu öðru sem mér var sagt og kennt. Það má full­yrða að gagn­rýnin hugsun hafi hvergi verið í kennslu­á­ætlun á þessum tíma.

Mér leidd­ist ávallt í skól­anum; það var of auð­velt að læra utan­bókar skoð­anir ann­arra en fyrir okkar eigin fengum við lægri ein­kunnir. Það var helst gaman þegar kennslan var lögð niður fyrir æfingar á svoköll­uðum „dögum almanna­varna“. Þá kannski heyrð­ist loft­árás­ar­við­vörun í miðjum stærð­fræði­tíma og við þurftum að setja á okkur illa lykt­andi gas­grímur í snatri, mynda ein­falda röð og koma okkur í næsta loft­varn­ar­byrgi á met­tíma. Íþrótta­kenn­ar­inn var á klukk­unni og til­kynnti okkur síðar hvaða bekkir náðu að lifa þykjustu­kjarn­orku­árás­ina af.“

Svetlana segir að árið 1991 hafi breytt öllu. „Ég sá brostna drauma og ótta í augum for­eldra minna. Rík­is­stofn­anir fengu ekki nægi­legan fjar­stuðn­ing lengur og margar voru lagðar niður. Fljót­lega urðu þau bæði atvinnu­laus en þau voru alls ekki nógu praktísk til að átta sig fljótt á óreiðu per­estrojkunnar og að koma sér vel fyrir á nýja, frjálsa mark­aðnum. Peningur var af skornum skammti, stundum var ekk­ert til að borða og við fengum okkur steiktar kart­öflu­sneiðar í öll mál. Það tók fjöl­skyld­una þó nokkur ár að koma sér á fætur á ný og hafa efni á ein­hverju öðru en helstu nauð­synjum.“

Dúfnahólar 10

Svetlana segir að það hafi verið mik­ill gleði­dagur þegar faðir hennar fékk vinnu sem raf­virkja­meist­ari í banka og keypti sitt fyrsta VHS-tæki. „Af ótrú­leg­ustu til­viljun var þetta augna­blik líka upp­haf sög­unnar um teng­ingu mína við Ísland.

Önnur myndin á spól­unni var ónefnd lág­gæða fram­tíð­ar­geim­veru­mynd en hin var engin önnur en Sódóma Reykja­vík.

Einn góðan veð­ur­dag kom pabbi minn heim með víd­eó­spólu sem hann keypti af handa­hófi á svarta mark­aðnum; lög­legar útgáfur af útlenskum myndum voru því miður ekki eins aðgengi­legar þá. Önnur myndin á spól­unni var ónefnd lág­gæða fram­tíð­ar­geim­veru­mynd en hin var engin önnur en Sódóma Reykja­vík. Einhver snill­ingur tal­setti hana á rúss­nesku með því að þýða sam­tölin úr enskum texta. Hún varð á auga­bragði upp­á­halds­myndin á heim­il­inu – við stóra systir horfðum á hana ótal sinnum og erum enn þann dag í dag að skipt­ast á einka­húmorsfrasa á borð við „Dúfna­hólar tíu“. Þar heyrði ég íslensk­una í fyrsta sinn á bak við rúss­neskt tal og sagði í gríni að einn dag­inn myndi ég læra þetta skrýtna og töfr­andi tungu­mál. Í mynd­inni var líka svo skemmti­lega furðu­legt fólk sem mig lang­aði ótrú­lega mikið til að hitta. Síðan þá fékk ég áhuga á öllu sem tengd­ist Íslandi, en mörgum árum seinna þegar ég var að læra mál­vís­indi við Háskól­ann í Moskvu komst ég að því að það var kenn­ari á deild­inni sem kenndi íslensku – og þá var ekki aftur snúið.“

Svetlana kom fyrst til Íslands árið 2005 til að halda áfram að læra íslensku við Háskóla Íslands. „Mér fannst fyrst eins og ég hefði lent í röngu landi – þótt ég hefði verið að læra íslensku í um eitt og hálft ár áður en ég kom þá skildi ég ekki baun. Það er kannski skilj­an­legt með til­liti til þess að eina orða­bókin sem við gátum notað við kennslu við Háskól­ann í Moskvu var orða­bók eftir Valerij Berkov sem var gefin út árið 1962. Þannig að það tók mig lengri tíma að klára námið og ég var einu ári lengur en ég ætl­aði. Svo annað og það þriðja. Og nú, 17 árum seinna, held ég að for­eldrar mínir séu farnir að átta sig á því að ég er ekki endi­lega á leið­inni heim.“

Neikvæðni og hræðsluáróður

Svetlana segir að í fyrstu hafi henni fund­ist lífið á Íslandi mjög frá­brugðið líf­inu sem hún lifði í Moskvu. „Ég þurfti ekki að taka strætó og svo lest og neð­an­jarð­ar­lest til að kom­ast í háskól­ann. Sam­skipti milli fólks voru mjög óform­leg og inni­leg. Ólíkt Rúss­landi þar sem ég þurfti að ganga með gas­sprey í vas­anum á leið­inni heim á kvöldin var ég alveg örugg á rölt­inu um miðbæ Reykja­víkur á hvaða tíma dags sem var. Fólk var hjálp­samt og hver stóð með öðrum. Það minnti mig jafn­vel á góða hlið Sov­ét­tím­ans þar sem fólk upp­lifði sig eins og eina stóra fjöl­skyldu.

Það tók mig mjög langan tíma að læra að hugsa út fyrir Sov­ét­kass­ann minn og enn í dag rekst ég annað slagið á rang­hug­myndir sem eru enn fastar í huga mínum og sem ég trúi enn.

Smám saman átt­aði ég mig samt á því að ég pass­aði engan veg­inn vel inn í þennan frjáls­lynda heim þar sem ég var mjög ferköntuð og skoð­anir mínar voru í raun eitt­hvað sem ég hafði lært frekar en myndað sjálf. Það tók mig mjög langan tíma að læra að hugsa út fyrir Sov­ét­kass­ann minn og enn í dag rekst ég annað slagið á rang­hug­myndir sem eru enn fastar í huga mínum og sem ég trúi enn. En nú er ég vön að draga allt sem ég veit í efa.

Fyrstu árin var ég að reyna að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi og reyndi að láta af öllum rúss­neskum hegð­un­ar­hætti og verða „íslensk“. Ég varð það að sjálf­sögðu ekki, en það var nóg til þess að ég færi að missa tengsl við rætur mínar og þá fann ég fyrir þeirri þörf að líta til baka og kom­ast að því hver ég er og hvað skiptir máli fyrir mig. Ég þurfti að upp­götva hvað það þýðir fyrir mig að vera Rússi – hvað það er sem gerir mig öðru­vísi en aðra heims­borg­ara, en hvernig við erum lík. Það leiddi óum­flýj­an­lega að per­sónu­legri krísu sem ég hef glímt við í nokkur ár.

Það væri kannski góð mynd­lík­ing að segja að ég hafi verið eins og matrjóska sem Íslend­ingar kalla babúsku; hulin djúpt inni með mörg lög af fölskum eig­in­leikum sem ég þurfti að losa mig við til að kom­ast að kjarn­anum og klæða mig svo í sum þeirra upp á nýtt. Kannski var það þessi leit að ekta eðli mínu sem leiddi mig svo í jóga­iðkun, en ég hef stundað jóga af krafti í mörg ár og er nýlega farin að kenna það.

For­eldrar mínir segja jafn­vel sjálfir að þaðan streymi helst nei­kvæðni og hræðslu­á­róður.

Í gegnum árin fannst mér þó sífellt erf­ið­ara að deila per­sónu­legum sigrum og upp­götv­unum mínum með mömmu og pabba – ég fór að taka eftir því að álit þeirra á sumum „vest­rænum“ gildum er fremur nei­kvætt og þau eru oft ekki til­búin til að heyra aðrar skoð­anir en þær sem tíðkast úti. Ég er löngu hætt að fylgj­ast með sjón­varp­inu í Rúss­landi en ég fæ nóg af því á stuttum ferðum heim. For­eldrar mínir segja jafn­vel sjálfir að þaðan streymi helst nei­kvæðni og hræðslu­á­róður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð