Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nýjar venjur í kringum mat sem gætu haft jákvæð áhrif: „30% af framleiddum mat endar í ruslinu“

Nýjar venjur í kringum mat sem gætu haft jákvæð áhrif: „30% af framleiddum mat endar í ruslinu“
Rakel Jóns­dóttir. Mynd: MYND/Kristinn Ingvarsson

Flest hugsum við mikið um mat og á hverjum degi tökum við ákvarð­anir um það bæði hvað við borðum og hversu mikið af því. Matur er enda for­senda fyrir því að við höldum lífi. Markmið neð­an­greinds verk­efnis er að fá fólk til að hugsa um mat­inn á annan hátt. En í verk­efn­inu segir að allir þurfi að leggja sitt af mörkum til að draga úr mat­ar­sóun og um leið stuðla að sjálf­bær­ari og umhverf­is­vænni heimi.

Rakel Jóns­dóttir er útskrif­aður menn­ing­ar­miðl­ari frá Háskóla Íslands og sjálf­stætt starf­andi kvik­mynda­gerð­ar­kona. Hún hefur fjallað um í útvarps­þætti sínum um mat­ar­sóun.

„Það er erfitt að horfa á eitt­hvað sem er okkur svo mik­il­vægt í dag­legu lífi á annan hátt. Og enn erf­ið­ara sem eitt­hvað fyr­ir­bæri sem verið er að rann­saka. En ég held að það sé mik­il­vægt í þessu sam­hengi til þess að búa til nýjar teng­ingar, nýtt hegð­un­ar­munstur og til þess að skapa nýjar venjur í kringum mat sem gæti haft jákvæð áhrif. Það er þörf á heild­rænni lausnum hvað varðar fæðu­ör­yggi og mat­ar­sóun. Matur og mat­ar­sóun teng­ist svo líka lofts­lags­vánni og umhverf­is­vernd.  Þar með gæti hann mögu­lega einnig verið ein af mörgum leiðum til þess að bregð­ast við þeim vanda­málum sem við stöndum frammi fyrir í dag,“ útskýrir Rakel.

Skoða tengsl manna við mat 

Þætt­irnir Mata­sóf­íur voru fluttir á Rás 1 og  í þeim seg­ist Rakel skoða tengsl manns við mat á ólíkum sögu­skeiðum og spegla þau við orð­ræðu sam­tím­ans.

horfa í eigin barm og skoða sína eigin mat­ar­hegðun og þær teng­ingar sem það hefur við mat

„Leitast er við að koma með ann­ars konar nálgun á mál­efni sem varða mat­ar­sóun, fæðu­ör­yggi og virð­ingu gagn­vart mat. Verk­efnið er því eins konar til­raun til þess að bregð­ast við því ástandi sem við stöndum frammi fyrir í dag og vera um leið eins konar hug­vekja fyrir fólk til þess að horfa í eigin barm og skoða sína eigin mat­ar­hegðun og þær teng­ingar sem það hefur við mat.“

30% af framleiddum mat endar í ruslinu

Mikil umræða hefur verið um mat­ar­sóun und­an­farin ár og sam­kvæmt skýrslu íslenskra stjórn­valda um aðgerða­á­ætlun gegn mat­ar­sóun, sem kom út í fyrra, er áætlað yfir yfir 30% af þeim mat sem fram­leiddur er í heim­inum nýt­ist ekki sem skyldi og endi í rusl­inu. Rakel bendir á að fjöldi vís­inda­legra gagna sýni mik­il­vægi þess að end­ur­hugsa mat­væla­kerfið á rót­tækan hátt. „Í þessu verk­efni var matur hins vegar rann­sak­aður og skoð­aður á hug­læg­ari hátt og leit­ast við að vekja hjá hlust­endum hug­renn­ing­ar­tengsl,“ segir hún enn fremur.

Hug­myndin að þátt­unum kvikn­aði þegar Rakel vann að meist­ara­verk­efni sínu í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun við Háskóla Íslands en því lauk hún fyrir um ári. Í loka­verk­efn­inu rýndi hún í mögu­leika svo­kall­aðs borg­ar­bú­skapar sem snýst um að nýta auð eða van­nýtt rými innan borg­ar­marka til mat­væla­fram­leiðslu, ýmist utan- eða inn­an­dyra.

„Í því ferli mátti sjá að þrátt fyrir þau fræði­legu gögn sem liggja fyrir í tengslum við mál­efni er varða mat­ar­sóun og fæðu­ör­yggi þá eru breyt­ingar að hálfu yfir­valda hæg­fara og auk þess má greina ákveðið aðgerð­ar­leysi og jafn­vel van­mátta­kennd hjá almenn­ingi. Ég rit­aði niður í þessu ferli á blað orðin „mat­ar­sóun“ og „nihil­ismi“ og út frá því hóf ég að rann­saka tengsl manns við mat í þessu sam­hengi. Ég leit­að­ist eftir því að horfa á mat líkt og hann væri tungu­mál, sem hann vissu­lega er að ein­hverju leyti, og í því sam­hengi að greina orð­ræð­una sem er í gangi og hvað hún end­ur­spegl­aði um tíð­ar­and­ann. Ég skoð­aði þannig hvaða aðrar leiðir væri mögu­lega hægt að fara til þess að bregð­ast við þessu ástandi, hvernig hægt er að nálg­ast þessi vanda­mál á til­finn­inga­legan hátt,“ útskýrir Rakel.

Rakel er meðal þátt­tak­enda á Hug­vís­inda­þingi sem fram fer dag­ana 11. og 12. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð