Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ómar aðstoðar framliðna sem trufla fólk á heimilum þess: „Snýst ekki um að reka drauga úr húsum“

Ómar aðstoðar framliðna sem trufla fólk á heimilum þess: „Snýst ekki um að reka drauga úr húsum“
Ómar Pét­urs­son. Mynd: Helgi Jónsson.

Ómar Pét­urs­son starfar meðal ann­ars sem heil­ari. Segist vera í sam­bandi við leið­bein­endur að handan og hjálpar fólki til að líða betur og aðstoðar fólk sem heyrir, sér eða skynjar eitt­hvað óeðli­legt á heim­ilum sínum. Ómar segir frá þessu og mörgu öðru í helg­ar­við­tali Mannlífs.

Ómar seg­ist bjóða upp á þjón­ustu sem felist í að aðstoða fram­liðna sem trufla fólk í híbýlum þess. Hann segir að sumir heyri hljóð; heyri til dæmis dyrum lokað eða umgang. Aðrir sjá eitt­hvað og skynja. „Stundum talar fólk um gamlan mann sem er að trufla en þá getur það verið ein­hver sem byggði húsið eða er afi eða langafi við­kom­andi sem ætlar bara að líta eftir. Þegar ætt­ingjar okkar falla frá eru þeir oft ein­hvers staðar nálægt og vilja halda áfram að passa upp á okkur.“

Ómar seg­ist hafa um 30 fram­liðna sér til aðstoðar við svona verk­efni.

„Fólk spyr hvort ég vilji hjálpa því að „hreinsa“ en þetta snýst ekki um að hreinsa. Ég skal segja þér sögu sem hjálp­aði mér til þess að skilja af hverju ég vil ekki kalla þetta því nafni.

Ég var á sínum tíma feng­inn til að aðstoða fólk í húsi sem bjó í Reykja­vík og var ég búinn að mæla mér mót klukkan fimm. Ég var bara að rölta í bænum og var mættur um 20 mín­útum fyrir fimm. Ég sett­ist á stein úti í garði og horfði í kringum mig; þarna er mikið af gömlum húsum og eitt­hvað um hús sem höfðu verið færð þangað en höfðu staðið áður ann­ars staðar í borg­inni. Ég var kom­inn í gír­inn af því að ég ætl­aði að skoða umhverfið í kringum húsið og fór að vinna. Þá sá ég fjölda fram­lið­inna í hinum hús­unum sem voru að fylgj­ast með mér.“

yfir­gnæf­andi meiri­hluta til­fella eru það þeir sem eru nýfluttir í hús svo sem börn varir við ein­hverja en þá eru það kannski þeir sem eru að passa upp á húsin.

Þögn.

„Ég fór að velta því fyrir mér af hverju þeir væru að fylgj­ast með mér og þá sagði einn þeirra að hann kynni ekki við okkur sem værum að reka þá á milli húsa. Ég spurði hvað hann ætti við. Hann spurði hvort ég hafi ekki heyrt talað um góðan anda í húsum og að fólki fynd­ist vera mis­gott að koma í hús. Og það er akkúrat það sem þetta er: Í yfir­gnæf­andi meiri­hluta til­fella eru það þeir sem eru nýfluttir í hús svo sem börn varir við ein­hverja en þá eru það kannski þeir sem eru að passa upp á húsin.

Þeir hafa kannski fengið það hlut­verk hinum megin eða þá að þeir byggðu húsið á sínum tíma og tengj­ast því þannig. Oftar en ekki snýst þetta um að semja við við­kom­andi, sér­stak­lega ef ung börn eiga í hlut sem eru nýflutt í húsið af því að sum börn eru næm. Þeir átta sig ekki endi­lega á því að börn eru næm­ari og skynja þá. Oft snýst þetta um að ræða við þá látnu og segja þeim að passa sig á að börnin verði ekki vör við þá. Þetta snýst ekki um að reka drauga út úr húsum.

Viðtalið við Ómar má í heild sinni lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð