Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sólveig Anna ævareið vegna færslu Jóhanns Páls þingmanns: Hefur sýnt „helsjúka valdníðslu“.

Sólveig Anna ævareið vegna færslu Jóhanns Páls þingmanns: Hefur sýnt „helsjúka valdníðslu“.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi og verð­andi for­maður Eflingar, er allt annað en ánægð með Facebook-færslu Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, alþing­is­manns Sam­fylk­ingar, um nýkjörið verka­lýðs­mála­ráð Sam­fylk­ingar. Sér­stak­lega fara síð­ustu orð hans um átökin innan hreyf­ing­ar­innar fyrir brjóst Sól­veigar Önnu og félaga

„Þú flokkar sem­sagt við­bjóðs­legan róg­burð og grófa aðför að mann­orði fólks í póli­tískum til­gangi sem ekk­ert annað en „átök“?“ segir Sólveig í athuga­semd við færsl­una.

„Finnst þér í alvöru ekk­ert rangt við það að ráð­ist sé að heið­virðu fólki sem hefur ekki gerst sekt um annan „glæp“ en að vinna umbeðna vinnu á meðan það jafn­framt hefur „óæski­legar“ póli­tískar skoð­anir, líkt og Andri Sig­urðs­son hefur nú þurft að þola af hálfu þeirrar konu sem þú hrífst svo af?“

Andri var mikið til umfjöll­unar í byrjun mán­að­ar­ins í tengslum við umfjöllun vef­síðu Eflingar. Greint var frá því að Andri hafi fengið rúm­lega 20 millj­ónir greiddar fyrir að hanna vef­síð­una en fjöl­margir gagn­rýndu það, bæði vegna upp­hæð­ar­innar en einnig þar sem Andri er félagi í Sós­í­alista­flokknum og hefur mikið barist gegn spill­ingu.

Sólveig veltir því þá fyrir sér hvers vegna Jóhann er ánægður með að fá Agnieszku til liðs við sig. „Af hverju ertu „gríð­ar­lega ánægður“ með að fá mann­eskju til starfa í flokknum þínum sem hefur í besta falli sýnt algjör­lega yfir­gengi­legt dóm­greind­ar­leysi og í versta falli algjör­lega hel­sjúka vald­níðslu á sínum skamma tíma í emb­ætti?“ segir hún.

Færsla Jóhanns

„Auðvitað tekur Sam­fylk­ingin reynslu­miklu fólki úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni fagn­andi. Við drögum fólk ekki í dilka eða úti­lokum vegna átaka innan hreyf­ing­ar­innar – kemur ekki til greina. Hlakka til sam­starfs­ins við nýja stjórn verka­lýðs­mála­ráðs,“segir Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Jóhann birti færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann seg­ist vera gríð­ar­lega ánægður með nýkjörna stjórn verka­lýðs­mála­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar.

Þessir tveir for­setar sem um ræðir eru þau Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, 1. vara­for­seti ASÍ og for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands og Halldóra Sigríður Sveins­dóttir, for­maður Bárunnar og 3. vara­for­seti ASÍ.

Þá voru einnig kjörin Agnieszka Ewa Ziółkowska, starf­andi for­maður Eflingar, Finnbogi Svein­björns­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga og Gylfi Þór Gíslason, fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður í Lands­sam­bandi lög­reglu­manna.

„Það markar ákveðin tíma­mót að tveir af fjórum for­setum Alþýðu­sam­bands Íslands gegni nú trún­að­ar­störfum fyrir jafn­að­ar­manna­flokk Íslands og við­eig­andi að þetta skuli ger­ast á 106 ára afmæli Alþýðu­sam­bands­ins og Alþýðu­flokks­ins.“

Undir lok færsl­unnar segir Jóhann að Sam­fylk­ingin úti­loki ekki vegna átaka innan hreyf­ing­ar­innar. Hann tekur ekki fram um hvaða átök hann er að tala um en lík­lega er hann þó að vísa í átökin sem hafa átt sér stað innan Eflingar að und­an­förnu.

Gagnrýnir Jóhann

Sólveig er ekki sú eina sem tekur til máls í athuga­semda­kerf­inu en fjöl­margir stuðn­ings­menn hennar gera það einnig og hjóla í Jóhann vegna orða hans um átökin. Í einni athuga­semd­inni segir til að mynda að færsla Jóhanns sé „bein stríðs­yf­ir­lýs­ing“ á hendur „stærsta alvöru verka­lýðs­fé­lagi lands­ins“.

Einn með­limur Sós­í­alista­flokks­ins veltir því þá fyrir sér hvers vegna Halldóra Sigríður var kjörin vegna þess sem hún sagði í kjöl­far frétta­flutn­ings­ins um vef­síðu Eflingar. „Ef það er verið að brjóta lög er það mjög al­var­leg­ur hlut­ur,“ sagði Halldóra meðal ann­ars um málið.

„Var Halldóra ekki að úthúða Sólveigu Önnu og Víðari um að hygla Andra fyrir vef­síðu­gerð?“ spyr sós­í­alist­inn í athuga­semd­inni sem um ræðir. „Og ekk­ert á rökum reist. Og mér sýn­ist þetta fólk hafa þræði til gömlu hirðar Ásmundar og Salek. Þetta er ekki progressive. En það ert þú hins­vegar á Alþingi.“

Jóhann svarar athuga­semd­inni frá sós­í­alist­anum og segir að jú, Halldóra Sigríður hafi tjáð sig um vef­síðu-málið í fjöl­miðlum.

„Get samt alls ekki fall­ist á að þá verði Halldóra ein­hvern veg­inn geisla­virk og per­sona non grata og að stjórn­mála­flokkar eigi að halda henni utan gras­rót­ar­starfs, hugn­ast alls ekki svo­leiðis nálgun,“ segir hann svo. Þá segir Jóhann að hann gruni að Halldóra hafi ekki verið kosin vegna skoð­unar hennar á Eflingu.

„Mig grunar reyndar að Halldóra hafi fengið góða kosn­ingu vegna þess að hún er 3. vara­for­seti ASÍ og leið­togi stórs stétta­fé­lags frekar en vegna deilna um Eflingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð