Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þórey var reiður unglingur: „Byrjaði að drekka hverja helgi 12 ára gömul“

Þórey var reiður unglingur: „Byrjaði að drekka hverja helgi 12 ára gömul“

„Við erum fjór­ar syst­ur og mamma og pabbi hafa verið sam­an í yfir 30 ár. Ég átti góða æsku, eng­in veik­indi eða óregla,“ seg­ir hún en bæt­ir við litla syst­ir henn­ar hafi átt við erf­ið­leika að stríða.

Þórey Aðal­steins­dótt­ir er 27 ára og ólst upp í Reykja­vík. Hún hef­ur lifað lífi sem marg­ir geta ef­laust ekki ímyndað sér að sé raun­veru­leiki ís­lenskra ung­menna. Hún er nýj­asti við­mæl­andi hlað­varps­ins Sterk sam­an.

Tinna Bark­ar­dóttir sem stýrir hlað­varp­inu.

„Hún tók köst heima sem ég mátti ekki svara, ég átti bara að fara úr aðstæðum og láta fara lítið fyr­ir mér sem krakki.“

Byrjaði að drekka 12 ára

Þórey var reiður ung­ling­ur og leit­aði í fé­lags­skap í næstu hverf­um í kring því þar voru krakk­ar sem drukku áfengi.

„Ég byrj­aði að drekka hverja helgi tólf ára göm­ul. Ég varð mjög erfið og var hótað með Stuðlum, fóstri og öðru en var fljót að sjá að það voru inn­an­tóm­ar hót­an­ir.“

Aðeins 15 ára göm­ul keppti Þórey í fit­n­ess en á þeim tíma var það leyft. Þjálf­ar­inn henn­ar setti hana á stera svo hún myndi ná betri ár­angri en á þeim tíma fór hún að þróa með sér átrösk­un.

„Ég var orðin rosa­lega grönn og eina sem mömmu datt í hug að spyrja var hvort ég væri að kasta upp, hún hafði ekki meiri þekk­ingu á þessu. Ég brást alltaf mjög hneyksluð við bara, ég tók allt út á for­eldr­um mín­um.“

Tím­inn leið, Þórey flosn­aði upp úr námi og var kom­in í dag­lega neyslu þegar for­eldr­ar henn­ar settu henni úr­slita­kosti; fara út af heim­il­inu ef hún færi ekki í með­ferð og tæki líf sitt í gegn.

„Ég keypti einn miða til Eng­lands og ætl­aði al­deil­is að sýna pabba að ég gæti þetta,“ seg­ir Þórey.

Allt sem var bannað var spennandi

Nokkr­um árum síðar, rétt um tví­tugt, var allt sem var bannað ennþá spenn­andi.

„Ég set mig í sam­band við strák sem var að losna úr fang­elsi í út­lönd­um, hann kem­ur eig­in­lega bara frá flug­vell­in­um og til mín, þetta fannst mér rosa­lega spenn­andi og eitt­hvað mjög heill­andi við hans per­sónu­leika. Hann kom edrú heim úr fang­els­inu og ég laug að hon­um að ég væri edrú, ég var hvort sem er að ljúga að öll­um,“ seg­ir hún um byrj­un sam­bands­ins sem átti þó fljótt eft­ir að breyt­ast í henn­ar verstu mar­tröð.

„Ég sagði hon­um eft­ir ein­hvern tíma að ég væri að nota, hann fékk mig til að hætta og á þess­um tíma­punkti varð ég edrú með hon­um en án alls jafn­ingj­astuðn­ings því hann var á móti AA, ég sé það í dag að það geng­ur ekki fyr­ir mig, við dutt­um í það sam­an eft­ir stutt­an og erf­iðan edrú­tíma.“

Það tek­ur á Þóreyju að segja frá of­beld­inu sem hún þurfti að þola í sam­band­inu með þess­um manni.

„Ég var ekki bara fangi efn­anna held­ur líka fangi þessa sam­bands.“

Missti bestu vinkonu sína

Í dag hef­ur Þórey verið án allra vímu­efna í tæp fjög­ur ár og aldrei liðið bet­ur. Hún þurfti að læra að lifa án þess að flýja til­finn­ing­ar sín­ar og seg­ir frá því að hafa misst bestu vin­konu sína árið 2019 en aldrei hafi sú hugs­un komið upp að deyfa sig með vímu­efn­um.

Það sem reynst hef­ur erf­ið­ast í sjálfs­vinnu Þóreyj­ar er kyn­ferð­isof­beldið í sam­band­inu með mann­in­um og hversu brot­in hún var eft­ir það.

„Ég var orðin svo hrædd við hann og end­aði í geð­rofi, efn­in löngu búin að svíkja mig og lík­am­inn að gefa sig,“ seg­ir hún og bæt­ir því við að hún hafi endað sína neyslu­sögu á því að hringja á lög­regl­una sem bjarg­aði henni í raun úr þess­um aðstæðum.

Vaknaði upp á geðdeild

Þórey seg­ir frá erf­iðri viku á geð­deild og hvernig til­finn­ing það var að vakna til lífs­ins og átta sig á því hvert hún væri kom­in.

„Það sem bjarg­aði mér frá því að fara enn einu sinni til baka til of­beld­is­manns míns var að labba inn heima til að sækja dót og koma að hon­um með ann­arri konu uppi í rúmi. Ég var sem bet­ur fer með frænku mína með mér. Eft­ir þetta fór ég á Hlað­gerð­ar­kot í með­ferð og hef verið edrú síðan.“

Þórey hellti sér í sjálfs­vinnu, AA-sam­fé­lagið og þá aðal­lega kvenna­sam­fé­lagið.

„Þetta er vinna sem held­ur áfram og hef ég verið dug­leg að sækja mér alla þá aðstoð sem ég þarf og mun sú vinna halda áfram.“

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð