Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Systir Björgvins Páls fær enga aðstoð við fíknivanda: „Á litla systir mín engan séns?“

Systir Björgvins Páls fær enga aðstoð við fíknivanda: „Á litla systir mín engan séns?“

Björgvin Páll Gúst­avs­son, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í hand­bolta, birti átak­an­lega færslu á Facebook síðu sinni þar sem hann lýsir því hvernig kerfið hefur brugð­ist litlu systur sinni. „Til þess að gera langa sögu stutta. Þá var pumpað í hana lífi 6x í síð­ustu viku vegna ofneyslu,“ skrifar Björgvin.

Systir Björg­vins glímir við fíkni­sjúk­dóm og eftir að hafa gengið út af Vogi í miklu ójafn­vægi var hún á göt­unni í þrjá daga. Þaðan end­aði hún á bráða­mót­töku vegna ofkæl­ingar og leit­aði þá á geð­deild. Geð­læknir mat sem svo að hún yrði ekki lengur inni á geð­deild en í tvo til þrjá daga, engin úrræði bíða hennar að þeim tíma loknum. Þess má geta að á Land­spít­ala starfar svo kölluð fíknig­eð­deild sem aðstoðar fólk með fíkni­vanda, þó er oft fullt þar eins og í öðrum úrræðum fyrir þennan hóp fólks.

Björgvin seg­ist hafa hringt í flestar með­ferð­ar­stofn­anir lands­ins en þær séu allar fullar. „Þetta er ákall um breyt­ingar. Nú skilur fólk kannski betur hvaðan ég kem þegar ég tala um jöfn tæki­færi og að grípa börnin okkar.“

Björgvin segir frá hörmu­legri reynslu þeirra systk­ina þegar móðir þeirra reyndi að taka eigið líf en hún glímdi einnig við alka­hól­isma og önnur geð­ræn vanda­mál.

„Mamma mín hefur alltaf gert sitt besta, en það besta var hrein­lega ekki nóg þar sem að hún fékk heldur ekki bestu spilin á hend­urnar og ef að kerfið hefur brugð­ist ein­hverjum þá er það henni. Saga mömmu er ótæm­andi áfalla­saga sem fáir geta ímyndað sér hvernig lítur út en ég tal­aði aðeins um hennar sögu í bók­inni minni.

Það tók mig því miður æði langan tíma að fyr­ir­gefa henni sjálfs­vígstil­raun­irnar og með hverri til­raun fjar­lægð­umst við hvort annað frekar. Það var ekki fyrr en löngu síðar að ég náði að skilja hennar sögu betur. Mamma mín hefur, fyrir utan að eiga við þung­lyndi, kvíða, félags­fælni og alkó­hól­isma að stríða, gengið í gegnum það að missa einn unnusta í vinnu­slysi og annan úr krabba­meini og lífið hefur á köflum reynst henni afar erfitt.

Að auki er mamma búinn að vera í fjár­hagsvænd­ræðum frá því ég kom í heim­inn, reynt að vinna sig út úr þeim með því að leggja alltof mikið sig, keyrt sig oft í kaf, set sig í 2. sæti og á sama tíma verið að reyna að ná utan um lífið og fjöl­skyld­una sína. Ég kenni mömmu ekki um neitt.

Ég er bara þakk­látur fyrir að mamma sé á lífi og sé ennþá til staðar fyrir barna­börnin sín. Ég trúi því líka að með því að tala um þessi mál öll svona opin­skátt sé ég að hjálpa öðrum í svip­aðri stöðu og eins að hjálpa mömmu með að díla við for­tíð­ina. Ég er löngu búinn að fyr­ir­gefa henni fyrir sín mis­tök. Án mömmu og án hennar sögu væri ég bara ein­hver hand­bolta­kall sem væri löngu hættur að reyna að berj­ast fyrir því að bæta þetta kerfi sem við lifum öll í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð