Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Magnús S. Kristinsson ók til Póllands með hjálpargögn: „Ein úkraínsk flóttakona grét alla leiðina“

Magnús S. Kristinsson ók til Póllands með hjálpargögn: „Ein úkraínsk flóttakona grét alla leiðina“
Magnús S. Krist­ins­son

„Þegar stríðið hófst í Úkraínu þá hugs­aði ég með mér að það hlyti að vera eitt­hvað sem maður gæti gert,“ segir Magnús S. Krist­ins­son sem hefur verið búsettur í Svíþjóð í 12 ár en kemur heim með ferj­unni Norröna, eða Norrænu, í næstu viku þar sem hann ætlar að flytja heim. Hann segir að hann og vinnu­fé­lagi hans, Bo Rundberg, hafi haft sam­band við Rauða kross­inn í Svíþjóð og spurt hvort þeir gætu ekki gert eitt­hvað til hjálpar en að svarið hafi verið að þeir gætu gefið pen­ing til hjálp­ar­starfs­ins en þeir vildu gera eitt­hvað sjálfir. Þeir vinna hjá rútu­fyr­ir­tæki og stakk Bosse, vinnu­fé­lagi hans, upp á því að fá rútu til að aka til Póllands og hjálpa þannig. „Við fórum til for­stjór­ans og spurðum hvort við fengjum rútu án þess að borga fyrir hana. Hann sagði svo vera en að við yrðum sjálfir að borga elds­neytið auk þess sem hann sagði að við mættum ekki fara yfir landa­mæri Úkraínu vegna þess að þá væri rútan ekki tryggð lengur.“

Félag­arnir til­kynntu á Facebook-síðum sínum um verk­efnið sem fram undan var og skrif­uðu að ef ein­hverjir vildu hjálpa þá væri það vel­komið. „Ég hefði aldrei getað ímyndað mér eða trúað þessum við­brögðum sem við fengum. Það var fullt af fólki sem gaf pen­inga; það gáfu engir stórar upp­hæðir en þetta voru aðal­lega 500 og 1.000 krónur íslenskar en nokkrir gáfu 5.000 krónur og það voru stærstu gjaf­irnar.“

Þeir komumst í sam­band við fólk í Póllandi og í þeim hópi er kaþ­ólskur prestur sem hafði unnið í mörg ár í tengslum við flótta­menn og hæl­is­leit­endur sem komu til Póllands. „Við fengum að vita hvað það væri sem fólk þyrfti mest á að halda og það voru til dæmis svefn­pokar, teppi, skyndi­matur sem þurfti ekki að elda, kló­sett­pappír, bleiur og dömu­bindi. Og margir gáfu þessa hluti  auk þess sem sumt var þetta keypti fyrir pen­ing­inn sem safn­að­ist.“

Sænski prest­ur­inn og pólski, kaþ­ólski prest­ur­inn.

Félag­arnir tveir og sænskur prestur sem er sér­fræð­ingur í áfalla­hjálp lögðu síðan af stað síð­ast­lið­inn föstu­dags­morgun á rút­unni og drógu á eftir sér kerru sem var full af vörum en kerran tekur eitt og hálft tonn auk þess sem ýmsar vörur voru geymdar aft­ast í rút­unni og í far­ang­urs­rými hennar. Eftir keyrslu og ferð með ferju var komið til Póllands á laug­ar­dag­inn og í Gdansk var náð í barna­lækni sem slóst í hóp­inn og síðan var ekið til Lublin sem er nálægt úkra­ínsku landa­mær­unum.

Við tókum fimm fjöl­skyldur með okkur.

„Við tæmdum allt dótið inn í vöru­geymslu sem prest­ur­inn er með og tókum síðan fimm fjöl­skyldur með okkur og keyrðum af stað til baka um mið­nætti aðfara­nótt laug­ar­dags.“

Grét alla leið­ina

Magnús segir að það hafi verið fyrir milli­göngu pólska prests­ins hvaða úkra­ínsku flótta­menn fóru með rút­unni til Sví­þjóðar og bendir hann á þá að stað­reynd að hund­ruð þús­unda flótta­manna séu í Lublin og halda þeir til meðal ann­ars á heim­ilum, skólum og íþrótta­húsum.

„Þeir sem vildu fara með okkur var til dæmis fjöl­skylda þar sem konan var í hjóla­stól og urðum við að bera hana inn í rút­una. Ein úkra­ínsk flótta­kona grét alla leið­ina; mað­ur­inn hennar var í Úkraínu en hún vissi ekki hvar hann var. Hún var með fimm til sex ára strák og eina ung­lings­stelpu með sér. Svo voru þrjár aðrar fjöl­skyldur.“

Þögn.

Sumir fóru með starfs­fólki útlend­inga­stofn­unar.

„Við sáum um að keyra þau og sáum um að gefa þeim að borða og þau fengu allt sem þau þurftu um borð í ferj­unni. Sumir áttu ætt­ingja í Svíþjóð sem náðu í þau þegar ferjan kom að landi í Karl­skrona og sumir fóru með starfs­fólki útlend­inga­stofn­unar. Ein fjöl­skylda fór með okkur alla leið til Gauta­borgar; þessi kona í hjóla­stólnum og fjöl­skylda hennar.“

Félag­arnir óku svo rút­unni inn á bíla­stæði rútu­fyr­ir­tæk­is­ins og voru búnir að þrífa hana um klukkan fjögur aðfara­nótt síð­ast­lið­ins mánu­dags. „Ég svaf allan gær­dag­inn,“ segir Magnús en við­talið var tekið á þriðju­dag­inn.

Þetta grípur alla

Magnús seg­ist hafa orðið var við hvað Pól­verjar séu sam­stíga í að hjálpa úkra­ínskum flótta­mönnum. „Við upp­lifðum það alls staðar þar sem við komum og alls staðar þar sem maður þekkir fólk. Þetta grípur alla. Þetta hefur áhrif á alla. Ég held að fólk hugsi öðru­vísi vegna þessa stríðs. Ég held að Pól­verjar hugsi með sér að ef Pútín vinni þetta stríð þá gætu þeir orðið næstir.“

Magnús tal­aði ekki mikið við flótta­menn­ina á leið­inni en þó eitt­hvað í ferj­unni. „Ég upp­lifði ekki von­leysi hjá fólk­inu; það var eins og það hefði ekki misst trúna. Það var ofsa­lega þakk­látt fyrir hjálp­ina. Það var ein­hver gleði í því. Þetta fólk lenti í aðstæðum sem það ræður ekki við og reynir að gera sitt besta í þeim aðstæðum.“

Að hjálpa henni á betri stað í bili alla­vega.

Magnús segir að það sem sitji í sér eftir þessa ferð sé konan sem grét svo mikið. „Það situr í mér að fá að taka utan um hana og hjálpa henni út úr þessum aðstæðum; ekki bara ég heldur allir sem voru með mér í ferð­inni. Að hjálpa henni á betri stað í bili alla­vega. Og líka að sjá barnið hennar fimm eða sex ára; dreng­ur­inn var mjög lok­aður í byrjun en rétt áður en við komum í land í ferj­unni þá var hann far­inn að leika sér. Og konan var farin að brosa í rest­ina. Það hafði dýpstu áhrifin á mig að sjá venju­legt fólk lenda í aðstæðum sem það hefur ekk­ert um að segja.“

Misstu allt

Magnús flutti til Sví­þjóðar eftir banka­hrunið en hann segir að hann og þáver­andi eig­in­kona hans hafi misst allt í hrun­inu.

„Ég hafði starfað sem sölu­maður og síðar fast­eigna­sali og var í því starfi þegar hrunið varð. Við bjuggum í 300 fer­metra rað­húsi og áttum 20-30 millj­ónir í því og það hvarf allt á einni nóttu. Og ég missti vinn­una. Það tekur allt stolt í burtu að vera fast­eigna­sali sem þén­aði upp undir eina og hálfa milljón á mán­uði og næsta mánuð má segja að ég hafi ekki átt mat handa börn­unum og þurfti að standa í röð hjá Hjálp­ar­stofnun kirkj­unnar og Mæðra­styrks­nefnd til að fá mat og svo jóla­gjafir fyrir jólin til að geta gefið börn­unum. Þetta tók í burtu allt sem heitir stolt og sjálfs­virð­ing; að neyð­ast til að fara þessa leið og biðja um hjálp. Það er eitt­hvað sem ég hafði aldrei gert í lífi mínu áður. Ég varð að fara þessa leið til að börnin mín hefðu mat og fjöl­skyldan hefði eitt­hvað til að lifa af. Á Íslandi hefur maður alltaf ein­hvern ein­hvers staðar en ég vildi ekki tala við fullt af fólki í von um aðstoð; mér leið nógu illa yfir ástand­inu eins og það var. Við fengum svo leigu­í­búð og náðum að halda henni áður en við fluttum svo til Sví­þjóðar.“

Magnús segir að þetta sé það erf­ið­asta sem hann hefur gengið í gegnum fyrir utan það þegar hjónin skildu fyrir tveimur árum síðan.

Það sem hjálp­aði mér mest var að ég brotn­aði niður og byrj­aði að gráta.

„Skiln­aður er eitt­hvað sem ég óska engum að ganga í gegnum en því miður ganga allt of margir í gegnum skilnað. Það sem hafði mest áhrif og sem hjálp­aði mér mest var að ég brotn­aði niður og byrj­aði að gráta. Það er eitt­hvað sem ég hafði ekki gert frá því ég var 15 ára gam­all. Og það í raun og veru kom mér í gegnum þetta. Og gerði mig heilan aftur.“

Hann segir að trúin á Guð hafi líka hjálpað sér. „Það var í raun og veru þessi grátur og að hafa Guð og einn eða tvo vini sína til að tala við og ræða við í gegnum allt þetta ferli.“

Örin

Og við bökkum enn lengra aftur í tíma. Svo langt aftur í tíma að allt í einu er Magnús tæp­lega 13 ára að drekka fyrsta sopann. Fyrsta brenni­víns­sopann. Honum þótti sop­inn svo góður að þeir Bakkus urðu félagar í tæpan ára­tug – en þótt honum fynd­ist sop­inn góður þá var það þó reyndar ekki bragðið sem heill­aði. Þetta bragð var beiskt.

„Ég var greindur með ADHD á full­orð­ins­árum. Áfengið róaði mig en ég not­aði alltaf áfengi og eit­ur­lyf sem flótta­leið frá sjálfum mér. Ég var alltaf á flótta frá líf­inu og áfengi og eit­ur­lyf gerðu mér kleift að flýja. Mér fannst áfengi aldrei vera gott á bragðið en það hjálp­aði mér hins vegar að flýja.“

Ég gerði fimm sjálfs­morð­stil­raunir.

Hvað var það versta sem hann upp­lifði á neyslu­tíma­bil­inu?

„Ég gerði fimm sjálfs­morð­stil­raunir og er ennþá með öll merki á hönd­unum. Ég er skor­inn alls staðar; það er eitt­hvað sem ég ber með mér alla ævi. Þessi ör. Svo voru það inn­brot og þjófn­aðir og annað sem fylgdi þessu. Margir þeirra sem ég drakk með eru dánir. Fullur var ég lengst í rúma tvo mán­uði í einu. Ég skað­aði aldrei aðra lík­am­lega en örugg­lega and­lega og sál­ar­lega. En lík­am­lega meiddi ég aldrei neinn svo ég muni alla­vega.“

Svo fór Magnús í með­ferð 22 ára gam­all. „Ég var númer 25 á Stað­ar­felli.“ Hann var 25. alkó­hólist­inn sem fór þar í með­ferð eftir að stað­ur­inn var opn­aður. „Ég kláraði ekki alveg með­ferð­ina af því að ég þurfti að fara á sjó­inn og það var veð­mál um hversu lengi þessi drengur yrði edrú. Hvort ég myndi ná viku. Það er bara einn annar og ég sem eru edrú af þess­ari grúppu,“ segir Magnús sem hefur ekki drukkið dropa síðan en hins vegar migið oft í saltan sjó.

Hvað hjálp­aði honum til að losna við Bakkus úr lífi sínu án þess að klára með­ferð­ina þar sem hafið bláa hafið kall­aði?

„AA sam­tökin hjálp­uðu. Ég stund­aði þau mikið. Ég vissi að ég fengi ekki annað tæki­færi ef ég dytti í það. Menn voru að deyja í kringum mig sem voru að drekka með mér og ég vissi að ég hefði ekk­ert ótak­markað þol til að drekka og ég vissi líka að ein­hvern veg­inn var ég far­inn að vera þannig að ég var far­inn að reyna að fremja sjálfs­morð þegar ég datt í það. Ég var líka að eyði­leggja líf ann­arra í kringum mig.“

Trúboð

Hann sem er þak­inn örum á hand­leggj­unum er með kross um háls­inn. Svolítið stóran kross.

„Ég trúi á Guð. Ég trúi á Jesú. Það byrj­aði eftir að ég frels­að­ist; 12 árum eftir að ég fór í AA sam­tökin. Ég hef verið á þess­ari göngu síðan. Fyrir Covid fór ég með félaga mínum þrisvar til fjórum sinnum á ári í um fjögur ár til Afríku til að vera í trú­boði. Þetta fólst mest í að kenna fólk­inu að gera hlut­ina sjálft; ekki gefa því bara pen­inga og hjálpa því þannig. Ég gaf til dæmis einum manni gítar og í dag á hann stúdíó og er kom­inn með íbúð bara af því að hann á hljóð­færi sem hann getur spilað á og fengið vinnu út af. Það þarf oft svo lítið til að hjálpa.“

Magnús segir að hann og félagi sinn hafi farið til Afríku á eigin vegum og að á tíma­bili hafi allur hans pen­ingur farið í þessa ferðir. Hvers vegna?

„Það er ein­hver þrá eftir því að sjá fólk vaxa og líða vel. Mig langar til að sjá fólk vaxa. Það er það eina.“

Úganda. Kenía. Sambía. Rúanda. Suður-Afríka.

Hvað stendur upp úr í þessum ferðum?

„Þessi ein­læga gleði fólks­ins. Mér líður vel þegar ég sé að fólki í kringum mig líður vel. Það var sönn gleði á flestum þessum stöðum.“

Hvað er Guð í augum Magnúsar sem ber stóran kross um háls­inn?

„Fyrir mér er Guð allt. Guð er kær­leik­ur­inn. Númer eitt er hann kær­leikur. Einhver sem elskar mig og þig framar öllu öðru.“

Jú, Magnús S. Krist­ins­son kemur til Íslands í næstu viku með Norröna. Norrænu. Hann mun búa í for­stofu­her­bergi heima hjá vina­fólki sínu þangað til hann finnur hús­næði og hann er ekki búinn að fá vinnu; hann sem vann sem stræt­is­vagna­bíl­stjóri í Svíþjóð og síðar sem yfir­maður hjá rútu­fyr­ir­tæki nefnir að hann muni tala við rútu­fyr­ir­tæki á Íslandi.

Mér finnst ég vera að gera rétt.

Hvernig er til­finn­ingin að vera að fara að flytja heim eftir 12 ár? „Hún er æðis­leg. Ég er rosa­lega glaður yfir því að vera að koma heim. Mér finnst ég vera að gera rétt. Mér finnst þetta vera rétta skrefið.“

Hann er spurður hvort hann hefði áhuga á að aðstoða flótta­menn frá Úkraínu sem koma til Íslands. „Já, ef það væri í boði. Ég hef alltaf áhuga á að hjálpa fólki. Og vinna með fólki. Mér þykir vera gaman að hjálpa öðrum ef ég get það. Hvort það geri mig að góðum manni eða ekki veit ég ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð