Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Framboðsskortur á húsnæði alvarlegur: „Ég held að þessar hertu kröfur hafi lítil áhrif á markaðinn“

Framboðsskortur á húsnæði alvarlegur: „Ég held að þessar hertu kröfur hafi lítil áhrif á markaðinn“
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Efa­semdir eru um hvort hertar kröfur Seðla­banka Íslands um veð­setn­ingu og greiðslu­byrði lán­taka muni hafa afger­andi áhrif á þróun fast­eigna­verðs, þetta kemur í grein Innherja. Í grein­inni er bent á að heim­ilin geti hæg­lega breytt lána­formi úr óverð­tryggðu í verð­tryggt til að minnka greiðslu­byrð­ina og þannig dregið úr til­ætl­aðri virkni aðgerð­anna. Auk þess sé fram­boðs­skortur á hús­næði svo alvar­legur að hertar kröfur dugi skammt.

„Ég held að þessar hertu kröfur hafi lítil áhrif á mark­að­inn á meðan það eru svona fáar eignir í boði. Þegar 20 manns slást um sömu íbúð­ina þá skiptir minna máli þótt nokkrir upp­fylli ekki kröf­urnar. Framboð er stærsta vanda­málið,“ segir Óskar Rúnar Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri fast­eigna­söl­unnar Miklu­borgar í sam­tali við Þorstein Friðrik Hall­dórs­son.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í fyrra að beita tveimur þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum í því skyni að koma böndum á miklar hækk­anir fast­eigna­verðs. Nefndin tók þannig ákvörðun á fundi sínum í júní um að lækka hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls fyrir aðra en fyrstu kaup­endur úr 85 pró­sentum niður í 80 pró­sent.

Að auki kynnti nefndin nýjar reglur um hámark greiðslu­byrðar í hlut­falli við ráð­stöf­un­ar­tekjur neyt­enda sem tóku gildi 1. des­em­ber. Er hámarkið 35 pró­sent fyrir almennar lán­veit­ingar og 40 pró­sent fyrir kaup­endur fyrstu fast­eignar.

Þensla á húsnæðismarkaði

Ekkert lát er á áfram­hald­andi þenslu á hús­næð­is­mark­aði og sam­kvæmt nýj­ustu tölum hefur fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 22,5 pró­sent síð­asta árið.

Erna Björg Sverr­is­dóttir, aðal­hag­fræð­ingur Arion banka, segir að það hafi komið sér á óvart hversu litla athygli hús­næð­is­mark­að­ur­inn fékk á kynn­ing­ar­fundi fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar í síð­ustu viku.

„Ég ótt­ast hins vegar,“ bætir hún við, „að Seðla­bank­inn sé full bjart­sýnn í við­horfi sínu til mark­að­ar­ins og að núver­andi aðgerðir og aðhalds­stig geri lítið til að koma böndum á þró­un­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð